Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Eréttir
Álver í Reyðarfirði:
Þarf ekki að fara i
nýtt umhverfismat
m .. . ,
- Alcoa fagnar ákvörðun Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun telur ekki
ástæðu til að senda breytt áform um
byggingu álvers í Reyðarfirði í um-
hverfismat. Úrskurður Skipulags-
stofnunar frá 31. ágúst 2001, um mat
á umhverfisáhrifum 420 þúsund
tonna álvers Reyðaráls, gildir því
áfram fyrir 320 þúsund tonna álver
sem Alcoa hyggst reisa í Reyðar-
firði. Alcoa fagnar þeirri ákvörðun
Skipulágsstofhunar.
Mike Baltzell, framkvæmdastjóri
þróunarsviðs Alcoa segir að verk-
smiðjan við Reyðarfjörð muni
gegna lykilhlutverki í áætlunum
Alcoa um að færa frekar út í kviam-
ar í framleiðslu áls. „Við leggjum
nú áherslu á að lækka framleiðslu-
kostnað á sama tíma og við náum
fram hámarksframleiðni. Á sama
tíma og við erum að skoða ný verk-
efni víðs vegar um heiminn munum
við halda áfram að kanna hag-
Alver Alcoa í Reyðarfirðí
Þessi mynd sýnir hvernig fýrirhugaö álver kemur til meö aö líta út.
kvæmni þeirra álvera sem við starf-
rækjum nú, sér í lagi í Bandaríkjun-
um þar sem dýr orka og starfsafl
hafa dregið úr samkeppnishæfni
margra álvera.“
Niðurstaða Skiplagsstofnunar þýð-
ir að ekki verða tafir frá fyrri áætl-
unum um framkvæmdatíma vegna
álversáforma. Er nú beðið niður-
stöðu stjórnar Alcoa sem búist er við
að samþykki í byrjun janúar vegna
fyrirliggjandi samninga við Lands-
virkjun og fleiri aðila hérlendis.
Áætlað er að þegar álver Alcoa
hefur verið reist muni 455 einstak-
lingar vinna beint fyrir Alcoa en að
auki muni 295 störf skapast í tengsl-
um við álverið. Alls er því gert ráð
fyrir að 750 ný störf skapist á svæð-
inu. Reiknað er með því að alit að
1.800 störf muni í heild skapast með-
an á byggingu álversins stendur.
Lokið er yfirferð lögfræðinga og
annarra sérfræðinga á samningun-
um sem náðust milli Alcoa, Lands-
virkjunar, sveitarfélaga og ríkisins
13. desember. Var málið tekið fyrir
á stjórnarfundi Landsvirkjunar síð-
degis í gær þar sem samningur var
áritaður. Verða samningar nú send-
ir áfram til Bandaríkjanna til árit-
unar og síðan lagðir fyrir stjómir
samningsaðila. -HKr.
Þriðja íkveikjan í Hjaltabakka á einu ári:
Ibúar telja að kveikt hafi verið í
- tilraun til íkveikju virðist hafa verið gerð á fleiri stöðum
Það var nöturleg aðkoma að fjöl-
býlishúsinu Hjaltabakka 10 í Neðra-
Breiðholti eftir brunann í húsinu
aðfaranótt flmmtudags. Að sögn
íbúa er talið að um íkveikju hafl
verið að ræða í kjailara, bæði í
Hjaltabakka 8 og 10. Þá munu
einnig hafa veriö ummerki um til-
raun til íkveikju í Hjaltabakka 12 og
14. Ef rétt reynist að um íkveikju
hafi verið að ræða er þetta í þriðja
skiptið á tiltölulega skömmum tíma
sem slikt gerist í þessari blokk. Lög-
regla hefur málið til rannsóknar og
ekkert hefur enn verið staðfest um
orsakir brunans.
Ibúar og starfsmenn hreinsunar-
og flutningsfyrirtækja voru i gær og
Upptök eldsins voru í kjallara
í kjallara hússins er langur gangur
og eldur hefur greinilega hlaupiö
mjög hratt eftir einangrun á hita-
veitulögnum. Hún er úr svampi og
myndaöist kolsvartur og baneitraöur
reykur þegar hún brann.
DV-MYNDIR HARl
Mikil þrif og mikill þvottur
Starfsmenn frá fyrirtækinu Þrif og þvottur höfðu í nógu aö snúast, enda
meira en heföbundin jólahreingerning.
fyrradag í óðaönn að þrífa og flytja
á brott húsgögn og annað búnað eft-
ir brunann í fyrrinótt. Kona á efstu
hæð i Hjaltabakka 8 sagðist hafa
verið búin að skreyta og gera allt
fint fyrir jólin. „Það var ekkert ann-
að eftir en að skreyta jólatréð,“
sagði hún, en nú var öll íbúðin und-
irlögð af sóti.
í kjallara blokkarinnar, sem er U-
laga, er gangur sem er opinn á milli
allra stigaganga. Reykur og eldur á
þvi greiða leið um allt húsið. Eldur
náði þó ekki að breiðast út upp á
íbúðahæðimar en skemmdir af
völdum reyks eru sums staðar vem-
legar I allt að 18 íbúðum í Hjalta-
bakka 8, 10 og 12. Einhver reykur
mun einnig hafa komst í íbúðir í
Að hjálpa nágrönnunum
Guömundur Halldórsson, 10 ára, á
heima á Hjaltabakka 4. Hann var
kominn til aö hjálpa nágrönnum sín-
um aö taka saman húsbúnaö og
annaö dót svo hægt væri aö þrífa.
