Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Síða 18
FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002
T*
30
Islendingaþættir___________________________________________________________________________________________________________DV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
j 90 ára_____________________________
Sesselja Guöjónsdóttir,
Lyngheiöi 9, Selfossi.
80 ára____________________________
Ragnhildur Stelngrímsdóttir,
Flyörugranda 18, Reykjavík.
Siguröur Slgurðsson,
Sóltúni 9, Reykjavík.
75 ára____________________________
Bryndís Jacqueline BJörgvinsson,
Hlíöargötu 2, Sandgeröi.
Gunnar Helgason,
Nökkvavogi 38, Reykjavík.
70 ára____________________________
Benedikt Bent ívarsson,
Lágholti 17, Mosfellsbæ.
Kristín Hrefna Kristjánsdóttir,
Jötunsölum 2, Kópavogi.
Sigríöur Bergsteinsdóttir,
Skúlagötu 66, Reykjavík.
60 ára____________________________
Árni Þorkelsson,
Álfholti 2c, Hafnarfirði.
Ásdís Svelnsdóttir,
Svöluhrauni 4, Hafnarfiröi.
Ásgeir Lýðsson,
Hrauntúni 39, Vestmannaeyjum.
Haukur Þorgilsson,
Vallá, Reykjavík.
Hreiöar J. Hallgeirsson,
* Stekkholti 21, Selfossi.
Sjöfn Kristjánsdóttir,
Auöarstræti 13, Reykjavík.
Steinunn Jónsdóttir,
Blómsturvöllum 42, Neskaupstað.
Svanhildur Traustadóttir,
Lautasmára 3, Kópavogi.
50 ára____________________________
Ásta Birna Benjamínsson,
Sæbraut 14, Seltjarnarnesi.
Níels Karlsson,
Steinnesi, Akureyri.
Sigurborg Þorkelsdóttlr,
Fagraholti 7, ísafirði.
Svanur Hólm Ingimundarson,
Grundargötu 6, Drangsnesi.
40 ára____________________________
Aðalsteinn T. Friöjónsson,
Hjallalundi 18, Akureyri.
Arna Katrín Stelnsen,
Traöarbergi 1, Hafnarfirði.
Brynjólfur Þorvarösson,
Starmýri 19, Neskaupstað.
Kristján Friörlk Sigurösson,
Álfheimum 72, Reykjavík.
Ólafur Briem,
Melaheiöi 1, Kópavogi.
Sigríöur Garöarsdóttir,
Tjarnarlundi 13d, Akureyri.
Su Cong Nguyen,
Kleppsvegi 20, Reykjavík.
'* Torfi Þórarinsson,
Gránufélagsgötu 27, Akureyri.
Ektaftskur ehf
J S. 4661016 J
Utvatnaður saltjhkur,
án beina, til ao sjóða.
Sérútvatnaður saltftskur,
án beina, til að stetkja.
Ekto
Saltfisksteikur (Lomos)
y fyrirveitingahús.
Elías V. Einarsson
veitingamaöur og framkvæmdastjóri
Elías Vilhjálmur Einarsson, veit-
ingamaður og framkvæmdastjóri
Borgartúns 6 (Rúgbrauðsgerðarinn-
ar), og Valhallar á ÞingvöUum,
Klettagötu 16, Hafnartirði, varð sex-
tugur á jóladag.
Starfsferill
Elías fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp á Frakkastíg í norðanverðu
Skólavörðuholtinu. Hann hefur ver-
ið framreiðslumaður frá 1964, hefur
starfað á ýmsum hótelum og veit-
ingastöðum hérlendis og erlendis,
auk þess sem hann hefur verið á öll-
um gerðum fiskiskipa og báta.
Elías stofnsetti Kremgerðina 1979.
Hann var starfsmaður við Arnar-
hvol og starfsmaður hjá Air Viking
en hefur sl. tuttugu og fjögur ár ver-
ið forstöðumaður ráðstefnusalanna
í Borgartúni 6. Þá starfrækti hann
japanska veitingahúsið Samurai í
Reykjavík 1997-1999 og stofnaði og
rak veitingastaðinn Tvo fiska í
Hafnarbúðum, Reykjavlk, 2000-2001.
Fjölskylda
Ellas kvæntist 1966 Ólöfu Eyjólfs-
dóttur, f. 26.7. 1942, skrifstofumanni
við Borgartún 6. Hún er dóttir Eyj-
ólfs Þórarins Jakobssonar og Sóleyj-
ar Guðmundsdóttur, Dyrhólum í
Mýrdal i Vestur-Skaftafellssýslu.
Dóttir Elíasar og Sigrúnar Schev-
ing er Þórunn Scheving, f. 1.9. 1966,
hjúkrunarfræðingur, búsett í New
York, en sambýlismaður hennar er
Ragnar Kristjánsson, starfsmaður á
skrifstofu fastafulltrúa íslands hjá
SÞ.
