Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Side 2
2 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 Fréttir DV Álit geðlæknis á hegðan ungs manns sem var að fá sinn fimmta ofbeldisdóm: Einelti ein ástæða fjölda líkamsárása Grétar Sigurbergsson geðlæknir telur að einelti í skóla á unga aldri hafi markað svo djúp spor í persónu- leika 24 ára íbúa í Breiðholti að það sé meðal annarra þátta ástæða þess að hann fór sjáifur að beita aðra mjög alvarlegu ofbeldi síðar. Maður- inn var dæmdur í 18 mánaða fang- elsi fyrir tvær stórfelldar líkams- árásir í vikunni. Árið 2000 fékk hann 6 mánaða fangelsi fyrir aðrar lík- amsárásir en árin þar á undan hafði hann þrisvar hlotið dóma fyrir lík- amsárásir. Þegar litið er td dómsins sem kveðinn var upp fyrir tveimur árum kemur fram að Grétar geðlæknir segir að eftir 18 ára aldur hafi mað- urinn verið greindur með andfélags- lega persónuleikaröskun. Skilnaður foreldra, framkoma fóður, flutningur milli staða og skóla og einelti hafi allt verið til þess fallið að grafa und- an sjálfsmati hans. Hann hafi fljót- lega komist upp á lag með að fá útrás fyrir skap sitt og orku í íþróttum. í skóla varð hann hins vegar fyrir ein- elti „sem hann lýsir sem mjög íþyngjandi," sagði geðlæknirinn. „Ekki er ósennilegt að eineltið hafi haft mótandi áhrif á viðbrögð hans við áreiti eftir það. Þegar hann hætti að geta veitt neikvæðum tilfinning- um sínum útrás eftir jákvæðum far- vegi með þátttöku í íþróttum virðist sem þær tilfmningar hafi átt óeðli- lega greiðan farveg í slagsmálum. Þar var hann, eins og áður í íþrótt- um, fremstur í flokki,“ sagði Grétar. Árásirnar sem maðurinn hefur verið dæmdur fyrir gegnum árin hafa meðal annars einkennst af því að skalla, berja í andlit og beinbrjóta. Einnig hefur hann verið ákærður fyrir að sparka og berja liggjandi fólk. Þó að í dómnum árið 2000 hafi geðlæknirinn tekið rækilega út and- lega stöðu afbrotamannsins er á eng- an hátt lagt til að ákærði fái þá með- höndlun sem greinilega er þörf með hliðsjón af læknismatinu. í dómnum sem gekk á miðvikudag, 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi, er tekið mið af því að maðurinn var að rjúfa skilyrði reynslulausnar á dómnum sem gekk fyrir tveimur árum. „Brot ákærða eru allt grófar og tilefnislaus- ar árásir sem beindust allar að höfði brotaþola," sagði Valtýr Sigurðsson héraðsdómari í niðurstöðu sinni. Fyrra brotið af tveimur sem hann var nú ákærður fyrir var framið dag- inn eftir að hann losnaöi út úr fang- elsi á reynslulausn í vor. -Ótt Atlantsskip gefa 50 jólatré Atlantsskip færðu Hjálparstarfi kirkjunnar 50 jólatré aö gjöf en fyr- irtækið flytur inn tré frá Dan- mörku. Gjafakortum á tré hefur verið deilt út i dag til þeirra sem sótt hafa um aðstoð hjá Hjálpar- starfi kirkjunnar og getur fólk val- ið sér tré hjá Garðlist í Reykjavík. „Hjálparstarfið hefur deilt út mataraðstoð allan desembermánuð til þess að létta undir með fólki í jólamánuðinum. Rúmlega 900 um- sóknir hafa borist. Deilt er sérstak- lega út á Akureyri og stefnir í um 60 umsóknir þar. Hjálparstarfið veitir aðstoð innanlands allt árið með áherslu á ráðgjöf," segir Vil- borg Oddsdóttir, félagsráðgjafi og umsjónarmaður innanlandsaðstoð- ar. -ss Litrík og djörf rúmstokksbók FER LÍTIÐ FYRIR OG ER ÖRVANDI AÐ EIGA Krt*\q(csJ\ fR HtB/BLLI FYRIH JDLIN „Eftir lestur þessarar bókar sá ég að það er rétt sem sagt er, að hún sé skemmtilegt uppflettirit og nauðsynleg á náttborð þeirra sem glæða vilja kynlíf sitt nýju lífi og auka á fjölbreytni." Halldóra Bjarnadóttir Jpl/ JPV UTGÁFA Bræðraborgarstígur 7 Sími 575 5600 Opið til kl. 22.00 til jóla www.jpv.is KÍKTU Á NETSlÐUNA OKKAR Guðni fær sér öl íslendingar drekka aö meöaltali 20 glös afmalti og appelsíni um jólin. Þetta var meöal þess sem Guöni Ágústsson komst aö þegar hann heimsótti Öl- geröina Egil Skallagrímsson á dögunum. Eftir aö hafa snætt lamþakjöt færöi Jón Diörik Jónsson, forstjóri Ölgeröarinnar, landbúnaöarráöherra sérmerkta flösku ef Egils Malti. Handboltamenn Stjörnunnar í hörkuleik: Sperrtir eins og hanar við heim- sókn súlumeyja Sögulegur leikur karlaliðs Stjörn- unnar og ÍR í handbolta í íþróttahúsi Stjörnunnar í Garðabæ á miðviku- daginn lauk með jafntefli, 30 mörk- um gegn 30. Ekki mun þó hafa horft byrlega fyrir Stjörnustrákum i hálf- leik og var þá samkvæmt heimildum DV gripið til örþrifaráða. Þegar