Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Side 26
26 H g / c) ct rb l a cJ 13 "V LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 Manstu ekki eftir mér? Ragnhildur Gísladóttir ætlaði að semja kántrílag og hitti þjóðina beint íheila- börkinn með: Manstu ekki eftir mérl Ragnhildur talar við DV um búkslátt og barnahjal, jafnrétti ípoppheimum og leit- ina að kúltúrþjóðinni. „Manstu ekki eftir mér? Mikið líturðu vel út beibí, frá- bært hár.“ Svona eru fyrstu línurnar í viðlaginu við eitt af vinsælustu lögum myndarinnar Stella i framboði eftir Guð- nýju Halldórsdóttur sem var frumsýnd á fimmtudaginn. Það gerðist með einhverjum undarlegum hætti á ör- skammri stundu að íslenska þjóðin nam þetta lag nánast í fyrsta skipti sem hún heyrði það og löngu fyrir frumsýn- ingu myndarinnar var vandfundinn sá maður sem ekki gat sungið með Stuðmönnum þegar þeir fluttu lagið. Þetta sá ég sjálfur á konserti í Austurbæ þegar stappfull- ur salur söng hástöfum með sveitinni þótt lagið hefði ein- ungis heyrst opinberlega tvisvar eða þrisvar sinnum. Lagið sem þannig skríður inn í hausinn á þeim sem heyrir er eftir Ragnhildi Gísladóttur sem ég veit eiginlega ekki hvort ég á að kalla tónlistarmann, söngkonu, lagahöf- und eða hvað, og gríp til þess ráðs að kalla hana tónskáld. Ragnhildur hlær. Við erum stödd á heimili Ragnhildar í Grjótaþorpi jöfnu báðu milli morguns og hádegis. Húsfreyja ber fram magn- að kaffi í undarlegum bollum og kötturinn Hrafnkell skæl- ir hástöfum og bítur svo blaðamann þegar hann reynir að sýna honum vinarhót. Hér mætti skrifa langa rullu um hörmungar Hrafnkels sem er alger innikveif og ræfill eftir erfiða flutninga mfllum landa og sóttkví í Hrísey fyrir tveimur árum. Hrafnkell er breskfæddur og mjög líklega með heimþrá eins og títt er um brottflutta þegar liður að jólum. - Stella i framboði er, eins og margir kannski vita, nokk- uð sjálfstætt framhald kvikmyndarinnar Stella í orlofi sem íslenska þjóðin vældi af hlátri yfír fyrir einum sextán árum. Þar fóru Laddi, Edda Björgvinsdóttir, Gísli Rúnar og margir fleiri á kostum og þau eru öll mætt aftur og meira að segja pilturinn sem lék ungan son Stellu í fyrri mynd- inni, Þorleifur Arnarson, er orðinn leikari og fær sama hlutverkið aftur sextán árum seinna. Þetta er súrrealískt. Ofleikarar sem virka Titillag myndarinnar, eftir Ragnhildi að sjálfsögðu, er ekki síður orðið vinsælt, en textann við það gerði enginn annar en Ómar Ragnarsson af sinni alkunnu snflld. „Ég tilheyri hópi fólks sem finnst Ómar Ragnarsson al- gerlega frábær og við höfum eiginlega stofnað aðdáenda- klúbb þótt Ómar viti ekki af því. Hann er alger snillingur og orkan sem þessi maður býr yfir og allt sem hann afkast- ar er ótrúlegt. Þessi maður er magnað fyrirbæri." - Ragnhildur er eðlflega búin að sjá myndina í endan- legri gerð þegar viðtalið fer fram og hún segir að hún sé „drullufyndin". „Kannski er ég of nálægt henni en mér finnst Guðný hafa þroskast sem húmoristi síðan hin myndin var gerð. Þama eru tilsvörin beittari og fyndnari og minna af rjóma- tertuhúmor. Svo er þetta fólk, eins og Edda, Gísli Rúnar og Laddi, einfaldlega svo fyndið að það er ekki eðlOegt. Mér finnst Laddi einn af okkar bestu leikurum og mikill atvinnumaður í öllu sem hann gerir. Hann klikkar aldrei og er eini ofleikarinn sem virkar. Guðný og Halldór eru yndislegt fólk að vinna með og þykir vænt um aUa, fyrir utan það að borga þeim sem vinna fyrir þau, sem er skemmtOeg tilbreyting," segir RagnhOdur sem hefur áður unnið með Guðnýju í Karla- kómum Heklu og Ungfrúnni góðu og húsinu, en þá sem