Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Page 27
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 27 vsport@dv.is NBA-DEILDIN Úrslitin í nótt: Boston-Phoenix............94-103 Walker 31, Delk 18, Pierce 16 - Marion 32 (11 frák.), Johnson 19, Stoudemire 19 (12 frák.). New Jersey-Portland . . . .105-104 Kidd 27, Jefferson 22 (15 frák.), Harris 21 - Patterson 26, Pippen 16, Wells 13 (7 frák.). Philadelphia-Seattle .....88-92 Iverson 26, Van Horn 25 (7 frák.), Snow 13 (8 frák., 8 stoðs.) - Payton 20 (6 stoös.), Lewis 20, Barry 18. Cleveland-Toronto...........96-83 Wagner 33, Davis 22, Boozer 12 - Lenard 24, Williams 17 (8 frák.), Peterson 15. Detroit-Atlanta ............91-80 Hamilton 32, Robinson 21, Williamson 16 - Rahim 21, Terry 15, Robinson 12. Milwaukee-Indiana.........119-126 Allen 26, Casseli 25, Thomas 19 - O'Neal 30, Tinsley 21, Miller 20. Memphis-Denver..............96-93 Gasol 18, Williams 16, Person 14, Wright 14 - Harvey 8, Howard 22, Posey 14. San Antonio-Dallas.......111-104 Parker 32, Duncan 22 (13 frák.), Jackson 17, Robinson 16 (10 frák.) - Finley 36, Nash 21 (10 stoðs.), Van Exel 16. Dæmigerö mynd fyrír leik KR og Grindavfkur í gær. Grindvíkingurinn Erna Rún Magnúsdóttir er umkringd af þremur KR-ingum, þeim Hafdisi Gunnarsdóttur, Maríu Káradóttur og Hildi Siguröardóttur. DV-mynd E.ÓI. Sterk endurkoma KR - sló meistara Grindavíkur út úr Kjörísbikarnum í gær Grindavík nær ekki að verja Kjörís- bikarinn sem liðið vann í Hveragerði síðasta vetur og Ijóst að það verður annaðhvort KR eða Keflavík sem hampar þessum bikar þetta árið. KR sigraði Grindavík á heimavelli í gær- kvöld með 10 stiga mun, 62-52, eftir að hafa haft frumkvæðið frá fyrstu mín- útu. Hildur Sigurðardóttir og Helga Þorvaldsdóttir voru allt í öllu hjá KR að þessu sinni og héldu liðinu á floti sóknarlega og skoruðu saman 42 stig. KR byrjaði leikinn af miklum krafti og var komið í 12-2 um miðjan fyrsta leikhluta. Ekkert gekk sóknarlega hjá Grindavík og hvert skotið af öðru geigaði. Denise Shelton braut loks ís- inn og Sólveig Gunnlaugsdóttir fylgdi eftir með góðri 3ja stiga körfu. Þær tvær áttu síðan eftir að vera þær einu sem fundu körfuna eitthvað að ráði í leiknum. Staðan var 21-10 eftir 1. leik- hluta en í byrjun annars hluta fóru hjólin að snúast hjá gestunum. Grindavík skoraði níu fyrstu stigin í leikhlutanum og nú gekk ekkert hjá KR að skora. Grindavík hafði skipt yf- ir í svæðisvöm eftir fyrsta fjórðung- inn og var sú vörn eitthvað að vefjast fyrir KR-stelpum. Sólveig minnkaði muninn fyrir Grindavík í eitt stig, 23-22, með 3ja stiga körfu metra fyrir utan 3ja stiga línuna en KR svaraði með sex stigum í röð. Staðan í hálfleik var 28-24 og átti seinni hálfleikur eft- ir að vera jafhsveiflukenndur og sá fyrri. KR byrjaði seinni hálfleikinn með þvi að skora sex stig af tveimur gest- anna og því KR-liðið komið átta stig- um yfir. Það forskot var þó fljótt að hverfa því að Grindavík gerði næstu 12 stigin í leiknum komst fjórum stig- um yfir, 34-38. Héldu þá margir að þetta væri kom- ið hjá Grindavík en KR-stelpur pössuðu sig að hengja ekki haus og héldu áfram að berjast. KR leiddi með einu stigi eftir þriðja leikhluta, 43-42, og allt í járnum. Fjórði og síðasta leik- hluti varð þó ekki eins spennandi og allt leit út fyrir og varð hann að ein- stefnu af hálfu KR. KR náði mest 13 stiga forskoti og var sama hvað Grindavík reyndi, ekkert gekk upp. Eftir slæma útreið á móti ÍS um síð- ustu helgi tók KR-liðið sig heldur bet- ur saman í andlitinu og spflaði vel í vöm og sókn, sérstaklega í vöm. Helga og Hfldur báru þungann í sókn- inni en allir leikmenn liðsins skiluðu sinu hlutverki í vörn. Hjá Grindavík voru það þær Shelton og Sólveig sem spiluðu nálægt eðlilegri getu á meðan aðrir voru langt frá sínu besta. Þá virðist það henta liðinu illa að lenda undir og þá er eins og stemningin í liðinu verði ekki eins mikil. Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 21 (18 frák., 5 stolnb-, 6 stoðs.), Helga Þorvalds- dóttir 21 (12 frák., 4 stoðs.), María Kára- dóttir 10, Hafdís Gunnarsdóttir 4, Tinna Sigmundsdóttir 3, Guðrún Sigurðardóttir 1 (9 frák.), Halla Jóhannesdóttir 1 (7 frák.). Stig Grindavikur: Denise Shelton 23 (12 frák., 4 stolnir), Sólveig Gunnlaugs- dóttir 17 (7 frák., 4 stolnir), Guðrún Ó. Guömundsdóttir 5, Petrúnella Skúladótt- ir 4, Ema Rún Magnúsdóttir 2, Sigríður Anna Ólafsdóttir 1. -Ben Nýr titill í boði - Keflavík í úrslit Kjörísbikarsins þriðja árið í röð eftir 60-85 sigur á ÍS Sonia Ortega skorar hér tvö af 12 stigum sfnum fyrir Keflavík gegn ÍS í 60-85 sigri Keflavíkur í undanúrslitaleik iiöanna i Kjörísbikarnum. DV-mynd E.ÓI. Keflavík hefur verið sigursælasta kvennalið í körfunni undanfarin ár en það er þó einn bikar sem aldrei hefur komið í Keflavík og það er Kjörisbik- arinn. Keflavik komst i úrslitaleikinn um hann þriðja árið í röð með 60-85 sigri á ÍS í Kennaraháskólanum í gær og hefur þannig unnið alla 12 leiki timabilsins. Keflavík byrjaði leikinn af miklum krafti og var komið í 12-2 eftir 6 mín- útur og var yfir 20-41 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af hálfleikn- um. En ÍS kom sér inn í leikinn með frábærum lokakafla í fyrri hálíleik þar sem liðið skoraði 15 stig í röð og í hálf- leik munaði aðeins átta stigum. Tvær þriggja stiga körfur frá Meadow Over- street í upphafi seinni hálfleiks komu muninum niður í sex stig en þá skildi aftur leiðir og Keflavík vann að lokum öruggan 25 stiga sigur. Birna Valgarðsdóttir var engri lík í liöi Keflavíkur og átti mjög góðan leik, 25 stig og 7 fráköst segja sína sögu en baráttan og grimmdin töldu líka mik- ið fyrir liöið. Þá var Erla Þorsteins- dóttir mjög sterk þegar ÍS sótti að Keflavík í upphafi seinni hálfleiks, Sonia Ortega spilaði einn sinn besta sóknarleik til þessa og Anna María Sveinsdóttir skilaði óaðfinnanlegum leik af bekknum. Hjá ÍS var Meadow Overstreet allt í öllu og átti frábæran leik. Hún fékk góðan stuðning frá Þórunni Bjarna- dóttur í fyrri hálfleik (Þórunn gerði 12 af 14 stigum sínum fyrir hlé) en þegar Keflavík tvídekkaði Overstreet í seinni hálfleik náðu félagar hennar í liðinu ekki að nýta sér aukið svigrúm. Stig ÍS: Meadow Overstreet 30 (7 stoðs., 5 fráköst), Þórunn Bjamadóttir 14, Hafdís Helgadóttir 4, Lára Rúnarsdóttir 3, Kristín Óladóttir 3, Svandís Sigurðardóttir 2 (12 frá- köst), Rós Kjartansdóttir 2, Jófríður Hall- dórsdóttir 2. Stig Keflavikur: Birna Valgarðsdóttir 25 (7 fráköst, 3 stoðs., hitti úr 8 af 14 skotum), Anna María Sveinsdóttir 13 (5 fráköst, hitti úr 4 af 6 skotum á 19 mín.), Sonia Ortega 12 (9 fráköst, 5 stoðs., 5 stolnir, 4 varin, hitti úr 5 af 8 skotum), Erla Þorsteinsdóttir 10, Svava Ósk Stefánsdóttir 9 (6 frák.), Marín Rós Karlsdóttir 8, Kristín Blöndal 6, Rann- Tíunda umferðin hefst í kvöld 10. umferð Intersportdeildar- innar í körfubolta hefst í kvöld