Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 I>v Fréttir Næstu jólum eyði ég heima með fjölskyldunni - segir bandarískur ferðamaður eftir ófarir á Vatnajökli DV-MYND JÚLÍA IMSLAND Meö bjargvættunum Fjallamaðurinn í hópi björgunarmanna sinna kominn til byggða í gærdag en þar beið hans kaffiborð með jólakræsingum. Taílendingar bakka Taílendingar eru aö endurskoða ákvöröun um að herða reglur um komu íslenskra ferðamanna til landsins. DV greindi nýverið frá því að ferðir næstum 300 íslend- inga til Taílands eftir áramót gætu verið í uppnámi eftir að ræðis- manni Taílands á íslandi var tii- kynnt að reglum hefði veriö breytt á þann veg að allir íslendingar þyrftu vegabréfsáritun til landsins. Til þessa hafa íslendingar getað komið til landsins og dvalið þar í allt að 30 daga án vegabréfsáritun- ar. Ákvörðunin þótti meira en lítið undarleg í ljósi þess að engar breyt- ingar voru geröar á reglum um ferðamenn annars staðar af Norð- urlöndum. Raunar voru íslending- ar eina Schengen-landið sem þurfti að sæta hertum reglum. „Ég hef fengið þær upplýsingar frá sendiráði Tailands í Kaup- mannahöfn að gildistöku nýrra reglna hafi verið frestað frá 29. des- ember til 29. janúar," segir Kjartan Borg, ræðismaöur Taílands á ís- landi. Hann segist ekki hafa fengið skýringar á málinu frá sendiráðinu en fagnar stefnubreytingunni og vonast til að i kjölfarið ákveði Taí- lendingar að hverfa alfarið frá fyr- irhuguðum breytingum. íslendingar 288.201 Samkvæmt bráðabirgðatölum hagstofunnar voru landsmenn 288.201 þann 1. desember síðastlið- inn. íbúum landsins hefur tjölgað um 26.598 frá 1992. en þá bjuggu 261.603 á landinu. Mjög misjafnt er hvemig landshlutarnir koma út í þessari fólksfjölgun. Ibúum höfuð- borgarsvæðisins hefur á síðustu tíu árum fjölgað um 28.002 íbúa eða um 1.500 umfram landsfjölgunina. Auk höfuðborgarsvæðisins íjölg- ar á Suðurnesjum um 1.306, Suður- landi um 802, Norðurlandi eystra um 83 og Vesturlandi um 19. Á Norðurlandi eystra hefur mann- fjöldaþróun breyst til muna, frá því að fremur fækkaði í landshlutan- um fyrir áratug að aftur fór að fjölga þar á síðustu árum. Á síðasta ári fjölgaði þar um 143. Þeir landshlutar þar sem fækk- un hefur verið mest eru Austur- land, þar hefur fækkað um 1.303 eða 10%. Á Norðurlandi vestra hef- ur fækkað um 1.146 eða 11,1%. Vestfirðingum hefur fækkað um 1.755 eða 18,1%. þar er fækkunin í flestum byggðalögum um eða yfir 20%. Bolungarvík -19,8%, Vestur- byggð -25,2%. ísafjaröarbær er þó undantekning með 14,5% fækkun. í öðrum sveitarfélögum á Vestfjörð- um hefur fækkað um 40% á síð- ustu tíu árum. Þrefaldar þyngd sína Fyrsta slátrum á þorski úr þorsk- eldi Síldarvinnslunnar fór fram 22. desember sl. þegar tæpum 26 tonn- um af þorski var slátrað og var ís- fisktogarinn Bjartur notaður sem sláturhús, en honum var lagt við kvíamar og fiskurinn háfaður um borð. Um er að ræða ársgamlan þorsk sem var veiddur frá miðjum nóvember til desemberloka á síð- asta ári og alinn í kvíum í Norö- firði. I upphafi vom 11 tonn í kvíun- um og hefur þorskurinn því allt að því þrefaldast á þessu eina ári sem liðið er frá því hann var settur í kví- amar. „Við erum mjög sáttir við útkom- una og þetta er í samræmi við það sem búist var við. Þetta vora u.