Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.2002, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2002 Fréttir DV Storkurinn Styrmir boðinn velkominn í Húsdýragarðinn: Ráðherra til bjargar storkinum Storkurinn á flugi við Ásunnarstaði á dögunum. Lektor í kynjafræði: Fengum ranga tölu „Það sem gerðist var að þessi tala frá Kjararannsóknamefnd var ein- faldlega röng. Hún var jafnframt viðsnúningur og það leiðréttum við einnig," segir Þorgerður Einars- dóttir, lektor i kynjafræði, um nið- urstöður launakönnunar í sex ESB- löndum þar sem fram kom að launamunur kynjanna í opinbera geiranum væri 39 prósent. „Þetta er sameiginleg ábyrgð okkar og KOS,“ bætti Þorgerður við. í athugasemdum íjármálaráðu- neytis um framkvæmd könnunar- innar segir að ekki hafi verið stað- ið nægilega faglega að verki. Ráðu- neytið bendir á að sú tala, þ.e. 30 prósent launamunur kynjanna hjá ríki og borg, vísi til meðaltals á heildarlaunum þar sem ekki sé tek- ið tillit tii vinnumagns. Sé leiðrétt fyrir þeirri villu þá sé launamunur samkvæmt könnuninni 25 prósent. Þorgerður kvaðst hafna því að ekki hefði verið staðið nægilega faglega að verki. Hins vegar hefði sú tala sem komið hefði upphaflega frá Kjararannsóknarnefnd opin- berra starfsmanna ekki verið rétt. Þegar hún hefði verið leiðrétt hefði launabilið verið 24 prósent í opin- bera geiranum og 27 prósent á al- menna vinnumarkaðinum. Öll gögn hefðu verið fengin frá Hagstofu, Kjararannsóknarnefnd og KOS í samráði við starfsmenn þeirra stofnana. Þorgerður sagði enn fremur aö aðferðafræðin við íslenska hlutann væri fyllilega sambærileg við þann erlenda. -JSS „Ég tel vel við hæfi að storkur- inn fái nafnið Styrmir, ekki í höfuðið á ritstjóra Morgunblaðsins, heldur af þeirri ástæðu að storm- urinn bar hann hingað til okkar,“ sagði Siv Friðleifs- dóttir umhverfis- ráðherra í gær. Ráðherrann tók af skarið og tekur þátt í að bjarga stork- inum í Breiðdal ásamt DV sem skrifað hefur blaða mest um örlög þessa vin- sælasta fugls Evrópu og fjölda áhuga- samra dýravina. Tveir starfsmenn Náttúrufræðistofnunar fóru að ósk umhverfisráðherra austur að Ásunn- arstöðum í Breiðdal í gær og könnuðu aðstæður til að fanga storkinn í því skyni að fLytja hann til Reykjavíkur. Sleppt í Danmörku eða Sví- þjóð? Siv segir að ýmsir möguleikar séu í stöðunni, til dæmis að ala fuglinn í Húsdýragarðinum, að sleppa honum í Reykjavík næsta vor, eða koma hon- um til Sviþjóðar eða Danmerkur að vori þar sem storkar eru algengir yflr sumartimann. Siv sagði að sérfróðir menn mundu skoða hina ýmsu kosti nánar. „Fuglinum er bani búinn ef ekki verður að gert og hann líður greini- lega skort,“ sagði Siv. „Því þótti mér ekki nema eðilegt að reynt yrði að bjarga storkinum." Samkvæmt lögum er óheimilt að fanga villt dýr í náttúr- unni nema til komi leyfi ráðherra. Þegar menn Náttúrufræðistofú komu austur í gær fannst storkurinn brátt við tjamir skammt frá bænum. Hann er mjög gæfur eins og komið hefúr fram og svo virðist sem hann hafi megrast á stuttum tíma enda án efa erfitt um aðdrætti. Ætlunin var að lokka fuglinn