Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Page 20
20 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 Islendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 75 ára_______________________ Svanhvít Tryggvadóttir, Túngötu 7, Ólafsfirði. Kristinn Jónsson, fyrrv. starfsmaður BYKO og síðar vagnstjóri hjá SVR, Hátúni lOb, Reykjavík. Hann verður að heiman. Jón Helgason, Holtsgötu 21, Reykjavík. Sigurlaug Þórisdóttir, Goöheimum 12, Reykjavík. 60 ára________________________________ Epimaco Dadol Ycot, Laugavegi 27b, Reykjavík. Guðmundur Sigurfinnsson, Hæðarenda, Selfossi. Inga Ragna Holdö, Heiðmörk 19, Hverageröi. 50 ára________________________________ Ágúst Jónatansson, Ofanleiti 19, Reykjavík. Guðbrandur E. Þorkelsson, Deildarási 17, Reykjavík. Hallfríður Ólafsdóttlr, Löngumýri 20, Garöabæ. Marta Sigurðardóttir, Heiðarbraut 51, Akranesi. 40 ára________________________________ Ástvaldur R.H. Gíslason, Hólavegi 34, Sauðárkróki. Kristín Þóra Gunnarsdóttir, Asparfelli 12, Reykjavík. Leifur Árnason, Vesturási 26, Reykjavík. Stefán Haukur Grímsson, Boðagerði 4, Kópaskeri. 70 ara Andlát Kristborg Jónsdóttir, Hásteinsvegi 53, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigöisstofnun Vestmannaeyja laugard. 7.12. Grétar Rnnbogason, fyrrv. lögreglumaður frá Látrum í Aöalvík, Suðurvangi 14, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum við Hringbraut í Reykjavík mánud. 9.12. Hulda M. Jónsdóttir frá Marbæli, Skaröshlíð 14a, Akureyri, lést á Kristnesspítala sunnud. 8.12. Sigurður BJörn Brynjólfsson frá Hrísey er látinn. Jóhann Ármann Kristjánsson, Sólhlíð 19, Vestmannaeyjum, lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja föstud. 6.12. Fríða Kristín Gísladóttir Ólafs, Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áöur til heimilis á Ránargötu 29, er látin. Minningarathöfn og bálför hefur farið fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Frtðrik Jónasson kennari er látinn. Jarðarfarir Jóhannes Guðmundsson, Kelduhvammi 7, Hafnarfiröi, verður jarösunginn frá Frí- kirkjunni í Hafnarfiröi föstud. 13.12. kl. 13.30. Reynir Ármannsson, 1922-2002, verð- ur jarösunginn frá Dómkirkjunni fimmtud. 12.12. kl. 13.30. Ösp Viðarsdóttir, Flókagötu 63, Reykja- vík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtud. 12.12. kl. 13.30. Jónheiður Níelsdóttlr, Njálsgötu 1, Reykjavík, veröur jarðsungin frá Bú- staðakirkju fimmtud. 12.12. kl. 13.30. Útför Guðmundar Bergmann Jónssonar frá Haukagili, Blikahólum 4, Reykjavík, áður Hvassaleiti 16, fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstud. 13.12. kl. 15.00. Jónas Jónasson, Stóragerði 29, Reykja- vík, verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju föstud. 