Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2002 13 x>v M, agasm „Það er yndisleg tilfinning að fá listamenn á bílaverkstæöið. Alltaf þegar fer að líða að þessari hátíð hellist yfir mig einhver jóla- og menningarandi sem er alltaf jafn skemmtilegur," segir Kristmundur Árnason hjá rétt- ingaverkstæðinu Bílastjörnunni við Bæjarflöt í Grafarvogi. Hin árlega menningarveisla þar verður nú á fostudagskvöldið milli klukkan 18 og 20. Stjörnu- messa er þessi uppákoma nefnd. Þar koma hin góðkunnu Grafar- vogsskáld fram og lesa úr verk- um sínum. Þau eru Sigmundur Ernir Rúnarsson, Kristín Marja Baldursdóttir, Aðalsteinn Ingólfs- son, Sigurbjörg Þrastardóttir, Ari Trausti Guðmundsson og Einar Már Guðmundsson. Þá munu einnig koma fram þeir Einar Kárason rithöfundur og tónlistarmaðurinn KK í tilefni af útkomu bókar Einars um KK. Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson flytja nokkur lög og listamenn sem hafa vinnuað- stöðu á Korpúlfsstöðum sýna verk sín. „Yfir hátíðamar ætla ég að gefa mér tíma til þess að lesa bækur skáldanna úr Grafarvogi. Ég má ekki mismuna neinum og verð að lesa bækur þeirra allra,“ segir Kristmundur. Hann segist seinni árin hafa haft æ meiri áhuga á menningu hvers konar. Mikilvægt sé að fá unga fólkið meira til þess að lesa góðar bæk- ur i stað þess að liggja í tölvu- leikjum og slíku. Segist Krist- mundur hafa af þeirri þróun áhyggjur, en bækur geri fólki hins vegar aðeins gott - og að betri einstaklingum. „Og ef börn og unglingar lesa góðar bækur mun það nýtast þeim vel á lífs- leiðinni," segir Kristmundur. -sbs Grafarvogsskáldin lesa úr verkum sínum á Stjörnumessunni. Einar Kárason les úr nýrri bók um KK. fSm sinni Menningar- andinn alltaf skemmtilegur fyrir þd sem vilja kröftugan súkkulaðikeim með mikilli Það er jafngott til átu sem í dýrindis súkkulaðirétti og til matargerðar. NÓI SÍRÍUS Stjörnumessa ó bílaverkstæði í Grafarvogi: Kristján Kristjánsson leikur af fingrum fram á Stjömumessunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.