Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 30
30
Helgorblctö DV
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Stutt frí í enska boltanum
Þegar flestir knattspyrnumenn í Evrópu hafa það náð-
ugt með fjölskyldum sínum um jólin sprikla knatt-
spyrnumenn í enska boltanum sem aldrei fyrr enda löng
hefð fyrir því að leikið sé yfir hátíðarnar á Englandi.
Undanfarin ár hefur sú umræða orðið sífeflt háværari
að enskir knattspyrnumenn verði að fá frí um jólin enda
álagið á þessa leikmenn ansi mikið. Sú hugmynd hefur
hlotið góðan hljómgrunn leikmanna og framkvæmda-
stjóra í deildinni en nýtur þó ekki sömu hylli hjá stuön-
ingsmönnum sem eru vanir því að geta farið á völlinn
yfir hátíðirnar eða setið heima og horft á góðan fótbolta
í fríinu sínu. Þeim finnst það meira en sjálfsagt að þess-
ir menn sem eru með milljónir króna í vikulaun geti
unnið og skemmt þeim sem aðeins hafa brot af því sem
knattspyrnumennirnir hafa í tekjur.
Slíkt á einnig við hér á landi enda setja flestar knatt-
spyrnuáhugamenn hér á landi samansemmerki við jólin
og enska boltann.
Veisla fram undan
Þeir hinir sömu þurfa ekki að kvarta þessi jólin frek-
ar en áður því aragrúi leikja kemur til með að fara fram
á Englandi næstu daga og vill svo skemmtilega til að þar
er einnig um að ræða hreina stórleiki.
í dag fara fram einir sjö leikir í enska boltanum og
ber þar hæst slag toppliðs Arsenal og Middlesbrough
sem hefur komið verulega á óvart í vetur með vaskri
frammistöðu þótt liðið hafi örlítið misst flugið undanfar-
in misseri. Það er skarð fyrir skildi hjá Arsenal að fyr-
irliðinn, Patrick Vieira, verður líklegast ekki með liðinu
í leiknum vegna meiðsla.
Einnig verður athyglisverður botnslagur á Upton
Park þar sem Guðni Bergsson og félagar í Bolton heim-
sækja West Ham Utd en Hömrunum hefur enn ekki tek-
ist aö vinna leik á heimavelli í vetur og verða möguleik-
ar Guðna og félaga því að teljast nokkuð góðir. Þessi lið
sitja í tveim neðstu sætum deildarinnar og því um þrjú
mikilvæg stig að ræða í þessum leik.
Eiður Smári og félagar í Chelsea vonast eftir því að
halda sér i toppslagnum en þeir fá Aston Vifla i heim-
sókn á Stamford Bridge. Ekki er búist við öðru en Eiður
verði á varamannabekk Chelsea eins og undanfarið en
þrálát seta hans á bekknum á meðan Jimmy Floyd
Hasselbaink hefur ekki leikið vel hefur orðið enn frekar
til þess að menn haldi því fram að hann sé á leið frá fé-
laginu en hvort nokkuð er til í þeim orðrómi kemur í
ljós í janúar er leikmannamarkaðurinn verður opnaður
á ný.
Yorke og Cole mæta gömlum félögum
Á sunnudaginn fara síðan fram tveir stórleikir þegar
Blackburn Rovers tekur á móti Manchester United á
Ewood Park og Liverpool tekur á móti grönnum sínum í
Everton á Anfield Road.
Fyrri leikurinn er viðureign Blackburn og Man. Utd.
og þar mæta þeir Andy Cole og Dwight Yorke fyrrum fé-
lögum sínum en þeir máttu báðir víkja á sínum tíma fyr-
ir nýju framherjum United, þeim Ruud Van Nistelrooy
Eiður Smári Guðjohnsen og Enrique de Lucas sjást hér fagna Hollendingnum Jimmy Floyd Hasselbaink fvrr á leiktíðinni. Chelsea
leikur gegn Aston Villa og Southainpton um jólin. Reuter
Boltajól
Ef við kíkjum örlitið lengra fram í tímann verður
einnig leikið í enska boltanum þann 28. og 29. desember
sem og á nýársdag.
Þessir svokölluðu jólaleikir eru öflum liðum gríðar-
lega mikilvægir enda margir leikir á stuttum tíma og
mörg mikilvæg stig í pottinum. Það er oft sagt að ekki
sé hægt að spá í það hverjir komi til með að berjast á
toppi deildarinnar fyrr en eftir þessa törn því það eru
iðulega sterkari liðin sem hafa hafa betur í þessum leikj-
um.
