Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 34
34
/7 <3 / c) c? rb l(J c) JO'V’
LAUGARDAG U R 21. DESEMBER 2002
...eitthvað fyrir þig?
- verblaunab bæbi í Frakklandi og Japan
Prodigy-kremiö slær í gegn
rrn
’RODIGY
Prodigy-kremiö (total anti-ageing concentrate)
fró Helenu Rubinstein hefur hlotiS miki& lof.
Framleiðandi þess segir það vera mesta
tækniafrek sem komið hefur frá rannsókar-
stofum Helenu Rubinstein en krem þetta á
að berjast gegn fimm helstu þáttum öldr-
unar húðarinnar samtímis. Kremið er sagt
örva skiptingu frumna og hraða endur-
nýjun þeirra. Það eykur einnig myndun
fitu í húðinni með jurtaolíum sem næra
húðina, kólesteróli sem lætur húðinni í té
náttúrulegt fituefni og Ceramid 5 sem getur
endurbyggt myndun fitu í húðþekjunni. Krem-
ið eykur einnig blóðstreymi með ruscus sem hef-
ur styrkjandi áhrif á háræðarnar, kremið Prodigy ræðst á einu bretti
kemur reglu á melanínmyndandi frumur og gegn hinum fimm þáttum sem
styrkir elastínþræði húðarinnar og örvar valda öldrun húðarinnar.
myndun kollagens. Franska tímaritið Votre
Beauté hefur veitt Prodigy-kreminu frá Helenu Rubinstein gullmedalíu fyrir árið
2002. Kremið hlaut einnig silfurverðlaun frá japanska tímaritinu Frau en slík verð-
laun fékk einnig Collagenist Eye Zoom-kremið, einnig frá HR. Lesendur Votre
Beauté höfðu m.a. þetta að segja um Prodigy-kremið: „Mjúkt krem sem hverfur
fljótt inn i húðina án þess að hún glansi. Gefur strax þægindi. Gefur Ijóma og
fegrar húðlitinn dögum saman". Umbúðir Prodigy-kremsins eru einnig glæsilegar,
krukkan er fallega ávöl og henni fylgir litill spaði til þess að taka kremið úr krukk-
unni. DV fjallaði nýlega um hitt kremið sem HR hlaut einnig verðlaun fyrir, augn-
kremið Collagenist Eye Zoom, en velgengni þess má rekja til tafarlauss árangurs
í baráttunni gegn hrukkum með því að örva myndun Collagens. Kremið er ol!u-
laust og glansar ekki. Það er borið á augnsvæði að morgni til og þéttir það og
stinnir slappa húð undir augum.
Beinþéttimælingar á
vinnustö&um
Landssamtökin Beinvernd hafa nú hrundið af stað átaki
sem felst i því að bjóða starfsfólki fyrirtækja og stofn-
ana upp á beinþéttimælingu á vinnustöðum. Beinþynn-
ing er einkennalaus sjúkdómur sem þarf að greina í
tima svo hægt sé að draga úr afleiðingunum og
minnka likur á brotum. Með átakinu vill Beinvernd
benda á það að það eru ekki einungis eldri konur sem
fá beinþynningu þótt þær séu i meirihluta. Fyrirtæki og
stofnanir geta haft samband við Beinvernd til þess að
fá fulltrúa á vinnustaðinn og mæla starfsfólkið. Hver
mæling tekur örskamma stund og gefur visbendingar
um ástand beina og hvort þörf sé á frekari aðgerðum.
Byggja upp
sj á Ifs traus tið
Snyrtiskólinn, Förðunarskólinn og Naglaskólinn eru undir sama þaki
í860 fermetra húsnæði við Hjallabrekku t Kópavogi. Listaverk á
veggjum og gólfi er það fgrsta sem mætir augum þess sem kemur þar
inn. Það á vel við. Þau fög sem kennd eru við skólana lúta að þvíað
fegra og bæta og kallast þvíá við listina.
Fyrir karakterríka karla
Nýjasti herrailmurinn frá Giorgio Armani kallast Armani mania.
Þetta er frisklegur ilmur með blöndu af mandarinu og saffran,
með mjúkum undirtóni af viðarlykt. Þessi lykt er kjörin fyrir hinn
karakterrika og elegant karlmann. Konur, hafið þennan ilm á
bak við eyrað þegar þið eruð að spá i að splæsa i nýja lykt á
eiginmanninn.
Sensi frá Giorgio Armani:
Kynþokkafullur ilmur
Sensi er nafnið á kynþokkafullum ilmi sem
Giorgio Armani hefur sent frá sér. Sensi tjá-
ir velliðan sem kemur innan frá, án
landamæra. Lyktin af þesum ilmi er aust-
rænn blómailmur sem auðvelt er að ánetj-
ast. Ilmurinn hefur margar hliðar og bygg-
ist upp á andstæðum þess að vera ferskur
og munúðarfullur. Ilmurinn er í senn mjúkur
og kröftugur og tjáir þannig kynþokkafulla
konu sem er fullkomlega meðvituð um allar
skynjanir sinar.