Hjaltabakka 6. Alls eru 52 íbúðir í
blokkinni allri. Greinileg ummerki
eru um eldinn í geymslum kjallara
á milli þriggja stigaganga sem
hlaupið hefur eftir einangrun úr
svampi sem er utan um hitaveitu-
lagnir. Smiðir á vegum tryggingafé-
laganna, sem þama voru að skoða
verksummerki, sögðust aldrei hafa
séð svona einangrun. Töldu þeir lík-
legt að slíkt væri kolólöglegt í dag.
Að sögn Finnboga Karfssonar,
íbúa á efstu hæð í Hjaltabakka 10,
er þetta í þriðja skiptið sem kveikt
virðist vera í síðan hann flutti í hús-
ið fyrir fjóram árum. Fleiri íbúar í
blokkinni höfðu sömu sögu að segja.
„Það var íkveikja í kjailara við
stigagang númer 14 í febrúar," sagði
Finnbogi. „Síöan var kveikt í hér í
hjólageymslunni hjá okkur 1 númer
10 fyrir þrem vikum. Við vorum ný-
búin að taka til í geymslunni þegar
kveikt var í. Þá fylltist allt af reyk
en einn íbúanna brást snarlega við
og slökkti eldinn.
Maður var því óvenju rólegur þeg-
ar reykskynjarinn fór í gang í nótt og
ég hélt að nágranni okkar myndi
redda þessu eins og síðast. Ég varð
fyrst var við að sjónvarpið datt út og
síðan fór reykskynjarinn i gang.“
Ingólfur Kristjánsson, sem býr í
næstu íbúð við Finnboga, sagði að
kolsvartur reykjarmökkur hefði ver-
ið í stigaganginum og ómögulegt að
flýja þar út. Því hafi ekki verið um
annað að ræða en fara út á svalirnar.
Finnbogi sagði sér ekki hafa ver-
ið farið að standa á sama enda var
svartur reykurinn farinn að liðast
inn í íbúðina með hurðinni. Hann
hefði því farið út á svalir eins og
aðrir ibúar. Þaðan hefði slökkvilið-
ið bjargað fólki fumlaust og örugg-
lega. -HKr.
VAGNHOFÐA 23 • SIIVII 590 2000 • WWW.BENNI.IS
ijíiyii/íiJJ 5
REYKJAVIK AKUREYRI .
Sólarlag í kvöld 15.30 15.15-
Sólarupprás á morgun 11.22 11.07
Síödegisflóð 19.35 00.Ö8
Árdegisflóö á morgun 07.52 11.25
Slydda eða rigning
Suðaustan 10-15 og slydda eða
rigning sunnan- og vestanlands á
morgun en hægari og úrkomuminna
norðaustan til.
'Jj£lJJJ
Slydda eða rigning
Suöaustan 10-15 og slydda eða
rigning-sunnan- og vestanlands á
morgun en hægari og úrkomuminna
noröaustan til.
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
HHi 1* Hiti 1” w Hiti 1“
til 6* ti(6° «16°
Vindur 3-8 m/s Vindur: 3-8 "V* Vindur: 3-8%*
* * * f§
Vœtusamt en fremur mllt veður en dálrtil slydda eöa snjókoma norðvestan til. Vœtusamt en fremur milt veður en dálrtll slydda eða snjókoma norðvestan tll. Vætusamt en fremurmift veðui en dálrtil slydda eða snjókoma norðvestan tH.
m /q
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi . 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri > = 32,7
vmmm / ’
AKUREYRI snjóél -2
BERGSSTAÐIR alskýjað -1
BOLUNGARVÍK úrkoma í grennd 2
EGILSSTAÐIR alskýjaö -3
KIRKJUBÆJARKL. súld 4
KEFLAVÍK súld 0
RAUFARHÖFN alskýjað -2
REYKJAVÍK skýjaö 3
STÓRHÖFÐI skýjað 3
BERGEN hálfskýjaö 3
HELSINKI alskýjað 1
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 1
ÓSLÓ skýjað 0
STOKKHÓLMUR 4
ÞÓRSHÖFN úrkoma í grennd 1
ÞRÁNDHEIMUR snjóél -1
ALGARVE þokumóða 16
AMSTERDAM alskýjaö 0
BARCELONA alskýjaö 14
BERLIN
CHICAGO alskýjað 1
DUBLIN súld 8
HALIFAX haglél 1
FRANKFURT þoka -4
HAMBORG þokumóða 0
JAN MAYEN skafrenningur -11
LONDON súld 4
LÚXEMBORG frostúði -1
MALLORCA skýjað 15
MONTREAL alskýjaö 1
NARSSARSSUAQ skýjaö 2
NEW YORK þokumóöa 11
ORLANDO alskýjað 21
PARÍS þokumóða 7
VÍN léttskýjaö -6
WASHINGTON rigning 11
WINNIPEG -5