Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 Fréttir DV Stríð trommuleikara „Kyrkja-Köttinn“ við sýslumanninn á Ólafsfirði: Hótaði sviptingu skemmt- ana- og vínveitingaleyfis - ef strákurinn spilaði á staðnum, segir veitingamaður í Glaumbæ Hljómsveitin Kyrkja-Köttinn fær ekki aö spila á árshátiö vélsleöamanna á Ólafsfiröi þar sem trommarinn, Haukur Pálsson, hefur ekki aidur til aö spila, samkvæmt áliti sýslumanns. Á myndinni eru Bragi Óskarsson, sem spilar á gítar, Gísli Rúnar Gylfason, söngvari, Haukur Pálsson trommuleikari og Hjör- leifur Hjörleifsson gítarleikari. Á myndina vantar Ragnar Ingason bassaleikara og Guölaug Ingason hljómborösleikara. Bragi Óskarsson, meðlimur hljóm- sveitarinnar Kyrkja-Köttinn á Ólafs- firði, segir að sýslumaður hafi hótað Jakobi Agnarssyni, veitingamanni í Glaumbæ, að taka af honum skemmt- analeyfið ef hann héldi ball með hljómsveitinni annan í jólum. Jakob staðfesti þetta i samtali við DV í gær. „Hún hótaði því að svipta okkur skemmtana- og vínveitingaleyfi ef strákurinn spilaði á staðnum." „Við höfum tvisvar spilað í Böggveri á Dalvík án athugasemda sýslumannsins á Akureyri. Annað var upp á teningnum þegar við spiluðum í Glaumbæ. Þá barst umsvifalaust kæra til Jakobs varðandi Hauk Pál um að hann væri ólöglega þar inni. Það var hins vegar alrangt því að bæði pabbi hans og mamma voru þá inni á staðnum. Þegar lögreglan kom sá hún hvers kyns var og var kæran því felld niður,“ segir Bragi Óskars- son. Stangast á við álit lögmanns „í framhaldinu fór Jakob til sýslu- manns að athuga hvort ekki væri ör- uggt að fjöllistahópurinn Kyrkja-Kött- inn mætti spOa annan í jólum. Ástríð- ur sýslumaður svaraði þá bara með hreinu neii. Hún sagðist vera búin að ráðfæra sig við sýslumann á Akureyri og Barnaverndarstofu og vitnaði svo í lög um aðbúnað, hollustuhætti og ör- yggi á vinnustöðum. Samkvæmt því mætti Haukur ekki vinna á tímabil- inu milli 22 og 6 að morgni þar sem hann er ekki orðinn 18 ára. Það stend- ur hins vegar skýrt i lögunum að frá þessu megi víkja, m.a. þegar um er að ræða menningarmál og listir. Þá fór ég sjálfur og talaði við sýslu- manninn á Akureyri daginn eftir. Hann kannaðist ekkert við að hafa ráðfært sig við Ástríði. Kom þá í ljós að hún hafði ráðfært sig við sýslufull- trúa þótt hún segði mér annað. Þá fengum við álit Þorsteins Hjaltasonar lögfræðings. Hann komst að þeirri niðurstöðu að bannákvæði vinnu- verndarlaga, sem sýslumaður vísaði til, ætti ekki við í þessu tilfelli. (Lög- fræðingurinn, Þorsteinn Hjaltason á Akureyri, staðfesti þetta í samtali við DV í gær.) Með álit lögfræðingsins í höndum töldum við okkur vera í góð- um málum en sýslumaður var ekki tilbúinn að kyngja þvi. Hún neitaði að lesa bréf lögfræðingsins og bakkaði ekki heldur þótt ég segðist hafa veriö búin að fá álit Barnaverndarstofu sem sagði ekkert hægt að setja út að Hauk- ur spilaði ef foreldrar hans leyfðu það.