Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2002, Side 1
/
t
*
*
*
i
*
*
*
i
i
*
*
Á
BÓKMENNTIR: ALSJÁANDI
AUGU GUÐS. BLS. 14
; þ—
■ t—
!0
! vO
LO
DAGBLAÐIÐ VISIR
291. TBL. - 92. ARG. - MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 2002
VERÐ I LAUSASOLU KR. 200 M/VSK
Ingibjörg Sólrún
íhugar framboð
- hefur verið boðið 5. sæti á lista í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna
Ingibjörg Sólrún Glsladóttir borg-
arstjóri hefur sarakvæmt heimild-
um DV ljáð máls á því að taka sæti
á lista Samfylkingarinnar í öðru
hvoru Reykjavíkurkjördæmanna
fyrir komandi þingkosningar. Málið
var rætt á lokuðum fundi í gær.
Uppstillingarnefnd hefur boðið
Ingibjörgu Sólrúnu 5. sæti á öðrum
hvorum listanum því ekki verður
hróflað við úrslitum i prófkjöri
Samfylkingarinnar hvað varðar
efstu átta sæti, þ.e. fjögur efstu sæt-
in í hvoru kjördæmi.
Ljóst er að Samfylkingin þarf að
bæta við sig talsverðu fylgi frá því í
síðustu kosningum til þess að ná
fimm þingsætum af ellefu í öðru
hvoru Reykjavíkurkjördæmanna.
í yfirlýsingu frá Ingibjörgu Sól-
rúnu í september - í kjölfar skoð-
anakönnunar sem sýndi að framboð
hennar myndi bæta talsverðu við
fylgi Samfylkingarinnar - ítrekaði
hún það sem hún hafði sagt fyrir
borgarstjórnarkosningarnar, að
hún stefndi ekki á þingframboð.
Hún hefði hugleitt stöðuna út frá
þeim skuldbindingum sem hún
hefði tekist á hendur fyrir kjósend-
ur Reykjavíkurlistans og þeim
markmiðum sem hún hefði sett sér
í starfi borgarstjóra. Niðurstaðan
væri að ekkert það hefði gerst á
vettvangi stjórnmálanna sem knyði
á um að hún breytti þeirri afstöðu
sem hún tók í vor.
í viðtali við DV bætti Ingibjörg
Sólrún hins vegar við: „Ég tek
ákvarðanir út frá þeirri stöðu sem
uppi er hverju sinni," og sagðist
langa til að taka þátt í að breyta
pólitíska landslaginu næsta vor. í
umræðum í borgarstjóm á dögun-
um vakti hún þessa umræðu upp á
ný með því að lýsa því yfir að ekki
væru enn öll kurl komin til grafar
varðandi framboð hennar. Hún
sagði síðar að þetta hefði verið sagt
meira í gamni en alvöru - en að öllu
gamni fylgdi nokkur alvara.
Árni Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar, lýsti andstöðu við hugs-
anlegt framboð borgarstjóra í kjöl-
farið og sagðist túlka yflrlýsingu
hennar svo: „Mér finnst Ingibjörg
Sólrún vera að gefa það út að hún
ætli ekki að fara í þessar þingkosn-
ingar og það er yfirlýsingin sem
hún gaf í vor.“
Hvorki náðist í Ingibjörgu Sólrúnu
né Össur Skarphéðinsson í morgun.
Páll Halldórsson, formaður uppstill-
ingarnefndar Samfylkingarinnar í
Reykjavík, vildi í morgun hvorki játa
því né neita að Ingibjörg hefði þegið
sæti á lista flokksins fyrir þingkosn-
ingamar næsta vor. -ÓTG
DV-MYND HARI
Frá blaðamannafundi
Þetta nýja lágfargjaldafélag mun
fljúga á flugrekstrarleyfum breska
flugfélagsins Astraeus.
Nýtt lágfargjaldafélag:
lceland
Express hef-
ur starfsemi
í febrúar
Nýtt lágfargjaldafélag, Iceland
Express, mun hefja starfsemi í
farþegaflugi 27. febrúar 2003.
Sala farmiða hefst 9. janúar og
eru viðkomustaðirnir London og
Kaupmannahöfn. Flogið verður
einu sinni á dag til hvorrar
borgar, sjö daga vikunnar allt
árið um kring. Félagið gerir ráð
fyrir að ná um 12% markaðs-
hlutdeild af íslensku millilanda-
flugi miðað við núverandi far-
þegafjölda.
Jóhannes Georgsson, fyrrum
framkvæmdastjóri SAS á ís-
landi, er framkvæmdastjóri fé-
lagsins og Sigurður I. Halldórs-
son lögmaður er stjómarformað-
ur. I raun er hér um ferðaskrif-
stofu að ræða því Iceland Ex-
press mun ekki sjálft hafa með
eiginlegan flugrekstur að gera.
Þess í stað verður flogið á flug-
rekstrarleyfum og með 148 far-
þega Boeing 737-300 vélum
breska flugfélagsins Astraeus.
Áhöfn í farþegarými verður þó
íslensk.
Ódýrasta fargjaldið til London
verði 4.950 krónur hvora leið,
eða samtals 9.900 krónur fram og
til baka. Með flugvallarsköttum
kostar ferðin báðar leiðir til
London 14.160 krónur og 14.660
til og frá Kaupmannahöfn. í boði
verða 40 þúsund sæti á fargjöld-
um á bilinu 14 til 19 þúsund
krónur báðar leiðir með flugvall-
arsköttum. Hæsta verð verður á
bilinu 15 til 19 þúsund aðra leið
án flugvallarskatta.
Ljóst er að Flugleiðir munu
mæta þessari samkeppni á ein-
hvem hátt, en Guðjón Am-
grímsson, talsmaður félagsins,
vildi þó ekkert segja í samtali
við DV í morgun með hvaða
hætti þaö yrði. Hann segir að
Flugleiðir keppi á samkeppnis-
markaði og öllum sé frjálst að
koma inn á þennan markað.
Markmið Flugleiða sé að standa
sig betur gagnvart viðskiptavin-
um en aðrir.
-HKr.
SYNGUR LÖG EFTIR
SVEITUNGANA:
Miöast allt
við að gera
foreldrana
stolta
KVENNALANDSLIÐIÐ í
KÖRFUKNATTLEIK:
Fjórtán ára
komin í
A-landsliðið