Smekklegir titrarar
Inni á heimasiðunni kyn.is er hægt að kaupa smekklega titrara sem kallast
„Natural contours". Titrarar þessir eru hannaðir af konum fyrir konur, með hin
mjúku form kvenlíkamans að leiðarljósi. Um er að ræða 5 tegundir titrara i fal-
legum litum sem eru nokkuð ólikir hefðbundnum titrurum
i laginu. Hér er ekki verið að likja eftir likamshlutum
heldur er hönnunin algjörlega miðuð við líkama konunn-
ar og möguleika hennar til nautna. Hér á síðunni eru
myndir af tveimur af þessum titrurum. Annars vegar er
„Ultime", en hann er sá fyrsti sinnar tegundar í heimin-
um sem er sérstaklega hannaður til að örva G-svæði
konunnar og snipinn um leið. Hann sveigist mjúklega
utan um lífbeinið og nær þannig að örva bæði svæðin
í einu. Liturinn er fallega Ijósblár og lengdin er i heild
21 cm. Hinn er „Petite" sem passar vel i veskið. Hann
er 10 cm langur og með 3 hraðastillingar. Petite fellur
vel í lófa og hentar vel til að örva næmustu staðina. Lit-
urinn er fallega kóralbleikur. Nánari upplýsingar um
þessa nýstárlegu titrara eru sem áður segir inni á heima-
síðunni www.kyn.is
Mikill ijöldi kvenna gengur hér um ganga. Meðal þeirra
er Kristín Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Förðunarskól-
ans og No name. Hún segir góða aðsókn að skólunum
þremur og nefnir sem dæmi að skráning sé hafm í Snyrti-
skólann fyrir árið 2005. Lágmarksaldur í þann skóla er 18
ár en flestir eru nemendur á milli 25 og 30 ára.
„Það eru yflr 200 sem útskrifast úr þessum skólum ár-
lega, 100 úr Förðunarskólanum, 60-70 úr Naglaskólanum
og 40 úr Snyrtiskólanum," segir hún og heldur áfram:
„Þær sem koma í Förðunarskólann á þriggja mánaða nám-
skeið gera það aðaliega fyrir sjálfar sig en hárgreiðslustof-
ur sem bjóða upp á fórðun og verslanir sem selja snyrti-
vörur sækjast eftir stúlkum með þá menntun," segir hún.
Óþrjótandi atvinnuinöguleilíar
Kristín segir Snyrtiskólann búa stúlkur undir að reka
snyrtistofur. „Þetta er einkaskóli á framhaldsskólastigi og
við stefnum að útskrift snyrtifræðinga úr honum með al-
þjóðleg réttindi. Nemendur eru heilt ár hjá okkur og svo
10 mánuði á stofu eftir það,“ segir hún. Kristín telur at-
vinnumöguleika snyrtifræðinga fara sívaxandi með hækk-
andi meðalaldri kvenna og segir þeim konum fjölga
stöðugt sem njóti þess að fara í snyrtingu af ýmsu tagi.
Inga Þyri Kjartansdóttir, skólastjóri Professionails
Naglaskólans, segir nemendur hafa sveigjanlegan aðgang
að þeim skóla í eitt ár og útskrifast með alþjóðlegt próf. Að
loknu námi starfl þeir á snyrtistofum, naglastofum og hár-
DV-myndir Sig. Jökull
Skólastjórarnir
Ósk Vilhjálmsdóttir stýrir Snyrtiskólanum, Inga Þvri
Kjartansdóttir Naglaskólanum og Kristín Stefáns-
dóttir Förðunarskólanum,
greiðslutofum og sérsvið þeirra sé að setja á gervineglur
og viðgerðir á þeim.
Bara það besta nógu gott
Nærri útidyrum skólans er lítil verslun og þar er líka
pláss fyrir nemendur sem vilja leigja sér aðstöðu meðan
þeir eru að koma sér af stað og byggja upp kúnnahóp.
Mesta athygli vekur þó stofan sem andlitssnyrtingin er
kennd í. Þar eru 14 stólar og vaskur ásamt fullkomnum
tækjabúnaði við hvem og einn. „Við tókum þann kost að
kaupa það besta sem til er á markaðinum," segir Kristín
og bætir við að erlendur kennari sem víða hafi farið um
heiminn hafi verið orðlaus yfir því hversu vel skólinn
væri tækjum búinn.
Ekld tómt pjatt
Ósk Vilhjálmsdóttir, skólastjóri Snyrtiskólans, segir
námið við skólana þrjá vera ábyrgðarmikið og ekki byggj-
ast á tómu pjatti. „Við erum að vinna með vandmeðfarin
efni og sams konar rafmagnstæki og húðlæknar þótt við
séum meö lægri straumstyrk. Nemendur fá góöa undir-
stöðu í efnafræði, rafmagnsfræði og húðsjúkdómafræði og
kennaramir era allir sérfræðingar á sínu sviði,“ segir
hún.
Aðspurð hvort kennsla sé í andlitslyftingum og lýtaað-
gerðum svarar hún: „Það má segja að við gerum lýtaað-
gerðir án skurðaðgerða því við byggjum upp sjálfstraustið
þannig að fegurðin komi innan frá.“ -Gun.
Kcnnsla í verklcgu
Pláss er fyrir 14 nemendur í einu og hver og einn hef-
ur stól, vask og öll rafmagustæki sem á þarf að halda.