Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Qupperneq 11
f LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 11 Skoðun Látum konur um keipana Jónas Haraldsson aðstoðarritstjóri „Ég ætla rétt að kíkja inn héma,“ sagði konan þar sem við vorum á gangi fram hjá dým búðinni í mið- bænum í fyrrakvöld. Ég kaus að bíða fyrir utan. Dýra búðin selur pelsa og ýmsar vörur úr skinni, hvort heldur eru af minkum, refum, selum eða öðrum kvikindum sem ég kann ekki að nefna. Vörumar eru fallegar, það viðurkenni ég, en færu með fjárhag heimilisins léti konan undan freistingunni. Hún veit það eins vel og ég og stenst þær. Það er meö okkur þegjandi samkomulag. Hún getur skotist inn í skinnabúð- ina, mátað og speglað sig líkt og ég freistast stundum inn í bílabúðir og skoða ekkert nema dýrustu bílana, sest undir stýri, máta mig og stiili baksýnisspegilinn. Það nær ekkert lengra. Ég veit að ég á ekki fyrir drekunum og fer því út að mátun lokinni, kannski með bækling. Kon- an eltir mig ekki í bílabúðimar. Hún hefur engan áhuga á doríun- um, vill hafa bíla litla og hag- kvæma. Notagildi bílanna vegur þyngra en útlitið. Af því það ert þú Ég gerði einu sinni þau mistök að fara með konunni inn í skinna- búðina. Það var hátíð í borginni. Því hafði ég leyft mér þann munað að fá mér aðeins í tána, sem kallað er. Því var ég ekki eins var um mig og undir eðlilegum kringumstæð- um. Kaupmaðurinn tók vel á móti konunni en lagði dýpri merkingu í nærveru mína en ástæða var til. Sennilega mæta konur ekki með menn sína i skinnabúðir nema gera eigi stórkaup. Það stóð ekki til. Konan mátaði fyrst skinnflík sem kostaði hálft þriðja hundrað þúsund. Ég lét drýgindalega. Það espaði kaupmanninn upp. Hann parkeraði flíkinni, sem sennilega var af óvirðulegu, út- lendu dýri, og færði frúna í litaðan sel upp á hálfa milljón. Óskynsamlegar athugasemdir mínar við konuna, þegar hún speglaði sig i selnum, skildi kaupmaðurinn svo að ég væri annað- hvort síldarspekúlant : eða verðbréfasali. Hann sótti því fullsíð- an minkapels. Þá rann af mér. Mér tókst að forða mér áður en kaupmaður- inn sýndi verðmið- ann. Konan hélt andlitinu þótt eigin- maðurinn rynni af hólmi. Sölumað- urinn snjalli var ekki af baki dottinn, hélt sennilega enn að ég væri í verðbréfunum. Hann sagðist því hafa fundið einstaka flík fyr- ir konuna, sér- lega fallegan pels á tólf hundruð þús- und. „Af því það ert þú,“ sagði hann, „þá færðu pelsinn á milljón." Mér svelgdist á munnvatni en náði þó að stama því út úr mér að ég skyldi athuga málið. Sú at- hugun stendur enn. Eftir þetta þorði ég ekki inn í skinnabúðina. Tilgangslitlar ábendingar „Sástu kragann í glugganum?" sagði konan þegar hún kom út úr pelsabúðinni í fyrrakvöld. Ég neit- aði þvi, sannleikanum samkvæmt. „Ég mátaði hann,“ hélt hún áfram, „hann var ansi fínn og hlýr.“ Ég gjó- aði augunum að útstillingum versl- unarinnar og leit augum nefndan kraga. Hann leit út eins og lítill tref- ill, sennilega úr einu eða tveimur dýrum, líklega mink. „Ósköp er þetta rýrt,“ sagði ég. Skinntrefillinn var að sjá eins og dautt loðdýr sem þó hafði verið hreinsað innan úr. „0, hann er svo mjúkur," sagði konan og fór hönd- um um háls sér líkt og loðdýrið væri þangað komið. „Svo er verðið innan skaplegra marka," sagði hún og nefndi það. Ég gapti. „Ertu að segja mér,“ sagði ég og j*‘" benti á skinntutluna í glugganum, „að þetta sem ekkert er kosti f eins og gott lita- sjónvarp?“ Kon- an horfði á skilningslaus- an mann sinn með nokkurri vorkunn- semi. „Þú og' þinn tækja- saman- burður. Skinnið er eilífð- areign, skal ég segja þér.