með æti en fyrstu til- raunir báru ekki árangur og verður haldið áfram að reyna að ná fúglinum. Storkurinn í Húsdýragarðinn Tómas Guðjónsson, forstöðumaður Húsdýragarðsins í Reykjavík, sagði að ef storkurinn kæmi í garðinn skapaðist ný staða sem ræða þyrfti við Náttúrufræðistofnun og villidýra- nefnd sem hefur með villt dýr að gera. Húsdýragarðurinn hefur iðu- lega tekið að sér villt dýr í hremming- um sem er sérstakt verkefni innan garðsins sem hugar vandlega að dýra- vemd. Tómas segir að trúlega sé storkurinn ekki veikur, heldur mat- arlítill og soltinn, enda erfitt um að- drætti á þessum árstíma. Hann telur að hann þoli kulda nokkuð vel. Tómas sagði að hér sýndi sig góður vilji ráðherrans og mundi starfsfólk Húsdýragarðsins leggja sig fram um að hjálpa storkinum. „Eflaust mundi storkurinn vekja mikla athygli og örva aðsókn hjá okk- ur, en fyrir okkur gilda ekki fjármála- leg sjónarmið heldur fyrst og fremst mannúð og sjónarmið dýravemdar. Það er líðan fuglsins sem ræður ferð- inni, verði hann heilbrigður er ekkert til fyrirstöðu að leyfa almenningi að skoða hann og fræðast um leið um líf storkanna," sagði Tómas. Algengt er að villt dýr í hremmingum komi tif garðsins og þar er annast um þau, hvort sem það em emir, fálkar, smyrl- ar eða önnur dýr sem aðstoða þarf. Tómas sagði að án efa mundi fræðslu- deild garðsins fagna komu storksins að ekki væri talað um bömin í grunn- skólunum sem án efa hefðu áhuga á að skoða þennan merkilega og tígulega fúgl. -JBP Stríð trommuleikarans og sýslumannsins á Ólafsfirði: Kyrkja-Köttinn með lagabókstaf að vopni - ráðuneytið sker úr um misræmi í túlkun sýslumanna ef kæra berst „Kyrkja-Köttinn" á Ólafsflrði Á myndinni eru Bragi Óskarsson, sem spilar á gítar, Gísli Rúnar Gylfason söngvari, Haukur Páisson og Ragnar Ingason bassaleikari. Á myndina vantar Guölaug Ingason hljómborösleikara og Hjörleif Hjörleifsson gítarleikara. Hljómsveitin Kyrkja-Köttinn á Ólafs- flrði hefur enn ekki fengið úr því skor- ið hvort hún fær að spila á árshátíð vélsleðamanna í Glaumbæ annan í jól- um með 16 ára trommuleikarann sinn innanborðs. Eins og greint var frá í DV í gær á hún nú i stríði ásamt veitinga- manninum við Ástríði Grímsdóttur sýslumann. Sýslumaður telur að Hauki Pálssyni trommuleikara sé óheimilt að spila með sveitinni á böllum á vínveit- ingastaðnum Café Glaumbæ á Ólafs- flrði, jafnvel þó hann sé í fylgd foreldra sinna. Þeir hafa þó tvisvar spilað í Böggveri á Dalvik án athugasemda sýslumannsins á Akureyri. Bjöm Frið- flnnsson, ráðuneytisstjóri í dómsmála- ráðuneytinu, segist ekki vilja tjá sig um þetta mál. Kæra hafl ekki borist ráðuneytinu vegna þess. Aðspurður um misræmi á milli sýslumannsemb- ætta á túlkun laga í þessu tilviki sagði Bjöm að ef kæra bærist þá myndi ráðu- neytið þurfa að skera úr um mismun- andi túlkun laganna. Ástríður sýslumaður hefur sam- kvæmt upplýsingum DV vísað til bamavemdarlaga í þessu máli og vís- ar sjálf í samtali við blaðið í gær til laga um aðbúnað, hollustuhætti og ör- yggi á vinnustöðum. Lögin era númer 46 frá 28. maí 1980. í 63. gr. a. i lögunum er í 1. máls- grein ákvæðið sem sýslumaður vísar til. Þar stendur einnig orðrétt: „Heimilt er að víkja frá ákvæði 2. málsl. 