Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Síða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002
Sport
i
Framleiðendurnir
afhuga Formúlu 1
Njáll
Gutinlaugsson
umsjónarmaöur
DV-bíla
Samanburður á
þátttöku framleið-
enda í WRC rallinu
og Formúlu 1
Heimsmeistarakeppnin í
ralli (WRC)
Bílaframleiðendur líta á mótor-
sport sem mjög góða aðferð til að
byggja upp nafn merkis og til að
selja þeim sem hafa gaman af mót-
orsporti bíla. Efst á þessum lista
hefur Formúla 1 trónað með glæsi-
legum keppnum sínum frá Mónakó
til Malasíu.
Það dylst þó engum sem fylgist
eitthvað með mótorsporti að For-
múlan hefur dalað mikið að undan-
förnu. Himinhár kostnaður hefur
sett sum minni liðin á hausinn og
Ferrari er svo ósigrandi að margir
hafa einfaldlega slökkt á sjónvarps-
tækjunum sinum.
Á meðan er heimsmeistara-
keppnin í ralli í mikilli uppsveiflu.
Áhangendur þeirrar keppni horfa
ekki bara á sjónvarpsútsendingar
heldur fara þeir mikið á keppnir
þar sem þeir geta horft á bíla, sem
líkjast mjög framleiðslubílum,
keppa við klukkuna.
Góður árangur Peugeot
„Það var ódýrara fyrir okkur að
verða heimsmeistarar í ralli heldur
en að fá fáein stig í formúlunni og
það á þeim tíma þegar við sköffuð-
um aðeins vélar,“ segir Corrado
Provera, framkvæmdastjóri mótor-
sportdeildar Peugeot.
„Við fengum einfaldlega lítið fyr-
ir okkar snúð í formúlunni." Peu-
geot yfirgaf formúluna árið 1999 til
að hefja aftur keppni í ralli. Síðan
þá hefur Peugeot hampað heims-
meistaratitlinum tvisvar með 206
bíl sínum.
Peugeot náði aldrei tilætluðum
árangri í Formúlu 1, þrátt fyrir 180
manna tæknilið og milljarða kostn-
að. Ralilið Peugeot hefur 160 tækni-
menn á sínum snærum. Mótor-
sportlið gefa aldrei upp kostnað
sinn opinberlega en samkvæmt
áætlun frá Alþjóðlega mótorsport-
sambandinu, sem rekur WRC-
heimsmeistarakeppnina, eyða flest
rall-lið yfir fjórum milljörðum
króna á ári.
Meiri kostnaður í Formúlu 1
Árið 2002 tóku Ford, Citroén,
Hyundai, Skoda, Mitsubishi,
Subaru og Peugeot öll þátt i heims-
meistarakeppninni í ralli með
þremur bilum hver. Talið er að
heimsmeistaratitiflinn hafi kostað
Peugeot um sex mifljarða króna,
segir einn höfuðandstæðingur Peu-
geot.
„Við vitum hverju við höfum eytt
sjálfir og hvað þarf til að vinna.“
Þótt þetta hljómi eins og mikið er
þetta samt mun ódýrara en þátttaka
í Formúlu 1. Samkvæmt tölum úr
innsta hring kostar keppnistímabil-
ið 10 milljarða fyrir Mercedes-Benz
og aflt að 25 milljarða fyrir Renault
og Ferrari.
Þótt ekki sé vitað um það með
vissu er áætlað að þriggja ára
kostnaður Toyota við að koma með
sinn eigin bíl í Formúlu 1 hafi
numið 35 milljörðum. Rallbilar líkj-
ast mjög framleiðslubílum en eru
hátæknivæddar útgáfur þeirra með
yflr 300 hestafla vélum og fjórhjóla-
drifi.
Eftir hvert keppnistímabil selur
Peugeot keppnisbila sína til einka-
aðila fyrir um 43 milljónir hvem.
RalUiðin hafa einnig styrktaraðfla
eins og formúluliðin þó að þeir
kosti ekki eins miklu til og I for-
múlunni.