13.12. kl. 13.30. # 1 " 1 f; Aðventu- 12V Sent í Sími 431 146 ei DÓ. 4 ðiskrossar 34V jtkröfu og 898 3206 DV Fólk í fréttum Jón Baldvin Hannibalsson sendiherra íslands í Washington Ævisaga Jóns Baldvins Hanni- balssonar, sendiherra íslands í Was- hington, skráð af Kolbrúnu Berg- þórsdóttur, er nú efst á metsölulist- um Máls og menningar og Bókabúð- ar Eymundsson. Starfsferill Jón Baldvin fæddist á ísafirði 21.2.1939 og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1958, MA-prófl í hagfræði frá Edinborgarháskóla 1963, stundaði framhaldsnám í vinnumarkaðshagfræði við Stokk- hólmsháskóla 1963-64, Jauk prófl í uppeldis- og kennslufræði við HÍ 1965 og stundaði framhaldsnám í samanburðarhagfræði við Harvard- háskóla í Bandaríkjunum 1976-77. Jón var kennari við Hagaskólann í Reykjavík 1964-70, blaðamaður hjá Frjálsri þjóð 1964-67 og Nýju landi 1967-69, skólameistari MÍ 1970-79, ritstjóri Alþýðublaðsins 1979-82, alþm. Reykvíkinga 1982-97, fjár- málaráðherra 1987-88, utanríkisráð- herra 1988-95 og hefur verið sendi- herra íslands í Washmgton frá 1997. Jón var formaður Félags rót- tækra stúdenta 1960-61, formaður Félags háskólamenntaðra kennara 1966-69, varaborgarfulltrúi í Reykja- vík 1966-70, i ráðgjafarnefnd til und- irbúnings inngöngu í EFTA 1968-70, bæjarfulltrúi á ísafirði 1971-78, for- seti bæjarstjómar 1975-76, sat í stjómskipaðri nefnd um flutning rikisstofnana út á land 1972-75, í stjómarskrámefnd 1978-84, í Rann- sóknarráði um skeið frá 1983 og for- maður Alþýðuflokksins 1984-97. Jón hefur skrifað mikinn fjölda greina í innlend og erlend tímarit, einkum um jafnaðarstefnuna og stjómmál almennt, sem og ýmsa bókarkafla. Fjölskylda Jón kvæntist 26.9. 1959 Bryndísi Schram, f. 9.7. 1938, sendiherrafrú og fyrrv. framkvæmdastjóra Kvik- myndasjóðs. Hún er dóttir Björg- vins Schram, f. 3.10. 1912, d. 24.3. 2001, fyrrv. stórkaupmanns og for- manns KSÍ, og k.h., Aldísar Þor- bjargar Brynjólfsdóttur, f. 23.3. 1917, d. 5.5. 1991, húsmóður. Börn Jóns og Bryndísar eru Al- dis, f. 21.1. 1959, lögfræðingur og leikkona i Reykjavík; Glúmur, f. 13.10.1966, MA í Evrópu-stjórnmála- fræði, starfar í Brussel; Snæfríður, f. 18.5.1968, hagfræðingur, nú í Mex- ikó; Kolfinna, f. 6.10. 1970, starfar í Brussel í Belgíu. Systkini Jóns eru dr. Arnór Hannibalsson, f. 1934, prófessor f heimspeki við HÍ; Ólafur, f. 1935, blaðamaður og vþm. í Reykjavík; El- ín, f. 1936, kennari á Flúðum; Guð- ríður, f. 1937, skrifstofumaður í Reykjavík. Hálfbróðir Jóns, samfeðra, er Ingjaldur, f. 1951, iðnaðarverkfræð- ingur. Foreldrar Jóns voru Hannibal Valdimarsson, f. 13.1. 1903, d. 1.9. 1991, alþm. og ráðherra, og k.h., Sól- veig Sigríður Ólafsdóttir, f. 24.2. 1904, húsmóðir. Ætt Hannibal var bróðir Finnboga, fyrrv. alþm. og ritstjóra. Faðir Hannibals var Valdimar, b. í Fremri- Arnardal, Jónsson, b. I Litlu-Ávík, Jónssonar, b. á Melum, Guðmunds- sonar. Móðir Valdimars var Helga Guðmundsdóttir, b. á Kjörvogi, Jóns- sonar. Móðir Hannibals var Elín Hannibalsdóttir, b. á Neðribakka, Jó- hannessonar, b. á Kleifum í Skötu- firði, Guðmundssonar, sterka á Kleifum, Sigurðssonar, fóður Sigurð- ar, langafa Óskars, afa Magnúsar Óskarssonar borgarlögmanns, föður Óskars, forstjóra Íslandssíma. Móöir Elínar var Sigríður Arnórsdóttir, prófasts í Vatnsfirði, Jónssonar, bróður Auðuns, langafa Jóns, föður Auðar Auðuns ráöherra. Móðir Sig- ríðar var Guðrún Magnúsdóttir, eymdarskrokks