1. mgr. þessarar greinar á sér- stökum starfssviðum, enda skal fúll- orðinn einstaklingur hafa umsjón með unglingnum ef þörf er á slíkri umsjón til vemdar honum. Þó er óheimilt að láta ungling vinna á tímabilinu frá kl. 24 til kl. 4. Heimilt er að víkja frá ákvæðum 2. málsl. 1. mgr. og 2. mgr. greinar þess- arar þegar til þess liggja réttmætar ástæður og að því tilskildu að ungling- amir fái hæfilegan uppbótarhvíldar- tíma. Undanþága þessi á við þegar um er að ræða vinnu á sjúkrastofnunum eða sambærilegum stofnunum og störf á sviði menningarmála, lista, íþrótta eða auglýsinga." í 63. gr. b., í síðustu málsgrein, er hnykkt á þessu undanþáguákvæði með tilliti til hvíldcirtíma. Þar segir orðrétt: „Undanþága þessi á við þegar um er að ræða vinnu á sjúkrastofnunum eða sambærilegum stofnunum, störf á sviði landbúnaðar, ferðamála eða í hót- el- og veitingarekstri og vinnu sem er skipt upp yfir daginn." -HKr. VAGNHÖFÐA 23 • SÍMI 590 2000 • WWW.BENNI.IS REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 11.12 10.57 Sólarupprás á morgun 15.31 15.16 Síðdegisflóó 14.02 18.35 Árdegisflóð á morgun 02.41 07.14 i^jJrvSJjJ Rigning með köflum Suðlæg eða breytileg átt, víða 3-8 metrar á sekúndu, en suöaustan 10-15 vestan til. Rigning með köfl- um um landið vestanvert, yfirleitt léttskýjað um norðaustanvert landið, en skýjað með köflum og smáskúrir á Suðausturlandi. 1 ' VI. Suðlæg eða breytileg átt en suð- austan 10-15 vestan til. Yfirleitt léttskýjað um norðaustanvert landið, en skýjaö meö köflum og smáskúrir á Suðausturlandi. m Sunnudagur Mánudagur Þriðjudagur Hiti 0° Hiti 0° w Hiti 0“ til 7’ til T tíi 8° Vindur: Vindur: Vindur; 4-9 m/> 5-10 n)/» 5-10 «V‘ t t * Fremur hæg Rlgnlng eöa Suðvestanátt suðlæg átt. skúrlr en að og fremur Smáskúrlr mestu þurrt hlýtt. Vætu- vestan tll á austanlands. samt, elnk- landinu en Hltl breytlst um vestan tll bjartvlðrl austanlands. BUð. á landlnu. m/s Logn 0-0,2 Andvari 0,3-1,5 Kul 1,6-3,3 Gola 3,4-5,4 Stinningsgola 5,5-7,9 Kaldl 8,0-10,7 Stinningskaldi 10,8-13,8 Allhvasst 13,8-17,1 Hvassviðri 17,2-20,7 Stormur 20,8-24,4 Rok 24,5-28,4 Ofsaveður 28,5-32,6 Fárviðri >= 32,7 AKUREYRI léttskýjaö 4 BERGSSTAÐIR skúr 5 BOLUNGARVÍK skúr 3 EGILSSTAÐIR hálfskýjað 2 KEFLAVÍK skýjaö 4 KIRKJUBÆJARKL. alskýjað 4 RAUFARHÖFN heiðskírt -1 REYKJAVÍK rigning 4 STÓRHÖFÐI skýjað 6 BERGEN heiðskírt -5 HELSINKI kornsnjór -2 KAUPMANNAHÖFN þokumóða ÓSLÓ hálfskýjaö -9 STOKKHÓLMUR 0 ÞÓRSHÖFN skýjað 6 ÞRÁNDHEIMUR þoka -1 ALGARVE skýjaö 12 AMSTERDAM skýjað -2 BARCELONA BERLÍN þokumóöa -11 CHICAGO þokumóöa 2 DUBLIN súld 5 HALIFAX alskýjað 1 HAMBORG þokumóöa -9 FRANKFURT þokumóöa -4 JAN MAYEN alskýjað 2 LONDON rigning 5 LÚXEMBORG rigning -2 MALLORCA léttskýjað 5 MONTREAL alskýjað 1 NARSSARSSUAQ alskýjað 5 NEW YORK léttskýjaö 4 ORLANDO rigning 17 PARÍS skýjað 4 VÍN þokumóða -4 WASHINGTON skýjaö 3 WINNIPEG alskýjað -3 . s 3 ;kwi x ni! ; 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.