Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 40
44 Heígarblacf H>"Vr LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 Jólastemning í Kaupmannahöfn Kaupmannahöfn var höfuðborq íslands um aldir og þar liqqja qróin spor söqunnar um steinlöqð stræti. Fáir kunna betur að „hqqqe sig“ íaðdraqanda jólanna en íbúar Kaupmannahafnar oq DV brá sér yfir poll- inn íglöqq oq piparkökur oq tilbúna stemninqu. Þaö er margt sem skapar jólastemningu og líklega er það beintengt í minnisbanka hvers og eins hvað það er. Sennilega eru kynslóðirnar sem þurftu hrein vaö- málsnærfót og tólgarkerti tii að komast í jólastuð að mestu horfnar og eflaust eru það grenigreinar, smákökur og jólalög sem hafa komið í staðinn. Kaupmannahöfn er forn höfuðborg íslands um aldir Þessi glaðbeitti Afgani var að selja vettlinga á jöla- inarkaðnum í Kristjaníu og veitti ekki af í vetrarkuld- anum. Hann sagðist gjarnan vilja koma til íslands því það væri gott land og fóllt vantaði vettlinga. Það voru ekki allt gamlir hippar sem leituðu á niark- aðinn í Kristjaníu því það er mjög vinsælt meðal ungs fólks í Kaupmannahöfn að fara þangað í leit að óvenjulegum jólagjöfum. Þarna heldur Lars Östergaard-Christensen á dóttur sinni Silju Björk sem varð eins árs þennan dag. Jólastemningin nær líka niður í Nyhavn þar sem sölu- hásum er raðað upp og kolastampar kyntir fyrir veg- farendur að ylja sér á. Þarna var lögð áhersla á glögg og piparkökur og svo var gott að stinga sér inn Hyttefadet og fá sér smörrebröd og einn kaldan. Gamlir hippar breytast skammlaust í kaupahéðna á aðventunni og reyna að selja kapítalískum smáborgurum meðvitað handverk. Þessi virðist ekki vita til þess að hártískan hafi mikið breyst síðan 1970. DV-myndir Rósa Sigrún Jónsdóttir/PÁA og þangað sækja íslendingar flest þaö sem þeir hafa til- einkað sér í matarmenningu og siðum sem tengjast jólahaldi i nútímanum. Það búa um 4000 íslendingar í Kaupmannahöfn og heimsóknir þangað á aöventunni eru gríöarlega vinsælar. Stemning í boði Illunis Strikið, fallegasta göngugata heimsins, að sumra áliti, liðast frá Ráðhústorginu niður í gegnum nokkur torg áður en hún endar á Kongens Nytorv. Við Strikið er að finna margar verslanir og á aðventunni er þar stöðugur straumur fólks upp og niður, flestir eru prúð- búnir í augljósum jólahugleiðingum með fangið fullt af pinklum en aðrir sýnast vera kaupahéðnar á hraðferð. Verslanir eru skreyttar, gatan er skreytt og götu- listamenn lífga upp á stemninguna með afriskum trumbuslætti eða hefðbundum fjórradda söng jóla- sálma. Fyrir vitin slær ef til vill angandi kaffilykt eða ilminum af ristuðum hnetum sem verið er að selja í bréfpokum. Þetta er svo mikil jólastemning að það gæti fengið hvaða heiðingja sem er til að fallast á til- urð Jesúbarnsins og taka þátt í afmælishátíð þess. Það eina sem vantar til að fullkomna stemninguna er svo- lítill jólasnjór. Og þegar við göngum fram hjá vöruhús- inu Illums, sem margir íslendingar kannast vel við, fer að snjóa og það er einmitt þessi jólalegi jólasnjór sem svífur í geðþekkum flygsum niður í logninu og sest í loðkragana og í hárið á rjóðum viðskiptavinum. Þetta er fullkomið þangað til manni verður ljóst að þetta er froðujólasnjór í boði Illums og það eru vélar uppi á þakinu sem blása úr sér hæfilegum skammti með reglulegu millibili. Bara til að skapa stemningu svo ekki þurfi lengur að