Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Qupperneq 8
8
Fréttir
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
Munið
að slökkva
á kertunum
Munum eftir að
skipta um rafhlöður
f reykskynjurunum.
$ia/dO
{Uu
w
EINN EINN TVEiR
NEYÐARLlNAN
Ríkislögreglustjórinn
ORYGGISNET
œCMET
ÍÉL
l|| Rauði kross íslands
LÖGGILÐINGÁRSTOFA
fí'jT' SLÖKKVILIÐ
HÖFUÐBORGARSV/EÐISINS
H>V
Landsvirkjun og samstarfsaðilar
ítarlegt
tilboð
yfirfara tilboðin í Kárahnjúkamannvirkin:
og vandað
ítalanna
ítölsku töskurnar
Hér er Jóhann Kröyer, verkfræðingur og verkefnisstjóri fyrir mannvirkjagerð
Kárahnjúkavirkjunar, að störfum á skrifstofu Landsvirkjunar í gær og fer yfir
ítalska tilboðiö sem reyndist lægst, bæði í Kárahnjúkastiflu og aðrennslis-
göngin að henni. Tilboðið er mikið að vöxtum og fyitti þrjár ferðatöskur eins
og þá sem er á borði Jóhanns.
Tilboð I stærstu framkvæmd ís-
landssögunnar, Kárahnjúkavirkjun,
eru geymd á öruggum stað í húsa-
kynnum Landsvirkjunar við Háa-
leitisbraut í Reykjavík. Strax á
mánudag hófst vinna við að yfirfara
tilboð fyrirtækjanna sem er ekkert
áhlaupaverk. Alls tóku sex útlend
verktakafyrirtæki þátt í tilboðum
ásamt tveim íslenskum. Tilboðin
voru ijögur talsins og allir buðu
saman í grúppum nema ítalirnir
sem buðu einir og eru með langhag-
stæðasta verðið þangað tO annað
sannast sem þykir ótrúlegt. Fram
undan eru framkvæmdir sem kalla
til starfa hundruð manna í ýmsum
starfsstéttum.
Viðamikið tilboð ítalanna
Jóhann Kröyer verkfræðingur er
verkefnisstjóri mannvirkjagerðar-
innar eystra fyrir hönd Landsvirkj-
unar. Hann var i gær í önnum við
að skoða italska tilboðið sem var
afar viðamikið. Það barst til Lands-
virkjunar í þremur veglegum ferða-
töskum. Jóhann segir að fjölmargir
aðilar aðrir en Landsvirkjun komi
að skoðun tilboðanna og skipta
menn með sér verkum við þennan
mikla lestur tilboðsgagnanna og
nauðsynlega útreikninga.
Búast má við að menn myndi sér
sínar fyrstu skoðanir á tilboðunum
í þessari viku, en margar spuming-
ar vakna án efa og þarf þá að óska
skýringa á ýmsum atriðum.
„Þetta er ítarlegt og vandað til-
boð,“ sagði Jóhann Kröyer i gær.
Jóhann er reyndur í stórum verk-
tökum, bæði sem eigandi verktaka-
fyrirtækis erlendis og eins hér
heima, í Hrauneyjafossvirkjun að
ekki sé talað um lagningu Hvalijarð-
arganganna þegar hann vann hjá
ístaki.
í janúar má reikna með endan-
legri niðurstöðu Landsvirkjunar í
vali á verktaka eftir að öll gögn hafa
verið skoðuð niður í kjölinn og
gengið frá öllum vafaatriðum.
Enn eru nokkur „ef‘ varðandi
mannvirkjagerðina. í lok þessarar
viku munu fulltrúar Landsvirkjun-
ar og Alcoa setja upphafsstafi sína
undir samningana sem þýðir nánast
að ekki verði til baka snúið. Form-
legt samþykki stjómar Alcoa mun
hins vegar ekki liggja fyrir fyrr en
um miðjan janúar.