Böm Elíasar og Ólafar eru Sóley
Elíasdóttir, f. 13.7. 1967, leikkona,
gift Hilmari Jónssyni leikara, og
eru dætur þeirra Gígja, Eygló og
Þórunn; Eyjólfur Einar Elíasson, f.
9.10. 1971, matreiöslumeistari og
starfsmaður við Borgartún 6,
kvæntur Kristínu Helgadóttur, að-
stoðarpresti við Fríkirkjuna í Hafn-
arfirði, og eru dætur þeirra Ólöf,
Gunnþórunn, Agnes Inga og Kristín
Helga; Laufey Eliasdóttir, f. 28.1.
1979, húsmóðir í Los Angeles í Kali-
forníu, en maður hennar er Sigurð-
ur Kjartansson, tónlistar- og auglýs-
ingamaður, og er barn þeirra Álf-
rún en sonur Sigurðar er Starkað-
ur.
Systkini Elíasar eru Kristín Ein-
arsdóttir Rygg, rekstrarfræðingur í
Ósló, gift Olav Rygg, fyrrv. rekstrar-
stjóra viö eitt stærsta skipafélag
Noregs, og eiga þau tvö böm, Olav
og Thorunn; Hafdís, tækniteiknari
og fyrrv. aðalféhirðir við lögreglu-
stjóraembættið, gift Jóni Ármanni
Jakobsson, fyrrv. skólastjóra Póst-
og símaskólans, og eru börn þeirra
Pétur, Margrét og Einar Þór.
Foreldrar Elíasar: Einar Guð-
mundur Guðmundsson, f. 4.4. 1912,
d. 14.4. 1982, járnsmíðameistari í
Rvík, og Gunnþórunn Erlingsdóttir,
f. 10.8. 1911, d. 1997, húsmóðir.
Ætt
Einar Guðmundur var sonur
Guðmundar Elíasar Guðmundsson-
ar og Kristínar Einarsdóttur, b. á
Holti í Álftaveri, Jónssonar, Sig-
valdssonar, b. á Hervararstöðum,
Sveinssonar á Eystri-Lyngum. Móð-
ir Einars í Holti var Steinunn
Helgadóttir. Móðir Kristínar Ein-
arsdóttur var Guðrún Guðmunds-
dóttir.
Gunnþórunn er dóttir, Erlings,
búfræðings og grasalæknis í
Reykjavík, Filippussonar, silfur-
smiðs í Kálfafellskoti, Stefánssonar.
Móðir Erlings var Þórunn, grasa-
læknir og ljósmóðir Gísladóttir, b. á
Ytri-Ásum í Skaftártungu, Jónsson-
ar, bróður Eiríks, langafa sand-
græðslustjóranna Páls Sveinssonar
og Runólfs, föður Sveins land-
græðslustjóra. Annar bróðir Gísla
var Jón, langafi Ragnars Jónssonar
bókaútgefanda, föður Jóns Óttars,
fyrrv. sjónvarpsstjóra. Móðir Þór-
unnar var Þórunn Ijósmóðir Sigurð-
ardóttir, b. í Steig í Mýrdal, Áma-
sonar. Móðir Þórunnar var Þórunn
ljósmóðir, langamma Steinunnar,
langömmu Jóhönnu Sigurðardóttur
félagsmálaráðherra. Þórunn var
dóttir Þorsteins, b. og smiðs á
Vatnsskarðshólum í Mýrdal, Eyj-
ólfssonar, og Karítasar ljósmóður,
stjúpdóttur Jóns Steingrímssonar
eldklerks Jónssonar, klausturhald-
ara á Reynistað, Vigfússonar. Móðir
Jóns var Helga Jónsdóttir, biskups
á Hólum, Vigfússonar.
Móðir Gunnþórunnar var Kristín
Jónsdóttir, b. á Gilsárvöllum í Borg-
arfirði eystra, Stefánssonar, bróður
Einars, afa Valgeirs Björnssonar
hafnarstjóra. Móðir Kristínar var
Stefanía, ljósmóðir Ólafsdóttir, b. á
Gilsárvöllum i Borgarfirði eystra,
Stefánssonar. Móðir Ólafs var Stein-
unn, læknir og ljósmóðir Þórðar-
dóttir, b. á Finnastöðum, Gísla-
sonar, og Eygerðar Jónsdóttur
pamfils, systur Jóns, langafa Einars
H. Kvaran. Móðir Stefaníu var Soff-
ía, systir Elísabetar, langömmu
Gunnars Gunnarssonar skálds. Soff-
ía var dóttir Sigurðar, b. í Skógum í
Öxarfirði, Þorgrímssonar, og Rann-
veigar Skíða-Gunnarsdóttur, b. í
Ási í Kelduhverfi, Þorsteinssonar,
ættfóður Skíða-Gunnarsættar.