þ.b. 5400 fiskar í heildina og meðal- þyngdin var 5 kíló af óslægðum fiski, en 3,7 kíló eftir slægingu," segir Sindri Sigurðsson, umsjónar- maöur þorskeldis SOdarvinnslunn- ar. -NH/GG/ÓTG Björgunarsveit Homafjarðar lagði af stað um hálf tvö að nóttu annars dags jóla tO að sækja banda- rískan ferðamann sem hafði verið í tjaldi viö Grimsvötn á Vatnajökli í þrjá sólarhringa og óskaði eftir hjálp þar sem hann komst ekki áfram vegna veðurs og ófærðar. Hann var orðinn blautur og kaldur. Farið var á fjórum jeppum með fjóra vélsleða. Komið var með manninn tO Hornafjarðar rétt fyrir kl. 17 í gær og var hann þá orðinn hinn hressasti. Bandaríkjamaður- inn Cameron M. Smith var vel útbú- inn, hafði verið á ferðalagi frá 18. desember þegar hann lagði á staö frá Jökulheimum og ætlaði að ganga á gönguskíðum austur yfir Vatnajökul og koma niður Lamba- tungnajökul en komst ekki nema í Grímsvötn. Maðurinn var aldrei í neinni hættu, var mjög vel útbúinn og hafði samband við björgunar- sveitir í gegnum gervihnattasima. Björn Ingi Jónsson, formaður björgunarsveitarinnar á Homafirði, sagði að færðin inn að Grímsvötn- um hefði verið slæm og ferðahrað- inn 5-15 kOómetrar á klukkustund. Leitað var mannsins í 40 mínútur en staðsetning passaði ekki. Því var ákveðið vegna myrkurs og hversu hættulegt þetta svæði er að bíða birtingar og fara í skálann í Grím- svötnum. Ákveðið var að hafa sam- band við ferðamanninn um morgun- inn og biðja hann að senda blys- merki frá sér. Gekk það eftir og sleðamenn voru komnir tO hans kl Þrotabú Genealogia Islandoram, sem krafði íslenska erfðagreiningu ehf. og Friðrik Skúlason hf. um 600 mOljónir króna vegna meints rit- stuldar við gerð íslendingabókar, hefur nú lagt niður vopnin. Krafan var birt meðan fyrirtækið starfaði enn undir stjóm Þorsteins Jónsson- ar ættfræðings og Jóhanns Páls Valdimarssonar bókaútgefanda. FaU- ið hefur verið frá málssókn og allar kröfur lagðar tO hliðar. Þorsteinn hefur enn fremur fallið frá málsókn á hendur ÍE og Friðriki Skúlasyni. Dómkvaddir matsmenn könnuðu kröfuna fyrir þrotabúiö og þá hvort í kröfunni leyndist einhver von. Niö- urstaðan var neikvæð fyrir þrotabú- ið en málið hefur dregist mjög á 9.17 um morguninn og lagt var af stað heim um kl. 10. Ferðin tO baka gekk mun fljótar þar sem hægt var að nota sömu slóðina. Þegar komiö var í hús björgunar- félagsins höfðu slysavarnafélags- konur útbúið myndarlegt kaffiborð hlaðið jólakræsingum sem gerð voru góð skO. Þetta er ekki fyrsta ferð Cameron Smith á Vatnajökul heldur sú þriðja. „Þetta tókst ekki núna,“ sagði Smith í gærdag, „og mér er alveg sama þó þetta hafi mistekist því að það tilheyrir fjallamennskunni." Árið 1998 reyndi Cameron Smith við sömu leið frá Lambatungujökli en varð að hætta við vegna storms. Fyrir tveim árum lagði hann á langinn. Fyrirtækið varð gjaldþrota í lok maí 2001 eftir stutt líf. Málalokin vora rétt fyrir jólin og höfðu áður verið samþykkt á skipta- fundi Genealogia Islandoram en dómsmálið var feUt niður við fyrir- töku í Héraðsdómi Reykjavíkur. Á skiptafundinum var jafnframt samþykkt að Islensk erfðagreining keypti ættfræöibókasafn og ýmis ættfræðigögn þrotabúsins á 10 mOlj- ónir króna. Bókasafnið er mikið að vöxtum en ekki mun áhugi á ætt- fræðigrunninum. Hins vegar er þar að finna grunn sem ættaður er frá íslenskum mormónum vestanhafs og þykir álitlegur. „Ég get engu svarað hér og nú um hvenær íslendingabók kemur á net- Skeiðarárjökul en varð þar einnig frá að hverfa vegna veðurs. Camer- on Smith var spurður hvernig væri að eyða jólunum aleinn uppi á stærsta jökli í Evrópu. „Ég hef verið fjallamaður í fimmt- án ár og verið marga hátíðisdaga að heiman en líkaði það ekki mjög vel núna. „Ég er vel kunnugur því að vera veðurtepptur og komast ekki áfram en þama fór ástandið versn- andi og allt var orðið blautt,“ segir Cameron Smith og bætir við að næstu jólum ætli hann að eyða með fjölskyldu sinni. FjaUamaðurinn er ekki búinn að ákveða um framhald ferðarinnar en segir að tUgangur hennar hafi meðal annars verið að reyna nýjan viðlegubúnað. -JI ið, ekki meðan lagaleg óvissa er um stöðu ættfræði á íslandi. Dómsmála- ráðherra tUkynnti tveim dögum fyr- ir jólaleyfi þingmanna að hún legði fram framvarp sem á að eyða óviss- unni. Ég hef ekki séð þetta frumvarp