Lélegur árangur Jagúar
„Við munum taka af krafti þátt í
Formúlu 1,“ sagði Shuhei Toyoda,
forstjóri Toyota i Evrópu, fýrr á
þessu ári. Toyota áætlar að ná um-
talsverðum árangri i sportinu strax
á næsta ári, öðru þátttökuári sínu í
formúlunni. Jafnvel framleiðendur
sem aðeins skaffa vélar til formúlu-
liða eyða hátt 110 milljörðum á ári.
Aðeins þau sem eru tengd stóru lið-
unum, Ferrari, McLaren-Mercedes-
Benz og Williams-BMW geta átt von
á því að vinna keppnir.
Þrátt fyrir mikinn kostnað og
stóra drauma hafa sum lið farið
flatt á þátttöku og er Jagúar-liðið
eitt besta dæmið um það. Á þessu
ári náði Jagúar aðeins sjöunda sæti
með átta stigum.
Algengustu sjónvarpsskotin af
liðinu voru af bilunum bílanna og
ökumönnum sem voru að klifra
upp úr rjúkandi bílum sínum. í slð-
asta mánuði rak Ford Niki Lauda
sem keppnisstjóra Jaguar Motor-
sports.
Sportleg ímynd formúlunnar
„Vandamálið við Formúlu 1 er
færsla ímyndarinnar og tækni for-
múlubílanna yfir á hefðbundna
framleiðslubíla," segir John Jullens
hjá BBDO ráðgjafafyrirtækinu I
Munchen. „Auk þess er hún rosa-
lega dýr líka.“ Framleiðendur sem
taka þátt í Formúlu 1 segja að þátt-
taka þar auki tilfinningu fólks fyrir
merkinu.
„Flestir framleiðendur, sem taka
þátt í Formúlu 1, eru þegar vel
þekktir svo að þeir eru aðeins að
bæta við ímynd sína,“ segir Jul-
lens. Þátttaka er skynsamleg fyrir
lið eins og Ferrari, BMW og
Mercedes-Benz vegna þess að þau
merki eru tengd við hraðskreiða og
sportlega bíla. Toyota á hinn bóg-
inn gæti grætt á þátttöku sinni en
þá verður liðið líka að standa sig,“
segir Jullens enn fremur.
Mikiö áhorf fyrirsjáanlegt
Sjónvarpsáhorf á Formúlu 1 er
stjarnfræðilegt. Á þessu ári var
samansafnað áhorf á einhverja af
Formúlu 1 keppnunum 3 milljarðar
áhorfenda. Það þarf aðeins eitt for-
múlulið til að ná þessu áhorfi á
móti mörgum í fótbolta, sem
dæmi,“ segir Jullens einnig.
Um 500 milljónir áhorfenda voru
á 14 heimsmeistarakeppnir í rafli
og á þessu ári jókst áhorf á fyrstu
fjórar keppnimar um 12%. Einnig
jókst sýningartími á hverri keppni
um 43 mínútur.
„Við búumst við að sjónvarps-
áhorf aukist um 50% á næstu fimm
árum,“ segir Marc de Jong, stjóm-
andi hjá Alþjóðlega Mótorsportsam-
bandinu. „Á þessu ári sáum við
aukningu um 500% í Bandaríkjun-
um sem dæmi.“
Talið er að um 10 milljónir áhorf-
enda hafl komið á keppnir I rallinu
á þessu ári. Alþjóðlega Mótorsport-
sambandið telur að 59% fullorðinna
í heiminum viti af heimsmeistara-
keppninni I rafli. í sumum löndum
er hlutfallið hærra, 82% á Spáni og
70% í Bretlandi.
Minni liöin græöa líka
Peugeot 206 er mest seldi bíll I
Evrópu og er vinsælt hjá ungu fólki
sérstaklega. Síðan Peugeot hóf aftur
þátttöku hefur meðalaldur kaup-
enda 206 bílsins fariö niður úr 43
ára í 37 ára.