í Tröð, Jónssonar og Guðrúnar Magnúsdóttur, b. í Súða- vík, bróður Ingibjargar, ömmu Jóns forseta og Jens rektors, langafa Jó- hannesar Nordals. Magnús var son- ur Ólafs, ættfoður Eyrarættar, Jóns- sonar, forföður Árna Mathiesens og Geirs Hallgrímssonar. Sólveig var systir Guðrúnar, móð- ur Jóns Helgasonar, fyrrv. for- manns Einingar, og Friðflnns, for- stjóra Háskólabíós, föður Bjöms ráðuneytisstjóra og Stefáns, for- stjóra íslenskra aðalverktaka. Sól- veig var dóttir Ólafs, b. í Strandselj- um, Þórðarsonar, b. á Hjöllum í Skötufirði, Gíslasonar. Móðir Ólafs var Guðrún Ólafsdóttir, b. á Skjald- fönn, Jónssonar og Jóhönnu, systur Guðmundar, langafa Jónu, ömmu Ólafs Þ. Þórðarsonar. Annar bróðir Jóhönnu var Sveinbjöm, langafi Al- freðs, föður Alfreðs Jolsons biskups. Sveinbjöm var einnig langafi Sófus- ar, afa séra Kristins Á. Friðfmns- sonar. Móðir Sólveigar var Guðríður Haf- liðadóttir, vegghleðslumanns á Borg, Jóhannessonar, bróður Hannibals, afa Hannibals Valdimarssonar. Móð- ir Guðríðar var Þóra Rósinkrans- dóttir, b. á Svarthamri, bróður Sig- urðar, afa Jóns Baldvinssonar, fyrsta formanns Alþýðuflokksins, og langafa Sverris Hermannssonar. Rósinkrans var sonur Hafliða, b. f Kálfavík, Guðmundssonar, bróður Jóhannesar á Kleifum. Móðir Þóru var Elísabet Jónsdóttir, b. á Svart- hamri, Jónssonar. Móðir Elísabetar var Elín, systir Karítasar, langömmu Ásmundar Guðmundssonar biskups. Elín var dóttir Illuga, pr. á Kirkju- bóli, Jónssonar og Sigríðar Magnús- dóttur, prófasts Teitssonar, bróður Jóns, biskups á Hólum, langafa Katrínar, móður Einars Benedikts- sonar skálds. Attræö Hulda Thorarensen húsmóöir og fyrrv. eggjabóndi Hulda Thorarensen, fyrrv. hús- móðir, Öldugötu 61, Reykjavík, varð áttræð í gær. Starfsferill Hulda fæddist í Hróarsholti í Vill- ingaholtshreppi en ólst upp í Vestri- Kirkjubæ á Rangárvöllum. Hún flutti til Reykjavíkur um tvítugt og stundaði þar ýmis störf. Er Hulda stofnaði heimili með manni sínum sinnti hún heimilis- og uppeldisstörfum á bammörgu heimÚi. Auk þess hefur Hulda sinnt ýms- um störfum utan heimilisins. Hún klippti kindahausa fyrir sviðningu í fjögur ár, stofnaði hænsnabú 1959, í Selásnum, þar sem þau hjónin bjuggu, og starfrækti það til 1969. Hulda byrjaði með hundrað hænur en var mest með um átján hundruð hænur og sá sjálf um útkeyrslu á eggjapöntunum. Þá sá hún um mötuneyti Sendibílastöðvarinnar hf. í sjö ár og sá jafnframt um allan bakstur fyrir mötuneytið. Hún starf- aði við Kaffivagninn í þrjú ár, við Fornsölu eiginmanns síns í fimm ár, starfaöi við kaffisölu hjá Há- skóla íslands í fjögur ár og starfaði við Elli- og hjúkrunarheimilið — Grund i níu ár er hún lét af störfum. Fjölskylda Eiginmaður Huldu var Steingrím- ur Elíasson, f. 7.5. 1920, d. 5.5. 1996, sjómaður, sendibílstjóri og loks fornmunasali. Foreldrar hans voru Elías Steinsson, f. 3.2. 1884, d. 16.1. 1957, bóndi í Oddhól á Rangárvöll- um, og k.h., Sveinbjörg Bjamadótt- ir, f. 18.10. 1898, d. 21.2. 1984, hús- freyja. Börn Huldu og Steingríms eru Guðlaug, f. 5.4. 