Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Álit geðlæknis á hegðan ungs manns sem var að fá sinn fimmta ofbeldisdóm:
Einelti ein ástæða
fjölda líkamsárása
Grétar Sigurbergsson geðlæknir
telur að einelti í skóla á unga aldri
hafi markað svo djúp spor í persónu-
leika 24 ára íbúa í Breiðholti að það
sé meðal annarra þátta ástæða þess
að hann fór sjáifur að beita aðra
mjög alvarlegu ofbeldi síðar. Maður-
inn var dæmdur í 18 mánaða fang-
elsi fyrir tvær stórfelldar líkams-
árásir í vikunni. Árið 2000 fékk hann
6 mánaða fangelsi fyrir aðrar lík-
amsárásir en árin þar á undan hafði
hann þrisvar hlotið dóma fyrir lík-
amsárásir.
Þegar litið er td dómsins sem
kveðinn var upp fyrir tveimur árum
kemur fram að Grétar geðlæknir
segir að eftir 18 ára aldur hafi mað-
urinn verið greindur með andfélags-
lega persónuleikaröskun. Skilnaður
foreldra, framkoma fóður, flutningur
milli staða og skóla og einelti hafi
allt verið til þess fallið að grafa und-
an sjálfsmati hans. Hann hafi fljót-
lega komist upp á lag með að fá útrás
fyrir skap sitt og orku í íþróttum. í
skóla varð hann hins vegar fyrir ein-
elti „sem hann lýsir sem mjög
íþyngjandi," sagði geðlæknirinn.
„Ekki er ósennilegt að eineltið hafi
haft mótandi áhrif á viðbrögð hans
við áreiti eftir það. Þegar hann hætti
að geta veitt neikvæðum tilfinning-
um sínum útrás eftir jákvæðum far-
vegi með þátttöku í íþróttum virðist
sem þær tilfmningar hafi átt óeðli-
lega greiðan farveg í slagsmálum.
Þar var hann, eins og áður í íþrótt-
um, fremstur í flokki,“ sagði Grétar.
Árásirnar sem maðurinn hefur
verið dæmdur fyrir gegnum árin
hafa meðal annars einkennst af því
að skalla, berja í andlit og beinbrjóta.
Einnig hefur hann verið ákærður
fyrir að sparka og berja liggjandi
fólk. Þó að í dómnum árið 2000 hafi
geðlæknirinn tekið rækilega út and-
lega stöðu afbrotamannsins er á eng-
an hátt lagt til að ákærði fái þá með-
höndlun sem greinilega er þörf með
hliðsjón af læknismatinu. í dómnum
sem gekk á miðvikudag, 18 mánaða
óskilorðsbundið fangelsi, er tekið
mið af því að maðurinn var að rjúfa
skilyrði reynslulausnar á dómnum
sem gekk fyrir tveimur árum. „Brot
ákærða eru allt grófar og tilefnislaus-
ar árásir sem beindust allar að höfði
brotaþola," sagði Valtýr Sigurðsson
héraðsdómari í niðurstöðu sinni.
Fyrra brotið af tveimur sem hann
var nú ákærður fyrir var framið dag-
inn eftir að hann losnaöi út úr fang-
elsi á reynslulausn í vor. -Ótt
Atlantsskip gefa 50 jólatré
Atlantsskip færðu Hjálparstarfi
kirkjunnar 50 jólatré aö gjöf en fyr-
irtækið flytur inn tré frá Dan-
mörku. Gjafakortum á tré hefur
verið deilt út i dag til þeirra sem
sótt hafa um aðstoð hjá Hjálpar-
starfi kirkjunnar og getur fólk val-
ið sér tré hjá Garðlist í Reykjavík.
„Hjálparstarfið hefur deilt út
mataraðstoð allan desembermánuð
til þess að létta undir með fólki í
jólamánuðinum. Rúmlega 900 um-
sóknir hafa borist. Deilt er sérstak-
lega út á Akureyri og stefnir í um
60 umsóknir þar. Hjálparstarfið
veitir aðstoð innanlands allt árið
með áherslu á ráðgjöf," segir Vil-
borg Oddsdóttir, félagsráðgjafi og
umsjónarmaður innanlandsaðstoð-
ar. -ss
Litrík og djörf
rúmstokksbók
FER LÍTIÐ FYRIR OG ER ÖRVANDI AÐ EIGA
Krt*\q(csJ\
fR HtB/BLLI FYRIH JDLIN
„Eftir lestur
þessarar bókar
sá ég að það er
rétt sem sagt er,
að hún sé
skemmtilegt
uppflettirit og
nauðsynleg
á náttborð
þeirra sem
glæða vilja
kynlíf sitt nýju
lífi og auka á
fjölbreytni."
Halldóra Bjarnadóttir
Jpl/
JPV UTGÁFA
Bræðraborgarstígur 7
Sími 575 5600
Opið til
kl. 22.00 til jóla
www.jpv.is
KÍKTU Á NETSlÐUNA OKKAR
Guðni fær sér öl
íslendingar drekka aö meöaltali 20 glös afmalti og appelsíni um jólin. Þetta
var meöal þess sem Guöni Ágústsson komst aö þegar hann heimsótti Öl-
geröina Egil Skallagrímsson á dögunum. Eftir aö hafa snætt lamþakjöt færöi
Jón Diörik Jónsson, forstjóri Ölgeröarinnar, landbúnaöarráöherra sérmerkta
flösku ef Egils Malti.
Handboltamenn Stjörnunnar í hörkuleik:
Sperrtir eins og
hanar við heim-
sókn súlumeyja
Sögulegur leikur karlaliðs Stjörn-
unnar og ÍR í handbolta í íþróttahúsi
Stjörnunnar í Garðabæ á miðviku-
daginn lauk með jafntefli, 30 mörk-
um gegn 30. Ekki mun þó hafa horft
byrlega fyrir Stjörnustrákum i hálf-
leik og var þá samkvæmt heimildum
DV gripið til örþrifaráða.
Þegar strákarnir skunduðu til
búningsklefa var staðan 17-11 fyrir
ÍR og stefndi þvi í stórtap Stjörnunn-
ar. Þá mun Magnús Andrésson,
gjaldkeri handboltadeildar, hafa
skundað í búningsklefann til að tala
yfir hausamótunum á strákunum og
í kjölfarið sigldu tvær súludömur frá
Geira í Maxím’s (Ásgeiri Þór Jóns-
syni). Ætluðu þær í sakleysi sínu að
hvetja strákana til dáða. Hugðust
þær gefa fyrirheit um ókeypis að-
gang og væntanlega góða fyrir-
greiðslu á Goldfinger, súlustað Geira
í Kópavogi, ef þeir ynnu leikinn.
Geiri sem er mikill stuðningsmaður
liðsins í gegnum tíðina, var ekki
sjálfur með stúlkunum en sagðist
hafa heimilað þeim að fara til að
hvetja strákana. Mun heimsókn
súlumeyjanna hins vegar hafa vakið
upp allt aðrar kenndir fyrirliðans,
Björns Friðrikssonar, en til stóð. Að
sögn bílstjórans, sem ók stúlkunum
á staðinn, vísaði hann þeim umsvifa-
laust á dyr.
Strákarnir virðast þó hafa harðn-
að mikið við þessa heimsókn og
mættu ÍR-ingum sperrtir eins og
hanar í hænsnahóp og sýndu snilld-
artakta í seinni hálfleik. Munaði
minnstu að þeir næðu að hreppa
sælufyrirheit á Goldfmger með því
að vinna leikinn sem endaði þó, eins
og fyrr segir, með 30 mörkum Stjörn-
unnar gegn 30 mörkum ÍR. -HKr.
