Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Qupperneq 28
32 FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002 M, agasin I>V l Árinu eldri Hannes Pétursson ljóðskáld verð- ur 71 árs 14. desember. Fyrsta ljóða- bók hans kom út á sjötta ára- tug síðustu aldar og þá varð ljóst að hann væri skáld gott - og um það hafa menn raunar ekki efast síðan. Hannes, sem býr á Álftanesi, hef- ur sent frá sér margar ljóðabæk- ur og einnig frásöguþætti frá fyrri tíð. Sigurgeir Sigurgeirs- son, fyrrv. bæjarstjóri á Seltjamamesi, verður 68 ára 14. desember. 1-Iann er Skag- firðingur að uppruna en íluttist ungur suður. Hann hvarf af vettvangi bæjar- mála á Nesinu sl. vor eftir ára- tugasetu í bæjarstjórastól, sem óumdeilt er að hafi verið farsæl. Óli G. Jó- hannsson, list- málari á Akur- eyri, verður 57 ára 13. desem- ber. Óli hefur látið að sér kveða á lista- sviðinu og m.a. verið bæjarlista- maður í heimabyggð sinni. Einnig hefur hann haldið sýning- ar víða um lönd sem góða dóma hafa fengið. Vilhelm G. Kristins- son útvarps- þulur verður 55 ára 14. desember. Komungur byrjaði Vil- helm í fréttamennsku og hefur lengst af starfað á því sviði, en einnig skrifað ævisögur þjóð- þekktra manna. Síðustu ár hefur hann verið útvarpsþulur - og seg- ir hádegis- fréttir RÚV á rúmhelgum dögum. Einar Karl Haraldsson ráðgjafi verð- ur 55 ára 17. desember. Hann hef- ur um dagana mikið starfað við fjölmiðlun, m.a. ritstýrt tveimur dagblöðum og þykir hann fær á sviði almannatengsla. Einnig hef- ur hann talsvert geflð sig að póli- tík en þó ekki komist í framlín- una eins og hann hefur þó stefht að. Hjördís Gissurardótt- ir gullsmiður verður 52 ára 17. desember. Hún býr á Vallá á Kjalar- nesi þar sem eiginmaður hennar rekur svína- bú. Sjálf hefur Hjördís lengi feng- ist við verslunarrekstur og við iðn sina og í heimaranni starf- rækir hún listagallerí. Herbert Guömunds- son söngvari verður 49 ára 15. desember. Um dagana hefur hann sungið bæði með hljómsveitum og inn á plöt- ur. Margir þekkja afmælisbarnið einnig sem sölumann en í ára- fjöld hefur hann verið farandsölu- maður og selt bækur vítt um landsins breiöu byggðir. Kristjana Geirsdóttir veitingamaöur verður 47 ára 17. desember. Hún hefur í áratugi starfað í skemmtana- iðnaðinum og gjarnan starfað á vin- sælustu stöðunum, svo sem Kaffí Reykjavík og Broadway. Fyrir skömmu söðlaöi hún svo um og rekur nú eigið kaffihús í Garðabæ. Steingrím- ur Birgisson, framkvæmda- stjóri á Akur- eyri, verður 38 ára 13. desem- ber. Hann er Akureyringur í húð og hár og hefur lengi starfaö hjá Höldi og er nú framkvæmda- stjóri fyrirtækisins. Það er eitt það stærsta á Akureyri og er með starf- semi meðal annars við bíla og eins veitingarekstur. „Sem sagnfræöingur hef ég margoft fundið sannleikann en jafnoft glataö honum aftur,“ segir Jón Hjaltason, sagnfræöingur og bókaútgefandi, sem hér sýnir lesendum á sér hina hliðina. Magasín-mynd Bjöm Einisson Sannindi í q&draganda jólanna - segir Jón Hjaltason, söguritari Akureyrarbæjar Nafn: Jón Hjaltason. Aldur: 43 ára. Maki: Lovísa Björk Kristjánsdóttir. Böm: Þrjár stelpur. Starf: Söguritari Akureyrarbæjar og (af sjálfseyð- ingarhvöt) bókaútgefandi. Starfræki bókaútgáfuna Hóla. Uppáhaldsmatur: Poppkom (eða telst það kannski ekki matur?). Þá vikugamalt skyr hrært af sjálfum mér. Fallegasta kona sem þú hefur séð utan maka: Ég sá hana í sundi snemma í vor en fékk aldrei nafnið. Fallegasti staður á Islandl: Vaðlaheiði í dumb- ungsveðri - og Skjálfandafljót neðan Goðafoss í mikl- um vexti er líka heillandi. Þá eru báðir staðir vara- samir, annar fyrir göngumanninn en hinn fyrir kajakræðarann. Eftirlætisstaður erlendis: Bellevue-baðströndin í Kaupmannahöfn, einkum klæðminni hluti hennar þar sem má láta lofta um. Hvað gerir þú í frístundum? Skaprauna dætrun- um og læt vel að eiginkonunni. Hvað finnst þér bitastæðast í jólabókaflóðinu? Ég geri ráð fyrir að hér gildi sami svarréttur og um fallegustu konuna; að ég megi ekki nefna bækur Hóla. Það er reyndar af mörgu að taka, til dæmis nýjasta bók Þórs Whiteheads, ísland í hers höndum, og Horf- inn heimur eftir Þórunni Valdimarsdóttur. Hvaða þjóðþrifamáli á íslandi þarf fyrst af öllu að kippa í liðinn: Við þurfum að vera svolítið eða öllu heldur talsvert betri við eldra fólkið. Eitthvert sérstakt markmið fyrir komandi mán- uði: Að lifa af jólin í því fjárhættuspili sem bókaút- gáfa er. Þá hef ég ekki nefnt allt kjötátið sem hátíðinni fylgir - og reynist mörgum skeinuhætt. Hefur þú sem sagnfræðingur fundið sannleik- ann: Já, margoft, en jafnoft glatað honum aftur. í bili er ég að reyna að kenna miðdóttur minni þau sann- indi að líki henni illa við einhvern er afar líklegt að þeim hinum sama líki illa við hana. Þessi sannindi er gott að kunna nú í aðdraganda jólanna. Lífsspeki: Að nöldra og nagga í æfingafélögun- um,sem ég hitti i hádeginu á hverjum degi. Síðan reyni ég að gera alltaf örlítið færri endurtekningar en þeir svo þeir fari ekki í fýlu. dv.is 550 5000 Skaftahlíð 24

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.