Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 11
11 h FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 Útlönd Talið að al-Qaeda hafi komist yfir taugagas - upplýsingar um aö það hafi verið flutt um Tyrkland frá írak Vopnaeftirlitsmenn aö störfum í írak Á sama tíma og vopnaeftirlit stendur sem hæst í írak berast trúverðugar upplýsingar um það að ai-Qaeda-samtökin hafi komist yfir taugagas þaðan í síðasta mánuði eða í lok október. Scud-flaugar í felum Scud-flaugarnar í skipinu á leið til Jemens voru faldar undir sements- pokum og vilja Bandaríkjamenn fá að vita hvers vegna svo var. Jemenar lofa að Scud-flaugarnar fari ekki lengra Stjórnvöld í Jemen hafa fullviss- að ráðamenn í Washington um að Scud-flaugarnar frá Norður-Kóreu, sem fundust í skipi á Arabíuflóa, séu aðeins ætlaðar her landsins og að þær muni ekki fara lengra. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði fréttamönn- um að á grundvelli þessa hefðu Bandaríkjamenn ákveðið að leyfa skipinu að halda áfram ferð sinni með flaugamar fimmtán til Jemens. Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, sagði að Jemenar væru ekki að brjóta nein lög með því að taka á móti flaugunum frá Norður- Kóreu og þess vegna væri ekki hægt að leggja hald á farminn. í fyrstu óttuðust margir að flaug- arnar kynnu að lenda í höndum „hryðjuverkaþjóðar", eins og tals- maðurinn orðaði það. Scud-flaugarnar voru hannaðar í Sovétríkjunum sálugu og þær geta borið kjamorku-, efna- og sýkla- vopn, auk hefðbundinna sprengju- odda. Þær eru ónákvæmar en geta samt valdið miklu tjóni ef þær bera gjöreyðingarvopn. Bandariska dagblaðið Washing- ton Post hefur það eftir tveimur bandarískum embættismönnum að Bush-stjórninni hafa borist i hendur trúverðugar upplýsingar um að ís- lamskir öfgamenn tengdir al-Qaeda- samtökunum hafi komist yfir efna- vopn í írak, annaðhvort í síðasta mánuði eða í lok október. Um sé að ræða hættulegt taugagas og hafi þeim tekist að smygla því úr landi í gegnum Tyrkland. Að sögn blaðsins upplýstu em- bættismennirnir þetta án leyfis Hvíta hússins en vildu ekki til- greina hvaðan þær voru komnar. „Að okkar mati koma þær frá trú- verðugum aðilum," sagði annar embættismannanna en bætti við að venjulega væri ekkert mark takandi á 99% slíkra upplýsinga sem sífeflt væru að berast inn á borð stjórn- valda. „í þetta skiptið eru upp- lýsingamar þess eðlis að' við verð- um að taka þær alvarlega,“ sagði maðurinn. Haft er eftir embættismönnunum að harðlínusamtökin Asbat al-Ans- ar, herská samtök sunni-múslíma, sem aðsetur hafi í Líbanon, hafi staðið að flutningi taugagassins, en þau hafi nýlega komið sér upp bækistöðvum innan landamæra ír- aks í norðurhluta landsins. Samtökin munu vera í mjög nán- um tengslum við al-Qaeda-samtökin og leikur grunur á að þau hljóti fjárstuðning til aðgerða úr sjóðum Osama bin Ladens. Embættismennirnir sögðust þó ekki vita hvort efnin væru ætluð al- Qaeda-samtökunum eða hvort As- bat al-Ansar-samtökin hygðust nota þau sjálf. Reynist upplýsingarnar réttar er þetta í fyrsta skipti sem vitað er til þess að al-Qaeda-samtökin eða sam- starfsaðilar þeirra komist yflr önn- ur óhefðbundin vopn en blásýru og einnig fyrstu haldbæru sannanirnar sem styðja fullyrðingar Bush Bandaríkjaforseta um bein tengsl ír- aka og aðstoð við al-Qeda-samtökin. Gordon Johndroe, talsmaður hins nýja öryggismálaráðuneytis Banda- rikjanna, vildi lítið segja um málið en sagði þó að það væri litið alvar- legum augum þar sem vitað væri um áhuga al-Qaeda-samtakanna á að komast yfir gjöreyðingarvopn og þar á meðal efnavopn. Krókódílskjaftur. Beit krókódílinn í snoppuna 43 ára gamall Malawí-búi bjargaði sér úr krókódílskjafti með því að bíta óargadýrið í snoppuna. Maður- inn, sem heitir Mac Bosco Chawinga, hafði fengið sér sund- sprett í Malawí-vatni í norðurhluta Nkhata-héraðs til þess að kæla sig eftir erflðan vinnudag þegar króksi réðst á hann og dró hann niður í djúpið. Að sögn lögreglunnar í Nkhata var Chawinga fastur með báðar hendur i kjafti krókódílsins og því eina úrræðið að nota á hann tenn- urnar. Svo heppilega vildi til að það var snoppan sem varð fyrir bitinu, en það er einn mýksti og tilfinn- ingaríkasti hluti krókódílaskráps- ins og varð það til þess að króksi sleppti tökunum á bráð sinni. „Ég beit hann virkilega fast,” sagði Chawinga sem nú er að ná sér á sjúkrahúsi eftir viðureignina, en honum tókst sjálfum að synda upp á ströndina þar sem flskimenn fundu hann í blóði sínu og komu honum undir læknishönd. Krókódílar verða að meðaltali tveimur mönnum áð bana í Malawí á dag og er mjög sjaldgæft að lík þeirra finnist, en þegar það gerist eru þau mjög illa útleikin. AFSLATTUR •• af OLLUM snjóbrettavörum BARA UM HELGINA ! ÆM Bf Glæsilegt úrval - Bestu merkin || ^ Snjóbrettaúlpur Brettabindingar Sokkar Peysur Viðgerðarsett Snjóbrettabuxur Brettapokar Flískragar Nærföt Sokkar ^ Lúffur Brettagleraugu Myndbönd ettavax Hjólmar Snjóbretti ájykV Burton NFA-Option Lib Tech Gnu E3 x BURTOn anon ■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.