Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 Fréttir DV Rúðuskaf í morgun: Hitamet des- ember í hættu Hitamet í desember sem hefur blas- að við kann að vera i hættu, en svo virðist sem síðustu dagar jólamánaðar verði kaldari en verið hefur. Hitastig á aðfangadagskvöld var mest 11 stig, á Egilsstöðum, Bergsstöðum í Skagafírði og á Sauðanesvita á Langanesi. Höfuð- borgarbúar nutu góðs veðurs og 8 stiga hita. En nú eru breytingar fram undan að sögn Theódórs Hervarssonar veður- fræðings. Hann sagði í morgun að steöidi á kaldari tíð, ekki síst á gamlárskvöld og nýársdag. I morgun þurftu morgunglaðir Reyk- víkingar að skafa rúður bifreiða sinna og sumir áttu erfitt með að opna hurð- ir sem frusu aftur. Frostið í Reykjavík kl. 6 í morgun var 1,4 stig, en á Hvera- völlum var kominn alvöru vetur, 6,2 stig. Á Vestfjörðum og víðar um landið var hitinn viða yfír núllinu, á Keflavík- urflugvelli 1,8 stig eða 3,2 stigum hlýrra en í höfuðborginni. -JBP Kveikt í gámi Kveikt var i gámi við KR-heimil- ið um hálfeittleytið í nótt og var slökkviliðið kallað út. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. Lögreglan í Reykjavík segir að nú sé sá tími aö ganga í garð sem umræða um brennur og eld eykst og virðist það alltaf kveikja í þeim sem veikir eru fyrir eldi og íkveikjum. Lögreglan segir að hugsunargangurinn virðist vera sá að það sé í lagi að kveikja í nánast hvar sem menn standa en lögreglan vill jafnframt benda fólki á að ólöglegt sé að kveikja í og gera brennur ef ekki hafi fengist tflskilin leyfi. Ekki er vitað hverjir brennu- vargamir voru að svo stöddu en málið er í rannsókn. -ss 30 óhöpp Tiltölulega rólegt var hjá Lögregl- unni í Reykjavík frá aðfangadegi tfl dagsins í dag. Á þessum tima voru fjórir stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur en þrir af þeim voru stöðv- aðir í gærkvöld og í nótt. Þá segir lög- reglan að 30 umferðaróhöpp hafi ver- ið skráð yfir hátíðamar en að öll hafi þau verið minni háttar og ekki hafi verið um teljandi meiðsl á fólki að ræða. Lögreglan í Reykjavík segir að flest tilfellin hafi ekki gerst vegna hálku, enda hafi verið óvenjuhlýtt miðað við árstíma, heldur vegna jólastress enda óhöppin flest klaufa- leg. Nú sé hins vegar farið að kólna á ný og varar lögreglan við hálku á höfuðborgarsvæðinu. -ss Hlutfall af fjárlögum til vegamála lækkar: Hagsmunir Kringl- unnar tefja fram- kvæmdir í Reykjavík DV-MYND GVA Mlklabraut/Kringtumýrarbraut Morgunumferöin þar er oft gríöarleg, en vegna hagsmuna Kringlunnar tekst ekki aö ákveöa framkvæmdir þar. Líklega hefur aldrei lægra hlutfafl fjárlaga AI- þingis runnið til sér- merktra vegamála eins og nú. Guðmundur Haflvarðs- son, formaður samgöngu- nefndar Alþingis, segir að stórar framkvæmdir séu sérstaklega merktar nú sem áður og enn séu á fjárlögum gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar en ekkert gerist þar sem Reykjavíkurborg Ijúki ekki sínum hluta verksins og því sé ekki hægt að hefja framkvæmdir við þau. „Þetta hefur þvælst fyrir borgarstjóm vegna nálægö- ar byggðar og ekki síst vegna hagsmuna Kringl- unnar sem hafa verið lengi tU skoð- unar án þess að komist sé að niður- stöðu. Menn vflja ekki að umferðin beinist þar fram hjá. Ég hef ekki farið yflr þetta nákvæmlega en ég gæti trúað að þetta væri tilfellið," segir