Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Page 44

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Page 44
48 Helcfarblað IDV LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 Tyrkland: Auðkýfingur Þoð sem gerir Tgrkland áhuqavert sem ferða- mannaland er að þar fer saman mikil nátt- úrufequrð, falleq strandlenqja, sól oq hiti, qeqsileq menninqarverðmæti oq ekki spillir að verðlaq er mjöq haqstætt fyrir Evrópubúa. Undanfama áratugi hafa íbúar í Norður-Evrópu, þar með taldir Bretar, Norðurlandabúar og Þjóðveijar, sótt sólar- strendur í Tyrklandi. Svíar hafa til dæmis útnefnt Tyrkland sem besta ferðamannastaðinn við Miðjarðarhaf. Ferðamönn- um til Tyrklands ijölgar jafnt og þétt og nú taka þeir á móti 10 milijónum ferðamanna á ári. Síðustu tvö ár hefúr verið boðið upp á beint leiguflug frá íslandi til Marmaris í Tyrk- landi. íslendingum hefur líkað vel við land og þjóð og dæmi eru um fólk sem farið hefur þrisvar sinnum til Marmaris á tveimur árum. Vagga vestrænnar menningar Tyrkiand tilheyrir tveimur heimsálfum, Evrópu og Asiu. Um 3% landsins eru í Evrópuhlutanum og afgangurinn í Asíuhlutanum. Istanbúl er eina borg heimsins í tveimur heimsálfúm þar sem hún teygir sig yfir Bospórussund eða Hellusund eins og það er kallað upp á íslensku. Grikkland hef- ur löngum verið kallað vagga vestrænnar menningar með til- vísun í foma sögu grisku borgríkjanna. Tyrkland getiu: líka gert tilkall til sama titils vegna þess hve geysilega mikið af fomminjum er að finna í landinu frá tímum Grikkja og Róm- verja. Það má nefna að tvö af sjö undrnm fomaldar vom þar sem nú er Tyrkland. Það er Artemisarhofið í Efesus og graf- hýsi Mausolosar konungs. Elsta borg sem grafrn hefur verið upp er Catal Huyuk í sunnanverðu Tyrklandi. Talið er að fyrir 9000 árum hafi búið þar um 5000 manns. Fjallið Ararat, sem örkin hans Nóa strandaði á, er í austurhluta landsins og svona mætti lengi telja af fomum heimildum. TjTldand og upphaf skynsemishugsunar Um 800 f. Kr. höfðu Grikkir numið land með fram strönd- um Tyrklands í Eyjahafi. Þar risu upp mörg öflug grísk borg- Hægt er að gera góð kaup í teppum, en Tvrkir eru heimsþekktir fvrir teppaframleiðslu sína; sem og leðurvörum. gulli og skartgripum. í dag geta ferðamenn svamlað í heitri laug sem Kleópatra mun hafa baðað sig í þegar hún var á ferð um Litlu-Asíu með Antoníusi. Tyrkir eru ákaflega léttir í lund og þjónustuliprir við ferðamenn. um stund í gamla hluta Marmaris, upp af höfninni, er sægur af veitingastöðum og börum og þar er líka markaðurinn eða bazar. ríki eins og Efesus og Míletos. í síðamefndu borginni fæddist sá maður sem í vestrænni heimspeki er talinn upphafsmaður skynsemishugsunar. Þales hét hann og var uppi rétt um 600 f. Kr. Herakleitos hét annar, fæddur í Efesus, en hann er enn þekktari meðal þessara fyrstu spekinga sem Grikkland hið foma ól af sér. Hin gríska menning breiddist síðan hratt út með landvinningum Alexanders mikla um og eftir 330 f. Kr. og í kjölfar Grikkja komu Rómverjar sem byggðu á hinni grísku menningu en þróuðu hana enn frekar. Þá varð Litla- Asía, eins og þeir kölluðu Tyrkland, eitt af höfuðvígjum heimsmenningarinnar. Allt frá hinni fomu borg Tróju við vesturströnd Tyrklands og suður strandlengjuna við Eyjahaf er í dag hægt að skoða fomar minjar, hús, torg, leikhús, bað- hús, bókasöfn og basilikur. Þessir staðir hafa