Annað dæmi um góðan árangur
er Subaru, sem ekki er litið á sem
landbúnaðartæki lengur, heldur
sportbílamerki af fyrstu gráðu.
Skoda telur einnig að það hafi grætt
mikið á þátttöku sinni I rallinu á
síðustu ámm.
„Þátttaka okkar hefur opnað fyr-
ir okkur markaði í nýjum löndum
eins og til dæmis Argentínu," segir
Pavel Hortek, sölustjóri mótorsport-
deildar Skoda Motorsport.
Skoda hefur takmarkað sig við
þátttöku sem kostar ekki meira en
2 milljarða króna á ári sem er hið
lægsta af framleiðendum í keppn-
inni. Það hefur notast við Skoda
Oktavía sem er stærri og þyngri en
flestir keppinautamir og árangiu--
inn þvi ekki verið umtalsverður.
Það gæti þó breyst á næsta ári þeg-
ar það hefur þátttöku með Skoda
Fabia-smábílnum, bíl úr sama
flokki og Peugeot 206.
Það lítur því út fyrir að framleið-
endur ætli að nota rallið til að
koma smábílum og minni fjöl-
skyldubílum á framfæri en talið er
að Ford taki þátt með Fiesta-smá-
bílnum árið 2004.
París-Dakar keppnin vinsæl
Mitsubishi er annað dæmi um
farsæla þátttöku í rallinu, hefur
unnið heimsmeistaratitilinn
nokkrum sinnum og tekur þátt á
tvennum vígstöðvum en hefur
einnig tekið þátt I langferðaröllum
eins og París-Dakar með góðum ár-
angri.
Mitsubishi mun þó sitja hjá á
næsta ári en vegna mikil taps
vegna dýrra innkallana ætlar liðið
að taka sér stutt hlé en koma tvíeflt
til leiks árið 2004 með nýjan bíl. Það
hefur hannað nýja útgáfu af Pajero,
sem er nokkurs konar blanda sport-
bíls og jeppa, fyrir París-Dakar
keppnina.
Fleiri framleiöendur meö
Volkswagen mun hefja þátttöku í
Paris-Dakar á sama tíma með nýja
Touareg-jeppanum en hefur þróað
sérstaka útgáfu af honum er kaflast
Tarek. Talið er að BMW hefji líka
þátttöku árið 2004 með X5 og
Porsche er ekki ólíklegur þátttak-
andi heldur með nýja Porsche-
Cayenne jeppann en Porsche hefur
tvisvar unnið þessa margfrægu
keppni.
-Byggt á grein úr Automotive
News
Mitsubishi hefur náö góðum árangri
í París-Dakar og fengið mikla um-
fjöllun fyrir vikiö. Aðrir framleiöend-
ur, eins og VW, BMW og hugsanlega
Porsche, ætla sér að hefja þátttöku
áður en langt um líður.
Kostnadur lida:
2-6 milljarðar króna árlega.
Sjónvarpsáhorf:
500 mifljónir sjónvarpsáhorf-
enda á ári.
Þátttakendur:
Peugeot,
Mitsubishi,
Skoda,
Ford,
Hyundai,
Subaru,
Citroén.
Formúla 1
Kostnaöur liöa:
6-25 mifljarðar króna árlega.
Sjón varpsáhorf:
3 mifljarðar sjónvarpsáhorf-
enda á ári.
Þátttakendur:
Ferrari,
Mercedes-Benz,
BMW,
Jagúar,
Renault,
Honda,
Toyota.
Peugeot getur vel við unaö eftir að hafa fært sig úr Formúlu 1 í ralliö. Síðan
hefur Peugeot tvisvar unnið heimsmeistaratitilinn og Peugeot 206 er mest
seldi bíllinn í Evrópu.
Ferrari eyðir stjarnfræðilegum upphæðum í Formúlu 1 og árangurinn er góöur, jafnvel of góður. Á meðan tapar Fiat-
samsteypan, eigandi Ferrari-merkisins, og hefur þurft að segja upp þúsundum starfsmanna. Reuters