Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Blaðsíða 19
19 FÖSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002________________________________ lOV Tilvera isasaa Gerard Depardieu 54 ára Einn þekktasti leikari Frakka, Gerard Depardieu, á afmæli í dag. Hann ólst upp i litlu sveitaþorpi, Chateauroux í Mið-Frakk- landi. Feril sinn byijaði hann með litlu ferðaleikhúsi. Eftir að hafa leikið nokkur smáhlutverk í kvikmyndum fékk hann stóra tækifærið í Les Valseuses (1974) og ný tegund af franskri hetju kom fram á sjónarsviðið. Depardieu er ekki aðeins vinsæll á heimaslóðum. Hann hefur átt greiða leið í amerískar kvikmyndir þegar hann hefur kært sig um. Eiginkona hans til margra ára heitir Ehsabeth og eiga þau tvö böm sem eru orðin Morðin. Gildir fyrir laugardaginn 28. desember Vatnsberinn (70. ian.-ia. febr.t: ■ Athugaðu alla mála- ^ vexti vel áður en þú tekur mildlvæga ákvörðun eða iverju gylliboði sem berst. Happatölur þínar eru 3,14 og 26. Flskarnir (19. fRhr.-?0. mars): táttu sem ekkert sé þó lað einhver sé að gera lítið lir því sem þú ert að fást við. Farðu varlega í að gefa ráð. Happatölur þínar eru 1, 3 og 8. Hrúturinn (21. mars-19. april): Þér er alveg óhætt að ^■^MJPláta > Ijós áhuga á því sem þú hefur raun- verulega áhuga á. Vinur þinn mun standa með þér í ágreiningsmáli. Nautið I?O. anril-?0. mai>: Þú þarft að takast á , við fremur erfitt verkefni í vinnunni í dag. Þér tekst pryðilega að leysa það af hendi. Þú færð mikilvægt bréf. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): Það er mikilvægt að /^^■þú undirbúir vel þær / breytingar sem eru fyrirsjáanlegar á næstunni. Þá verður auðveldara að fást við þær. Krabbinn 177. iúní-2?. iúiíi: Einhver spenna liggur |í loftinu og þú áttar ' þig ekki á orsök hennar fyrr en liðrn: á daginn. Þú átt notalegar stundir með fjölskyldunni. Liónið 123. iúlí- 22. áeústl: . Þú munt eiga góðan dag í faðmi fjölskyld- imnar. Þér finnst þú Jj vera ákaflega heppinn að eiga allt þetta góða fólk að. Happatölur þínar eru 5, 13 og 34. Mevian (23. áeúst-22. seot.): Samvinna sem þú tekur þátt í er sérstak- ^^^Llega gefandi og nýjar * r hugmyndir fæðast. Einhver þeirra mun verða að veruleika áður en langt um líður. Vogin (23. sept.-23. okt.): ^ Einhver ruglingur eða seinkun á sér stað, hjá V f þeim sem eru að flakka r f á milh staða. Það kemur þó ekki að sök og dagurinn mun verða mjög ánægjulegur. Sporðdrekinn (24. okt.-2i. nóv.): Þú hefur komið ár þinni vel fyrir borð iað undanförnu. Mikil vinna hefur treyst stöðu þína umtalsvert og nú ættir þú að geta notið þess að slaka á. Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l: -Ástin verður afar áber- ^andi í lífi þínu á næst- unni. Þú þarft að ætla henni tíma og leyfa henni áð þróast í rólegheitum en ekki ana að neinum ákvörðunum. Steingeitin (22. des.