verið vettvang- ur margra helstu viðburða í sögu vestrænnar menningar. Tyrkland og frumkristnin Frumkristnin og Tyrkland eru svo nátengd að hægt er að dvelja í landinu í nokkrar vikur til þess eins að feta i fótspor kristnisögunnar. Postulasagan greinir frá ferðum Páls postula um landið og í annarri kristniboðsferðinni kom hann til Efesus. Þar komst hann með naumindum undan æstum lýðn- um undir stjóm silfursmiðsins Demetríusar sem sá hagsmun- um sínum ógnaö af þessari nýju trú. Hann og aðrir höfðu nefnilega framfæri sitt af því að selja minjagripi tengda Artemis, fijósemisgyðjunni með mörgu bijóstin. Pílagrímar áttu erindi til Efesus til þess að tilbiðja gyðjuna í þessu stór- kostlega hofi sem talið var eitt af undrum fomaldar og af þeim hafði Demetríus lífsviðurværi sitt, svo og margir fleiri. Páll postuli hét reyndar Sál og var frá Tarsus á suðurströnd Tyrk- lands. Eins og flestir vita var hann fremstur í flokki þeirra sem ofsóttu trúaða í árdaga kristninnar. Hann fékk vitrun og varð í staðinn fremstur i flokki þeirra sem boðuðu hina nýju trú. Guðspjallamaðurinn Jóhannes kom líka við í Efesus og er talið að í þriðju ferð hans til Litlu-Asíu hafi María guðsmóðir verið með í för. Á hæð fyrir ofan Efesus er kapella sem reist var yfir hús sem sagt er að María hafi búið í. En þótt postul- amir Páll og Jóhannes hafi gert sitt til að koma boðskapnum á framfæri voru kristnir menn af og til ofsóttir í rómverska ríkinu og síðar af öðrum innrásarheijum. Fleiri staðir í Tyrk- landi em tengdir frumkristninni og má þar nefna að Kon- stantínus keisari tók kristna trú og aflétti ofsóknum á hendur kristnum árið 313. Hann flutti hirð sína til hinnar fomu borg- ar Býsans, nefndi hana Konstantínópel (fékk síðar heitið Ist- anbúl) og þungamiðja hins rómverska ríkis varð um aldir þar sem nú er Tyrkland. Efesus í dag Fyrir rúmum hundrað árum hófu fomleifafræðingar að grafa í gegnum sex metra þykkt jarðlag sem lá yfir gömlu Efesus og þeir eru enn að. Hundrað ára uppgröftur hefur skil- að rústum af rómverskri borg frá fyrstu, annarri og þriðju öld. Því miður er aðeins að sjá grunninn að hinu horfna hofi Artemisar. Hins vegar em rómversku rústirnar mjög heilleg- ar og svæði það sem grafið hefur verið upp telst meðal helstu fomminja hins grísk/rómverska menningarheims. Það er hægt að skoða það helsta á hálfum degi en hins veg- ar er hægt að veija heilum degi eða jafnvel dögum í Efesus ef áhuginn er mikill. Rústimar em það heillegar að með þokka- legu ímyndunarafli getur maður heyrt kallað á fomgrísku yfir götumar, fengið blóðbragð í munninn á leikvanginum þar sem skylmingaþrælar börðust fýrir lífi sínu, fundið ilminn af baðolíum í baðhúsinu og jafnvel heyrt vatnsniðinn á almenn- ingsklósettinu i miðri borginni. Við hvert fótmál er eitthvað áhugavert að sjá, mósaíkgólf frá 1. öld, bókasafnið frá 2. öld en þar vom geymdar um 12.000 rullur, höggmyndir af Heraklesi og Hermesi, og síðast en ekki síst afsteypu af þekktri styttu af Artemis Efesus-manna sem var það bijóstgóð að fjöldi bijóst- anna slagar hátt á annan tug. Hægt er að fara í dagsferð frá Marmaris til þess að skoða þessa merku rústir sem em ein- stakar. Bómullarvirkið Önnur dagsferð frá Marmaris er til Pamukkale, sem þýðir í raun bómullarvirkið, en er alls ekki myndað úr bómull held- ur kfsil sem setið hefur eftir þegar heitt vatn hefur runnið nið- ur klettana í aldir. Þama em heitar uppsprettur og Rómverj- ar vom þeir fyrstu til að koma auga á þennan stað og gera hann að heilsulind og ferðamannaborg. I dag geta ferðamenn svamlað í heitri laug sem Kleópatra mun hafa baðað sig í þeg- ar hún var á ferð um Litlu-Asíu með Antoníusi. Fyrir fslend- inga em heitar laugar svo sem ekkert sérstakar en við getum ekki boðið upp á laug sem hlaðin er upp fyrir tvö þúsund árum og þar sem gestir svamla innan um fomminjamar. Sagt er að konur, og aðeins konur, yngist um nokkur ár við að baða sig í þessari laug. Þrátt fyrir að hafa séð nokkra tugi is- lenskra kvenna synda í lauginni get ég ekki staðfest þessa sögn nema að því leyti til að íslenskar konur era af Tyrkjum almennt taldar yngri en ár þeirra segja til um. Það má vera baðferðinni að þakka. Það er um þriggja tima akstur til Pamukkale frá Marmaris en enginn ætti að láta það aftra sér. Á leiðinni er ekið í gegn- um landbúnaðarhémð þar sem ræktaðar em plöntur sem em sjaldséðar í augum íslendinga, svo sem tóbak og bómull. í Ijósaskiptunum bregður náttúran á leik og ýmsar kynjamynd- ir verða til í vindsorfnum klettum og háum fjöllum. Falleg strandlengja Strandlengja Tyrklands við Eyjahaf og Miðjarðarhaf hefur af siglingamönnum verið talin ein sú fegursta í öllu Miðjarð- arhafi. Það kemur til af því að sjórinn er túrkisblár við strend- umar og landið er skógi vaxið milli fjalls og fjöru í bókstaf- legri merkingu. Marmaris er lítill bær, umlukinn fumskógi á þrjá vegu, og skráður íbúafjöldi er 25.000. Áður en Marmaris varð ferðamannastaður höfðu íbúar lífsviðurværi sitt af því að kafa eftir náttúrlegum svampi en rétt fyrir utan flóann em stórir flákar þar sem svampurinn vex. í dag nýta lystibátar af öllum stærðum og gerðum höfnina í Marmaris. Þar má sjá snekkjur af glæsilegustu gerð og nið- ur í einfaldar seglskútur sem Tyrkir smíða úr fura sem vex í nágrenninu og nóg er af. Hægt er að mæla með siglingu um Gökova-flóann en það tekur um hálftíma að aka þangað frá Marmaris. í slíkum ferðum er sólar og útsýnis notið af dekk- inu og kafteinninn sjálfúr tilreiðir hádegismatinn sem rennur ljúflega niður. T>Tlaieska eldhúsið Talandi um mat er ekki úr vegi að fjalla um tyrkneska mat- arhefð sem er með því besta sem gerist. Þar sem heimsveldi Tyrkjasoldána, Ottómanveldið, náði allt til Austurrikis í Evr- ópu, suður Mið-Austurlönd og yfir nánast alla Norður-Afríku, hafði matargerð þeirra mikil áhrif í þessum löndum og svo öf- ugt. Hlaðborð með heitum og köldum réttum em algeng og úr- valið er mikið, fyrir utan hvað réttfrnir em yfirleitt vel fram bomir og skreyttir. Grænmeti er matreitt á ýmsan máta og borið fram í alls konar sósum og kryddlegi. Meginuppistaðan í köldum sósum er oftast jógúrt sem gerir þær léttar og frísk- andi. Kjötréttir em oftast úr lamba- eða nautakjöti og algengt að kjötið sé hakkað og síðan mótað í bollur eða grillað á tein- um yfir eldi. Hrísgijóna- og baunaréttir em líka algengir. Brauðið er alveg sér á báti og þar tala ég fyrir munn og maga margra íslendinga sem sótt hafa Tyrkland heim. Flatt hveiti- brauð með valmúafræjum og birki, bakað yfir opnum eldi, er hreinasta sælgæti en það er borið fram heitt með smjöri. Ferskir ávextir em algengir í eftirrétt en einnig alls konar kökur og sætindi. Smákökur sem bleyttar era upp í hunangi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.