Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Síða 56
60
Helqarhlctð 3Z>V
LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 2002
Islendingaþættir
Umsjón
Kjartan Gunnar
Kjartansson
Sigmundur Magnússon
forstöðulæknir í blóðfræði við Landspítalann og dósent í blóðsjúkdómum við HÍ verður 75 ára á morgun
Sigmundur Magnússon, forstöðulæknir í blóðfræöi við
Landspítalann og dósent í blóðsjúkdómum við læknadeild
HÍ, Steinavör 4, Seltjarnarnesi, verður sjötíu og fimm ára á
morgun.
Starfsferill
Sigmundur fæddist í Vestmannaeyjum og átt þar heima
til 1934, síðan eitt ár í Hafnarfirði og eftir það í Reykjavík.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1948, embættisprófi í lækn-
isfræði frá HÍ 1954 og stundaði framhaldsnám í lyflækning-
um og blóðsjúkdómum í Bandaríkjunum 1954-61.
Sigmundur var yfirlæknir við Landspítalann og síðar
forstöðulæknir 1961-97. Hann var dósent í blóðsjúkdómum
við læknadeild HÍ 1962-97 og stundakennari við meina-
tæknadeild Tækniskóla íslands til 1997.
Sigmundur var formaöur Yfirlæknafélags íslands
1964-67, gjaldkeri í stjóm Læknafélags íslands 1965-67, sat
í samninganefnd sjúkrahúslækna við gerð fyrstu sjálfstæðu
samninga læknafélaganna 1966, var formaður Læknafélags
Reykjavíkur 1968-70, sat í kennslunefnd læknadeildar HÍ
1973-77, formaður 1973-76, var formaður Blæðingasjúk-
dómafélags Islands frá stofnun þess 1977-98 og síðan með-
limur í stjórn, sat í siðanefnd Landspítalans 1985-96, þar af
formaður 1991-96 og var formaður öldungadeiidar Lækna-
félags íslands 1977-2001.
Fjölskylda
Sigmundur kvæntist 31.10.1957 Guðlaugu Sigurgeirsdótt-
ur, f. 16.2. 1927, húsmæðrakennara og næringarráðgjafa.
Hún er dóttir Herra Sigurgeirs Sigurðssonar, f. 3.8.1890, d.
13.10.1953, biskups íslands, og k.h., Guðrúnar Pétursdóttur,
f. 5.10.1893, d. 20.7.1979, frá Hrólfsskála Seltjarnarnesi, hús-
móður og pianóleikara. Pétur Sigurðsson, bóndi í Hrólfs-
skála á Seltjamamesi, faðir Guðrúnar, gerði um tíma út
þilskipið Sigurfara sem nú er á byggðasafninu á Akranesi
og Sigurður bróðir hennar var fyrsti skipstjóri á Gullfossi,
skipi Eimskipafélagsins.
Böm Sigmundar og Guðlaugar eru Sigurgeir, f. 8.9.1958,
viðskiptafræðingur og gítarleikari, skrifstofustjóri Félags
islenskra hljómlistarmanna og gjaldkeri félagsins, búsettur
í Reykjavík, kona hans er Anna Lilja Valgeirsdóttir, f. 22.9.
1965, tækniteiknari og markaðsfulltrúi og eru böm þeirra
Sandra og Davíð; Sigríður, f. 16.8. 1960, stúdent, sjúkraliði,
tölvuður og verslunarmaður, búsett á Seltjamamesi, mað-
ur hennar er Hermann Ársælsson, f. 21.5. 1965, rafeinda-
virki og kerfisfræðingur og deildarstjóri hjá Símanum og
eru böm þeirra Sigmundur Grétar (ættleiddur) og Guðlaug
Harpa; Guðrún, f. 30.8.1961, læknir og sérfræðingur í smit-
sjúkdómum, sérfæðingur við sóttvamasvið Landlæknis-
embættisins og rannsóknastofu í sýklafræði, búsett í
Reykjavík, maður hennar er Gylfi Óskarsson, f. 12.6. 1961,
læknir og sérfræðingur í bamasjúkdómum og hjartasjúk-
dómum bama, sérfræðingur við Barnaspítala Hringsins,
Landspítala Háskólasjúkrahús og eru böm þeirra Guðlaug,
Hólmfríður og Magnús Atli.
