Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Qupperneq 52
56
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
HelQarblctcf 31>V
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
‘u
ca
as
T3
C
S
Q
Reynsluakstur nr. 727
Stórmeistarinn
stendur sig vel í
akstri
Kostir: Liggur vel á vegi, rými
Gallar: Léttur í stýri á ferð
Vectra-stórmeistarinn frá Opel er nú kominn á
markað hér á landi og boðar nýja tíma þar á bæ. Búast
má við sjálfskiptri 2,2 lítra Vectru eftir áramót og er
hún ásamt 1,8 lítra beinskipta bílnum helsti sölubíllinn
þar á bæ. Við gripum í beinskipta bílinn á dögunum og
reyndum á sportlega eiginleika hans.
Hreinn og beinn
Útlit nýja bílsins er gjörbreytt frá fyrri kynslóð og er
óhætt að segja að hann sé klassískari í útliti. Línumar
eru hvassari og axlalínan hærri sem gefur honum
sportlegra útlit. Annað sem vekur athygli í útliti hans
eru stór, margspegla framljósin sem ná vel upp á vélar-
hlífna. Að innan er sama línan uppi á teningnum og út-
litið hreinna og beinna. Sætin eru stór og þægileg og
styðja vel við á alla kanta og á milli framsæta er þægi-
leg armhvíla á sleða. Framsætin eru fjölstillanleg og er
þægilegt að eiga við stillingarnar. Auk þess er stýri
með aðdrætti sem eykur á þægindin í akstri. Ágætlega
fer einnig um farþega í aftursætum og er fótapláss enn
þá sæmilegt fyrir meðalmanninn þótt framsæti séu
komin i öftustu stöðu. Farangursrými hefur verið auk-
ið í 500 lítra svo það er á pari við það besta sem gerist
í þessum flokki.
IDS-aksturskerfi
í akstri vekur það fyrst athygli hversu hljóðlátur
bíllinn er og gildir þar einu um hvort veghljóð, vélar-
hljóð eða vindhljóð er að ræða. 1,8 lítra vélin gefur
ágætis upptak en hann er fljótur að klára gírana þegar
reynt er á hann. Bíllinn er næmur í stýri, einnig á
meiri ferð, þannig að það virkar aðeins of nákvæmt.
Annars svarar bíllinn vel öllum hreyflngum öku-
manns, þökk sé nýja IDS-kerfinu (Interactive Driving
System). Kerfið lagar sig að akstursvenjum ökumanns
með skynjurum í fótpetulum og stýri, en einnig nemur
kerfið fleiri þætti, eins og hraða. Kerfið er eldsnöggt að
bregðast við og jafnvel þótt bílnum sé hent í krappa
beygju liggur hann vel í gegnum hana og leggur litið á.
Þetta fmnst vel í hefðbundnum akstri, líka þannig að
farþegar verða lítið varir við hliðarhreyfingar í bíln-
um, þó án þess að það sé á kostnað mýktar fjöðrunar-
innar.
Fyrir miðju í verði
Beinskiptur Opel Vectra kostar frá 2.190.000 sem er
nokkuð gott verð í samanburði við svipaða bíla, enda
er Vectra vel búinn bíll. Hans helstu keppinautar eru
til dæmis Ford Mondeo, Nissan Primera, VW Passat og
væntanlegur
Toyota Avensis.
Beinskiptur VW
Passat Baseline
1,8 kostar
1.995.000 kr.,
eins og Ford
Mondeo
Ambiente 1,8.
Nissan Primera
með sömu stærð
af vél er hins
vegar dýrari,
eða á 2.390.000
kr., en þar er
um óvenjulega
vel búinn bíl að
ræða. -NG
VELBUNAÐUR:
Vél:_______________________1,8 lítra, 4ra strokka bensinvél
Rúmtak: 1796 rúmsentímetrar
Ventlar: 16
Þjöppun: 10,5:1 i
Gírkassi: 5 qíra beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan: Sjálfstæð
Fjöðrun aftan: Fjöqurra liða
1 | Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD
Dekkjastærð: 195/65 R15
YTRI TÖLUR:
Lenqd/breidd/hæð: 4596/1798/1460 mm
Hjólahaf: 2700 mm.
Beyqjuradíus: 11,4 metrar.
INNRI TÖLUR:
Farþeqar m. ökumanni: 5
Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 5/8
Faranqursrými: 500 lítrar j
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: 7,7 lítrar
Eldsneytisqeymir: 61 lítri
Ábyrqð/ryðvörn: 3/12 ár
Grunnverð: 2.190.000 kr.
Umboð: Bílheimar
Staðalbúnaður: 8 öryggispúðar, útvarp/geislaspilari með 8 hátölurum, fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnir og upp- hitaðir speglar, loftkaeling, spólvörn, fjölstillanleg fram-
sæti, aðdráttarstýri, færanlegur armpúði, !
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 122/6000
Snúninqsvæqi/sn.: 167 Nm/3800
Hröðun 0-100 km: 11,2 sek.
Hámarkshraði: 203 km/klst.
Eiqin þyngd: 1395 kq
Heildarþynqd: 1870 kq
o Innréttingin er hrein og bein en virkar frekar kassa-
laga.
© 1,8 lítra vélin er nokkuð spræk og dugar þessurn bíl
vel.
® Farangursrými tekur 500 lítra sein er með því besta í
flokknum.
© Með framsæti í öftustu stöðu er enn ágætt fótapláss
og liægt er að taka niður armpúða til aukinna þæg-
inda.