-19. ian.): Þú gerir einhverjum greiða og uppskerð þakklæti fyrir. f heild er þetta góður dagur og kvöldið verður sérstaklega eftirminnilegt. DV-MYND GVA Kafflkarl Ágúst segirgott kaffi, beyglur og kleinuhringi njóta sívaxandi vinsæida. Port City Java með þrjátíu tegundir kaffis: Verð að fara að klóna mig - segir Ágúst Rúnarsson sem opnar kaffihús í Hamborg á næstunni Það er vandi að velja þegar komið er að afgreiðsluborðinu í Port City Java, nýja kaffihúsinu á Laugavegi 70. Þar er boðið upp á 30 tegundir kaffis með mis- munandi keim og allt er það eðalkaffi. Eigandi staðarins, Ágúst Rúnarsson, er í afgreiðslunni. Hann tekur af skarið og rennir upp á jólakafii með ögn af hnetu- og kanilbragði. Það er við hæfi þessa dagana enda smakkást það bráð- vel og æ betur eftir því sem neðar dreg- ur i bollann. „Allt kafiið hér er úr arabica-baunum," segir Ágúst. „Þær eru ræktaðar í ákveðinni hæð en á ýmsum stöðum í heiminum, Gvatemala, Súmötru, Keníu, Kostaríku og víðar, en kaflið er ailt unnið í Bandaríkjunum." Hann nefnir lika blöndur úr baunum sem sérstaklega eru bragðbættar, svo sem White-Russi- an, Kahlúa, súkkulaði- og hnetukaffi, og eina tegund sem hann kallar Wake up call. „Það er extra sterkt," segir hann brosandi. Hann býður líka upp á „take’away"- kafii í sérstökum glösum og kynnir þá nýjung að hægt sé kaupa sér tvo og hálfan lítra af kaffi á hitakassa og storma með það í vinnuna eða á fúnd. Útbreiðir kaffiö í Evrópu Ágúst hefúr rekið kafiihús í Smáran- um, undir merkinu Port City Java, í rúmt ár. „Port City er ein af elstu höth- um Bandaríkjanna og þangað var flutt inn mikið af Java-kafii, svo þessi bandaríska kafiikeðja ákvað að nota þetta vörumerki," upplýsir Ágúst og segir sjö ný kafiihús með þessu nafiii opnuð í Bandaríkjunum I viku hverri um þessar mundir. Sjálfur hefúr hann tekið að sér að útbreiða Port City Java i Evrópu og verður fyrsta kafiihúsið á meginlandinu opnað nú í janúar - í Hamborg - og kveðst hann líka hafa samið við eina stærstu vöruhúsakeðju í Þýskalandi um að selja kaffiduftið þar. Með 70 hross Ágúst hefur fleiri jám í eldinum. Hann rekur gistingu og ferðaþjónustu að Böðvarsholti á Snæfellsnesi og held- ur þar 70 hross. Þegar hann er spurður hvemig hann fari að þessu öllu kveðst hann vera með gott fólk á öllum víg- stöðvum. „Annars verð ég að fara að klóna mig!“ segir hann hlæjandi að lok- um. -Gun Kylie ekki góð við löndu sína Ástralska poppstjarn- an Kylie Minogue var ekki sérlega elskuleg í viðmóti þeg- ar landa hennar, ungstimið Holly Valance, sem hefur verið kölluð hin nýja Kylie, vildi fá lánaðan hjá henni að- aldansarann. Kylie sagði blátt nei, dansarinn hennar væri sko alls ekki falur fyrir annarra kvenna sýningar. Holly varð að vonum vonsvikin en vonbrigðin breyttust í undrun hálfum mánuði síðar þegar Kylie var allt í einu til í að lána dansar- ann, sem reyndar er uppáhalds- dansarann hennar, til systradúetts- ins Cheeky Girls. „Kylie neitaði að leyfa Holly að nota dansarann en hálfum mánuði síðar fengu Cheeky Girls hann að láni. Hún vill ekki hjálpa Holly en lætur sig það engu varða þótt aðrir fái að nota dansarann," segir ónafn- greindur heimildarmaður breska blaðsins Daily Mail. Hljomdiskar Krinstján Hreinsson og hljómsveitin Hans - Eftir dansinn 'k'ki. Calvin Klein selur veldi sitt Sér á parti Það má sannarlega segja að Kristján Hreinsson fari sínar eigin leiðir á sóló- plötum sínum, bæði hvað músík varð- ar og textagerð. Þar kveður við nokkuð annan tón en í öllum þeim fjölda dæg- urlagatexta sem frá honum hefur kom- ið undanfarin ár. Kannski má segja að skáldið í Skerjafirði noti ljóð á eigin plötum en sendi öðrum textana. Það er því talsvert þyngri undiraldan héma en í dægurtextunum þótt gamansemin sé aldrei fjarri. Kristján veltir upp ýms- um