leikkona. Betra en hitt í fyrra skiptið varð titillag myndarinnar óskaplega vin- sælt. Það var samið af Valgeiri Guðjónssyni og þegar ákveðið var að Ragnhildur tæki að sér að semja tónlist við myndina hlýtur hún að hafa fundið fyrir talsverðri pressu. „Þetta er eitthvað það erfiðasta sem hægt er að gera í popptónlist," segir Ragnhildur. „Þetta „hitt“ þurfti nefnilega að verða eins gott og helst betra en hitt „hittiö". Það er óskaplega hætt við að tónlist verði þvinguð og skrýtin þegar lagt er upp með eitthvað svona. Það er ekkert verið að finna upp hjólið í svona verk- efnum. Sumir sitja dögum saman yfir svona löguðu en aðrir grípa bara hugmyndir á lofti og það gerði ég. Ég ætlaði að semja kántrflag en hef aldrei haft gaman af eða áhuga á svoleiðis tónlist og kannski var það sú afstaða sem gerði þetta svona auðvelt." Ragnhildur Gísladóttir ætlaði að verða hljómsveitarstjóri en varð poppari. Hún hefur fengist við tónlist frá búk- slætti yfir í barnahjal en liitti þjóðina í hjartað með Stellu í framboði. DV-mynd E. Ól. 20 ára hár Var Þórður að yrkja tO þín þegar hann sagði: „Frábært hár“? „Það held ég ekki. Þórður er snillingur í að setja saman texta sem lúta öllum bragreglum en hljóma samt eins og eölilegt og óþvingað talmál. Þetta eru svona setningar sem eru svo oft sagðar við mann og þess vegna hljóma þær svona kunnuglega." - Sjálf segist RagnhOdur hafa notast við sömu hártísku í nærri 20 ár og við nánari umhugsun held ég að það hljóti að vera rétt hjá henni. RagnhOdur er annars eina söngkon- an sem maður getur sagt við að hún sé gömul lumma án þess að móðga hana en sá brandari styðst við upphaf ferOs hennar í popptónlist sem var í sönghóp sem kallaði sig Lummurnar seint á áttunda áratugnum. Ragnhildur ólst upp á Kjalarnesi og er menntaður tónlistarkennari og seg- ist aldrei hafa ætlað að hasla sér völl í popptónlist. ,-,Ég ætlaði eiginlega að læra hljómsveitarstjórn eða eitt- hvað í þá áttina. Svo lenti ég í hverju poppverkefninu á fætur öðru og því hefur dregist að fara í frekara nám. Hins vegar finnst mér tónsmíðar mjög heOlandi og vona að mér vinnist tími tO að sinna þeim er fram líða stundir." - Það er hægt að rekja ferO RagnhOdar í kringum 25 ár í íslensku poppi, í gegnum Lummur og Brunalið, Brhnkló og Grýlur, yfir í Stuðmenn þar sem hún hefur verið í fram- línunni siðustu 15 árin eða svo. Inn í þennan feril mætti svo skjóta ýmsum tónlistarverkefnum undir eigin nafni sem spanna aOan skalann frá búksláttarhljómsveitum yfir í diska þar sem barnahjal er notað sem tónlist og í aðrar áttir yfir í tónlist við tvö leikrit, Sýnda veiði og Skáldanótt. RagnhOdur segist þrátt fyrir allt vOja telja Grýlumar, sem hún stofnaði skömmu eftir 1980, frumraun sína í dæg- urtónlist. En Grýlurnar áttu skamman en blómlegan ferO sem fyrsta íslenska kvennahljómsveitin. hvort hún sé „búin að öllu“ en það er sérstakt orðalag sem ég held að bara húsmæður skflji. Ég sé grenigreinar hanga á stoð út undan mér og ákveð að hætta við þessa umræðu. Ekki streitast gegn hugmyndum Ragnhildur segist spurð um næstu verkefni vera að semja tónlist á geisladisk sem verður gefinn út undir henn- ar nafni einhvem tímann í náinni framtíð. Hvar sú tónlist liggur á skalanum frá búkslætti yfir i bamahjal segist Ragnhfldur eiginlega ekkert geta sagt tO um á þessari stundu. „Ég vil ekki láta hugmyndir binda mig um of. Ég fer úr einu verkefni í annað án þess að njörva mig niður. Það má ekki streitast á móti hugmyndum þegar þær fæðast eða vera með einhverja fordóma gagnvart þeim. Þá geta þær stfllað aðrar hugmyndir sem éiga eftir að fæðast og maður er ekkert annað en orka sem þarf að fá að flæða.