Systkini Sigmundar eru Þórður Eydal, f. 11.7.1931, tann-
læknir, sérfræðingur í tannréttingum, dr. odont. og prófess-
or emeritus í tannréttingum við tannlæknadeild HÍ.
Hálfbróðir Sigmundar, samfeðra, er Þórarinn, f. 17.2.
1921, d. 18.1.1999, skólastjóri.
Foreldrar Sigmundar voru Magnús Ingibergur Þórðar-
son, f. 5.3. 1895, d. 2.1. 1983, verkamaður, og Sigríður Sig-
mundsdóttir, f. 18.3. 1897, d. 18.5.1982, húsmóðir.
Ætt
Magnús Ingibergur var sonur Þórðar, b. á Sléttabóli í
Hörgslandshreppi, bróður Magneu, langömmu Brodda og
Kristínar Berglindar Kristjánsbama sem bæði eru marg-
faldir íslandsmeistarar í badminton. Þóröur var sonur
Magnúsar, b. í Brandshúsum í Gaulverjabæjarhreppi, Gutt-
ormssonar og Ingibjargar Þórðardóttur.
Móðir Magnúsar Ingibergs var Eygerður Magnúsdóttir,
en Magnús var bróðir Ingibergs, langafa Kára Sigurbjöms-
sonar, læknis á Reykjalundi. Hálfbróðir, samfeðra, Ingi-
bergs og Magnúsar var Einar, langafi Hr. Sigurbjöms Ein-
arssonar biskups, fóður Hr. Karls biskups. Magnús var son-
ur Magnúsar, b. á Orrustustöðum á Brunasandi, Einarsson-
ar og Þorgerðar Bjömsdóttur.
Sigríður var dóttir Sigmundar, b. í Breiðuhlíð í Hvamms-
hreppi, Jónssonar, b. í Breiðuhlíð, Jónssonar, b. í Skamma-
dal, Sigurðssonar, pr. í Þykkvabæjarklaustri, bróður Sæ-
mundar, föður Tómasar Fjölnismanns. Sigurður var sonur
Ögmundar, pr. á Krossi, bróður Böðvars, forföður Vigdísar
Finnbogadóttur, Gylfa Þ. Gíslasonar og Matthíasar Johann-
essen. Ögmundur var sonur Presta-Högna, pr. á Breiðaból-
stað Sigurðssonar. Móðir Sigurðar var Salvör Sigurðardótt-
ir, systir Jóns, pr. á Hrafnseyri, afa Jóns forseta.
Móðir Jóns í Breiðuhlíð var Margrét Einarsdóttir, b. í
Giljum, Jónssonar. Móðir Margrétar var Hólmfríður, syst-
ir Kristínar, langömmu Þórðar, föður Þórbergs rithöfund-
ar. Bróðir Hólmfríðar var Kristján, langafi Benedikts, föð-
Jón Fríðgeir Jónsson
flugvallarvörður á Flateyri
Jón Friðgeir Jónsson flugvallarvörður, Hjallavegi 3,
Flateyri, verður sjötugur á morgun.
Starfsferill
Jón Friðgeir fæddist á Þórustöðum í Önundarfirði og
ólst upp í Önundarfirði. Hann naut farskólakennslu í
Mosvallahreppi á bamaskólaaldri, stundaði nám við
Héraðsskólann á Laugarvatni 1949-51 og nám við Bænda-
skólann á Hólum í Hjaltadal 1952-53.
Jón Friðgeir var bóndi á Þórustöðum 1961-86 og hefur
verið flugvallarvörður, fyrst í Holti og síðan á Þingeyri,
frá 1974.
Þá hefur Jón Friðgeir verið landpóstur í Önundarfirði
frá 1957.
Fjölskylda
Jón Friðgeir kvæntist 5.9. 1968
Hafdísi Sigurðardóttur, f. 6.1. 1946,
húsfreyju og landpósti. Hún er dótt-
ir Sigurðar Péturssonar og Sigríðar
Markúsdóttur en þau eru frá Seyðis-
firði.
Böm Jóns Friðgeirs og Hafdísar
eru Jón Karl Jónsson, f. 13.6. 1969,
kjötiðnaöarmaður í Borgarnesi en
kona hans er Anna Dóra Ágústsdótt-
ir og eru dætur þeirra Friðný Fjóla
og Erika Mjöll; Elín Sigríður Jóns-
dóttir, f. 22.1. 1971, lyfjatæknir í
Reykjavík, maður hennar er Eiríkur
Hjaltason rafvirki og er
dóttir þeirra Guðný
Inga.
