Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2002, Qupperneq 29
ÞRIÐJUDAGUR 10. DESEMBER 2002
29
Sport
Fjórir leikir í NBA-deildinni í fyrrinótt:
Annar sigurleikur
Lakers á 3 dögum
LA Lakers vann sinn annan sigur á
þremur dögum þegar liöið lagði Utah
á heimavelli sínum, 110-101.
Lakersliðið virðist nú óðum vera að
komast í sitt fyrra form, eftir að
Shaguille O’Neiíl hóf að leika aftur
með því eftir meiðsli. Þeir Kobe
Bryant og Shaquille O’Neill voru sem
fyrr allt í öllu leik Lakers, en Shaq
skoraði alls 32 stig í leiknum, auk
þess sem hann tók ellefu fráköst. Kobe
Bryant gerði enn fremur 25 stig og
alls gaf hann 14 stoðsendingar. Lakers
hafði yfirhöndina allan tímann og
náði mest 20 stiga forskoti. Lakers er
nú í fimmta sæti í Kyrrahafsriðli vest-
urdeildar, en Utah í fjórða sæti mið-
vesturriðils sömu deildar.
Stórleikur Stephen Marbury kom
ekki í veg fyrir tap Pheonix gegn
Memphis, en alls gerði Marbury 35
stig í leiknum og gaf 7 stoðsendingar.
Lokatölur urðu 102-94, Memphis í vil.
Pau Gasol var atkvæðamestur í
Memphisliðinu en hann gerði 21 stig
og tók 17 fráköst. Þetta var aðeins
þriðji sigur Memphis í vetur, en liðið
situr á botni miðvesturriðUsins. Þetta
var hins vegar níundi ósigur Phoenix,
sem er í fjórða sæti í sama riðli.
Portland sigraði Toronto með 104
stigum gegn 91 stigi Toronto. Bonzi
WeUs var atkvæðamestur í liði
Portland með 29 stig og þá gerði Ras-
heed WaUace 20 stig og tók níu frá-
köst, aUt varnarfráköst. Vince Carter
var stigahæstur I liði Toronto með 25
stig og þá gerði Morris Peterson 22
stig. Portland er sem stendur í fjórða
sæti KyrrahafsriðUsins og var þetta
níundi sigur liðsins og annar sigurinn
í röð. Þetta var hins vegar 13 ósigur-
inn í röð hjá Toronto sem er í sjötta
sæti miðdeUdar AusturdeUdarinnar.
Sacramento, efsta lið Kyrrahafs-
deUdarinnar, hélt áfram sigurgöngu
sinni og vann sinn sjötta sigur í röð.
Fórnarlömbin nú voru leikmenn San
Antonio. Þeir Chris Webber og Jim
Jackson gerðu báðir 23 stig fyrir
Sacramento og þá tók Webber 13 frá-
köst. Tim Duncan skoraði 16 stig fyr-
ir San Antonio og tók 13 fráköst. Eins
og fyrr sagði er Sacramento á toppi
KyrrahafsdeUdarinnar en San Anton-
io er i þriðja sæti miðvesturriðUsins
með 12 sigra. -PS
HBA-DEILDIN
Úrslit í nótt
Boston-Orlando..........114-109
Pierce 30, Walker 28 (9 frák.), Delk 20
- McGrady 31 (9 frák.), MUler 29 (8
frák.), HiU 20 (14 frák., 7 stoös.).
Cleveland-Milwaukee . . .133-140
Davis 45, Ilgauskas 20, Parker 20 -
Cassell 39 (10 frák.), Redd 35, Ailen 28.
New Jersey-Phoenix ......106-93
Kidd 20, Jefferson 19, Rogers 18 -
Stoudemire 19, Marbury 16, Johnson 16.
New Orleans-LA CUppers . .90-94
Davis 33, Wesley 16, Mashbum 15 -
Brand 29, Miller 18, Richardson 16.
Denver-Minnesota............84-92
Howard 20 (7 frák.), Satterfield 15,
Posey 9 - Hudson 22, Gamett 20 (13
frák., 8 stoðs.), Nesterovic 12.