með tveimur leikjum, Haukar taka á Grindavík á Ásvöllum og Valur fær Tindastól I heimsókn. Hinir fjórir leikirnir fara síðan fram á föstudagskvöld og þá leika Hamar-Skallagrímur, Keflavík-Breiðablik, Njarð- vík-KR og ÍR-Snæfell. Allir leik- imir hefjast klukkan 19:15. VINTERSRfeRT DEILDIN Flest stig skoruð 1 leik: Keflavík .....................99,7 Hamar ........................93,2 Grindavík.....................90,4 Breiðablik....................90,3 KR ...........................90,0 Fæst stig á sig í leik: KR (1.) ......................77,8 Grindavik.....................78,8 Snæfell.......................79,4 Njarðvík......................79,6 Haukar........................79,6 Grófasta liðið (flestar villur): ÍR............................24,4 Hamar ........................23,0 Breiðablik....................23,3 KR ...........................23,0 Prúðasta liðið (fæstar villur): Grindavík.....................18,2 Snæfeli.......................18,3 Haukar........................18,4 Flestar „fiskaöar" villur: Hamar ........................25,6 ÍR............................24,4 Njarðvík......................23,4 Grindavík.....................21,6 KR ...........................21,4 Besta skotnýting: KR...........................48,0% Keflavík.....................47,8% Haukar ......................46,6% Slakasta skotnýting: Skallagrimur.................38,1% Snæfell .....................38,9% Valur........................39,8% Slakasta skotnýting mótherja: KR..........................36,1% Njarðvík ...................37,2% Grindavík ..................40,6% Besta vítanýting: Grindavík ........79,0% (21,7 í leik) Haukar..................73,7% (19,9) Skallagrímur............72,8% (21,7) Breiðablik..............72,7% (24,4) tR .....................72,1% (29,1) Besta 3 stiga skotnýting: Keflavík . 39,2% Grindavík . 38,0% Breiðablik . 36,6% Flestar 3 stiga körfur í leik: Keflavík . . . 11,9 Grindavík . ... 9,3 Skallagrímur . ... 8,8 Fæstar 3 stiga körfur í leik: Valur . ... 5,1 KR (2.), ÍR (.), Breiöablik (.) . ... 5,4 Njarðvík . ... 5,6 Hæsta hlutfall frákasta: KR................55,9% (45,9 í leik) Njarðvík...............53,4% (41,4) Snæfell................53,2% (39,2) Lægsta hlutfall frákasta: Hamar .....................41,5% (34,1) Valur .....................44,8% (35,1) Skallagrimur...............46,6% (33,7) Flest sóknarfráköst f leik: Breiðablik......................16,1 Tindastóll......................14,9 Ketlavik .......................14,6 Fæst sóknarfráköst í leik: Hamar .......................10,7 Skallagrímur.................11,3 Grindavík....................11,4 Fæst sóknarfráköst mótherja: Haukar.......................11,6 ÍR ..........................11,8 Skallagrimur.................11,9 Flest sóknarfráköst mótherja: Hamar .......................16,4 Grindavík....................14,7 KR ..........................14,4 Flestir þvingaðir tapaðir boltar: Keflavík ....................23,2 ÍR...........................21,3 KR ..........................16,8 Haukar.......................16,8 Skallagrímur.................16,1 Flest varin skot: KR .............................7,3 Tindastóll......................5,1 Njarðvík.........................5,0 Flest varin skot mótherja: Breiðablik .....................6,9 ÍR..............................4,6 Grindavík.......................4,4 “b

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.