Dagblaðið Vísir - DV - 27.12.2002, Qupperneq 28
Demantar,
°9
skínandi »
'■"'W "
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz (JTí)
Loforð er loforð
FOSTUDAGUR 27. DESEMBER 2002
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Gullkúnst á Laugavegi:
Bíræfinn skari
gripaþjófnaður
Lögreglan rannsakar bíræfinn
þjófnaö sem átti sér stað aðfaranótt
Þorláksmessu þegar maður kom að
útstillingarglugga verslunarinnar
Gullkúnst við Laugaveg og hreins-
aði þar út um þrjátíu pör af trúlof-
Jólaverslunin:
Brauðréttir Jóa
Fel á toppnum
Söluhæsta bók þessara jóla er
* bókin Brauðréttir Hagkaupa, sem
skrifuð er af Jóa Fel. Samkvæmt
upplýsingum frá Hagkaupum seld-
ist hún í tæplega 25000 eintökum.
Hjá Eddu miðlun voru tvær bækur
langsöluhæstar. Annars vegar var
Tilhugalíf Jóns Baldvins eftir Kol-
brúnu Bergþórsdóttur sem fór út í
14000 eintökum. Röddin eftir Amald
Indriðason fór út í 12000 eintökum.
Hjá JPV útgáfu fór mest út af bók-
inni Sonju eftir Reyni Traustason.
Ekki fengust í morgun tölur um það
upplag sem fór frá útgáfunni í versl-
^ anir.
Hvað varðar plötusölu þá seldist
platan með hljómsveitinni Irafári,
Allt sem ég sé, langmest af þeim
plötum sem Skífan gaf út eða eða
dreifði fyrir sjálfstæða útgefendur.
Irafár seldist í 15.262 eintökum.
Næstur kom Bubbi með plötu sína Sól
að morgni í 10.612 eintökum. í þriðja
sæi voru Papar með Riggarobb, sem
seldist í 8.755 eintökum. -JSS
Rækjustofninn á
hægri uppleið
Niðurstöður benda til að stofn út-
hafsrækju sé á hægri uppleið. Þó
. afli á sóknareiningu hafi nú minnk-
að um 10% hefur hlutfall stórrækju
aukist um 46%, en kvendýravísitala
hefur staðið í stað frá árinu 2001 til
2002. Nýliðun er nokkuð undir með-
altali en svipuð árin 2001 og 2002.
Að teknu tilliti til þessa leggur
Hafrannsóknastofnunin til að afli
úr úthafsrækjustofninum fari ekki
yfir 30 þús. tonn fiskveiðiárið
2002-2003. -GG
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá I slma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot. sem birtist eöa er notaö I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
HEITIR PBTTA
VÍNHJÖÐNUN?
unarhringum og aörar vörur. Mað-
urinn tók stóran stein upp úr gang-
stéttinni og kastaði honum í örygg-
isglerið sem gaf sig. Við svo búið er
talið að hann hafi tekið þrjá svokall-
aða útstillingarhálsa og tvö sam-
bærileg hjörtu en á þessu var mikið
magn skartripa. Er þetta talsvert
fyrirferðarmikið og því talið að
maðurinn hafi verið með rúmgóða
tösku meðferðis.
Maður á Njálsgötu tilkynnti lög-
reglu um verknaðinn á sjötta tíman-
um um morguninn. Sá hann hvem-
ig innbrotsþjófurinn var klæddur
og hvemig hann tók á rás niður
Frakkastíginn eftir að hafa hreinsað
út úr verslunarglugganum. Ekki
hefur tekist að ná til mannsins en
þeir sem geta gefið upplýsingar um
málið eru beðnir um að snúa sér til
lögreglunnar í Reykjavik. -Ótt
DV-MYND HH
Með fullri reisn: Viöamikil uppfærsla og ágætis afþreying
Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Dorrit Moussaieff, heitkona hans, og Stefán Baidursson þjóöleikhússtjóri fagna meö
Kenn Oldfield, leikstjóra jólasýningar Þjóðleikhússins. Sjá umsögn á bls. 13.
Fundahöld um framtíð R-listans í dag:
Þrýstingur eykst
á borgarstjóra
- Össur segir útilokað að Ingibjörg hætti við framboð
Oddvitar Samfylkingarinnar í
Reykjavík - formaður, varaformað-
ur, borgarfúlltrúar og stjórn full-
trúaráðs - koma saman í hádeginu
til þess að ræða þá stöðu sem upp
er komin í samstarfi um Reykja-
víkurlistann. Búist er við því að
oddvitar allra flokka sem að R-list-
anum standa hittist í kjölfarið.
Ljóst er að þrýstingur eykst á borg-
arstjóra að taka af skarið og bregð-
ast við afstöðu Framsóknar og
Vinstri-grænna og hugsanlegt að
niðurstaða fáist í málið í dag.