spumingum og hafa sumar með siðferði að gera og eiga þannig vel heima í sálmum. Það er nefhilega þannig með þennan disk að hann inn- heldur sálma og þar með sálmakveð- skap. Stundum er það samt svo með Kristján og kveðskapinn að manni fmnst hann ekki vanda sig nóg. Það er eins og jafhvel bestu kvæðin vanti bara aðeins lokaátakið til að verða virkilega fín. Mér segir svo hugur að andagiftin sé svo mikil að um leið og einu kvæði sleppir taki það næsta við og enginn tími sé til að fínpússa. Miðað við texta- gerð almennt hér á landi teljast þessir textar, eða ljóð, Kristjáns þó talsvert yfir meðallagi. Einnig er gaman að því hversu kirfilega kvæðin eru bundin ljóðstöfum og rími. Kristján heldur sig nokkuð staðfast- lega við sálmalagaformið á þessum diski. Tii lengdar fara þó sum lögin að virðast svolítið keimlík. Lagasmíðam- ar eru samt nokkuð lunknar sumar, sérstaklega Dagurinn deyr og Lífið það er. Þegar komið er að lögum númer 10 og 11 er eins og höfundur sé komin í þrot í bili. Vel fer á því að notast við orgel og/eða harmóníum sem aðalundir- leikshljóðfæri og véla þar um þeir Magnús Kjartansson og Jón Ólafsson ásamt Jóni Kjell Seljeseth og Þóri Úlf- arssyni. Guðni Freyr Sigurðsson syng- ur tvö lög með klassískum tilþrifum. Þegar Kristján tekur undir með honum hljóma þeir félagar ekki eins og Denver og Domingo heldur eitthvað miklum KFTtR DANStNK KrisllAn Kr»vno*oB mun kostulegra. Söngstíll Kristjáns er nefhiiega ekki alveg eins og gengur og gerist, stundum eins og illa timbraður Tom Waits, af og til bara sjáifum sér líkur. Kristján leikur dálítið á hljóm- borð og notar stundum sánd (Arfurinn, Eftir dansinn) sem minnir á þriðja flokks nýaldarmúsík og einhvem veg- inn er það svo hallærisleg að það pass- ar alveg við efnið. Fiðluleikarinn Kjart- an Már Kjartansson kemur nokkuð við sögu og gerir vel. Tryggvi Húbner, Sig- urður sálmakall Flosason og Vilhjálm- ur Guðjónsson eiga hér hiut að máli og ekki má gleyma Jóhanni Agli Jóhanns- syni sem leikur á sög og fúllkomnar þannig elliblæ plötunnar. Ágætlega hefúr sem sé tekist til við að ná fram blæ sem er svo sérlundaður og gamaldags að athygli hlýtur að vekja og reynist á köflum hin besta skemmtun. Ingvi Þór Kormáksson Hinn bráðlyndi tískuhönnuður Cal- vin Klein, sem á sínum tíma þurfti að fá sex þúsund dollara að láni til þess að stofna fyrirtæki sitt, seldi veldi sitt fyrir jólin til bandaríska skyrturisans Phillips-Van Heusen fyrir litlar 430 milljónir dollara. Klein 60 ára gamli Klein mun þó starfa áfram hjá fyrirtækinu og segist bæða hafa til þess tilfinningar- og fjár- hagslegar langtíma ástæður. „Ég eyddi ævinni í að byggja þetta fyrir- tæki upp og þess vegna vil ég gera mitt til þess að það blómstri," segir Klein sem er sonur ungversks kaup- manns sem flutti til Bandaríkjanna eftir stríð. Bruce Klatsky aðalframkvæmda- stjóri kaupendanna, sem eru stærstu skyrtuframleiðendur í Bandaríkjun- um, sagði að Klein myndi ekki einn stýra hönnuninni hjá fyrirtækinu, en að nýta ekki hæfilega hans væri heimska. Allir íþróttaviðburáir / beinni á risaskjám. Ponl. Eóður matseðill. Tökum aðokkuj\ hópa, starfsmannaféíög. Stórt ug gntt dansgóif. liaugardagur £5 H. Bæjarlind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544 5514

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.