Vinnubúðir fyrir hundruð
manna
Jóhann Kröyer segir að fari allt
sem horfir verði byrjað á mann-
virkjagerðinni i mars-apríl á næsta
ári. Miklar undirbúningsfram-
kvæmdir hafa átt sér stað undanfar-
ið, vegagerð að svæðinu, brú yfir
Jöklu, og rafleiðsla lögð á svæðið
frá Skriðuklaustri, svo eitthvað sé
nefnt. í gær áttu fyrstu sprengingar
að eiga sér stað. Sprengd verða 700
metra aðkomugöng við Fremri
Kárahnjúk. Næsta vor verða vænt-
anlega „skornir púðar“ undir
vinnubúðir starfsmanna, en þær
verða á fleiri en einum stað, aðal-
búðirnar við Teigsbjarg.
Framkvæmdir sem fyrst verður
ráðist í, stíflan mikla og jarðgöng,
munu kosta 44 milljarða verði til-
boði ítalanna tekið. Á næsta ári
verða vélar virkjunarinnar boðnar
út og einnig þar er um gífurlega
fjármuni að tefla. -JBP
Heimaslátrun hefur farið vaxandi:
Um helmingur allra
gæra fluttar hráar út
- eykur vanda innlendra skinnaverksmiðja
Heimaslátrun hefur aukist nokkuð
hérlendis ef tillit er tekið til þess
fjölda gæra sem kemur til vinnslu
hjá sútunarverksmiðjunum Skinna-
iðnaði á Akureyri.og Loðskinni á
Sauðárkróki. Verksmiðjumar skort-
ir tilflnnanlega gærur til vinnslu,
bæði vegna þess að sláturleyfishafar
senda margir hverjir gærumar utan
til vinnslu vegna hagstæðara verðs á
þeim þar og eins er bannað að flytja
inn hráar gærur til vinnslu erlendis
frá.
Ormarr Örlygsson, framkvæmda-
stjóri Skinnaiðnaðar, segir að miðað
við innsendar gæmr hafi heimaslátr-
un eitthvað aukist en alls ekki sé um
neina sprengingu að ræða eins og
sumir fullyrði.
„Við höfum fram til þessa sýnt því
áhuga að kaupa verksmiðju Loðskinns
á Sauðárkróki, og hélt að heimamenn
hefðu ekkert um það að segja hver
keypti verksmiðjuna heldur bankinn,
en þeir hafa greinilega fengið betra
verð með því að semja við þá. Það væri
pláss fyrir bæði fyrirtækin ef allar gær-
ur sem falla til innanlands kæmu til
þessara sútunarverksmiðja, en því fer
fjarri. Ailmargir sláturleyfishafar sjá
hag sinn í því að selja gærumar til
útlanda," segir Ormarr.
Ágúst Andrésson hjá Kaupfélagi
Skagfirðinga segir að allar þeirra gær-
ur fari til vinnslu hjá Loðskinni en
hann telur að útflutningur sé alltaf að
aukast og um helmingur allra hrágæra
séu fluttar beint út, aðallega til Eng-
lands. Á hveiju hausti falla til um 560
þúsund gærur. Stærstu útflytjendumir
eru Sláturfélag Suðurlands, Sláturfélag
Austurlands, Sláturhús Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga og Ferskar afurð-
ir. Gísli Garðarsson hjá Sölufélagi
Austur-Húnvetninga á Blönduósi segir
félagið telja það siðferðilega skyldu að
að senda allar gærur til vinnslu innan-
lands hjá Loðskinni og Skinnaiðnaði,
alls um 59.000 gærur. Norðlenska send-
ir allar gærur, um 66.000 talsins, til
vinnslu hjá Skinnaiðnaði. -GG
Sígrænt eðaltré í hæsta gaeðaflokki frá
skátunum prýðir nú þúsundir íslenskra heimila
* 10 ára ábyrgð Eicftraust
12 stærðir, 90 - 500 cm Þarf ekió að vökva
Stáffotur fyfgir íslcnskar teiðbeiningar
h Ekkert barr að ryksuga Traustur soiuaðili
Trufter ekki stofublómin Skynsamieg flárfesting
1. viMI
SkAtamHMðMn Jirafsrbgskksi 2
Bandalag íslenskro skúta