Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 M agasm DV /Leikkonan Lana Turner var langa hríb eitt eftirlætis- efni slúburblaba, enda var einkalíf hennar vibburbaríkt og skrautlegt en ekki ýkja hamingju- ríkt. Móðir Lönu Tumer var einungis sautján ára þegar hún eignaðist árið 1922 dóttur með Virgil Tumer sem var námuverkamaður. Hjónin skildu og þegar Lana var tíu ára var faðir hennar myrtur. Hann hafði unnið töluverða fjárhæð í fjárhættuspili og var barinn í höfuðið og rændur þegar hann var á heimleið síðla nætur. Morðið var aldrei upplýst. Lana var fimmtán ára gömul þegar hún var uppgötvuð og dubbuð upp í hlutverk Hollywoodstjömu. Hún naut þess að vera stjarna og lifði hinu Ijúfa lííi. Á skömmum tima öðlaðist hún nafnbótina „drottning nætur- klúbbanna". Hún kynntist hljómsveit- arstjóranum og klarinettuleikaranum Artie Shaw sem þótti einn greindasti og víðlesnasti maður í Hollywood. „Lana var heimsk," sagði Artie Shaw, „en ég kunni vel við hana því það var ekkert illt til í henni." Hjónabandið stóð í fjóra mánuði. Eftir skilnaðinn sáust þau oft saman og talið var að þau myndu gifta sig á ný. „Það hvarfl- aði að mér að giftast henni aftur,“ sagði Shaw, „en skyndilega fór ég að hugsa um þessi hundrað skópör sem hún átti og ég vissi að ég myndi ekki þola hjónaband með henni í annað sinn.“ Vi&bur&aríkt einkalíf Tæpu ári eftir skilnað þeirra Shaws giftist Lana í annaö sinn óþekktum manni, Stephen Crane, sem sagðist vera í tóbaksviðskiptum. í raunveruleikanum var hann smá- krimmi og vinur hins alræmda maflósa Busy Siegel. Hálfu ári eftir að Lana fæddi dóttur þeirra, Cheryl, sótti hún um skilnað. Næsti eiginmaður var Bob Topp- ing, vellauðugur viðskipajöfur. Þegar þau kynntust var Lana í sárum eftir misheppnað ástarævintýri með leik- aranum Tyrone Power sem hún sagði á efri árum að hefði veriö stóra ástin nýjungum. Þegar hún sótti um skiln- að frá Topping eftir tæplega fimm ára hjónaband gaf hún sem ástæðu sjúk- lega afbrýðisemi hans og sagði hann hafa barið sig og hótað að skjóta hana. Þegar þau giftust hafði Lana sagt við blaðamenn: „Þetta er að ei- lífu.“ Eftir skilnaðinn sagði í einu dagblaði: „Ný skilgreining á eilífð - fjögur ár, sjö mánuðir, átján dagar, nítján klukkustundir og tuttugu og sex mínútur.“ Næstur í röð eiginmanna var Lex Barker sem vann sér nokkra frægð í kvikmyndum fyrir að leika Tarzan. Þegar leikkonan giftist honum lögðu allnokkrir vinir hennar hver um sig hundrað dollara í pott í veðmáli um þaö hversu lengi hjónabandið myndi standa. Meðan Lana var í hjónabandi með Barker sagði MGM upp samn- ingi sínum við hana. Hún var 36 ára og hafði unnið hjá fyrirtækinu í átján ár en einkalíf hennar fékk veglegri umfjöllun í dagblöðum en kvik- myndaleikur hennar sem oftast þótti heldur léttvægur. Uppsögnin var Lönu mikið áfall og annað áfall var þegar hún komst að því að Barker haföi misnotað táningsdóttur hennar. Lana brást við með þvf að ganga inn i svefnherbergi þeirra hjóna, þar sem Barker lá uppi í rúmi. Hún beindi byssu að Barker og sagði honum að hypja sig. Hann var fljótur að taka til fótanna. Harmleikur í Hollywood Nú lenti Lana í meira klandri í einkalífi en nokkru sinni fyrr. Hún kynntist manni sem kallaði sig John Steele en hét réttu nafni Johnny Stompanato og var glæpamaður. Hann lifði aðallega á því að hafa ofan af fyrir ríkum konum og fá hjá þeim lán sem hann borgaði aldrei. Hann hafði verið handtekinn sex sinnum og sakaöur um flæking og rán. Hann var sterklega grunaður