Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Side 7
7 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002 DV Fréttir Nýjar tölur lögreglu í Reykjavík yfir fyrstu 23 dagana í desember: Olvunarakstur hefur stórlega minnkað - einnig fækkun á Akureyri - enginn stútur þegar hundruð voru stöðvuð Um miðjan dag á Þorláksmessu lá fyrir að met hefur verið slegið í höfuð- borginni sem lögreglan telur með já- kvæðustu tíðindum ársins. Svo mikið hefur dregið úr ölvunarakstri að meira en tvöfalt færri voru teknir við slíkt á tímabilinu frá t desember fram til Þor- láksmessunnar. 26 höfðu þá verið tekn- ir grunaðir í Reykjavík en á síðasta ári voru þeir 64. Þessi þróun hefur verið að eiga sér stað undanfarin ár en stökkið er stærra nú en nokkru sinni. „Ég held að þetta sé ekki einungis af að fólk sé hrætt við okkur út af aðgerð- um í desember þegar þúsundir öku- manna voru stöðvaðar - þetta er fyrst íslandsbanki styöur starfsemi Reykjadals íslandsbanki styður myndarlega við bakið á starfsemi Reykjadals en bank- inn færði á dögunum Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra styrk vegna starf- semi Reykjadals, en þar er boðið upp á sumar- og vetrardvöl fyrir fótluð böm og ungmenni. íslandsbanki hefur und- anfarin ár varið andvirði jólakorta til viðskiptavina til styrktar góðum mál- efnum og kemur sú flárhæð í hlut Reykjadals að þessu sinni. Á myndinni taka Vilmundur Gíslason, fram- kvæmdasfjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, og Eva Þengilsdóttir ráðgjafi við styrknum frá Huldu Dóm Styrmis- dóttur, framkvæmdastjóra Markaðs- og kynningarmála hjá Islandsbanka. og fremst út af skynsemi fólksins sem ekur - því frnnst einfaldlega ekki taka því að aka undir áhrifum," sagði Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögreglu- þjónn við DV. Undir þetta tekur Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Akureyri. Þar liggja tölur ekki fyrir en hann seg- ir þó greinilegt að fækkun sé einnig að eiga sér stað þar. „Við höfúm stöðvað hundruð bfla um hveija helgi en i þeim tékkum hef- ur enginn verið tekinn. Við höfum hins vegar tekið nokkra í mánuðinum utan aðgerðanna. Lögreglan á stærstu stöð- unum í landinu hefur gert átak. Fólk er því að ganga að því sem vísu að lögregl- an stöðvi það ef það er á ferðinni - þetta er að bera góðan árangur," sagði Ólafur. Ekki lágu fyrir tölur í Kópavogi þegar DV hafði samband en í Hafnar- firði upplýsti yfirlögregluþjónn að 9 höfðu verið teknir fyrir ölvunarakstur í desember nú en í fyrra voru þeir 8. Miðað við 26 í ár og 64 í íyrra var 81 tekinn fyrir ölvunarakstur i Reykjavík fyrstu 23 dagana í desember árið 2000 en 89 árið áður. Árið 1998 voru þeir 103. „Þessi þróun er skynsemi fólksins að þakka," sagði Karl Steinar Valsson. -Ótt Allt fært á Vestfjörðum: Aldrei áður fært um Klettsháls í jólamánuði „Þetta er alger aumingjaháttur hjá þeim þama uppi, þeir eru gjör- samlega hættir að framleiða snjó,“ sagði hinn landsfrægi gröfumaður Elís Kjaran á Þingeyri, landsins mesti mokari, maðurinn sem lagði veg upp á sitt eindæmi, Svalvogaveg yfir í Lokinhamradal um árið. Hann segir að snjómoksturinn, sem bjarg- að hefur mörgum tækjaeigendum á Vestfjörðum og viðar, hafi enginn verið þetta haustið. „Annars er ég hættur að koma nærri þessu, maður kominn í úreld- ingu,“ sagði Elís, en hann á þó enn gamla og góða jarðýtu sem hann grípur í. Gísli Eiríksson, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á ísafirði, sagði að um þessi jól kæmust menn á venju- legum farartækjum um Klettsháls, slíkt hefði hreinlega ekki gerst fyrri. - „Haustið hefur verið algjör und- antekning frá fyrri tíð, Hrafnseyrar- heiði hefur til dæmis aðeins einu sinni lokast, það hefur alla vega ekki gerst síðustu 20 árin að hún væri opin eins og nú,“ sagði Gísli. Hann sagði að snjómoksturspening- ar hreyfðust ekki, en drullan kost- aði sitt. Vestfirðingar hafa þó ekki fengið yfir sig eins mikla rigningu og íbúar á öðrum stöðum landsins. „Þetta veður þýðir að áfram hefur verið haldið með tvö stór verkefni sem við vinnum að, vegagerð um Klettsháls og í Skötufirði í Djúpinu þar sem verið er að gera grjótvörn niður undir Qöru. Verktakinn sagði mér að menn hans mundu mæta eft- ir áramótin og halda verkinu áfram - slíkt er með eindæmum," sagði Gísli Eiriksson á ísaflrði. -JBP I Ijósaskiptunum Það ríkir jólafriöur viö Tjörnina þótt innan dyra Ráöhússins gangi ýmislegt á. Tarsan og Jane Sigtryggur, 270897 Hjördís LÚSvíksdóttir, 150193 Sigurlaug Sunna Gunnarsdóttir, 080999 íris Erla GÍsladóttir, 160592 fiuSur Hermannsdóttir, 050693 findri Freyr Gunnarsson, 191194 RÚnar Freyr figústsson, 080192 Harpa, 021093 EyþórIng| Gu&mundsson, 160496 Silvía Sif Ólafsdóttir, 080795 Krakkaklúbbur DV og Samfilm oska vinningshöfum til hamingju. Vinningshafar vinsamlegast nólgist vinningana \ þjónustuver DV, Skaftahlíð 24, fyrir 27. janúar 2003. Kveðja. TÍgri og Kittý nctfikk* 'éeM Dynasty-flugeldar, húsi framtíðarinnar, Faxafeni 10,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.