Kobe Bryant hjá LA Lakers og Paul
Pierce hjá Boston Celtics voru valdir
leikmenn vikunnar í Vestur- og Aust-
urdeUdinni. Pierce var með 26,7 stig,
7,7 fráköst, 5,7 stoðsendingar og 2,0
stolna bolta að meðaltali i þremur
leikjum með Boston en Bryant var
með 23,3 stig, 9,3 stoðsendingar, 7,0 frá-
köst og 2,5 stolna bolta að meðáltali í
fjórum leikjum með Lakers en þetta
var í annað sinn í vetur sem Bryant
hlaut þessa útnefningu. -ek/ÓÓJ
Bergur Emilsson, nú fyrrum þjalfari Vaismanna í körfuboltanum.
Valsmenn skipta um þjálfara í Intersportdeildinni í körfubolta:
Bergur rekinn
- Ágúst Björgvinsson tekur við og tveir nýir leikmenn eru á leiðinni
Bergi Emilssyni, sem þjálfað hefur
Val í Intersportdeildinni í körfuknatt-
leik, var í gærkvöld sagt upp sem
þjálfara liðsins og hefur stjórnað sín-
um síðasta leik í vetur.
Valur í mikilli fallhættu
Valsmenn sitja á botni Intersport-
deildarinnar með tvö stig ásamt
Skallagrími og eru í mikilli fallhættu.
Bergur var á sinu öðru ári með
Valsliðið en hann stjórnaði Val í 1.
deildinni síðasta vetur þegar liðið
tryggði sér sæti í efstu deild.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Vals
hefur ráðið eftirmann Bergs og mun
Ágúst Sigurður Björgvinsson stýra
liðinu það sem eftir er leiktíðar.
Ágúst hefur þjálfað yngri flokka hjá
Val síðustu ár og var m.a. aðstoðar-
þjálfari Péturs Guðmundssonar þegar
Valur og Fjölnir sendu sameiginlegt
lið til keppni.
2 Evrópuleikmenn á leiðinni
Ágúst var einnig aðstoðarþjálfari
Brynjars Karls Sigurðssonar hjá ÍA
veturinn 1999-2000. Þá er Ágúst starf-
andi unglingalandsliðsþjálfari
kvenna.
Valsmenn ætla greinilega að blása
til sóknar því þeir hafa samið við tvo
erlenda leikmenn sem eiga að styrkja
liðið eftir áramót. Því verða Vals-
menn með þrjá erlenda leikmenn eftir
áramót en fyrir er Bandaríkjamaður-
inn Laverne Smith.
Annar þeirra sem væntanlegir eru
heitir Barnaby Craddock en hann er
leikstjórnandi sem hefur leikið í Ir-
landi í vetur með Tralee Tigers.
Craddock er 185 cm á hæð og er á 32.
aldursári. Hann er frá Kanada en er
með enskt ríkisfang. Hann hefur leik-
ið í Þýskalandi, Hollandi, Portúgal,
Noregi og siðast Irlandi. Hann hefur
skorað 12,8 stig í leik í írsku deildinni
í vetur, gefið 6,3 stoðsendingar en tap-
að 4,7 boltum.
Hinn leikmaðurinn er framherji frá
Júgóslavíu og er vitað minna um
þann kappa eins og gengur og gerist
um leikmenn frá Júgóslavíu.
Næsti leikur Vals er á fimmtudag
þegar Stólamir koma í heimsókn og
verður.fyrsti leikur Ágústs við stjóm-
völinn. -Ben
Ágúst Siguröur Björgvinsson
mun stýra Valsliðinu þaö sem
eftir er leiktíðar en hann hefur
þjálfaö yngri flokka hjá Val síö-
ustu ár og var m.a. aðstoöar-
þjálfari Péturs Guömundssonar
þegar Valur og Fjölnir sendu
sameiginlegt lið til keppni.
Munið
að slökkva
á kertunum
Jólin eru hátíð
Ijóss og friðar.
Slökkvum á
öllum kertum í
lok vinnudags.
ó
Rauði kross íslands
-----------:.. —
/^ySLÖKKVILIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS