Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Síða 54
58 H e / C) a rb lcj c) 3Z>V LAUGARDAGU R 21. DESEMBER 2002 Vinalegur smábíll með skemmtileg- an karakter Kostir: Stýri, þœgindi, útlit Gallar: Vindhljóð, marr í ökumannssœti Allar leiðir liggja til Rómar var sagt fyrr á öldum og það átti lika við á dögunum þegar bílablaðamenn víðs vegar úr heiminum prófiiðu nýjustu kynslóð Nissan Micra-smábils- ins þar og í nágrannahéruðunum. Bíllinn þykir nokkuð frumleg hönnun og auglýsingaherferðin í kringum hann sérkennileg og greinilega með ungt fólk í huga. Sérstakt Micra-tímarit er gefið út á vefnum sem inniheldur „hip“- efni og þar má meðal annars frnna grein um ísland og höf- skemmtilegur í mngengni og mjög þægilegt inn- og útstig, jafiivel i aftur- sæti á þriggja dyra bílnum þar sem fram- sætið fer alltaf í upphaflega stöðu sína eftir að því hefur verið rennt fram. uðborgina Reykjavík. Til að skoða síðuna er hægt að fara á hvaða Nissan-síðu sem er í Evrópu og smella á Nissan Micra-tengilinn. Bíll ársins 1993 Áætlað er af hálfu Nissan að framleiða 160.000 bíla á ári og auka sölu bílsins um 20% á næstu þremur árum. AUs hafa 1,3 milljón bila af fyrri kynslóðinni verið seldir síðan 1992 en sá bíll var fyrsti japanski bíllinn til að fá titilinn „Bfll ársins í Evrópu" árið 1993. Nýja Micran er 30 mm styttri en bíllinn sem hann leysir af hólmi en þrátt fyrir það er hjólahaf nýja bílsins 70 mm lengra. Billinn er því rúm- góður miðað við smábil og til marks um það er hann með stærsta farangursrými í sínum flokki. Hólf undir sæti Hönnuðir Nissan hafa einnig verið sniðugir að nýta allt pláss í bílnum til fullnustu því að sérstakt 10 lííra hólf er undir framsæti farþegamegin sem opna má með því að toga upp setuna. Einnig er aftursætisbekkur á sleða sem hægt er að færa til um allt að 200 mm. Þetta eykur þægindi og gerir notendum bílsins kleift að „klæðskerasauma" plássið utan um sig og farangur sinn. Eina athugasemdin varðandi rým- ið í bílnum er sú að höfuðrými aftur í mætti vera betra, allavega fyrir þá sem stærri eru. Sætin eru hæfilega stór og þægileg en vart varð við marr í ökumannssæti þegar reyndi á stuðninginn í kröppum beygjum. Vel búinn og þægilegur Innréttingin í Micra er skemmtilega hönnuð og þægileg í notkun með snertivænum tökkum. í prófunarbílnum var meðal annars aksturstölva og loftkæling en óvíst er þegar þetta er skrifað hvort sá búnaður verður í bflnum þegar hann verður boðinn héma. Telja má þó ömggt að staðalbún- aður hérlendis verði innbyggður geislaspilari og fjórir ör- yggispúðar. Hægt er að setja dagsetningar inn í aksturstölv- una og nota þannig hana til að minna sig á og bíllinn óskar meira segja eiganda sínum til hamingju með afmælið. Bíll- inn er líka NISSAN MICRA 1,4 1,4 lítra, 4ra strokka bensinvél Rúmtak: 1386 rúmsentímetrar Ventlar: 16 ! Þjöppun: 9,9:1 Gírkassi: 5 qíra beinskiptur UNDIRVAGN: Fiöðrun framan: Siálfstæð MacPherson Fjöðrun aftan: Snúninqsöxull Bremsur: Diskar/skálar, ABS, EBD, BAS Dekkjastærð: 175/60 R15 YTRI TÖLUR: Lenqd/breidd/hæð: 3715/1660/1540 mm Hjólahaf: ] 2432 mm. Beyqjuradíus: 9,2 metrar. INNRI TÖLUR: Farþeqar m. ökumanni: 5 | Fjöldi höfuðpúða/örygqispúða: 5/4: Faranqursrými: 237-371 litri i HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: | 6,3 lítrar Eldsneytisqeymir: 46 lítrar Ábyrqð/ryðvörn: 3/12 ár Grunnverð: Liqqur ekki fyrir Umboð: Inqvar Helqason hf. Staðalbúnaður: 4 örygqispúðar. útvarp/geislaspilari með 4 hátölurum, fjarstýrðar samlæsingar, rafdrifnir og upphitaðir speqlar. SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 88/5200 Snúninqsvæqi/sn.: 128 Nm/3200 Hröðun 0-100 km: 11,9 sek. | ' Hámarkshraði: 172 km/klst. Eiqin þyngd: 975 kq Heildarþyngd: 1475 kq ! I Góð blanda akstursbfls í akstri virkar Nissan Micra strax vel á mann og þá sérstaklega í stýri. Það er létt og nákvæmt og þyngist líka hæfi- lega mikið eftir því sem hraðinn eykst. Auk þess er beygjuradíus sá minnsti sem bíil í þessum flokki hefur og skýtur hann Honda Jazz ref fyrir rass í því efni. Bíllinn hef- ur líka ágætis- veggrip þótt hann leggist vel í beygjurnar og er því skemmtilegur bæði um borg og bý. Þijár bensínvélar verða í boði, 1,0,1,2 og 1,4 lítra. Reyndum við mest stærri vélamar tvær og þá sérstak- lega 1,4 lítra vélina. Ekki er mikiE munur á þeim vélum enda munurinn ekki nema 8 hestöfl. Merkjanlegur munur er þó á togi og þar af leiðandi upptaki og munar þar tveim- ur sekúndum í beinskipta bílnum. Spuming um verð Ekki er ljóst strax hvað bíllinn kemur til með að kosta hér á landi en hann fer á markað hérlendis í janúar. Þessi flokkur er í sífellt meiri samkeppni enda margar nýjar kyn- slóðir kynntar nýlega. í Bretlandi er Micra 70 þúsund krón- um ódýrari en Ford Fiesta og því vonandi vísbending um gott verð bílsins hér líka. Helstu keppinautar þessa bíls verða þó nokkuð fleiri en bara Fiesta en þó helstir Toyota Yaris, VW Polo, Skoda Fabia, Citroen C3, Peugeot 206, Honda Jazz, Opel Corsa og Renault Clio. O Stærsta bensínvélin er 1,4 lítra og dugar bíln- um vel, enda togmeiri en 1,2 lítra vélin. © lunréttingin er einföld og sniðug, til dæmis er 10 lítra hólf undir farþegasætinu sem rúmar vel hluti eins og myndavél eða fartölvu. © Afturhleri opnast vel og þar sem aftursæti er á sleða er hægt að bæta enn frekar við rýmið. ® Á framljósunum eru kúlur sem gegna því hlut- verki að auka tilfinningu ökumanns fvrir stærð bílsins, líkt og kjánaprik á vörubíl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.