Alfreð Þorsteinsson oddviti
Framsóknar segist vona að megin-
línur skýrist í dag; fresturinn sé
skammur. „Þetta verður að liggja
fyrir þegar borgarstjórn kemur
næst saman 2. janúar. Við verðum
því að gera þetta fyrir áramót og
því fyrr því betra.“
Össur Skarphéðinsson segir að á
fundinum í dag verði ræddar
mögulegar sættir við samstarfs-
Stelnunn Valdís Ossur
Óskarsdóttlr. Skarphéölnsson.
flokkana í R-listanum. „Viö leggj-
um rikt upp úr því að gera allt það
sem R-listanum er til heilla. Við
teljum að hann hafi unnið mjög vel
fyrir borgina, það sé ekki síst að
þakka ötulu starfi borgarstjóra, og
leggjum mikið upp úr því að Reyk-
víkingar fái notið hvoru tveggja
áfram: R-listans og borgarstjór-
ans.“
Össur segir aðspurður að ekki
komi til greina að Ingibjörg Sólrún
hætti við þingframboð sitt.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
segist ekki geta tjáð sig um hverja
hún telji farsælustu lausnina í
stöðunni. „Mér flnnst mikilvægt
að passað verði upp á R-listasam-
starfið með öllum tiltækum ráðum.
Það er það sem við erum að reyna
að gera og Ingihjörg Sólrún líka.“
Samkvæmt heimildum DV hefur
sá möguleiki verið nefndur við
Ingibjörgu Sólrúnu að hún setjist í
heiðurssæti á lista Samfylkingar-
innar. Hvorki Framsókn né
Vinstri-grænir myndu setja sig
upp á móti því. „Það er náttúrlega
allt annsu hlutiu en 5. sætið og við
gerum engar athugasemdir við
það,“ segir Alfreð Þorsteinsson að-
spurður um þennan möguleika.
Ingibjörg Sólrún situr ekki fund
Samfylkingarinnar í hádeginu.
„Hún er ekki borgarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar, er það?“ segir
Steinunn Valdís um ástæður þess.
-ÓTG
Jólamatur Styrmis:
Ein síld og
2-3 loðnur
Storkurinn Styrmir unir sér hið
besta í Húsdýragarðinum jafnvel
þótt nætumar gerist kaldari. í gær
komu fjölmargir gestir í garðinn í
afbragðs jólaveðri og sagði Tómas
Guðjónsson, líffræðingur og for-
stöðumaður, að allt stefndi í að-
sóknarmet desembermánaðar.
Ekki var annað að sjá en Styrmir
kynni vel við heimsóknimar.
Styrmir stendur sig vel og blómstr-
ar að best verður séð. Jólamatur hans
var hinn sami og aðra daga, ein síld
og tvær til þrjár loðnur, sem hann
étur af bestu lyst. -JBP
Þrír fluttir á
- eftir slagsmál
Lögreglan í Reykjanesbæ hafði í
mörgu að snúast yfir hátíðamar. 15 ára
unglingur var handtekinn með eitt
gramm af hassi i gærkvöld en ekki
fengust upplýsingar um hvar eða
hvemig lögreglan hafði uppi á viðkom-
andi. Þá þurfti hún að hafa afskipti af
ýmsum á balli sem haldið var í Stapan-
um í gærkvöld en mikil ölvun var á
staðnum. Á ballinu bmtust út slagsmál
og þurfti að flytja þrjá á slysadeild þar
sem gert var að sárum þeirra sem talin
eru minni háttar. -ss
Vodkaflaskan hefur lækkað í verði
- 22% lækkun á 18 árum
Það er ósjaldan sem fólk fussar og
sveiar yfir verðlagi á áfengum
drykkjum hér á landi. Þó er það nú
svo að þegar vísitala neysluverðs er
skoðuð sést að árið 1984 var verð á
700 ml Smimoff vodka flösku 22%
hærra en árið 2001. Verðið var 3.156
árið 1984 en aðeins 2.470 árið 2001.
Mismunurinn er 686 krónur.
Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfeng-
is- og tóbaksverslunar Reykjavíkur,
segir að ástæðan fyrir þessari lækkun
sé m.a. sú að áfengisgjaldið hefúr
lengst af verið fóst krónutala og því
ekki breyst með almennum verðhækk-
unum en 70% af vodkaverði er áfengis-
gjald. Jafhffamt segir Höskuldur að því
hærri sem áfengisprósentutalan sé því
Lækkun verðs á 700 ml Smirnoff vodkaflösku
3.500 kr. At
3.000 kr.
2.500 kr. V
9.000 kr.
1984 1990 1995 2001
hærri er áfengisskatturinn, því hærra
verður því verðið til neytandans en
Höskuldur segir að styrkleikaprósent-
an í vodka hafi almennt lækkað.
„Það hefur því orðið til þess að
áfengisprósentuskatturinn hefur
minnkað og því verðið til neytandans
lækkað,“ segir Höskuldur. „Þessara
áhrifa frá fóstu krónutölunni gætir
mun minna i léttvínum því áfengispró-
sentur í þeim em mun færri en í sterk-
um drykkjum," segir Höskuldur.
Þá má líta á málið frá þeirri hlið að
ef verðið hefði staðið í stað en magnið
í flöskunni aukist hafa neytendur ver-
ið að græða 194 ml vodka þessi tuttugu
ár sem Smimoff hefúr verið á íslenska
markaðnum og þessi 700 ml flaska því
orðin 894 ml og dæmi nú hver fyrir sig
hvort um jákvæða eða neikvæða þróun
hafl verið að ræða. -ss
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
I