Burtséð frá því hvernig allir þessir leikir koma til
með að fara þá er alveg ljóst að engum knattspyrnu-
áhugamanni á að þurfa að leiðast um jólin því þessi jól
verða sannkölluö boltajól. -HBG
Það verður lítið uin jólafrí hjá þeim Guðna Bergssvni og Ruud Van Nistelrooy enda leikið þétt næstu dagana
í enska boltanuin. Reuter
og Diego Forlan. Þeim verður væntanlega mikið í mun
að sýna Sir Alex Ferguson, stjóra United, að hann hafi
gert mikil mistök er hann seldi þá en þeir áttu einmitt
stóran þátt í velgengni United árið 1999 þegar það vann
þrennuna frægu. United er heitasta lið deildarinnar um
þessar mundir og hefur unnið átta leiki í röð ef við tök-
um leiki í deild, meistaradeild og deildarbikarnum sam-
an. Það sem meira er þá hefur liðið haldið hreinu í sið-
ustu fimm leikjum sinum og síðasta markið sem liðið
fékk á sig kom á Anfield Road þann 1. desember síðast-
liðinn er United lagði Liverpool, 1-2, og það mark gerði
Finninn Sami Hyypia.
Meira en heiður í húfi
Það er ávaflt mikið um að vera i Bítlaborginni Liver-
pool þegar erkióvinirnir í Liverpool og Everton mætast.
Liverpool verður að spila fyrir meira en stoltið og stig-
in þrjú í þessum leik því nú ber svo við að Everton er
fyrir ofan þá á stigatöflunni en þeir eru í fjórða sæti með
32 stig en Liverpool er í því fimmta með 31 stig. Liver-
pool er jafnframt að leita að sínum fyrsta sigri í deild-
inni í langan tíma en liðið hefur tapað síðustu fjórum
leikjum sínum þar en sigurinn gegn Aston Villa í deild-
arbikarnum í vikunni hlýtur að hafa gefið þeim aukið
sjálfstraust. Gerard Houllier, stjóri Liverpool, hefur ekki
miklar áhyggjur af því að það verði nokkurt mál að
koma sínum mönnum í gírinn fyrir leikinn.
„Ég þarf ekkert að nálgast leikinn á sérstakan hátt því
leikmennirnir sjá sjálfir um að koma sér í stuð. Þeir eru
sér vel meðvitandi um að allir í borginni eru að tala um
leikinn og gera sér grein fyrir mikilvægi hans. Hlutverk
okkar þjálfaranna er að halda þeim rólegum svo þeir
eyði ekki óþarfa orku í vitleysu því það verður mikið
um spennu á vellinum. Þetta eru leikir sem geta breyst
í orrustu og hvað okkur varðar þá er gott að fá slíkan
leik núna því við þurfum eitthvað til þess að koma okk-
ur í gang á ný,“ sagði Houllier en aðeins fyrir ári var
hann að jafna sig eftir hjartaáfall sem hann hafði fengið
nokkru áður.
Þetta er þó ekki síðasti leikurinn fyrir jól því á Þor-
láksmessu mætast Manchester City og Tottenham á
Maine Road.
Stutt frí
Leikmenn verða að fara sér hægt í jólasteikina því að
á annan í jólum verða þeir mættir aftur út á völlinn og
verður leikin heil umferð í deildinni þann dag. Meðal at-
hyglisverðra leikja þann daginn er viðureign Arsenal og
WBA sem Lárus Orri Sigurðsson leikur með. Guðni
Bergsson og félagar í Bolton taka á móti Newcastle en
Eiður Smári og félagar fá sinn annan heimaleik í röð er
Gordon Strachan kemur með dýrlingana sína í Sout-
hampton í heimsókn á Stamford Bridge.
Man. Utd fer og heimsækir fyrrum þjálfara sinn, Steve
McClaren stjóra Middlesbrough, en Riverside, heima-
völlur Boro, hefur oftar en ekki reynst Manchester-
mönnum erfiður og verður það vafalítið hörkuviðureign.
Liverpool fær aftur heimaleik og að þessu sinni gegn
Blackburn og ljóst að þessi jól verða Graeme Souness,
stjóra Blackburn, og strákunum hans erfið. Flestir
hefðu kosið eitthvað annað en að mæta Man. Utd og
Liverpool yfir hátíðarnar.
Ef við lítum á þá leiki sem koma til með að skipta
máli í botnbaráttunni þá veröur athyglisvert að fylgjast
með viðureign Sunderland og Leeds sem og leiks West
Ham og Fulham en hætt er við að sambaboltinn fái að
víkja fyrir kraftaboltanum í þessum viðureignum.