Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Hvenær má skjóta flugeldum og hvað telst til óþæginda?
Það þýðir ekki að
hringja í lögguna
Flugeldum má skjóta upp frá og
með deginum í dag, 27. desember, og
þangað til á þrettándanum, þann 6.
janúar. „Þetta er frjálst núna en það
má ekki skapa hættu eða valda
óþægindum," segir Geir Jón Þóris-
son, yfirlögregluþjónn í Reykjavík.
- En hvað þýðir að valda óþægind-
um - er það þegar sumum finnst nóg
komið af óhljóðum og gauragangi?
„Nei, í sjálfu sér ekki,“ segir Geir
Jón. Hann segir að menn megi
skjóta upp flugeldum og sprengja -
aðalatriðið sé að það sé gert utan-
húss og skapi ekki hættu. „Það þýð-
ir alla vega ekki að hringja á lögregl-
una og kvarta yfir hávaða á þessu
tímabili. Hins vegar er öll notkun
umfram það háð takmörkunum og
Skotdagurinn
Hefja má flugeldana á loft frá og
meö deginum í dag en sprengu-
regniö er leyfilegt í 12 daga.
sérstöku leyfi,“ segir yfirlögreglu-
þjónninn.
Töluverð skemmdarverk voru
unnin á síðasta ári samfara flugelda-
notkun. Ásetningur sumra var bein-
linis að valda tjóni, segir Geir Jón.
„Menn gerðu þannig sprengjur
sem sköpuðu tjón en þetta hefúr
annars gengið vel fyrir sig bæði í
fyrra og hittiðfyrra. Gott eftirlit er
með innflutningi og við erum lausir
við sérstök hættuleg blys sem brögð
voru að að væru í umferð áður. Hins
vegar verða alltaf einhver slys en að-
alatriðið er að fólk fari eftir leiðbein-
ingum og kaupi af viðurkenndum
aðilum. Á síðasta ári fækkaði slys-
um vegna flugelda,“ sagði Geir Jón
Þórisson. -Ótt
----—
Samningur í höfn
Samningur milli Svæöisskrifstofu máiefna fatlaöra í Reykjavík, Styrktarfélags vangefinna og félagsmálaráöuneytisins er í
höfn. Samningurinn gengur út á aö Styrktarfélagiö tekur aö sér dagþjónustu- og íbúöarúrræði fatlaöra á höfuöborgarsvæöinu
ásamt Svæöisskrifstofunni en þeir munu hafa eftirlit meö samningnum. Á myndinni eru þeir Björn Ingi Sigurbjörnsson, for-
stöðumaöur Svæöisskrifstofunnar, Friörik Alexandersson, formaöur Styrktarfélagsins, og Páll Pétursson félagsmálaráöherra.
Furðulegur ljósagangur á Svalbarða:
Kolsvört heimskautanótt-
in lýstist skyndilega upp
Norðurljós yfir EISCAT-radarstööinni á toppi „Námu 7 fjalls" á Svalbarða
Þessi radarstöö suður af norska námabænum Longyearbyen er m.a. notuö
til rannsókna á noröurljósunum. Radarar stöövarinnar vinna á öörum
bylgjulengdum en gengur og gerist og eru m.a. sagðir geta fylgst meö öllum
feröum torséöra Stelth-flugvéla Bandaríkjahers.
Hann varð undrandi hann Fred
Sigernes, nemandi við UNIS-háskóla á
Svalbarða, þegar félagi hans hringdi i
hann snemma morguns fimmtudag-
inn 6. desember á Norðurljósastöðinni
í Adventdal skammt frá Longyear-
byen. Félaginn Dag Lorentzen sagði
honum að fara út og sjá hvaða furður
væru að gerast á suðurhimninum.
Þar lýsti eldrauður bjarmi upp himin-
inn sem annars er kolsvartur allan
sólarhringinn á þessum árstima ef
undan er skilið flökt norðurljósanna.
Samkvæmt heimildum DV vakti þetta
ugg meðal sumra íbúanna sem töldu
jafnvel að kjarnorkusprenging hefði
orðið á Kólaskaga í Rússlandi.
Frá þessu er greint í Svalbardspost-
en, nyrsta fréttablaði heims, sem gef-
ið er út í norska bænum Lonyearbyen
við ísafjörð. Á þessum árstíma er sól-
in langt undir sjóndeildarhring eða
um 14’ og þvi ríkir þar kolsvört heim-
skautanóttin 24 tima á sólarhring.
Ekki á að vera mögulegt að sjá svo
mikið sem skímu af sólarljósi á Sval-
barða á þessum tíma. Það er helst að
norðurljósin lýsi upp næturhimininn
en þarna er rekin mjög öflug og full-
komin rannsóknarstöð í tengslum við
UNIS háskóla til að rannsaka norður-
ijósin. Tækjabúnaður stöðvarinnar er
mjög nákvæmur og skynjar minnstu
breytingar á ljósmagni norður-
ljósanna. Þennan morgun fóru öll
mælitæki í botn er himinn lýstist
skyndilega upp af eldrauðum bjarma.
Hafði þetta svipuð áhrif á mæhtækin
eins og um dagsbirtu væri að ræða.
Var birtumagnið yfir EISCAT stöð-
inni 120 sinnum meira en venja var til
af völdum norðurljósa á þessum árs-
tíma. Á infrarauðum skala mælitækj-
anna mældist birtan jafnvel mun
meiri. Stóð þetta fyrirbæri yfir í
marga klukkutíma.
Samkvæmt frásögn blaðsins rekur
menn ekki minni til að hafa séð slíkt
fyrirbrigði áður. Stjömufræðingur
við UNIS-háskóla hafði talað við fólk
sem verið hafði á staðnum síðastliðin
20 ár og enginn hafði séð neitt þessu
líkt. Voru myndir af þessu sendar til
Noregs til að reyna að fá útskýringar
á hvað væri að gerast. Engar staðfest-
ar skýringar eru á þessu fyrirbæri en
sérfræðingum þykir nú liklegast að
orsakanna megi leita í óvenjulega
hlýju lofti sem streymt hefur upp eft-
ir Atlantshafmu að undanfornu og
norður yfir heimskautasvæðið. Heitir
skýjabólstrar hafi myndað ískristalla
sem borist hafi upp í köldustu lög loft-
hjúpsins í allt að 80-100 kílómetra
hæð yfir jörðu. Þeir hafi síðan endur-
speglað sólarljósið með þessum hætti.
Tekið er fram að þetta sé þó aðeins
óstaðfest kenning. -HKr.
9
Munið
að slökkva
á kertunum
Setjið kertaljós
(eitt eða fleiri)
í stóra gegnsæja
eða litaða skál -
lýsingin kemur
skemmtilega
á óvart.
Paín'ít ?án>
Rauði kross íslands
SLÖKKVILIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS