Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Blaðsíða 41
Á Kongens Nytorv er lagt skauta- svell á köldum vetrardögum á að- ventunni og þar finna menn jóla- skapið við að svífa í hringi ineð skríkjandi samborgurum sínum. í baksýn er skreytt Hotel D’Angle- terre sem er eitt fínasta hótelið í bænum og ekkert lítið smart að setjast þar inn eftir góða skauta- rispu og panta sér heitt glögg. ekki víst að margir skæli. Ég hitti íslending sem er kokkur á Hótel Hilton þar sem stórmennin búa og hann segir að öryggisverð- irnir borði margfalt á við þá sem þeir eiga að gæta. Enda þurfa þeir á öllum sínum styrk að halda. En svo gerist ekki neitt því kannski var of kalt fyrir Global Roots og De ulydige og fleiri róstu- samar fjöldahreyfingar sem boðað höfðu mótmæli og laðað ungt fólk í stórum hópum til Kaupmannahafn- ar með lestum og ferjum. Kannski var of kalt eða stóð partíið of lengi frameftir. Hver sem skýringin var fóru boðaðar mótmælaðgerðir og óeirðir fyrir ofan garð og neðan og þær göngur sem fram fóru ein- kenndust af friði og bræðralagi. En það er mjög erfitt að halda uppi sæmilega heitri reiði meðal þessa óstressaða fólks sem kann öðrum betur að „hygge sig“ og hefur fund- ið upp bæði Carlsberg bjór og steiktar fiskibollur, svo ekki sé minnst á Gammeldansk. Hassreykur á aðventunni Það var einhvern tímann rétt fyrir 1970 sem hópur ungra hippa tók yfirgefna herstöð á Amager herfangi og settist að þar í skálun- um. Smátt og smátt varð þar til frí- ríkið Kristjanía þar sem menn hafa lagt áherslu á frjálst líf í frjálsu landi. Þar vilja menn semja sínar eigin reglur og láta sig lítt varða smáborgaralandið sem um- kringir fríríkið á alla vegu. Danska ríkið hefur á ýmsum timum þumb- ast misjafnlega mikið við þessari afstöðu en allt að einu þá má enn- þá selja hass á opinberum vett- vangi í Kristjaníu þar sem sérstakt Pusher Street er varðað hassstöll- um og básum og fríum sýnishorn- um. Þorpið sem myndar Kristjaníu er eins og sprottið úr hugarheimi Lísu í Undralandi þar sem hver ræður sínum byggingarstíl og reglugerðir eru bara hugmynd. Allar byltingar éta bömin sín og þessi er áreiðanlega engin undan- tekning. Kristjanía laðar orðið að sér fleiri ferðamenn en Tívolí og Hafmeyjan og jólamarkaður stað- arins er gífurlega vinsæll því í þeirri nostalgíu sem einkennir tíð- aranda okkar er fátt eins krúttlegt eins og eitthvert „hippastöff" sem er handgert heima í Kristjaniu. Það var vissulega gaman að koma á markaðinn sem minnti samt svo- lítið á Kolaportið á góðum degi. Þarna var allt handgert og lífrænt, heimafléttað og pólitískt rétt. Þó var nokkuð sérkennilegt að sjá hve margir umsjónarmenn básanna voru eins og tímaferða- langar þvældir af kuðli áratuganna gegnum þykkan hassreyk. Sumir sátu einfaldlega í þykku skýi val- múareyks í sínum sölubásum lík- lega til þess að gera ok kapítalism- ans bærilegra í örtröðinni. Það var sannarlega vissara að standa ekki of lengi þar við hillurnar ef maður vildi halda óbrjálaðri dómgreind þann daginn. Ég keypti mér vettlinga af af- gönskum sölumanni sem sagði að ísland væri gott land og hann vildi gjarnan koma þangað og selja vett- linga því þar væri kalt og fólk vantaði vetti. Mér fannst það lík- legt. -PÁÁ A horni Laugavegar og Klapparstígs LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 H&lgctrJblað H>'Vr http'J/simnet. is/homedecorl928/ okkar ogkíkið á tilboðin ^ejdee/J/f/e/i/e/mie í beinni útsendingu frá sex Evrópuþjóðum klukkan 13.00; 15.00,17.00,19.00, 21.00 og 23.00 ! mJM/ie/ei // vjýí ema verður útvarpað klukkan 17.00. * y Sinfóníuliljómsveit íslands og Mótettukór Hallgrímskirkju fluja jólaóratonu eftirjohn Speight undir stjórn Harðar Áskelssonar Einsöngvarar eru Elín Óska Óskarsdóttir. Guðríín Ólafsdóttir, Garðar Thor Cortes og Benedikt Ingólfsson. Hönnun; Kalman le Sage de Fontenay
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.