1945, kaupkona í Reykjavík, en sambýlismaður henn- ar er Jón Ólafsson og eru böm hennar fjögur; Steingrímur, f. 13.10. 1946, tæknifræðingur í Reykjavík, var kvæntur Önnu Láru Gústafs- döttur og eiga þau þrjú böm; Svein- björg, f. 15.6. 1949, matráðskona i Reykjavík, en sambýlismaöur henn- ar er Einar Óskarsson og á hún þrjú börn; Hrafnhildur, f. 15.2. 1951, sjúkraliði og húsmóðir í Reykjavík, gift Guðna Guðjónssyni og eiga þau fjögur böm; Elísa, f. 11.4. 1955, hús- móðir í Garðabæ, en maður hennar er Sigurður Sigurjónsson og eiga þau þrjá syni;Auður, f. 19.9. 1956, sjúkraliði og húsmóðir í Reykjavík, en maður hennar er Aðalsteinn Jak- obsson og eiga þau þrjá syni. Systkini Huldu: Stefanía Ásta, f. 14.1. 1924, d. 10.11. 1993, húsmóðir í Reykjavík; Grímur, f. 15.1. 1924, d. 4.12. 1980, bóndi á Helluvaði og kaupfélagsstjóri og simstöðvarstjóri á Hellu á Rangárvöllum; Hörður, f. 7.9. 1926, fyrrv. skipstjóri á Eyrar- bakka; Skúli, f. 21.10. 1930, d. 23.3. 1976, lögregluþjónn í Keflavík; Ragnheiður, f. 26.4. 1933, d. 23.9. 1989, húsmóðir á Selfossi; Jónína Guðrún, f. 28.7. 1935, húsmóðir í Reykjavík. Foreldrar Huldu vom Bogi Pétur Grímsson Thorarensen, f. 9.5. 1900, d. 22.3. 1978, hreppstjóri í Vestri- Kirkjubæ og síðar umsjónarmaður Sláturfélags Suðurlands á Selfossi, og k.h., Steinunn Sigfúsdóttir Thorarensen, f. 17.8. 1899, d. 19.10. 1986, húsfreyja. Hulda tekur á móti gestum í fé- lagsheimili Fáks i Víðidal laugard. 14.12. kl. 16.00-19.00. Fimmtugur * if Kristján Örn Kristjánsson bílstjóri í Njarðvík Kristján Öm Kristjánsson bíl- stjóri, Hólagötu 37, Njarðvík, varð fimmtugur í gær. Fjölskylda Kristján fæddist á Sauðárkróki en ólst upp á Hofsósi. Eiginkona hans er Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir, f. 12.5. 1963, verslunarkona. Hún er dóttir Þorsteins Sigurgeirssonar, flugmanns á Blönduósi, og Stefaníu Guðmundsdóttur húsmóður. Böm Kristjáns: Kristján Örn Kristjánsson, f. 19.1. 1978; Ellert S. Birgisson, f. 3.10. 1979, búsettur í Keflavík og á hann eitt bam; Eydís S. Kristjánsdóttir, f. 2.1. 1987; Þor- steinn H. Kristjánsson, f. 4.6.1991. Systkini Kristjáns eru Stefán S. Bjarnar Kristjánsson, f. 9.7. 1939; Katrín Rósa, f. 1.4.1945; Hallur Frið- rik Kristjánsson, f. 13.10.1947; Gerð- ur Elísabet Kristjánsdóttir, f. 16.7. 1949; Margrét Dóra Kristjánsdóttir, f. 31.3. 1955; Eyþór Ágúst Kristjáns- son, f. 31.7. 1959. Foreldrar Kristjáns voru Kristján Jóhannesson Hallsson, f. 29.11. 1914, d. 1982, kaupfélagsstjóri á Hofsósi og í Stykkishólmi og síðar skrifstofu- maður í Reykjavík, og k.h., Eygerð- ur Ágústa Bjamadóttir, f. 23.9. 1918, d. 1983, ljósmóðir og húsmóðir. Ætt Kristján var sonur Halls Einars- sonar frá Blugastöðum í Flókadal og Friðriku Jakobínu Jóhannsdóttur. Eygerður var dóttir Bjarna, sjómanns og síðar skósmiðs í Reykjavík og í Hafnarfirði, Sigurðssonar, kennara í Kalmanstungu og í Hlíðarhúsum í Reykjavík, Eiríkssonar. Móðir Bjarna var Aðalbjörg Jónsdóttir. Móðir Eygerðar var Sigurborg Eggertsdóttir frá Hafursstöðum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.