Yfir 500 umsóknir
Alls bárust sjávarút-
vegsráðuneytinu 554
umsóknir vegna út-
hlutunar byggðakvóta
sem fram fór í gær. Út-
hlutað var 2000 lestum
af óslægðum botnfiski í
þorskígildum," reiknað til stuðn-
ings sjávarbyggðum sem lent hafa í
vanda vegna samdráttar í sjávarút-
vegi,“ eins og segir í reglugerð um
úthlutunina. Árni M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra tilkynnti aö
59 umsóknir hefðu fengið úthlutun
að þessu sinni. Stærsta úthlutunin
kom í hlut Súgfirðinga sem fengu
úthlutað 160 tonnum.
Matur og áfengi
Sala á matvöru og annarri dag-
vöru dróst saman um 2,7 prósent ef
borin er saman veltan í nóvember á
þessu ári og nóvember í fyrra, að
þvi er fram kemur í nýrri smásölu-
vísitölu hjá Samtökum verslunar og
þjónustu. Veltuaukning varð hins
vegar í áfengissölu um 2 prósent ef
borin eru saman sömu tímabil. Nán-
ast engin breyting hefur orðið á
veltu lyQaverslana milli mánaðanna
september, október og nóvember sl.
Mannabreytingar
Halldór S. Kristjánsson, staðgeng-
ill ráðuneytisstjóra samgönguráðu-
neytis, hefur verið settur ráðuneyt-
isstjóri í samgönguráðuneytmu frá
og með 1. janúar nk. til allt að sex
mánaða. Jón Birgir Jónsson ráðu-
neytisstjóri hefur fengið leyfi frá
störfum til sama tíma. Ragnhildur
Hjaltadóttir skrifstofustjóri mun á
sama tímabili gegna stöðu staðgeng-
ils ráðuneytisstjóra, að því er segir
í frétt frá ráðuneytinu.
Hallarekstur
Samkvæmt rekstraruppgjöri
Landspítala háskólasjúkrahúss varð
rekstur spítalans fyrstu ellefu mán-
uði ársins 899 milljónir króna um-
fram fjárheimOdir sem er 4,2% frá-
vik frá fjárheimildum tímabilsins.
Er þetta í samræmi við útkomuspá
ársins. Mbl. greindi frá.
Harður árekstur
Harður árekstur varð á gatnamót-
um ÞingvEillastrætis og Mýrarvegar
á Akureyri skömmu eftir kl. 14 í
gær. Engin slys urðu á fólki en bíl-
arnir skemmdust mikið og voru fjar-
lægðir af vettvangi meö kranabíl.
Vísað frá
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í
gær frá dómi máli Náttúruvemdar-
samtaka íslands og nokkurra einstak-
linga sem kröfðust þess að íslenska
ríkinu og Landsvirkjun yrði gert að
leggja skýrslu Landsvirkjunar um
mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúka-
virkjunar að nýju undir athugun og
úrskurð Skipulagsstofnunar.
Fallið frá málsókn
Þrotabú Genealogia Islandomm
hefur fallið frá málsókn og afsalað
sér öllum kröfum á hendur ís-
lenskri erfðagreiningu og Friðriki
Skúlasyni ehf. vegna gerðar ætt-
fræðigrunnsins íslendingabókar.
Sömuleiðis hefur Þorsteinn Jónsson
fallið frá málsókn á hendur ÍE og
Friðriki Skúlasyni ehf. vegna sama
máls. Dómsmál þar að lútandi var
fellt niður við fyrirtöku í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gærmorgun.
Sameiningarvilji
Stjórn SÍF hefur lýst
yfir vilja sínum til
formlegra viðræðna
við stjóm SH um sam-
einingu félaganna. Hef-
ur stjórnin tilkynnt
þetta til Kauphallar ís-
lands og óskað eftir svari frá SH þar
að lútandi fyrir 10. janúar 2003, að
því er segir í frétt frá SÍF. Stjóm SH
hf. lýsti þegar í gær yfir vilja sínum
til að ganga til formlegra viðræðna
um sameiningu SH og SÍF hf. -JSS