Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Qupperneq 17
29
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002
DV
•r
Tilvera
íí f iö
E r- T I R V. I N N IJ
• K rár
■í svörtum fötum
Hljómsveitin í Svörtum fötum verður á
skemmtlstaönum Players í Kópavogi, að
sjálfsögðu í miklu jólastuði. Það er umslagið
af nýjustu plötunni hennar sem er á myndinni
hér að ofan.
• L istir
■Liósmvndir frá Granlandi
Ljósmyndarinn Ingólfur Júlíusson sýnir
Ijósmyndir frá Grænlandi í Reykjavíkur
Akademíunni, 4 hæð. Sýningin er opin alla
daga vikunnar frá 9-17. Ingólfur fór í boði
í afskekktu þorpi á austurströnd Grænlands
og hefur gert sl. 4 ár. Ingólfur fýlgdist með
honum við llf og störf. Hann kynntlst einnig
heimamönnum og náttúru svæðisins.
Myndirnar á sýningunni eru allar frá þessari
ferð. Ingólfur hefur áður sýnt á samsýningum
blaðaljósmyndara en þetta er fyrsta
einkasýning hans.
■íslensk samtímalist
I Listasafnl íslands er í gangi sýning á
íslenskri samtímalist sem enginn ætti að láta
fram hjá sér fara. Þetta er stærsta sýning af
þessu tagi til þessa en listafólkið á sýningunni
er allt fætt eftir 1950. Sýnd eru 99 verk eftir
53 listamenn í sölunum en 317 verk eftir 97
listamenn I tölvum. Verkin eru öll í eigu
safnsins en fæst þeirra hafa verið sýnd þar
áður. Sýningarstjóri er dr. Ólafur Kvaran.
■Giovanni Garcia-Fenech
í Nýlistasafninu vlð Vatnsstíg er í gangi sýning
á verkum Glovanni Garcia-Fenech. Hann er
málari, fæddur í Mexíkóborg. Sýnir hann
innsetningu í Nýlistasafninu sem hann kallar
.Sex hausar, innandyra" sem samanstendur
af sex þortrettum og tveimur veggmyndum.
Sagt hefur verið um verk hans að þau vegi salt
milli sértekningar og framsetningar, tilviljunar
og hins áætlaða, hins óljósa og hins þaul-
mótaða. Sýningin stendur til 12. janúar.
Rugleiða til Grænlands i haust þar sem hann
hitti m.a. ísmanninn Sigurð Pétursson sem býr
Krossgáta
Lárétt: 1 rölt, 4 djörf,
7 umgerð, 8 yfirborðslag,
10 spil, 12 skagi,
13 bjargbrún, 14 heimsk,
15 lækningagyðja,
16 slétta, 18 haka,
21 megni, 22 fjöri,
23 lykti.
Lóðrétt: 1 lausung,
2 augnhár, 3 bölvaði,
4 snáða, 5 skyn,
6 þreytu, 9 krydd,
11 næöing, 16 klæði,
17 tré, 19 mjúk,
20 angur.
Lausn neðst á síðunni.
Umsjón: Sævar Bjarnason
Hvítur á leik!
Anatolí Karpov fékk rækilega upp-
reisn æru þegar hann sigraði sjálfan
Kasparov í einvígi í New York núna
skömmu fyrir jólin. Karpov sem
stendur á fimmtugu neyddi sínum
stil upp á Kasparov og tefldi vægast
sagt hrútleiðinlega. Það dugði ágæt-
lega því Kaspi var í vandræðum með
að tefla flóknar stöður. Reyndar var
Kaspi með mun betri stöður í 2 fyrstu
skákunum en fékk aðeins 1. v. Kar-
pov vann 3. skákina og síðustu skák
einvígisins tefldi Kaspi ekki vel og
bauð jafntefli þegar ljóst var aö Kar-
pov var að fá betra tafl. Þetta ár sem
byrjaði svo vel hjá Kasparov endar
þvi illa en Karpov heldur upp á nýja
árið með bros á vor!