“ Ragnhildur segist sækja sér mikinn kraft í náttúruna og leita á vit hennar i því skyni og væri án efa tO í að flytja langar ræður um kraftinn sem býr i okkur og orkuna sem við verðum að kunna að beisla tO þess að skapa. „Við verðum að kunna að opna augun og sjá og opna eyr- un og heyra. Til þess verðum við að gefa okkur tíma tO að lifa og hætta þessu brjálaða kapphlaupi í að eignast hluti sem engu máli skipta. Við verðum að gefa okkur tíma tO þess að njóta lífsins. Þetta þurfum við líka að kenna börnunum okkar og mér finnst að það ætti að nota þó ekki væri nema brot af þeim fjármunum sem við eyðum í alls konar snobbhátíðir í að tryggja börnunum okkar kennslu i dansi og tónlist í grunn- skólum. Þar vantar mikið upp á en það myndi skOa sér i bættri líðan og þroska barnanna okkar. Við viljum koma fram sem kúlturþjóð en erum við virkOega að sinna því og þá sérstaklega þegar kemur að listauppeldi barnanna?" Komin heim í Stuðmenn „Svo fannst mér eiginlega eins og ég væri komin heim þegar ég gekk í Stuðmenn. Þar eru innanborðs menn sem allir eru afar undarlegir, hver á sinn hátt, en þar ríkir ein- stakt frelsi hvað varðar tónlist og það kann ég að meta.“ - Hér gæti komið langur kafli um hljómsveitina Stuð- menn og tOvist hennar í íslensku menningarlífi en við rök- ræðum okkur tO þeirrar niðurstöðu að hljómsveitin líkist orðið meira póstmódernískri liststofnun en popphljóm- sveit, einmitt vegna þess frelsis sem þar ríkir og leiðir án efa á köflum til stjórnleysis en það er önnur saga. Það er eiginlega meira freistandi að inna RagnhOdi eftir skoðun- um hennar á jafnrétti karla og kvenna í hinum karlvædda poppheimi. „AUt of margar konur eru einfaldlega búnar að ákveða að karlar ráði öllu. Þær sitja svo bara og væla yfir því en þetta fer allt eftir því hvaða forrit maður setur í hausinn á sér. Mér finnst að konur eigi einfaldlega að sýna mefl-a sjálfstraust og gera það sem þær vflja og geta, hvort sem það er að spfla í hljómsveit, gera kvikmynd, gerast þing- menn eða semja tónlist. Svo eiga þær að hætta að skamm- ast sín fyrir að vera húsmæður því mér finnst húsmóður- hlutverkið eitt með því merkOegasta og göfugasta sem tO er og fátt er meira krefjandi," segir RagnhOdur. Mér dettur í hug að spyrja hana svona seint á aðventu Veit eldd hvert ég er að fara - Svo segir Ragnhildur mér frá manni sem hún þekkir sem ferðast tO annarra sólkerfa og kann að segja margar fallegar skrýtnar sögur af þeim ferðalögum og ólíkum bú- skaparháttum manna á framandi slóðum í himingeimnum. Þetta er sagt í því samhengi að sýna fram á tOgangsleysi hjónabandsins sem RagnhOdur segir eitt það versta sem hent geti góð ástarsambönd. Þetta sýnir líka hvað það er erfitt að halda þessu viðtali á strikinu svo maður bregði fyrir sig sjómannamáli. - Af einhverjum ástæðum förum við síðan að tala um Ingibjörgu Þorbergs sem söng svo fallega í sjónvarpinu á aðventunni fyrir ári lagið sitt „Hin fyrstu jól“ að öll þjóð- in klökknaði yfir þessari fallegu gömlu konu. Megum við eiga von á því að sjá RagnhOdi Gísladóttur hátt á áttræðis- aldri að syngja „Sísí fríkar út“ í vnisælum sjónvarpsþátt- um? „Ég veit ekkert hvert ég er að fara. Ég vona að ég hafi tilfínningu fyrir því að vera ekkert að þröngva mér upp á þjóðina ef hún vill ekki hlusta á mig. En aldur skiptir auð- vitað engu máli heldur bara orkan sem maður býr yfir og þegar ég verð komin þangað verður ekki spurt hvað mað- ur sé gamall, heldur hvort maður hafi orku í það.“ -PÁÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.