Elías tekur á móti gestum í Borg-
artúni 6, IV. hæð, í kvöld, föstudag-
inn 27.12., frá kl. 18.00.
Fimmtug
Guðrún Fjeldsted
bóndi og reiðkennari að Ölvaldsstöðum IV
Guðrún Fjeldsted, bóndi og reið-
kennari, Ölvaldsstöðum IV í Borg-
arbyggð, verður fimmtug á mánu-
daginn kemur.
Starfsferill
Guðrún fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Ferjukoti í Borgarbyggð.
Hún lauk prófi sem reiðkennari á
vegum Félags tamningamanna 1973,
stundaði nám við Húsmæðraskóla
Þjóðkirkjunnar á Löngumýri í Vall-
hólma í Skagafirði 1974, stundaði
nám við Bændaskólann á Hvann-
eyri og lauk þaðan búfræðiprófi
1992.
Guðrún var reiðkennari hjá
Hestamannafélaginu Fáki 1972-80
og hefur starfrækt reiðskóla og
hestaleigu á Ölvaldsstöðum frá
árinu 1980.
Guðrún hefur farið víða um heim
við kynningu og kennslu í meðferð
á íslenska hestinum, t.d. til Austur-
rikis, Skotlands, Færeyja og til
Bandaríkjanna, en þangað hefur
hún flutt út hross hin síðari ár.
Guðrún hefur einnig verið leið-
sögumaður fyrir erlenda ferðamenn
við Grímsá í Borgarfirði og við
fleiri ár allt frá 1972. Hún hefur unn-
ið mikið við kennslu í reiðþjálfun
fatlaðra og sinnt málefnum Fjöliðj-
unnar, verndaðs vinnustaðar á
Akranesi og í Borgarnesi.
Guðrún hefur verið formaður
Hestamannafélagsins Faxa í fímm
ár, verið formaður Félags hrossa-
bænda á Vesturlandi í átta ár, for-
maður Kvenfélags Borgarhrepps í
flögur ár, sat í bæjarstjórn Borgar-
byggðar fyrir sjálfstæðismenn á síð-
asta kjörtímabili og var formaður
bæjarráðs þann tíma og er formað-
ur Veiðifélags Gufuár.
Fjölskylda
Guðrún hefur verið í sambúð frá
1980 með Þorsteini Guðlaugssyni, f.
20.3. 1952, sem starfrækir hópferða-
þjónustu. Hann er sonur Guðlaugs
Guðmundssonar, fyrrv. bifreiðar-
stjóra í Borgamesi, og Jóhönnu Þor-
steinsdóttur húsmóður.
Börn Guðrúnar og Þorsteins eru
Sigurður Ingi Þorsteinsson, f. 23.2.
1980; Guðlaugur Fjeldsted Þorsteins-
son, f. 20.2. 1985; Þórdís Þorsteins-
dóttir, f. 23.4. 1993.
Bræður Guðrúnar eru Sigurður
K. Fjeldsted, f. 2.4. 1941, leiðsögu-
maður erlendra ferðamanna; Þor-
kell K. Fjeldsted, f. 28.8. 1947, bóndi
í Ferjukoti.
Foreldrar Guðrúnar: Kristján
Fjeldsted, f. 17.12. 1914, d. 30.1. 1991,
laxveiðibóndi í Ferjukoti, og Þórdís
Þ. Fjeldsted, f. 5.12. 1917, húsfreyja.
Ætt
Faðir Kristjáns var Sigurður
Fjeldsted, b. í Ferjukoti, Andrésson,
b. á Hvítárvöllum, Andréssonar, b.
þar, Vigfússonar, en Andrés yngri
var landsfrægur veiðimaður og hag-
leiksmaður. Bróðir Sigurðar var
Lárus hrl., fóðurafi Katrínar Fíeld-
sted, læknis og borgarráðsmanns.
Móðir Andrésar eldri var Karítas
Magnúsdóttir, sýslumanns á Skarði,
Ketilssonar. Móðir Sigurðar var
Þorbjörg, systurdóttir Eyjólfs Eyja-
jarls.
Þórdís er dóttir Þorkels, verslun-
armanns í Borgamesi, Guðmunds-
sonar, b. á Jafnaskarði, Auðunsson-
ar. Móðir Þórdísar er Guðrún Berg-
þórsdóttir, búsett í Borgarnesi, á
hundraðsta og þriðja aldursári. Þór-
dis er ættuð af Mýrunum í báðar
ættir.
Guðrún tekur á móti gestum í fé-
lagsheimilinu Þinghamri á Varma-
landi í Borgarbyggð milli kl. 17.00
og 22.00.