Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Page 71

Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2002, Page 71
l_A.UGARDA.OUR 21. DESEN/IBER 2002 11 I c) a rb la ö I>V 75 Myndagátur Myndirnar tvær virð- ast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur íljós að á annarri myndinni hef- ur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi og senda okkur ásamt nafni þfnu og heimiUsfangi. Að tveimurvikum liðnum birtum við nöfn sigur- vegaranna. Verðlaun: United ferðageislaspilarar með heyrnartólum frá Sjónvarpsmiöstöðinni, Síðumúla 2, að verðmæti 4990 kr. Vinningarnir verða sendir heim til þeirra sem búa úti á iandi. Þeir sem búa á höfuðborgarsvæöinu þurfa að sækja vinningana til DV, Skaftahlíð 24. Ég verð að búa mig undir svona legu þar sem sagt er að helmingur karlmanna endi hjá sálfræðingi eftir meira en 20 ára hjónaband. Svarse&lll Nafn:_________________________________;_______________ Heimili:______________________________________________ Póstnúmer:----------Sveitarfélag:--------------:------ Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? nr. 697, c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík. Verðlaunahafi fyrir getraun nr. 696: Júiía Guöjónsdóttir, Skiphoiti 51, 105 Reykjavík. Lífiö eftir vinnu • T ónleikar ■Sænskt á Hverfisbarnum Svínn Stefan Larson verður með tónleika á Hverfisbarnum í kvöld kl. 21. Stefan hefur tekið skiptiönn í lögfræði í Háskóla Islands nú í haust en heldur nú til síns heima. BKór Langholtsskirkiu Tuttugustu og fjórðu jólasöngvar Kórs Lang- holtskirkju verða kl. 23. Auk Kórs Langholts- kirkju syngur Gradualekór Langholtskirkju á tónleikunum. Kórinn býður tónleikagestum upp á jólasúkkulaði og piparkökur í hléi. Ein- söngvarar verða Ólafur Kjartan Sigurðarson og Ólöf Kolbrún Harðardóttir. Einnig koma fram einsöngvarar úr röðum kórfélaga og hljóðfæra- leikarar leika með kórunum. Stjórnandi er Jón Stefánsson. BLúðrasveitin Svanur Jólatónleikar Lúðrasveitarinnar Svans verða haldnir í dag kl. 16 í Ými tónleikahúsi. Rutt verða ýmis þekkt og óþekkt jóla- og hátíðar- tónlist. Aðgangseyrir er 1000 krónur. Tónleikar I Fríkirkiunni Nú fagna himins englar er yfirskrift tónleika sem fram fara í Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 17. Þar koma fram söngvararnir Margrét Slgurðar- dóttir, Edda Hrund Harðardóttir, Hafsteinn Þórólfsson og Þorbjörn Sigurðsson sem einnig leikur á gítar en Anna Rún Atladóttir leikur á píanó. í sumum lögum mega gestir giarnan taka undir og boðið er upp á léttar veitingar í hléi. ■15:15 að kvöldi til Kl. 22 verða áttundu og síðustu tónleikar 15:15 syrpunnar á Nýja sviöi Borgarleikhúss- ins undir yfirskriftinni Næturtónleikar á vetrar- sólstöðum. Slagverkshópurinn Benda ásamt gestum mun þá flytja þrjú tónverk: „Rain Tree" fyrir þrjá slagverksleikara og „Litany" fyrir pí- anó eftir japanska tónskáldið Toru Takemitsu (1930-1996) og „Dream Sequence (Images II)" eftir Bandarikjamanninn George Crumb (1929). Flytjendur verða Steef van Ooster- hout, Pétur Grétarsson, Eggert Pálsson, Snorri Sigfús Birgisson og gestir. ■Jólasóngvar í Langholtskirkiu Tuttugustu og fjórðu jólasöngvar Kórs Lang- holtskirkju verða haldnir kl. 23. Auk Kórs Langholtskirkju syngur Gradualekór Langholts- kirkju á tónleikunum. Kórinn býður tónleika- gestum upp á jólasúkkulaði og piparkökur