Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Page 54
58
H e / C) a rb lcj c) 3Z>V
LAUGARDAGU R 21. DESEMBER 2002
Vinalegur smábíll
með skemmtileg-
an karakter
Kostir: Stýri, þœgindi, útlit
Gallar: Vindhljóð, marr í ökumannssœti
Allar leiðir liggja til Rómar var sagt fyrr á öldum og það
átti lika við á dögunum þegar bílablaðamenn víðs vegar úr
heiminum prófiiðu nýjustu kynslóð Nissan Micra-smábils-
ins þar og í nágrannahéruðunum. Bíllinn þykir nokkuð
frumleg hönnun og auglýsingaherferðin í kringum hann
sérkennileg og greinilega með ungt fólk í huga. Sérstakt
Micra-tímarit er gefið út á vefnum sem inniheldur „hip“-
efni og þar má meðal annars frnna grein um ísland og höf-
skemmtilegur í
mngengni og
mjög þægilegt
inn- og útstig,
jafiivel i aftur-
sæti á þriggja
dyra bílnum
þar sem fram-
sætið fer alltaf í
upphaflega
stöðu sína eftir
að því hefur
verið rennt
fram.
uðborgina Reykjavík. Til að skoða síðuna er hægt að fara á
hvaða Nissan-síðu sem er í Evrópu og smella á Nissan
Micra-tengilinn.
Bíll ársins 1993
Áætlað er af hálfu Nissan að framleiða 160.000 bíla á ári
og auka sölu bílsins um 20% á næstu þremur árum. AUs
hafa 1,3 milljón bila af fyrri kynslóðinni verið seldir síðan
1992 en sá bíll var fyrsti japanski bíllinn til að fá titilinn
„Bfll ársins í Evrópu" árið 1993. Nýja Micran er 30 mm
styttri en bíllinn sem hann leysir af hólmi en þrátt fyrir það
er hjólahaf nýja bílsins 70 mm lengra. Billinn er því rúm-
góður miðað við smábil og til marks um það er hann með
stærsta farangursrými í sínum flokki.
Hólf undir sæti
Hönnuðir Nissan hafa einnig verið sniðugir að nýta allt
pláss í bílnum til fullnustu því að sérstakt 10 lííra hólf er
undir framsæti farþegamegin sem opna má með því að toga
upp setuna. Einnig er aftursætisbekkur á sleða sem hægt er
að færa til um allt að 200 mm. Þetta eykur þægindi og gerir
notendum bílsins kleift að „klæðskerasauma" plássið utan
um sig og farangur sinn. Eina athugasemdin varðandi rým-
ið í bílnum er sú að höfuðrými aftur í mætti vera betra,
allavega fyrir þá sem stærri eru. Sætin eru hæfilega stór og
þægileg en vart varð við marr í ökumannssæti þegar reyndi
á stuðninginn í kröppum beygjum.
Vel búinn og þægilegur
Innréttingin í Micra er skemmtilega hönnuð og þægileg í
notkun með snertivænum tökkum. í prófunarbílnum var
meðal annars aksturstölva og loftkæling en óvíst er þegar
þetta er skrifað hvort sá búnaður verður í bflnum þegar
hann verður boðinn héma. Telja má þó ömggt að staðalbún-
aður hérlendis verði innbyggður geislaspilari og fjórir ör-
yggispúðar. Hægt er að setja dagsetningar inn í aksturstölv-
una og nota þannig hana til að minna sig á og bíllinn óskar
meira segja eiganda sínum til hamingju með afmælið. Bíll-
inn er líka
NISSAN MICRA 1,4
1,4 lítra, 4ra strokka bensinvél
Rúmtak: 1386 rúmsentímetrar
Ventlar: 16
! Þjöppun: 9,9:1
Gírkassi: 5 qíra beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fiöðrun framan: Siálfstæð MacPherson
Fjöðrun aftan: Snúninqsöxull
Bremsur: Diskar/skálar, ABS, EBD, BAS
Dekkjastærð: 175/60 R15
YTRI TÖLUR:
Lenqd/breidd/hæð: 3715/1660/1540 mm
Hjólahaf: ] 2432 mm.
Beyqjuradíus: 9,2 metrar.
INNRI TÖLUR:
Farþeqar m. ökumanni: 5 |
Fjöldi höfuðpúða/örygqispúða: 5/4:
Faranqursrými: 237-371 litri i
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km: | 6,3 lítrar
Eldsneytisqeymir: 46 lítrar
Ábyrqð/ryðvörn: 3/12 ár
Grunnverð: Liqqur ekki fyrir
Umboð: Inqvar Helqason hf.
Staðalbúnaður: 4 örygqispúðar. útvarp/geislaspilari
með 4 hátölurum, fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnir og
upphitaðir speqlar.
SAMANBURÐARTÖLUR:
Hestöfl/sn.: 88/5200
Snúninqsvæqi/sn.: 128 Nm/3200
Hröðun 0-100 km: 11,9 sek.
| ' Hámarkshraði: 172 km/klst.
Eiqin þyngd: 975 kq
Heildarþyngd: 1475 kq
! I
Góð blanda
akstursbfls
í akstri virkar
Nissan Micra
strax vel á mann
og þá sérstaklega
í stýri. Það er létt
og nákvæmt og
þyngist líka hæfi-
lega mikið eftir
því sem hraðinn
eykst. Auk þess
er beygjuradíus
sá minnsti sem
bíil í þessum
flokki hefur og
skýtur hann
Honda Jazz ref
fyrir rass í því
efni. Bíllinn hef-
ur líka ágætis-
veggrip þótt
hann leggist vel í beygjurnar og er því skemmtilegur bæði
um borg og bý. Þijár bensínvélar verða í boði, 1,0,1,2 og 1,4
lítra. Reyndum við mest stærri vélamar tvær og þá sérstak-
lega 1,4 lítra vélina. Ekki er mikiE munur á þeim vélum
enda munurinn ekki nema 8 hestöfl. Merkjanlegur munur
er þó á togi og þar af leiðandi upptaki og munar þar tveim-
ur sekúndum í beinskipta bílnum.
Spuming um verð
Ekki er ljóst strax hvað bíllinn kemur til með að kosta
hér á landi en hann fer á markað hérlendis í janúar. Þessi
flokkur er í sífellt meiri samkeppni enda margar nýjar kyn-
slóðir kynntar nýlega. í Bretlandi er Micra 70 þúsund krón-
um ódýrari en Ford Fiesta og því vonandi vísbending um
gott verð bílsins hér líka. Helstu keppinautar þessa bíls
verða þó nokkuð fleiri en bara Fiesta en þó helstir Toyota
Yaris, VW Polo, Skoda Fabia, Citroen C3, Peugeot 206,
Honda Jazz, Opel Corsa og Renault Clio.
O Stærsta bensínvélin er 1,4 lítra og dugar bíln-
um vel, enda togmeiri en 1,2 lítra vélin.
© lunréttingin er einföld og sniðug, til dæmis er
10 lítra hólf undir farþegasætinu sem rúmar
vel hluti eins og myndavél eða fartölvu.
© Afturhleri opnast vel og þar sem aftursæti er á
sleða er hægt að bæta enn frekar við rýmið.
® Á framljósunum eru kúlur sem gegna því hlut-
verki að auka tilfinningu ökumanns fvrir stærð
bílsins, líkt og kjánaprik á vörubíl.