reiða sig á duttlungafulla nátt- úru. Við forðum okkur inn á Café Norden og fáum kókó og eplapæ. Seinna um kvöldið sjáum viö eitthvað sem sýnist vera norðurljós á kyrrum kvöldhimni yfir Nyhavn. í ljós kemur að þetta reynast vera leysigeisl- ar sem min vegna geta verið í boði Hlums. Enn seinna um kvöldið hangir hálfur máni á heiðum næturhimni yfir Kristjánsborgarhöll og hann er svo fallega formað- ur aö maður fer ósjálfrátt að skima eftir vörumerki 111- ums eða þess sem kostar uppsetninguna. En tunglið er ekta. Glögg kaup og góður matur Það er hægt að gera góð kaup í jólagjöfum í Kaup- mannahöfn, sérstaklega með því að leita rétt út fyrir Strikið í ögn kyrrlátari hliðargötur þar sem verðlag er þegar tekið að síga. Ég sá sérstakt froðuáhald til þess að framleiða skúm á kaffibolla. Sérlega óþarft og geð- þekkt áhald. Það mátti kaupa fyrir 50 krónur danskar. Hér heima er þessi sami „froðusnakkur“ á sérlegu jóla- verði sem er nálægt 2000 krónum. En það er líka hægt að njóta þess að horfa á fjöl- breytt mannlíf, skoða fallega danska hönnun í gjafa- vörubúðum og láta sig dreyma. Það er líka hægt að setjast inn á Hviids Vinstue og fá sér heitt jólaglögg og piparkökur og hugsa um endalok Jónasar Hallgríms- sonar og alla þá sem hafa eytt hæfileikum sínum í slímusetur á krám í þessari borg í stað þess að vinna landi og þjóð eitthvert gagn. Reyndar gerði Jónas hvort tveggja. Það er líka hægt að róla niöur í Nyhavn og setjast þar á veitingahús eins og Told og Snaps eða Hyttefadet og fá sér ærlegt danskt smörrebröd með öli og snafsi. Það er hægt að boröa margt skemmtilegt í þessari heimsborg en ekkert er eins danskt og smörrebröd. Nema ef vera skyldi pylsurnar í vögnunum sem er enn þá leyft að selja þótt þær séu rauðar á litinn og ég fékk mér „pölse í svöb“ sem er innpökkuð í svínsflesk og dándisgóður matur. Það er líka hægt að skella sér á skauta á Kongens Nytorv og róla þar í virðulega hringi og ef maður er ekki með skautana með sér þá eru þeir leigðir á spott- prís. Viltu slást? Allt er þetta hægt og fiest gengur eftir hefðinni í Kaupmannahöfn í aðdraganda jólanna nema í þetta skiptið því nú halda pótintátar Evrópubandalagsins sinn stærsta fund frá upphafi í Bella Center og flest stórmenni álfunnar eru mætt. Það eru líka komnir mótmælendur alls staðar að úr heiminum og hóta öllu illu og til mótvægis hafa verið fluttir sex þúsund lög- reglumenn utan af landi til borgarinnar til að allt fari nú fram eins og vera ber. Ég heyri þrekinn lögreglu- þjón segja vinkonu sinni að þetta sé fint jólafrí því víða um borgina má sjá þessa rassbreiðu laganna verði biða í hópum eftir því að eitthvað gerist. Alþjóðlegar keðjur eins og Burger King og McDonald bíða ekki heldur negla þykkar krossviðarplötur fyrir alla glugga enda orðnir seinþreyttir á því að vera skotspónn þeirra sem hafa mótmæli að meginstarfi. Reyndar þarf ekki aðkomumenn til því McDonalds er að hrekjast úr miðbæ Kaupmannahafnar rétt eins og Reykjavíkur og Strikið er án efa ein lekkerasta göngugata heimsins og iðar af lífi alla aðventuna enda víða hægt að gera af- bragðs kaup. Það voru fluttir sex þúsund lögreglunienn til borgar- innar vegna yfirvofandi mótmæla í tengsliim við fund Evrópubandalagsins. Það mátti sjá þá standa í hópum víðsvegar um borgina þar sem þeir reyndu að lialda á sér hita.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.