Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Page 52
56 LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002 HelQarblctcf 31>V Reynsluakstur Njáll Gunnlaugsson ‘u ca as T3 C S Q Reynsluakstur nr. 727 Stórmeistarinn stendur sig vel í akstri Kostir: Liggur vel á vegi, rými Gallar: Léttur í stýri á ferð Vectra-stórmeistarinn frá Opel er nú kominn á markað hér á landi og boðar nýja tíma þar á bæ. Búast má við sjálfskiptri 2,2 lítra Vectru eftir áramót og er hún ásamt 1,8 lítra beinskipta bílnum helsti sölubíllinn þar á bæ. Við gripum í beinskipta bílinn á dögunum og reyndum á sportlega eiginleika hans. Hreinn og beinn Útlit nýja bílsins er gjörbreytt frá fyrri kynslóð og er óhætt að segja að hann sé klassískari í útliti. Línumar eru hvassari og axlalínan hærri sem gefur honum sportlegra útlit. Annað sem vekur athygli í útliti hans eru stór, margspegla framljósin sem ná vel upp á vélar- hlífna. Að innan er sama línan uppi á teningnum og út- litið hreinna og beinna. Sætin eru stór og þægileg og styðja vel við á alla kanta og á milli framsæta er þægi- leg armhvíla á sleða. Framsætin eru fjölstillanleg og er þægilegt að eiga við stillingarnar. Auk þess er stýri með aðdrætti sem eykur á þægindin í akstri. Ágætlega fer einnig um farþega í aftursætum og er fótapláss enn þá sæmilegt fyrir meðalmanninn þótt framsæti séu komin i öftustu stöðu. Farangursrými hefur verið auk- ið í 500 lítra svo það er á pari við það besta sem gerist í þessum flokki. IDS-aksturskerfi í akstri vekur það fyrst athygli hversu hljóðlátur bíllinn er og gildir þar einu um hvort veghljóð, vélar- hljóð eða vindhljóð er að ræða. 1,8 lítra vélin gefur ágætis upptak en hann er fljótur að klára gírana þegar reynt er á hann. Bíllinn er næmur í stýri, einnig á meiri ferð, þannig að það virkar aðeins of nákvæmt. Annars svarar bíllinn vel öllum hreyflngum öku- manns, þökk sé nýja IDS-kerfinu (Interactive Driving System). Kerfið lagar sig að akstursvenjum ökumanns með skynjurum í fótpetulum og stýri, en einnig nemur kerfið fleiri þætti, eins og hraða. Kerfið er eldsnöggt að bregðast við og jafnvel þótt bílnum sé hent í krappa beygju liggur hann vel í gegnum hana og leggur litið á. Þetta fmnst vel í hefðbundnum akstri, líka þannig að farþegar verða lítið varir við hliðarhreyfingar í bíln- um, þó án þess að það sé á kostnað mýktar fjöðrunar- innar. Fyrir miðju í verði Beinskiptur Opel Vectra kostar frá 2.190.000 sem er nokkuð gott verð í samanburði við svipaða bíla, enda er Vectra vel búinn bíll. Hans helstu keppinautar eru til dæmis Ford Mondeo, Nissan Primera, VW Passat og væntanlegur Toyota Avensis. Beinskiptur VW Passat Baseline 1,8 kostar 1.995.000 kr., eins og Ford Mondeo Ambiente 1,8. Nissan Primera með sömu stærð af vél er hins vegar dýrari, eða á 2.390.000 kr., en þar er um óvenjulega vel búinn bíl að ræða. -NG VELBUNAÐUR: Vél:_______________________1,8 lítra, 4ra strokka bensinvél Rúmtak: 1796 rúmsentímetrar Ventlar: 16 Þjöppun: 10,5:1 i Gírkassi: 5 qíra beinskiptur UNDIRVAGN: Fjöðrun framan: Sjálfstæð Fjöðrun aftan: Fjöqurra liða 1 | Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD Dekkjastærð: 195/65 R15 YTRI TÖLUR: Lenqd/breidd/hæð: 4596/1798/1460 mm Hjólahaf: 2700 mm. Beyqjuradíus: 11,4 metrar. INNRI TÖLUR: Farþeqar m. ökumanni: 5 Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 5/8 Faranqursrými: 500 lítrar j HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: 7,7 lítrar Eldsneytisqeymir: 61 lítri Ábyrqð/ryðvörn: 3/12 ár Grunnverð: 2.190.000 kr. Umboð: Bílheimar Staðalbúnaður: 8 öryggispúðar, útvarp/geislaspilari með 8 hátölurum, fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnir og upp- hitaðir speglar, loftkaeling, spólvörn, fjölstillanleg fram- sæti, aðdráttarstýri, færanlegur armpúði, ! SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 122/6000 Snúninqsvæqi/sn.: 167 Nm/3800 Hröðun 0-100 km: 11,2 sek. Hámarkshraði: 203 km/klst. Eiqin þyngd: 1395 kq Heildarþynqd: 1870 kq o Innréttingin er hrein og bein en virkar frekar kassa- laga. © 1,8 lítra vélin er nokkuð spræk og dugar þessurn bíl vel. ® Farangursrými tekur 500 lítra sein er með því besta í flokknum. © Með framsæti í öftustu stöðu er enn ágætt fótapláss og liægt er að taka niður armpúða til aukinna þæg- inda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.