í hléi og finnst mörgum gott að koma í Lang- holtskirkju og hlusta á falleg jólalög eftir búðaráp kvöldsins. ■Mozart við kertaliós Kammerhópurinn Camerarctica heldur nú sína tíundu kertaljósatónleika en hópurinn hefur frá árinu 1993 haldið siíka tónleika síð- ustu dagana fyrir jól. Leikin er Ijúf tónlist við kertaljós í Dómkirkjunni í Reykjavík I kvöld, kl. 21, og eru þeir um klukkustundarangir. í lok tónleikanna verður að venju leikinn jóla- sálmurinn „I dag er glatt i döprum hjörtum" sem einnig er eftir Mozart. ■Megasukk á Grand Hokk Nú situr enginn heima í kvöld því það er boðið upp á stórfenglega tónleika á Grand Rokk. Megas og Súkkat mætast enn og aftur undir nafninu Megasukk. 1.200 kr. inn og léttar veitingar í boði. Tónleikarnir hefjast á mið- nætti. •Uppákomur ■Stærsta blót ásatrúarmanna Jólablót ásatrúarmanna verður haldið i hús- næði félagsins að Grandagarði 8 í kvöld. Jóla- blótið er stærsta hátíð ásatrúarmanna og verður mikið um dýröir á blótinu. Blótið hefst með Ijósaathöfn sem sérstaklega er ætluð börnunum og undir borðhaldi verður skemmt með rímum, rappi ogfrásögnum. Meðal þeirra sem koma fram eru kvæðamaðurinn Stelndór Andersen, rappararnlr Erpur og Eyjólfur Ey- vlndarsynir, Hllmar Örn Hilmarsson, Þorri Jö- hannsson, Jóhanna Harðardóttir og Eyvindur Eyþórsson. Húsið verðuropnað klukkan sjö en borðhald hefst klukkan átta. Aðgangseyrir er 1500 krónur fyrir fullorðna en 750 krónur fyrir börn eldri en 12 ára. J ólaþr au tir og j ólamót Að venju skulum við líta á tvær jólaþrautir yfir jólahelgina en lausnirnar munu birtast í næsta þætti. 1. Sveitakeppni S/A-V Suður Vestur Norður Austur 4 ÁK53 *> K85 ♦ 763 * ÁD2 ♦ DG10972 V ÁD2 -f ÁD42 * - 14 pass 2 grönd* pass 4*** pass 4 4 pass 64 pass pass pass * Geimkrafa og flóriitarstuðningur í spaða ** Eyöa í laufi Vestur spilar út spaðafjarka. Félagi þinn var fljótur að segja Qóra spaða eftir að þú sýndir eyðu í laufi: Hann ályktaði sem svo að ÁD í laufi væru ekki eins þýðingar- mikil og hann vænti. Það er sorglegt að hann skuli eiga hjartakóng frekar en tígul- kóng, en þá væri slemman upp- lögð. Auðvitað eru engin vandræði ef tígulkóngurinn liggur fyrir svíningu. Sérðu einhverja leið til að bæta möguleikana? 2. Sveitakeppni S/A-V 4 542 V K76 ♦ 8742 4 Á85 4 ÁKD87 * ÁD4 f Á 4 KD43 Suður Vestur Norður Austur 2 4 pass 24 pass 24 pass 3 4 pass 44 pass 4 44 pass 44 pass 54 pass 64 pass pass pass Vestur spilar út tíguldrottn- ingu. Þú drepur á ásinn, tekur ás og kóng í trompi en vestur er ekki með. Þetta er ágætis slemma og ágæt sagnröð. Þótt norður ætti ás og kóng þá vildi hann ekki segja tvö grönd og hætta á að enda sem sagnhafi með sterku höndina upp í loft. Betra að segja biðsögn og reyna að bæta það síðar. Eftir að þú sýndir spaðalit og hann tók undir, hann sýndi hjartafyrirstöðu, og þú slóst af í geimi, þá reyndi hann enn þá með fimm laufum. Augljóslega eru engin vand- ræði ef laufin liggja 3-3. Geturðu fundið leið til vinnings ef þau liggja illa? Jólamót Jólamót Bridgefélags Hafnar- fjarðar og Sparisjóðs Hafnar- fjarðar verður spilað föstudag- inn 27. desember. Jólamót Bridgefélags Reykja- víkur og SPRON verður spilað sunnudaginn 29. desember og er þátttakan skorin niður við 60 pör. 4» Vegleg verðlaun eru veitt í báðum þessum mótum. Gleðileg jól.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.