“ Sýslumaður sagðist í gær ekki hafa séð þetta álit enda skipti það ekki máli þar sem þetta sneri að skemmtistaðnum en ekki umrædd- um dreng. Önnur lög á Ólafsfirði? Móðir Hauks trommuleikara, Þórhildur Þorsteinsdóttir, sagðist hafa farið í gær á fund sýslumanns vegna málsins. Sýslumaður hefði þar gefið greinargóð svör og lýst sínum sjónarmiðum. „Hún sagði að lögin væru svona og hún gæti ekki gefið undanþágu frá þeim. Ég sagði henni að mér fyndist skrýtið ef ann- að gilti t.d. í Reykjavík en á Ólafs- firði. Þá sagði hún að erfiðara gæti verið að fylgja slíkum málum eftir í Reykjavík og viö það yrðum við að búa.“ Þórhildur segir aö þar sem Hauk- ur sé búinn að læra á trommur styðji hún og faðir hans viðleitni stráksins við að þjálfa sig í trommuleik. Það sé því hart ef hann fái ekki tækifæri til þess á Ólafsfirði. Hún sagðist samt telja þau mjög ábyrga foreldra og aldrei hefði hvarflað að þeim að vísa honum til þeirrar iðju inn á vínveit- ingastaði án þeirra fylgdar. -HKr. Láttu okkur yfirfara videótækið tímanlega fyrir Einholti 2 • sími 552 3150 Panasonic LIÐ-AKTÍN 60 töflur DV-MYND SJÖ Austuriensk sveifla Um 120 manna kínversk sendinefnd er komin til íslands til aö kynna menningu sína og framleiöslu, þar á meöal vefnaö og klæöi. Hér sjást tvær kínverskar meyjar stíga dansinn í Borgarleikhúsinu í gær. Ein helsta orsökin fyrir launamisrétti kynjanna: Kynskiptur vinnumarkaður - segir Lára V. Júlíusdóttir hæstaréttarlögmaður LIÐ-AKTÍN Glucosamine & f Chondroitin 1 Góð fæðubót fyrir þá sem eru með mikið álag á Liðum ttúrulega Isuhúsið Skólavðrðustlg, Kringlunni 4 Smáratorgi „Ein helsta orsökin fyrir þessu launamisrétti er þessi kynskipti vinnu- markaður," sagði Lára Júlíusdóttir hrl. um niðurstöður nýrrar könnunar ESB á launum kynjanna. Niðurstööur sýndu, að launamunur karla og kvenna hér á landi er með því mesta sem þekk- ist og er allt að 39 prósent í tilteknum starfsstéttum í opinberum störfum miðað við greitt tímakaup. Á almenn- um vinnumarkaði hafa islenskir karlar allt að 27 prósent hærri laun en konur, en 16-27 prósent 1 öðrum löndum. Um er að ræða heildartölur, sem sýna ekki óútskýrðan launamun kynja, þar sem tekið hefur verið tillit til ýmissa áhrifa- þátta. Lára sagði að á vinnumarkaði hér væru mjög stórar stéttir kvenna og mjög stórar stéttir karla. Því héldist launamunurinn á nokkum veginn sama bili og erfitt væri að taka á hon- um. Þar sem hægt væri að taka á slík- um málum væri við aðstæður þar sem tveir einstaklingar ynnu hlið við hlið í sömu eða mjög líkum störfúm, hjá sama vinnuveitanda, og samanburður- inn yrði mjög augljós. Dómsmál vegna jafnréttis í launamálum væru því ekki mörg í gegnum tiðina. „Það fer engin kona í jafnréttismál sem er enn í sinni vinnu og ætlar að halda áfram að vera í henni," sagði Lára. „Þótt vemd sé í jafnréttislögum gegn því að konu sem leitar réttar síns sé vikið úr starfi er það samt sem áður svo að fari hún að gagnrýna vinnuveit- andann og draga í efa það réttlæti sem hún býr við þá er hún að ógna stöðu sinni.