Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Side 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002 Sport i Framleiðendurnir afhuga Formúlu 1 Njáll Gutinlaugsson umsjónarmaöur DV-bíla Samanburður á þátttöku framleið- enda í WRC rallinu og Formúlu 1 Heimsmeistarakeppnin í ralli (WRC) Bílaframleiðendur líta á mótor- sport sem mjög góða aðferð til að byggja upp nafn merkis og til að selja þeim sem hafa gaman af mót- orsporti bíla. Efst á þessum lista hefur Formúla 1 trónað með glæsi- legum keppnum sínum frá Mónakó til Malasíu. Það dylst þó engum sem fylgist eitthvað með mótorsporti að For- múlan hefur dalað mikið að undan- förnu. Himinhár kostnaður hefur sett sum minni liðin á hausinn og Ferrari er svo ósigrandi að margir hafa einfaldlega slökkt á sjónvarps- tækjunum sinum. Á meðan er heimsmeistara- keppnin í ralli í mikilli uppsveiflu. Áhangendur þeirrar keppni horfa ekki bara á sjónvarpsútsendingar heldur fara þeir mikið á keppnir þar sem þeir geta horft á bíla, sem líkjast mjög framleiðslubílum, keppa við klukkuna. Góður árangur Peugeot „Það var ódýrara fyrir okkur að verða heimsmeistarar í ralli heldur en að fá fáein stig í formúlunni og það á þeim tíma þegar við sköffuð- um aðeins vélar,“ segir Corrado Provera, framkvæmdastjóri mótor- sportdeildar Peugeot. „Við fengum einfaldlega lítið fyr- ir okkar snúð í formúlunni." Peu- geot yfirgaf formúluna árið 1999 til að hefja aftur keppni í ralli. Síðan þá hefur Peugeot hampað heims- meistaratitlinum tvisvar með 206 bíl sínum. Peugeot náði aldrei tilætluðum árangri í Formúlu 1, þrátt fyrir 180 manna tæknilið og milljarða kostn- að. Ralilið Peugeot hefur 160 tækni- menn á sínum snærum. Mótor- sportlið gefa aldrei upp kostnað sinn opinberlega en samkvæmt áætlun frá Alþjóðlega mótorsport- sambandinu, sem rekur WRC- heimsmeistarakeppnina, eyða flest rall-lið yfir fjórum milljörðum króna á ári. Meiri kostnaður í Formúlu 1 Árið 2002 tóku Ford, Citroén, Hyundai, Skoda, Mitsubishi, Subaru og Peugeot öll þátt i heims- meistarakeppninni í ralli með þremur bilum hver. Talið er að heimsmeistaratitiflinn hafi kostað Peugeot um sex mifljarða króna, segir einn höfuðandstæðingur Peu- geot. „Við vitum hverju við höfum eytt sjálfir og hvað þarf til að vinna.“ Þótt þetta hljómi eins og mikið er þetta samt mun ódýrara en þátttaka í Formúlu 1. Samkvæmt tölum úr innsta hring kostar keppnistímabil- ið 10 milljarða fyrir Mercedes-Benz og aflt að 25 milljarða fyrir Renault og Ferrari. Þótt ekki sé vitað um það með vissu er áætlað að þriggja ára kostnaður Toyota við að koma með sinn eigin bíl í Formúlu 1 hafi numið 35 milljörðum. Rallbilar líkj- ast mjög framleiðslubílum en eru hátæknivæddar útgáfur þeirra með yflr 300 hestafla vélum og fjórhjóla- drifi. Eftir hvert keppnistímabil selur Peugeot keppnisbila sína til einka- aðila fyrir um 43 milljónir hvem. RalUiðin hafa einnig styrktaraðfla eins og formúluliðin þó að þeir kosti ekki eins miklu til og I for- múlunni. Lélegur árangur Jagúar „Við munum taka af krafti þátt í Formúlu 1,“ sagði Shuhei Toyoda, forstjóri Toyota i Evrópu, fýrr á þessu ári. Toyota áætlar að ná um- talsverðum árangri i sportinu strax á næsta ári, öðru þátttökuári sínu í formúlunni. Jafnvel framleiðendur sem aðeins skaffa vélar til formúlu- liða eyða hátt 110 milljörðum á ári. Aðeins þau sem eru tengd stóru lið- unum, Ferrari, McLaren-Mercedes- Benz og Williams-BMW geta átt von á því að vinna keppnir. Þrátt fyrir mikinn kostnað og stóra drauma hafa sum lið farið flatt á þátttöku og er Jagúar-liðið eitt besta dæmið um það. Á þessu ári náði Jagúar aðeins sjöunda sæti með átta stigum. Algengustu sjónvarpsskotin af liðinu voru af bilunum bílanna og ökumönnum sem voru að klifra upp úr rjúkandi bílum sínum. í slð- asta mánuði rak Ford Niki Lauda sem keppnisstjóra Jaguar Motor- sports. Sportleg ímynd formúlunnar „Vandamálið við Formúlu 1 er færsla ímyndarinnar og tækni for- múlubílanna yfir á hefðbundna framleiðslubíla," segir John Jullens hjá BBDO ráðgjafafyrirtækinu I Munchen. „Auk þess er hún rosa- lega dýr líka.