Guðmundur Hafl- varðsson. „Það gæti verið að það væri nú lægra hlutfall af fjárlögum sem rennur tfl vega vegna þess að tekjur tU vegagerðar eru eyma- merktar af ákveðnum sköttum sem eru teknir af bensíninu og þunga- skatti af dísUolíu og þar sem skatttekjur rikisins hafa veriö að aukast má vera að hlutfaflið hafi verið að lækka. Á móti kemur að á undanförn- um ámm hefur oft verið klipið af þessum eyma- merktu tekjum tfl ann- arra framkvæmda óskfld- um vegamálum en ég hef ekki séð að það sé þannig nú, a.m.k. ekki ennþá,“ segir Runólfur Ólafs- son, framkvæmdastjóri FÍB. -GG DV-MYND PÉTUR S. JÓHANNSSON Tengdasonar minnst Þaö var hvít jörö í kirkjugaröinum þegar Gíslný Guöþjörnsdóttur var aö huga aö leiöum ástvina sinna í Ólafsvíkurkirkju- garöi en þar stendur einnig minningarkross um tengdason hennar sem fórst meö Svanborgu SH þann 7. desember 2001 ásamt tveimur félögum sínum. ^ Hvít jól á köflum í Olafsvík í Ólafsvík byrjuðu jólin sem hvít jól. Á Þorláksmessu vöknuðu bæjar- búar við að jörð var orðin alhvít og entist snjórinn fram á fyrrihluta að- fangadags. Þegar fólk fór í kirkju- garðinn tU að huga að leiðum ást- vina sinna var þar jólalegt um að litast. Að kvöldi jóladags var haldin svokölluð ljósamessa í BrimUsvalla- kirkju í Fróðárhreppi. Þetta er ár- legur siður í þessari kirkju en að- eins eru notuð kerti við þessa messu og var göngustígurinn að kirkjunni uppljómaður með kerta- ljósum. Kirkjan var vel sótt en sókn- arpresturinn sr. Óskar H. Óskars- son predikaði og kirkjukór Ólafs- víkur söng undir stjóm Veronicu Osterhammer. Kirkjan verður 80 ára á næsta ári og verður haldið upp á það með formlegum hætti. -PSJ Landmælingar gerðu leigusamning til 15 ára: Rætt í bæjarstjórn Akraness að selja húsnæðið Fufltrúar Sjálfstæöisflokks í bæj- arstjórn Akraness lögðu nýlega tU í bæjarstjórn að bæjarstjóra yrði falið að hefja undirbúning að sölu húsnæðis Landmælinga íslands á Akranesi. Hluta söluandvirðis yrði varið tU að greiða niður skuldir bæjarins en líklegt er að fyrir hús- næðið fáist um 100 miUjónir króna.. Tillagan var felld með 5 atkvæðum gegn 4 eftir bókun Guðmundar Páls Jónssonar, Framsóknarflokki, þar sem segir: „Meirihluti bæjarstjómar visar tfl þess að ítrekað hefur verið rætt við ríkið um kaup þess á húsnæði Landmælinga íslands auk þess sem aðrar hugmyndir hafa einnig verið nefndar. Áður en formleg ákvörðun verður tekin, eins og tillaga Sjálf- stæðisflokksins gerir ráð fyrir, þarf að skoða ýmsar hliðar málsins. Meirihluti bæjarstjómar ítrekar þó þann vija sinn að ganga tU við- ræðna við ríkið um sölu hússins." Meirihlutasamstarf er á Akranesi með Akraneslista - lista Samfylk- ingarinnar og Framsóknarflokki. Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga íslands og bæjarfull- trúi, segir að leigusamningur Land- mælinga við Akranesbæ sé tU 15 ára og það sé stefna rikisins að leigja frekar undir starfsemi rikis- fyrirækja en að kaupa. Gísli Gíslason bæjarstjóri segir að bæjaryfirvöld hafl rætt við ríkið öðm hvoru hvort það væri ekki eðlUegt að ríkið ætti húsnæðið sem Landmælingar væm í, en það breytti í sjálfu sér ekki miklu fyrir Akranesbæ, en ríkið ætti stóran hluta hússins og kannski væri eðli- legra að það ætti það allt, en þarna starfa sýslumaður og skattstjóri. „Við vorum búnir að segja að Landmælingar