strákarnir skunduðu til búningsklefa var staðan 17-11 fyrir ÍR og stefndi þvi í stórtap Stjörnunn- ar. Þá mun Magnús Andrésson, gjaldkeri handboltadeildar, hafa skundað í búningsklefann til að tala yfir hausamótunum á strákunum og í kjölfarið sigldu tvær súludömur frá Geira í Maxím’s (Ásgeiri Þór Jóns- syni). Ætluðu þær í sakleysi sínu að hvetja strákana til dáða. Hugðust þær gefa fyrirheit um ókeypis að- gang og væntanlega góða fyrir- greiðslu á Goldfinger, súlustað Geira í Kópavogi, ef þeir ynnu leikinn. Geiri sem er mikill stuðningsmaður liðsins í gegnum tíðina, var ekki sjálfur með stúlkunum en sagðist hafa heimilað þeim að fara til að hvetja strákana. Mun heimsókn súlumeyjanna hins vegar hafa vakið upp allt aðrar kenndir fyrirliðans, Björns Friðrikssonar, en til stóð. Að sögn bílstjórans, sem ók stúlkunum á staðinn, vísaði hann þeim umsvifa- laust á dyr. Strákarnir virðast þó hafa harðn- að mikið við þessa heimsókn og mættu ÍR-ingum sperrtir eins og hanar í hænsnahóp og sýndu snilld- artakta í seinni hálfleik. Munaði minnstu að þeir næðu að hreppa sælufyrirheit á Goldfmger með því að vinna leikinn sem endaði þó, eins og fyrr segir, með 30 mörkum Stjörn- unnar gegn 30 mörkum ÍR. -HKr. Yfir 500 umsóknir Alls bárust sjávarút- vegsráðuneytinu 554 umsóknir vegna út- hlutunar byggðakvóta sem fram fór í gær. Út- hlutað var 2000 lestum af óslægðum botnfiski í þorskígildum," reiknað til stuðn- ings sjávarbyggðum sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarút- vegi,“ eins og segir í reglugerð um úthlutunina. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra tilkynnti aö 59 umsóknir hefðu fengið úthlutun að þessu sinni. Stærsta úthlutunin kom í hlut Súgfirðinga sem fengu úthlutað 160 tonnum. Matur og áfengi Sala á matvöru og annarri dag- vöru dróst saman um 2,7 prósent ef borin er saman veltan í nóvember á þessu ári og nóvember í fyrra, að þvi er fram kemur í nýrri smásölu- vísitölu hjá Samtökum verslunar og þjónustu. Veltuaukning varð hins vegar í áfengissölu um 2 prósent ef borin eru saman sömu tímabil. Nán- ast engin breyting hefur orðið á veltu lyQaverslana milli mánaðanna september, október og nóvember sl. Mannabreytingar Halldór S. Kristjánsson, staðgeng- ill ráðuneytisstjóra samgönguráðu- neytis, hefur verið settur ráðuneyt- isstjóri í samgönguráðuneytmu frá og með 1. janúar nk. til allt að sex mánaða. Jón Birgir Jónsson ráðu- neytisstjóri hefur fengið leyfi frá störfum til sama tíma. Ragnhildur Hjaltadóttir skrifstofustjóri mun á sama tímabili gegna stöðu staðgeng- ils ráðuneytisstjóra, að því er segir í frétt frá ráðuneytinu. Hallarekstur Samkvæmt rekstraruppgjöri Landspítala háskólasjúkrahúss varð rekstur spítalans fyrstu ellefu mán- uði ársins 899 milljónir króna um- fram fjárheimOdir sem er 4,2% frá- vik frá fjárheimildum tímabilsins. Er þetta í samræmi við útkomuspá ársins. Mbl. greindi frá. Harður árekstur Harður árekstur varð á gatnamót- um ÞingvEillastrætis og Mýrarvegar á Akureyri skömmu eftir kl. 14 í gær. Engin slys urðu á fólki en bíl- arnir skemmdust mikið og voru fjar- lægðir af vettvangi meö kranabíl. Vísað frá Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í gær frá dómi máli Náttúruvemdar- samtaka íslands og nokkurra einstak- linga sem kröfðust þess að íslenska ríkinu og Landsvirkjun yrði gert að leggja skýrslu Landsvirkjunar um mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúka- virkjunar að nýju undir athugun og úrskurð Skipulagsstofnunar. Fallið frá málsókn Þrotabú Genealogia Islandomm hefur fallið frá málsókn og afsalað sér öllum kröfum á hendur ís- lenskri erfðagreiningu og Friðriki Skúlasyni ehf. vegna gerðar ætt- fræðigrunnsins íslendingabókar. Sömuleiðis hefur Þorsteinn Jónsson fallið frá málsókn á hendur ÍE og Friðriki Skúlasyni ehf. vegna sama máls. Dómsmál þar að lútandi var fellt niður við fyrirtöku í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gærmorgun. Sameiningarvilji Stjórn SÍF hefur lýst yfir vilja sínum til formlegra viðræðna við stjóm SH um sam- einingu félaganna. Hef- ur stjórnin tilkynnt þetta til Kauphallar ís- lands og óskað eftir svari frá SH þar að lútandi fyrir 10. janúar 2003, að því er segir í frétt frá SÍF. Stjóm SH hf. lýsti þegar í gær yfir vilja sínum til að ganga til formlegra viðræðna um sameiningu SH og SÍF hf. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.