Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Síða 28
28 Helcjarhlcið 3Z>‘V" LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 Jól um víða veröld Hér á landi fara jólasveinarnir að tínast til bygqða þrettán dögum fgrir jól og flestir Islendingar opna jólapakkana á aðfangadagskvöld. Matarvenjur heimilanna um jólin eru gfirleitt íföstum skorðum og eins ár eftir ár. Sumir borða rjúpur en aðrir ham- borgarhrggg eða hangikjöt. Jólasiðir annarra þjóða geta verið mjög ólíkir okkar siðum og venjum. íRússlandi halda menn upp á jólin ó.janúar og íTaílandi er skregtt fgrir vestræna túrista. Mexíkómenn slá pihata og halda veislu íníu daga fgrir jól, einn dag fgrir hvern mán- uð meðgöngunnar hjá Maríu meg en íGana dansar fólk á götum úti. svipað því sem gerist í borgum á Vestur- löndum.“ Hann segist vera kristinn og aðhyllist kenningar Votta Jehóva. „Það eru margs konar trúarbrögð í Gana, íslam, búddatrú og afrísk trúarbrögð en stærsti hluti þjóð- arinnar, sem er um átján milljónir, er lút- erstrúar. Þar sem ég er vottur Jehóva held ég ekki jól en jólin í Gana eru ekki ólík því sem gerist hér. Jóladagur, 25. desember, er frídagur og þá kemur fjölskyldan sam- an, borðar góðan mat og fólk gefur hvað öðru gjafir. íbúar í Ghana eyða ekki eins miklu í gjafir og íslendingar en svipað og hér fara margir í kirkju um jólin, líka þeir sem fara aldrei á öðrum tíma árs.“ Ættflokkabúningar „íbúar Gana skiptast í marga ættflokka og um jólin klæðist fólk hátíðarbúningi ættflokksins sem það tilheyrir. Búning- amir geta verið mjög skrautlegir og ótrú- lega fallegir. Fólk hittist mikið úti og spil- ar á trommur og dansar. Þetta er mjög skemmtilegur tími því maður getur hvenær sem er tekið þátt í dansinum. Hátíðarmaturinn í Ghana er mismun- andi milli ættflokka. Hjá Akan, ættflokkn- um sem ég tilheyri, kallast hann fúfú og er búinn til úr lambakjöti, yami og kassava. Kjötið er soðið í súpu með jurt- um og grænmeti en yamið og kassavað stappað líkt kartöflumús og sett í skál og súpunni hellt í kring. Það er síðan tekið upp með höndunum og dýft í súpuna og borðað þannig.“ Ganamaðurinn Sam Richards, eða Akeem eins og hann kýs að kalla sig, kom til íslands á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar og al- þjóðlegra samtaka um ungmennaskipti, AUS, árið 1995 tii að kynna ganíska menningu. Til að byxja með starfaði hann á Úlfljótsvatni og segist hafa vakið mikla athygli þar sem hann var eini svertinginn á Suðurlandi. Akeem talar mjög góða íslensku og í dag starfar hann að æskulýðsmálum og segist kunna vel við sig á íslandi. Hann er giftur Jóhönnu Maríu Jó- hannesdóttir. Margs konar trúarbrögð Akeem er fæddur í höfuðborg Gana í Vestur-Afríku, sem heitir Accra og með menntun sem tengist félags- starfi með unglingum. Hann segir að sýn Vesturlanda- búar á Afríku sé fremur einhæf. „Fátæktin úti á landsbyggðinni er mjög áberandi í fjölmiðlum en þaö er minna fjallað um lífið í borgunum sem er ósköp Gjafir allt árið Eins og áður segir tilheyrir Akeem söfnuði Votta Jehóva og heldur þvi ekki jól. Hann segist oft hafa velt því fyrir sér sem bam hvort hann væri að missa af ein- hverju þrátt fyrir að vera alin upp við að það sé rangt að halda jólin. „Vottar Jehóva gefa gjafir allt árið en ekki á ákveðnum tímum. Við teljum jólin ekki hluta af kristinni trú en virðum skoðanir annarra og rétt þeirra til að halda jól. Konan mín er til dæmis ekki vottur Jehóva og heldur jól og það er alit í lagi mín vegna. Hún virðir lika mína trú og rétt minn til að taka ekki þátt í jólahaldinu með henni. Mér koma jólin ekki við og ég tek því engan þátt í þeim og mæti ekki í jólaboð vegna þess að ég fer ekki í veislur til aö láta mér líða illa með því að bijóta í bága við trúarsannfæringu mína.