“ Það var ekki fyrr en á heimleið- inni sem ég fór að velta því fyrir mér hvort konan hefði undir rós verið að benda -n mér á skinnið sem heppi- lega lega sem gjöf, hvort heldur er á jól- um, afmælum eða af öðrum tilefn- um. Það er því miður tilgangslítið. Annaðhvort nem ég ekki ábending- amar eða gleymi þeim þegar síðar kemur að vali á gjöf. Ég viðurkenni að þetta er galli. Ég lendi þvi iðulega í miklum vanda þegar að gjafavali kemur og ekki siður timahraki. Konan veit af þessu þótt hún hafi enn ekki gefíst upp á að benda Mér tókst að forða mér áður en kaupmaðurinn sýndi verðmiðann. Kon- an hélt andlitinu þótt eiginmaðurinn rynni af hólmi. Sölumaðurinn snjalli var ekki af baki dottinn, hélt sennilega enn að ég vœri í verðbréfunum. á eigulega hluti. Stundum bið ég hana að velja sér eitthvað á sjálfa sig og gefa sér i mínu nafni. Það þykir henni klént. Mín ágæta kona þekkir, sem sagt, vel vankanta eiginmannsins og skort á tilfinningagreind. Hún vissi því að - skinnið góða var horfið úr huga mér strax næsta 1 dag, sem og all- ar aðrar ábend- ingar um jóla- gjafir. „Hvað viltu í jóla- gjöf?“ spurði ég 1 sakleysi mínu, líkt og kæmi ég af fjöllum. „Þú finnur eitt- hvað, góði minn,“ sagði konan, „leggðu höfuðið jólagjöf. Hún sýnir mér stund- um fallega hluti og reiknar þá með að ég muni það síðar og kaupi hugsan- bara i bleyti og láttu þér detta eitt- hvað í hug.“ Fífldirfska Hvað gerir góður eiginmaður í þessari stöðu? Jú, hann fer í bæinn upp á von og óvon. Það var einmitt það sem ég gerði í vinnulok í gær. Bílnum lagði ég við Hallgríms- kirkju og rölti af stað í blíðunni. Jólaljós voru hvarvetna og fólk í há- tíðarskapi þótt jólasnjórinn væri víðs Qarri. Ég horfði í búðarglugga en var engu nær. Maður verður auðvitað að vanda sig þegar valið er handa konunni. Gullbúðir freistuðu min ekki, þótt oft megi bjarga sér með skartgrip, og hefðbundnum fatabúðum sleppti ég. Það veit ég af gamalli reynslu að konan treystir vart smekk mínum. Það var ekki fyrr en ég gekk hjá skinnabúðinni að ljós kviknaði. Þar lá enn í glugga kvikindi það sem konan hafði hrif- ist af, skinntutlan innanrýra. Vand- inn var aðeins sá að mér fannst gjöf- in ekki nógu fin. Þetta var nánast eins og að pakka inn nærbuxum. Ég beit þó á vörina og rauf gamalt heiti. Ég fór inn, einn í skinnabúð- ina. Innra með mér vissi ég að slíkt var flfldirfska. Maður tefLir á tvær hættur með því að fara með konu í pelsabúð en karl sem fer einn í slíka verslun er vamarlítið fórnarlamb. „Blessaður, gaman að sjá þig aft- ur,“ sagði skinnakaupmaðurinn jólahress. „Hingað koma ekki nema alvörumenn," hélt hann áfram, „og menn sem eiga alvörukonur. Þær ganga í pelsum. Ég varð að visu að láta pelsinn sem ég bauð þér um árið en það er ekki vandinn. Úrval- ið er endalaust." Langminni kaup- mannsins var með ólíkindum. Út í hönd eða skipta? „Ég ætlaði bara að kíkja á L trefilinn," tautaði ég og benti á mjónuna i glugganum. „Drengur minn,“ sagði kaupmaðurinn og sló þétt- ingsfast á öxl mér, „látum konurnar um keipana. Við erum karlmenn og skoðum kápur.“ Hann hafði engar vöflur á og sótti fjóra pelsa, drag- síða. Ódýrasti var á níu hundruð þúsund. Sá dýrasti kostaði þrettán hundruð þúsund krónur. „Þessi passar á konuna þína,“ sagði pelsa- salinn. „Glæsileg kona,“ hélt hann áfram, „og á ekki að láta sjá sig í neinu öðru.“ Þetta var dýrasta kápan. „Líttu á áferðina og hvemig hárin leggj- ast,“ sagði maðurinn og strauk nið- ur flíkina. Fagurt skinnið glansaði. „Þetta fer alveg við háralit konu þinnar. Viltu borga pelsinn út í hönd eða á ég að skipta þessu á nokkrar greiðslur?“ Ég þornaði í munninum enda mundi ég ekki alveg hvursu neðarlega ég var kominn á yf- irdrætti mánaðarins. „Ja,“ tafsaði ég og reyndi að bera mig mannalega, „þetta er jú alltaf spurning um smekk og snið, ekki bara minn heldur líka konunnar. Ég er ekki al- veg viss um síddina, sjáðu. Leyfðu mér aðeins að athuga málið,“ sagði ég, kvaddi og forðaði mér hið bráðasta út. „Ég þekki smekk konunn- ar,“ kallaði kaupmaðurinn á eftir mér, hún vill þann dökka.“ Litla skinnið í gluggan- um lá óhreyft.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.