Hvítt: Anatolí Karpov (2688)
Svart: Garrl Kasparov (2838)
Grimfeld-vöm.
Einvigi New York USA (3), 20.12. 2002
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Rf3
Bg7 5. Bf4 dxc4 6. Hcl 0-0 7. e3
Rbd7 8. Bxc4 c5 9. dxc5 Rxc5 10. 0-
0 Be6 11. Bxe6 Rxe6 12. Be5 Dxdl
13. Hfxdl Hfd8 14. Kfl Rd7 15.
Bxg7 Kxg7 16. Rd5 Rb6 17. Rxb6
axb6 18. a3 Hxdl+ 19. Hxdl Hc8
20. Ke2 Kf6 21. Rel Hc4 22. Hd7
Rc5 23. Hc7 b5 24. f3 e5 (Stöðu-
myndin) 25. b4 Ra4 26. Hxb7 Hc6
27. e4 Ke6 28. h4 h5 29. Rd3 Hc2+
30. Ke3 f5 31. g3 fxe4 32. fxe4 Hg2
33. Hxb5 Hxg3+ 34. Kd2 Hg2+ 35.
Kel Rc3 36. Hb6+ Ke7 37. Rxe5
He2+ 38. Kfl Hxe4 39. Rxg6+ Kf7
40. Kf2 Rd5 41. Hc6 Rxb4 42. axb4
Hxb4 43. Re5+ Kg7 44. Hc4 Hb5 45.
Rd3 Kf6 46. Hc5 l-O.
Lausn á krossgátu
•eme oz ‘un 61 ‘dso ít Toj 91
‘ypiajj n ‘nueii 6 ‘enj 9 ‘jia g ‘eifpjjsems p ‘pjasueq g ‘pjq z ‘soj 1 :jjpjppr
•i8ue tz ‘tdej ZZ ‘Pfæjs iz ‘ejnp 81 ‘IPB 91
‘jig bi ‘Sajj n ‘sous gi ‘sau zi ‘bjj? 01 ‘ueijs 8 ‘iuiuibj l ‘IQas p ‘qqei pjjojp'i
Dagfari
Áramótin og
minningaskjóðan
Enn eitt árið er að líða í ald-
anna skaut - skreytt skúrum
og skinum eins og ára er hátt-
ur. Áramót eru tími uppgjöra
og skila. Þá er gjarnan litið
um öxl og farið yfir það sem
sem ávannst og annað sem
tapaðist. Atburðir liðins árs
eru skoðaðir í víðara sam-
hengi en daglegt amstur býður
upp á. Hver og einn hvarflar
huganum yfir sviðið og metur
það sem safnast hefur í minn-
ingaskjóðuna.
Eitt af því sem blaða-
mennska felur í sér er sam-
band við mikinn fjölda fólks.
Myndasögui’
Fólks f ólíkum aðstæðum, með
mismunandi skoðanir, bak-
grunn, reynslu og væntingar.
Sú sem þetta pikkar safnar að-
allega efni á síður sem kallast
Tilveran þar sem lögð er
áhersla á mannlíf og menn-
ingu. Sumt af því sem þar
birtist getur flokkast undir
dægurflugur sem syngja með-
an sólin skín en þar er líka
skyggnst inn í líf fólks og
skoðað undir yfirborð hlut-
anna. Engir tveir einstakling-
ar hafa sömu sögu að segja
því eins og allir vita er mann-
lífið fjölbreytilegt og tekur á
sig ólíkustu myndir. Allir
hafa einhverju að miðla til
okkar hinna af reynslu sinni
og visku. Meðal þess sem mér
er ofarlega í huga nú um ára-
mót er þakklæti til fólks sem
hefur tekið hnýsni minni vel
og sagt mér af sjálfu sér, aus-
ið úr sínum fróðleiksbrunnum
og jafnvel sínum innstu hjart-
ans leynum.
Nýtt ár er í vændum. Megi t,—■
það færa landsmönnum gleði
og blessun.