Fósturbörn Jóns
Friðgeirs, böm Hafdís-
ar og Björns Einarsson-
ar frá Mýnesi í Eiða-
þinghá, eru Einar Örn
Bjömsson, f. 11.2. 1963
og er sonur hans Einar
Öm; Björn Bjömsson, f.
1.9. 1964 en kona hans
er Jónína Þórðardóttir
og er dóttir þeirra Rakel
María auk þess sem
Björn á þrjú börn frá
fyrrv. sambúð, Markús Þór, Magna Þór og Þórdísi.
Systkini Jóns Friðgeirs eru Hólmgeir Jónsson, f. 27.3.
1931, tölvunarfræðingur í Stuttgart í Þýskalandi en kona
hans er Christine E.H. Desczyk og eiga þau tvö börn; El-
ín Kristbjörg Sigríöur Jónsdóttir, f. 10.9. 1940, húsmóðir
í Reykjavík en maður hennar er Hartmann Þorbergsson
og eiga þau tvö börn; Magnús Hilmar Jónsson, f. 23.8.
1948, bóndi i Noregi en kona hans er Jórunn Kroyseth og
eru synir þeirra Sveinn Ivar og Jónas.
Foreldrar Jóns Friðgeirs voru Jón Jónsson, f. 20.4.
1898, d. 6.9. 1967, bóndi á Þórustöðum í Mosvallahreppi,
og k.h., Elín Tómasína Sigríður Hólmgeirsdóttir, f. 7.3.
1907, d. 25.1. 1967, húsfreyja.
ur Gunnars rithöfundar. Hólmfríður var dóttir Vigfúsar,
pr. á Kálfafellsstað Benediktssonar, bróður Hólmfríðar,
langömmu Jensínu, móður Ásgeirs Ásgeirssonar forseta.
Móðir Sigurðar í Breiðuhlíð var Ingibjörg Einarsdóttir.
Móðir Sigríðar var Margrét, systir Hólmfríðar, móður
Friðjóns Sigurðssonar, fyrrv. skrifstofumanns Alþingis.
Margrét var dóttir Jóns, b. í Skammadal í Mýrdal, bróður
Þórðar, afa Þórðar Tómassonar í Skógum og langafa Stef-
áns Harðar Grímssonar skálds. Systir Jóns var Sigríður,
langamma Erlends Einarssonar, forstjóra SÍS. Móðir Mar-
grétar var Hólmfríður Jónsdóttir, systir Jóns í Breiðuhlíð.
Afmæli
Laugard. 21. desember
7S ÁRA
Guðfinna Jörundsdóttir,
Æsufelli 4, Reykjavík.
Guðmundur Helgi Helgason,
Skólagötu 20, Reykjavík.
Kristine G. Guðmundsdóttir,
Rauðalæk 16, Reykjavík.
Ragnar Mar Cæsarsson,
Víöilundi 20, Akureyri.
Sæmundur Nikulásson,
Hringbraut 26, Reykjavík.
70 ÁRA
Guðrún Guðmundsdóttir,
Hlíðartúni, Selfossi.
Kolbrún Guðmundsdóttir,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Slgurhanna Gunnarsdóttir,
Læk, Ölfusi.
Hún verður að heiman.
OOÁRA
Anna Jórunn Stefánsdóttir,
Hveramörk 4, Hveragerði.
Ástbjörn Egilsson,
Tjarnargötu lOd, Reykjavík.
Helgi Þór Magnússon,
Túngötu 21, Grindavík.
50 ÁRA
Anna Kristín Gunnlaugsdóttir,
Rfuseli 29, Reykjavík.
Inga Hanna Guömundsdóttir,
Vitastíg 15, Reykjavik.
Margrét Björnsdóttir,
Logafold 65, Reykjavík.
Sigrún Ágústa Harðardóttir,
Engjaseli 56, Reykjavík.
Sveinn Ágúst Eyþórsson,
Bakkastöðum 133, Reykjavík.
40 ÁRA____________________
Ásdis Olsen,
Ægisíöu 98, Reykjavík.
Björk Birkisdóttir,
Smiöjugötu 2, Isafirði.
Einar Kristján Magnússon,
Böövarsgötu 13, Borgarnesi.
Guðbjörg K. Jónatansdóttir,
Smáratúni 48, Keflavík.
Guðný Smith Ægisdóttir,
Kóngsbakka 8, Reykjavík.
Guðrún Guðmundsdóttir,
Móabarði 6b, Hafnarfirði.
Ingibjörg Þ. Sigurþórsdóttir,
Logafold 68, Reykjavík.
Kolbeinn Hreinsson,
Krummahólum 2, Reykjavík.
Ólöf María Sigurðardóttir,
Bleiksárhlíð 19, Eskifirði.
Ragnheiður Lára Hanson,
Bergstaðastræti 67, Reykjavík.
Rut Ágústsdóttir,
Hólagötu 19, Vestmeyjum.
Siggeir Stefánsson,
Langanesvegi 26, Þórshöfn.
Sigríður Pétursdóttir,
Víðihvammi 14, Kópavogi.
Sigrún Lárusdóttir,
Bollagöröum 5, Seltjarnarnesi.
Soffía Erla Stefánsdóttir,
Reynimel 60, Reykjavík.
Sunnud. 22. desember
95ÁRA
Carla I. Halldórsson,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
90 ÁRA
Jóhanna Júlíusdóttir,
Bleiksárhlíð 56, Eskifirði.
80 ÁRA
Sigurína Friöriksdóttir,
Fellsmúla 20, Reykjavik.
75 ÁRA
Kjartan Sigmundsson,
Seljalandsvegi 87, ísafiröi.
Kristinn Pálsson,
Húnabraut 10. Blönduósi.
70 ÁRA
Anna Guðlaugsdóttir,
Kleppsvegi 68, Reykjavík.
Guörún Benedikta Helgadóttir,
Ystabæ 7, Reykjavík.
Hjálmar Guðmundsson,
Austurbrún 6, Reykjavík.
60 ÁRA
Þorsteina Pálsdóttir,
Búhamri 7, Vestmannaeyjum.
50 ÁRA____________________
Áslaug Ösp Aöalsteinsdóttir,
Fannafold 121, Reykjavík.
Einar Helgi Kjartansson,
Esjugrund 40, Reykjavík.
Guöbjörg Guðjónsdóttir,
Mánatúni 6, Reykjavík.
Guðjón Bragason,
Túngötu 14, Sandgerði.
Guörún Harðardóttir,
Háaleitisbraut 107, Reykjavik.
Halldóra Baldursdóttir,
Lambeyrarbraut 8, Eskifiröi.
Kristín Pétursdóttir,
Hfurima 6, Reykjavík.
Kristín Rós Andrésdóttir,
Langholtsvegi 24, Reykjavík.
Matthías Þór Hannesson,
verkstjóri hjá ÍAV,
Ásabraut 8, Sandgerði.
Hann tekur á móti gestum aö
Ásabraut 8 í Sandgerði 22.12.
Smári Brynjarsson,
Holtsgötu 7, Hafnarfiröi.
Steindór Eiðsson,
Maríubakka 30, Reykjavík.
Þorsteinn S. Benediktsson,
Smáravegi 12, Dalvík.
Þorvaldur Friðriksson,
Fjölnisvegi 2, Reykjavík.
40 ÁRA
Anna María Kristjánsdóttir,
Helluvaöi 4, Hellu.
Guöfinnur Kjartansson,
Grænási lb, Njarðvlk.
Guðmundur R. Gunnarsson,
Aratúni 26, Garðabæ.
Helga Skúladóttir,
Rauðarárstlg 38, Reykjavík.
Ragnar Hrafnsson,
Baröaströnd 29, Seltj.nesi.
Rannveig Rafnsdóttir,
Jórufelli 4, Reykjavík.
Rúnar Dagbjartur Sigurðsson,
Grásteini 2, Selfossi.
Valdimar Helgason,
Laugalæk 13, Reykjavík.
Þorsteinn Ólafsson,
Furuhllð 33, Hafnarfirði.
Þorvarður K. Þorvarðsson,
Borgarhbraut 51, Kópavogi.
Helga Pálína Sigurðardóttir
Helga Pálína Siguröardóttir,
starfsmaður í Bjarkarási, verður þrítug
á Þorláksmessu. Af því tilefni verður
opið hús að Akurholti 15, Mosfellshæ,
sunnud. 22. desember, kl. 13.00-18.00.
Það er einlæg von Helgu að sem flestir vinir og
vandamenn stingi inn tá og nefi og gleðjist með henni
á þessum tímamótum.