um að vera sendi- ‘böði mafíunnar. Hann hafði verið giftur þrisvar og átti ungan son en Lana frétti ekki af hjónaböndum hans fyrr en eftir dauða hans. Hann var sjúklega afbrýðisamur, ofbeldisfullur og stjómsamur. Stompanato hótaði Lönu margoft þætti honum hún gerast of sjálfstæð. Eitt sinn reyndi hann að kyrkja hana og hann hótaði að skera hana í andlit- ið með rakvélarblaði. Dag nokkum kom hann að heimili hennar og hót- aði að skera hana og lama. Hann sagðist skyldu gera það sama við móður hennar og dóttur. Cheryl, fjórt- Gamlir og góðir leikarar Lana Turner. Hún var eln glæsllegasta kvlkmyndastjarnan í Hollywood á fimmta áratugnum. að yfirgefa Fred May. Sjötti eiginmaðurinn var Robert Eaton sem var tíu árum yngri en hún. Hjónaband þeirra byggðist aðallega á sameiginlegri drykkju og varð ekki langlíft. Sjöundi og sfðasti eiginmað- urinn var Ron- ald Dante sem var dáleiðandi. Einn daginn hvarf Dante með háa ávísun sem Lana hafði skrif- að upp á. Hjóna- bandið hafði einungis staðið í sex mánuði. Dante sagði seinna að hann hefði veðjað við vin sinn um að hann myndi gift- ast Lönu innan þriggja mánða frá kynnum þeirra. Hann vann veðmálið auðveldlega því þau höfðu ein- ungis þekkst í tvær vikur þeg- ar þau giftust. Síðasti karl- maðurinn í lifi Lönu var Taylor Pero sem var einkaritari hennar. Hann var mörgum ár- um yngri en hún og leyndi því ekki að hann hneigðist til karlmanna. Að hans sögn urðu þau elskendur en í óáreiðanlegum endur- minningum sínum neitaöi hún að svo væri. Þegar Dante yfirgaf Lönu árið 1979 var hún niðurbrotin kona. Hún eyddi síðustu árum sínum fiarri sviðsljósinu og lést árið 1995. -KB Lana með elnkadóttur slnnl, Cheryl. Cheryl varö seinna ástmanni móöur slnnar aö bana. Drottning hins Ijúfa lífs hún stakk hnífnum í kvið Stompanatos sem fell í gólfið. Hann lést skömmu síðar af sárum sínum. Þegar lögreglan kom á vettvang grátbað Lana um að fá að taka á sig sökina og vildi hlífa dóttur sinni við erfiðum réttarhöldum. Henni var sagt að allra vegna væri best að sannleik- urinn yrði sagður. Eftir söguleg rétt- arhöld var Cheryl sýknuð - talin hafa framið morðið í tilfinningalegu upp- námi. Á flótta fró hversdagslífi Fimmti eiginmaður Lönu var Fred May sem ræktaði hesta. Hann var góður maður, sennilega sá besti sem hún giftist. í hennar augum bjó hann þó yfir einum skelfilegum galla: hann var venjulegur maður. Lana var kona sem alla ævi hafði þrifist á dramatík og hún horfði á lífið eins og það væri kvikmynd þar sem atburðarásin ætti stöðugt að halda athyglinni og vera full af ævintýrum. Henni fór að leið- ast hinn góðlyndi eiginmaður og skfldi við hann. Nokkrir vinir leikkonunnar töldu að hún hefði gert stærstu mistökin í lífi sínu með því í lífi hennar. Hún elskaði ekki Topp- ing og sagði honum það. Hann sagði að það gerði ekkert tO, hún myndi læra að elska hann. Það fór ekki svo en hún tolldi merkOega lengi í hjóna- bandinu miðað við að hún var óþolin- móð kona sem var sífellt að leita að án ára gömul dóttir Lönu, hlustaði á hótanir hans. Hún varð skelfingu lost- in, hljóp inn í eldhús, greip hníf og hljóp til herbergis móður sinnar þar sem Stompanato var enn að hóta henni. „Þú þarft ekki að þola þetta, mamma," sagðí Cheryl um leið og Lana þótti ekki góð leikkona og kom verulega á óvart meö frammistöðu sinni í sakamálamyndinnl Pósturinn hringlr alltaf tvlsvar, þar sem hún lék klækjakvendi. John Garfield var mótlelkarl hennar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.