mundu hafa þetta húsnæði eins lengi og það hentaði þeim, en gerður var 15 ára leigu- samningur. Það er auk þess bundið í lögum að Landmælingar eigi að vera á Akranesi, og þar var eigin- lega gengið lengra en viö gerðum ráð fyrir, og fyrir það erum við Ak- umesingar ákaflega þakklátir. Stað- setning ríkisstofnana við flutning hefur ekki fyrr verið bundin lögum hvað varðar staðsetningu,“ segir Gísla Gislason bæjarstjóri. Hjá Landmælingum starfa 35 manns og um 10 þeirra búa á höfuð- borgarsvæðinu og aka daglega á mifli. -GG Stuttar fréttir Eldur í Vestmannaeyjum Eldur kviknaði í heimahúsi í Vestmannaeyjum á aðfangadags- kvöld. Gluggi var opinn í stofu og myndaðist súgur sem feykti gardinu í kerti. Búið var að slökkva eldinn áður en slökkvUiðsmenn komu á staðinn. Bílvelta á Eyrarbakkavegi BUl lenti utan vegar og valt að- faranótt annars í jólum á Eyrar- bakkavegi. Ökumaður var einn í bUnum og var hann fluttur á heUsu- gæslustöð tU skoðunar en meiðsl hans voru minni háttar. Sykur brann á pönnu SlökkvUiðið á Akureyri var beðið um að reykræsta íbúð eftir að sykur gleymdist á heitri pönnu. Ekki hlut- ust miklar skemmdir af þessu óhappi. Bíll fastur á hálendinu Björgunarsveitin Stjarnan í Skaftártungu var köfluð að Háöldu, Syðri-Fjallabaksleið, tU aðstoðar ís- lendingum sem fest höfðu bU sinn þar í sandbleytu í gær. Slys á Gemlufallsheiöi Bíll keyrði út af á jóladag á Gemlufallsheiði, sem er heiðin á mifli Önundarfjarðar og Dýrafjarð- ar. Fernt var í bUnum og var einn fluttur á sjúkrahúsið á ísafirði. Krap var á veginum. 32 innbrot í Reykjavík Lögreglan í Reykjavík fékk 32 tU- kynningar um innbrot frá Þorláks- messu og tU annars i jólum. Bæði var um að ræða innbrot i bíla, heimUi og fyrirtæki. Brotist inn í söluturn Tóbaki var stolið þegar brotist var inn í sölutum á Bústaðavegi í nótt. Að sögn Lögreglunnar í Reykjavik barst tU- kynning frá Securitas um innbrotið um hálfflmmleytið en þá voru innbrots- þjófamir á bak og burt. Lögreglan segir yfir þessa helstu hátíðisdaga hafa verið rólegt hjá lögreglunni miðað við önnur jól. Ekki er vitað hverjir bmtust inn í sölutuminn en málið er í rannsókn. Bílvelta á Suðurlandsvegi Fjórir voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík eftir bUveltu á Suður- landsvegi í gærmorgun. Jeppi rann tU í hálku i aflíðandi beygju neðst í Brattastíg, austan Þjórsár. Hann lenti síðan út af veginum og hafnaði niðri í skurði sem var hálffullur af vatni. Hjón með 2 böm voru í bíln- um og slasaðist konan mest. Mbl.is greindi frá. -ss I» helgarblað Leikið og litið um öxl í Helgarblaði DV á morgun er ítarlegt viðtal við leikara- hjónin Atia Rafn.Sig- urðarson og Bryn- hUdi Guðjónsdóttur en þau leika bæði í jólaleikriti Þjóðleik- hússins, Með fuflri reisn, þar sem hann fer úr fótunum en hún ekki. Þau tala við DV um hjóna- bandið, leiklistina og vald leikarans. í blaðinu er einnig litið um öxl og horft yfir árið sem er í þann veginn að líða. Það er gert bæði í fúflri alvöru þar sem fréttamenn DV draga saman í annálaformi helstu mál sem sett hafa svip sinn á árið en árið er líka skoðað í spéspegli þar sem ekkert sýnist heU- agt. í blaðinu er einnig að finna árlega myndagátu DV sem krefst að vanda talsverðra heUabrota en lýkur upp sín- um annál að lokum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.