Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Side 16
16 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 M agasm DV Glæsileg danssýning á Broadway: Stekkjarstaur fór á kostum á baiiinu og krakkarnir skemmtu sér vel. Björg Thorarensen, Ólafur Sveinsson og Sigríöur Thors voru smart á danshátíöinni. Jóladansinn dunar Yngstu dansararnir sýndu mikil tilþrif. Hver veit nema hér sé komlö danspar framtíöarinnar. Tilþrifln eru glæsileg og framtíöin björt. Hin árlega jólaskemmtun Dansráðs íslands var haldin á Broadway um liðna helgi. Dansarar frá helstu dansskólum bæjarins svifu um á sviðinu í frábærum og fallegum döns- um, en að sýningu lokinni kom jólasveinn úr fjöllum og dansaði með börnum á öilum aldri í kringum jólatréð. Þetta var því fjölskylduskemmtun eins og þær gerast bestar og skemmtilegastar. „Það er mikið líf í dansmenningu þjóðarinnar um þessar mundir. Nemendur eru margir og áhuginn er greinilega mikill, hvort heldur það er í keppnisdönsum, djassballett eða freestyle, svo ég nefni nú eitthvaö," sagði Irma Gunn- arsdóttir hjá Dansráði íslands i samtali við DV-Magasín. Hún sagði að á skemmtuninni um helgina hefðu yngstu dansararnir verið fjögurra ára og hinir elstu um sjötugt. Alls hefðu þetta verið vel á þriðja hundrað manns. Breidd- in sé mikil, hvort sem litið sé tU aldurs keppenda eða dansanna - sem séu fyrir aUa, eins og sýningin sannar best. -sbs Anna María, Berglind, Guöbjörg og Dagný skemmtu sér vel og komu frá Dansskóla Heiöars Astvaldssonar. Þessl litla hnata haföi um nóg að tala vlð Stekkjarstaur og virtist hafa gaman af Fyrst á réttunni - svo á röngunni. Krakkarnir lifðu sig inn í dansinn á Broadway. Þessum dömum leiddist ekki eins og myndin ber meö sér. Frá vinstri taliö: K. Brynja Sigurðardóttir markaösstjóri, Valgerö- ur Hannesdóttir og lengst til hægri er Hafdís Sveinbjörnsdóttir. Uppákoma hjá útvarpsstöö: íslenskt - já, takk „Við erum að fá frábærar undirtektir og hlustendur eru ánægðir," segir K. Brynja Sigurðardóttir. Hún er markaðsstjóri íslensku stöðvarinnar, sem sendir út á FM 91,9. Útsendingar stöðvarinnar hafa verið í loftinu í um það bU mánuð en fyrir nokkrum dögum var helstu viðskiptavinum hennar og tónlistarmönnum boðið i skemmtUegt samkvæmi. Nokkrir góðkunnir út- varpsmenn starfa hjá íslensku stöðinni, svo sem Axel Axelsson sem er með þætti á morgnana alla virka daga. Valdís Gunnarsdóttir, sú fræga drottning öldnu ljósvakanna, er með þætti á hverjum laugardegi. Brynja segir framtið- ina hjá útvarpsstöðinni vera bjarta. GreinUegt sé að hlutstendur vUji stöð sem einvörðungu sé með íslenskri tónlist - og raunar hafi aðrir plægt akur- inn fyrir hina nýju útvarpsstöð að því leyti. -sbs Meöal gesta viö opnun Islensku stöövarinnar var hlnn ástsæli söngvari Björgvin Halldórsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.