“ Akeem leggur áherslu á að hann virði rétt fólks til að halda jól. „Það er réttur hvers og eins að ákveða hverju hann trúir án þess að aðrir séu að skipta sér af því.“ -Kip Virði rétt fólks til að halda jól Alieem er vottur Jehóva og leggur áherslu á að hann virði rétt fólks til að halda jól. „Það er réttur hvers og eins að ákveða hverju hann trúir án þess að aðrir séu að skipta sér af því? Mér koma iólin ekki við - segir Akeem sem er fæddur í Gana Jólasveinninn með gríniu Að sögn Akeems er langt síðan jóla- sveinninn kom til Gana. „Ég man eftir þvi þegar ég var lítill að allir krakkamir voru hræddir við jólasveininn. Jólasveinninn í Gana er í rauðum og hvítum fotum eins og annars staöar en auk þess er hann með hræðilega ljóta grímu til að hrella bömin. Hann á það meira að segja til að koma inn á heimilin til að hræða óþekk böm til hlýðni en hann færir þeim líka gjafir ef þau eru þæg. Það var mikil umræða um þetta i fjölmiðlum heima fyrir nokkrum ámm og ég held að jólasveinninn hafi mildast eitthvað eftir þaö.“ Færum for- eldrum okkar gjafir á gamlárskvöld - segir Somjai Sirimekha frá Taílandi Somjai Sirimekha kom til íslands fyrir rúmum níu árum til að vinna sem au-pair. Skömmu eftir að hún kom til landsins fór hún í kvöldskóla til að læra ís- lensku. Hún hefur mjög gott vald á íslensku og starfar sem túlkur og þýðandi á skrifstofu Alþjóðahússins. Skvetta vatni Somjai segir að Tailendingar séu búddatrúar og þess vegna haldi þeir ekki jól eins og kristnir menn. „Taíland er aftur á móti mikið sótt af kristnum ferða- mönnum þannig að Taílendingar skreyta fyrir túristana í byrjun desember svo aö þeim liði vel og komist í jólaskap. Eftir að tímatalinu var breytt höld- um við mikið upp á gamlárskvöld eins og Vestur- landabúar en í gamla daga voru áramótin 13. april. Hátíðin 13. april kallast sankran og stendur yfir í þrjá daga og þrjár nætur. Sankran er almennur frídagur en skemmtistaðir og veitingahús eru opin. Yfirleitt koma fjölskyldurnar saman og borða og skemmta sér. Víðast eru settar upp skreytingar í borgum og bæjum um þetta leyti og fólk leggur mikið á sig til að hafa matinn eins góðan og hægt er. Fyrri part dags 13. apr- íl safnast fólk saman í bænum og skvettir vatni hvað á annað. Vatnið er tákn um blessum og um leið þakk- ar fólkið hvað öðru fyrir árið sem er að líða.“ Gráta gleðitárum „Taílendingar taka sér einnig fri 31. desember. Flestir fara heim til að hitta foreldra sina, borða góð- an mat og skemmta sér saman. Það er engin hefð fyr- ir ákveðnum réttum eins og hér þar sem fólk hefur yf- irleitt sama matinn um jólin og áramótin. Við eldum bara það sem okkur þykir gott og reynum að gera öli- um til hæfis. í Taílandi gefa börnin foreldrum sínum gjafir á gamlárskvöld til að þakka fyrir sig. Hugmynd- in á bak við þetta er sú að foreldrarnir eru búnir að sjá um okkur frá því að við fæddumst og nú er kom- inn tími til að við þökkum fyrir okkur og látum þeim líða vel. Foreldrarnir þakka aftur á móti fyrir gjafirn- ar með tárum og gráta af gleði yfir því að börnin séu komin heim.“ Somjai segir að jólasveinninn eins og við þekkjum hann sé farinn að skjóta upp kollinum i Tailandi og að taílensk böm séu farin að tengja kallinn í rauðu fótun- um viö jólin. „Þau vita kannski ekki jafnmikið um hann og börn á Vesturlöndum en það er að breytast." -Kip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.