og get þvi ekki sagt hvað það boðar," sagði Friðrik Skúlason i viötali við DV. íslendingabók er þjóðargjöf hans og íslenskrar erfðagreiningar og átti að vera komin á Netið tO frjálsra afnota fyrir margt löngu. Samkvæmt upplýsingum blaðsins er fátt eitt eftir í þrotabúi Genealog- ia Islandorum utan bókalager. Óljóst er hvemig farið verður með þá eign og hvers virði hún kann að vera. Flestum öðrum eignum hefur verið ráðstafað. -JBP Ljósamessa í Snæfellsbæ Hin árlega ljósamessa var haldin i BrimOsvaUakirkju í Fróðárhreppi (SnæfeUsbæ) á jóladag. Við ljósamessuna eru aðeins notuð kerti og var m.a. göngustígurinn að kirkj- unni lýstur upp með kertum. Ljósamessan var vel sótt en sóknar- presturinn, sr. Óskar H. Óskarsson, prédikaði og kirkjukór Ólafsvíkur söng undir stjóm Veronicu Oster- hammer. Kirkjan verður 80 ára á næsta ári og verður haldið upp á það með formlegum hætti. Ríkisábyrgð dregst Það stefnir í að bíða þurfi til vors eftir niður- stöðu frá Eftir- litsstofnun EFTA (ESA) um það hvort fyrirhuguð ríkisábyrgð á aUt að 20 mUljarða króna láni tO deCODE vegna uppbyggingar á nýrri lyfjaþróunar- starfsemi í VatnSmýri teljist ríkis- stuðningur - og ef svo er, hvort sá ríkisstuðningur sé löglegur eða ólöglegur samkvæmt reglum ESB. I svari ESA við fyrirspum DV kemur fram að íslensk stjómvöld hafi sent viðbótarupplýsingar um málið í nóvember en samkeppnis- deOd ESA vOji ekki tjá sig um að svo stöddu hvort það geti talist fullnaðarupplýsingar. „Miöað við þetta virðist stefna í það að niður- staða fáist ekki fyrr en í fyrsta lagi einhvern tímann með vorinu," seg- ir í svari stofnunarinnar. „Við sitjum hér og bíðum," segir PáU Magnússon, upplýsingafuUtrúi íslenskrar erfðagreiningar, og bæt- ir við að engin óþolinmæði sé vegna málsins á þeim bænum. „Þetta hefur engin áhrif á þau áform sem við höfum uppi. Við sjá- um bara hverju fram vindur og erum ekkert órólegir yfir þessu,“ segir PáU. Skíöasala óvenju dræm Snjóleysið á íslandi í vetur hefur eflaust ekki farið fram hjá neinum svo ekki sé talað um hlýindin en þessi desembermánuður er talinn vera með þeim hlýrri frá því mæl- ingar hófust á Bessastöðum árið 1749. Það má með sanni segja að snjóleysið hafi haft veruleg áhrif á sölu á skíðum og skiðabúnaði og segir Helgi Benediktsson, deUdar- stjóri útivistardeUdar hjá ÚtOífi, að sala á skíðum og skíðadóti hafi ver- ið með eindæmum dræm. „Síðustu þrjú ár hafa verið léleg í skíðasölu þó svo alltaf sé einhver hreyfing," segir Helgi. Þó segir hann að snjó- brettin hafi selst ágætlega. „Sala á annars konar útivistarbúnaði eins og gönguskóm og göngufatnaði hef- ur þó aukist," segir Helgi og bætir við að menn breyti bara um áhuga- mál ef eitt klikkar. „AUt er þetta útivist," segir Helgi og bætir við: „Við höfum þó ekki gefið upp alla von um snjó, veturinn er einungis hálfnaður." Þorgeir Jónsson, innkaupastjóri Intersports, segir að sala í skíða- dóti hafi dregist saman um 30% þar á bæ frá því í fyrra en þá hafi sal- an verið góð. „Það er þó aukning í sölu á líkamsræktarbúnaði. Boxið er aUtaf að verða vinsæUi iþrótt og sést það á sölutölum," segir Þor- geir. Þá segir Þorgeir að þeir sem hafi verið að kaupa skíðadót þenn- an vetur hafi verið á leið tU út- landa á skiði þar sem snjóleysið hér á landi hafi gert það að verkum að ekki hafl verið hægt að vera á skíðum. -PSJ/ÓTG/ss Glatt á hjalla Það er ekki ónýtt að leika sér í snjóiausum vetrinum úti á velli og gantast i vinkonum sínum. Útlit er fyrir að vettlingaveðrið haldist næstu daga í nokkuð kaldara lofti en veriö hefuryfír landinu lengst af desembermánaöar. Genealogia Islandorum krafðist 600 milljóna vegna ritstuldar: Leggja niður vopnin og fá 10 milljónir í þrotabúið Páll Magnússon.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.