Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Page 41
Á Kongens Nytorv er lagt skauta-
svell á köldum vetrardögum á að-
ventunni og þar finna menn jóla-
skapið við að svífa í hringi ineð
skríkjandi samborgurum sínum. í
baksýn er skreytt Hotel D’Angle-
terre sem er eitt fínasta hótelið í
bænum og ekkert lítið smart að
setjast þar inn eftir góða skauta-
rispu og panta sér heitt glögg.
ekki víst að margir skæli.
Ég hitti íslending sem er kokkur
á Hótel Hilton þar sem stórmennin
búa og hann segir að öryggisverð-
irnir borði margfalt á við þá sem
þeir eiga að gæta. Enda þurfa þeir
á öllum sínum styrk að halda.
En svo gerist ekki neitt því
kannski var of kalt fyrir Global
Roots og De ulydige og fleiri róstu-
samar fjöldahreyfingar sem boðað
höfðu mótmæli og laðað ungt fólk í
stórum hópum til Kaupmannahafn-
ar með lestum og ferjum. Kannski
var of kalt eða stóð partíið of lengi
frameftir. Hver sem skýringin var
fóru boðaðar mótmælaðgerðir og
óeirðir fyrir ofan garð og neðan og
þær göngur sem fram fóru ein-
kenndust af friði og bræðralagi. En
það er mjög erfitt að halda uppi
sæmilega heitri reiði meðal þessa
óstressaða fólks sem kann öðrum
betur að „hygge sig“ og hefur fund-
ið upp bæði Carlsberg bjór og
steiktar fiskibollur, svo ekki sé
minnst á Gammeldansk.
Hassreykur á aðventunni
Það var einhvern tímann rétt
fyrir 1970 sem hópur ungra hippa
tók yfirgefna herstöð á Amager
herfangi og settist að þar í skálun-
um. Smátt og smátt varð þar til frí-
ríkið Kristjanía þar sem menn
hafa lagt áherslu á frjálst líf í
frjálsu landi. Þar vilja menn semja
sínar eigin reglur og láta sig lítt
varða smáborgaralandið sem um-
kringir fríríkið á alla vegu. Danska
ríkið hefur á ýmsum timum þumb-
ast misjafnlega mikið við þessari
afstöðu en allt að einu þá má enn-
þá selja hass á opinberum vett-
vangi í Kristjaníu þar sem sérstakt
Pusher Street er varðað hassstöll-
um og básum og fríum sýnishorn-
um. Þorpið sem myndar Kristjaníu
er eins og sprottið úr hugarheimi
Lísu í Undralandi þar sem hver
ræður sínum byggingarstíl og
reglugerðir eru bara hugmynd.
Allar byltingar éta bömin sín og
þessi er áreiðanlega engin undan-
tekning. Kristjanía laðar orðið að
sér fleiri ferðamenn en Tívolí og
Hafmeyjan og jólamarkaður stað-
arins er gífurlega vinsæll því í
þeirri nostalgíu sem einkennir tíð-
aranda okkar er fátt eins krúttlegt
eins og eitthvert „hippastöff" sem
er handgert heima í Kristjaniu.
Það var vissulega gaman að koma
á markaðinn sem minnti samt svo-
lítið á Kolaportið á góðum degi.
Þarna var allt handgert og lífrænt,
heimafléttað og pólitískt rétt.
Þó var nokkuð sérkennilegt að
sjá hve margir umsjónarmenn
básanna voru eins og tímaferða-
langar þvældir af kuðli áratuganna
gegnum þykkan hassreyk. Sumir
sátu einfaldlega í þykku skýi val-
múareyks í sínum sölubásum lík-
lega til þess að gera ok kapítalism-
ans bærilegra í örtröðinni. Það var
sannarlega vissara að standa ekki
of lengi þar við hillurnar ef maður
vildi halda óbrjálaðri dómgreind
þann daginn.
Ég keypti mér vettlinga af af-
gönskum sölumanni sem sagði að
ísland væri gott land og hann vildi
gjarnan koma þangað og selja vett-
linga því þar væri kalt og fólk
vantaði vetti. Mér fannst það lík-
legt. -PÁÁ
A horni Laugavegar og Klapparstígs
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
H&lgctrJblað H>'Vr
http'J/simnet. is/homedecorl928/
okkar ogkíkið á tilboðin
^ejdee/J/f/e/i/e/mie
í beinni útsendingu frá sex Evrópuþjóðum
klukkan 13.00; 15.00,17.00,19.00, 21.00 og 23.00 !
mJM/ie/ei // vjýí ema
verður útvarpað klukkan 17.00. * y
Sinfóníuliljómsveit íslands og Mótettukór Hallgrímskirkju
fluja jólaóratonu eftirjohn Speight undir stjórn Harðar Áskelssonar
Einsöngvarar eru Elín Óska Óskarsdóttir. Guðríín Ólafsdóttir,
Garðar Thor Cortes og Benedikt Ingólfsson.
Hönnun; Kalman le Sage de Fontenay