“ Lára sagði enn fremur að það ætti að vera auðveldara fyrir konur í opinber- um störfum að leita réttar síns heldur en væru þær á almennum vinnumark- aði. Á þeim vettvangi hlyti skýringin á launamuninum að ligga í kynbundnum vinnumarkaði og þeim duldu áhrifum sem hann hefði á laun. Mætti sem dæmi nefna fjölmennar stéttir háskóla- menntaðra karla, s.s. verkfræðinga, þar sem laun væm mjög há. Hins veg- ar væra kvennastéttir, eins og til dæm- is ljósmæður sem hefðu mikla mennt- un, en hefðu ekki laun í líkingu viö það. Loks mætti nefha launaleynd á vinnustöðum sem gerði samanburð á launum óframkvæmanlegan. -JSS Elín ráðin frétta- stjóri Sjónvarps Markús Öm Antonsson út- varpsstjóri hefur ráðið Elínu Hirst fréttastjóra Sjón- varpsins. Á þriðjudag mælti útvarpsráð með ráðningu Sigrlðar Ámadóttur, vara- fréttastjóra Út- Elín Hirst. varpsins, í stöðu fréttastjóra. Sigríður Árnadóttir hlaut 4 at- kvæði fulltrúa Samfylkingarinnar, VG og Framsóknarflokks en Elín Hirst hlaut 3 atkvæði Sjálfstæðis- flokksins auk þess að hafa á bak við sig stuðning Boga Ágústssonar, for- stöðumanns fréttasviðs Ríkisút- varpsins, sem taldi reynslu hennar og hæfni í starfi gera hana að hæf- asta umsækjandanum. Fleiri biðja um mat Mæðrastyrksnefnd leitar eftir auknum stuðningi fyrirtækja, starfs- mannafélaga og einstaklinga en óvenjumargar umsóknir um stuðning liggja nú fyrir hjá nefhdinni. Á síðasta ári úthlutaði nefndin styrkjum að verðmæti rúmlega 1,4 milljónir króna, en rekstrarkostnað- ur var einungis rúm 22 þúsund krón- ur. Úthlutað var td 83 heimila með 143 börn og unglinga. Meðalstyrkur var rúmar 17 þúsund krónur á heim- ili. Innflutningur minnkar Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka íslands var 2,6 millj- arða króna afgangur á viðskipta- jöfnuði við útlönd á fyrstu níu mán- uöum ársins samanborið við 36 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra. Miðað við fast gengi batnaði við- skiptajöfnuðurinn um rúmlega 38 miUjarða króna frá fyrra ári. Á þriðja ársfjórðungi var afgangurinn 4,1 milljarður króna samanborið við 6,7 milljarða króna halla á sama fjórðungi í fyrra. Léleg síldveiði Samkvæmt upplýsingum Samtaka fisk- vinnslustöðva hefur mestur síldarafli borist til Síldarvinnsl- unnar á Nes- kaupstað eða rétt 10.000 tonn. Næst kemur Skinney-Þinganes á Horna- firði með um 9.900 tonn. Hornfirsku bátamir Steinunn SF og Jóna Eð- valds SF hafa hætt síldveiðum og síldarleit og eru fáir bátar norð- austur af landinu við sildveiöar en þar er helst von til þess að síldin gefi sig. Alls er búið að veiða 56.000 tonn af 130.000 tonna kvóta og því óveidd enn um 74.000 tonn. Einar Má Guðmundsson. Skrýtin skáldaveisla Hin árlega Stjörnumessa í Grafarvogi verðm haldin á morgun en hún er að því leyti óvenjuleg að hún fer fram á bílaverkstæði Bílastjömunnar við Gylfaflöt. Fjöldi listamanna kemur fram á messunni með Grafarvogsskáldin í broddi fylkingar, þ.á m. Ara Trausta Guðmundsson, Eina'r Má Guðmunds- son, Kristínu Marju Baldursdóttur, Sigmund Erni Rúnarsson og Sigur- björgu Þrastardóttur. Auk þess munu Einar Kárason og KK troða upp ásamt Stebba og Eyfa. Kynnir verður séra Vigfús Þór Ámason, prestur í Grafarvogskirkju. Samkomunni lýkur með glæsilegri flugeldasýningu á vegum Flugeldaæv- intýrisins. GG/HKr/-aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.