“ Framleiðendur sem taka þátt í Formúlu 1 segja að þátt- taka þar auki tilfinningu fólks fyrir merkinu. „Flestir framleiðendur, sem taka þátt í Formúlu 1, eru þegar vel þekktir svo að þeir eru aðeins að bæta við ímynd sína,“ segir Jul- lens. Þátttaka er skynsamleg fyrir lið eins og Ferrari, BMW og Mercedes-Benz vegna þess að þau merki eru tengd við hraðskreiða og sportlega bíla. Toyota á hinn bóg- inn gæti grætt á þátttöku sinni en þá verður liðið líka að standa sig,“ segir Jullens enn fremur. Mikiö áhorf fyrirsjáanlegt Sjónvarpsáhorf á Formúlu 1 er stjarnfræðilegt. Á þessu ári var samansafnað áhorf á einhverja af Formúlu 1 keppnunum 3 milljarðar áhorfenda. Það þarf aðeins eitt for- múlulið til að ná þessu áhorfi á móti mörgum í fótbolta, sem dæmi,“ segir Jullens einnig. Um 500 milljónir áhorfenda voru á 14 heimsmeistarakeppnir í rafli og á þessu ári jókst áhorf á fyrstu fjórar keppnimar um 12%. Einnig jókst sýningartími á hverri keppni um 43 mínútur. „Við búumst við að sjónvarps- áhorf aukist um 50% á næstu fimm árum,“ segir Marc de Jong, stjóm- andi hjá Alþjóðlega Mótorsportsam- bandinu. „Á þessu ári sáum við aukningu um 500% í Bandaríkjun- um sem dæmi.“ Talið er að um 10 milljónir áhorf- enda hafl komið á keppnir I rallinu á þessu ári. Alþjóðlega Mótorsport- sambandið telur að 59% fullorðinna í heiminum viti af heimsmeistara- keppninni I rafli. í sumum löndum er hlutfallið hærra, 82% á Spáni og 70% í Bretlandi. Minni liöin græöa líka Peugeot 206 er mest seldi bíll I Evrópu og er vinsælt hjá ungu fólki sérstaklega. Síðan Peugeot hóf aftur þátttöku hefur meðalaldur kaup- enda 206 bílsins fariö niður úr 43 ára í 37 ára. Annað dæmi um góðan árangur er Subaru, sem ekki er litið á sem landbúnaðartæki lengur, heldur sportbílamerki af fyrstu gráðu. Skoda telur einnig að það hafi grætt mikið á þátttöku sinni I rallinu á síðustu ámm. „Þátttaka okkar hefur opnað fyr- ir okkur markaði í nýjum löndum eins og til dæmis Argentínu," segir Pavel Hortek, sölustjóri mótorsport- deildar Skoda Motorsport. Skoda hefur takmarkað sig við þátttöku sem kostar ekki meira en 2 milljarða króna á ári sem er hið lægsta af framleiðendum í keppn- inni. Það hefur notast við Skoda Oktavía sem er stærri og þyngri en flestir keppinautamir og árangiu-- inn þvi ekki verið umtalsverður. Það gæti þó breyst á næsta ári þeg- ar það hefur þátttöku með Skoda Fabia-smábílnum, bíl úr sama flokki og Peugeot 206. Það lítur því út fyrir að framleið- endur ætli að nota rallið til að koma smábílum og minni fjöl- skyldubílum á framfæri en talið er að Ford taki þátt með Fiesta-smá- bílnum árið 2004. París-Dakar keppnin vinsæl Mitsubishi er annað dæmi um farsæla þátttöku í rallinu, hefur unnið heimsmeistaratitilinn nokkrum sinnum og tekur þátt á tvennum vígstöðvum en hefur einnig tekið þátt I langferðaröllum eins og París-Dakar með góðum ár- angri. Mitsubishi mun þó sitja hjá á næsta ári en vegna mikil taps vegna dýrra innkallana ætlar liðið að taka sér stutt hlé en koma tvíeflt til leiks árið 2004 með nýjan bíl. Það hefur hannað nýja útgáfu af Pajero, sem er nokkurs konar blanda sport- bíls og jeppa, fyrir París-Dakar keppnina. Fleiri framleiöendur meö Volkswagen mun hefja þátttöku í Paris-Dakar á sama tíma með nýja Touareg-jeppanum en hefur þróað sérstaka útgáfu af honum er kaflast Tarek. Talið er að BMW hefji líka þátttöku árið 2004 með X5 og Porsche er ekki ólíklegur þátttak- andi heldur með nýja Porsche- Cayenne jeppann en Porsche hefur tvisvar unnið þessa margfrægu keppni. -Byggt á grein úr Automotive News Mitsubishi hefur náö góðum árangri í París-Dakar og fengið mikla um- fjöllun fyrir vikiö. Aðrir framleiöend- ur, eins og VW, BMW og hugsanlega Porsche, ætla sér að hefja þátttöku áður en langt um líður. Kostnadur lida: 2-6 milljarðar króna árlega. Sjónvarpsáhorf: 500 mifljónir sjónvarpsáhorf- enda á ári. Þátttakendur: Peugeot, Mitsubishi, Skoda, Ford, Hyundai, Subaru, Citroén. Formúla 1 Kostnaöur liöa: 6-25 mifljarðar króna árlega. Sjón varpsáhorf: 3 mifljarðar sjónvarpsáhorf- enda á ári. Þátttakendur: Ferrari, Mercedes-Benz, BMW, Jagúar, Renault, Honda, Toyota. Peugeot getur vel við unaö eftir að hafa fært sig úr Formúlu 1 í ralliö. Síðan hefur Peugeot tvisvar unnið heimsmeistaratitilinn og Peugeot 206 er mest seldi bíllinn í Evrópu. Ferrari eyðir stjarnfræðilegum upphæðum í Formúlu 1 og árangurinn er góöur, jafnvel of góður. Á meðan tapar Fiat- samsteypan, eigandi Ferrari-merkisins, og hefur þurft að segja upp þúsundum starfsmanna. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.