Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2003, Síða 14
14 Menning Æskuár stórskálds Halldór Laxness og Auöur kona hans Áberandi er hversu Halldór sýnist roskinn oggjarnan alvarlegur á myndum frá unglingsárunum og fram undir þrítugt. Þegar hann er oró- inn gamall geislar hins vegar lífsgleöin af hverri mynd. Bókin Halldór Laxness - Lif í skáldskap kom út í lok afmælisárs skáldsins. Þar rekur útgefandi hans hin seinni ár, Ólafur Ragnarsson, kynni sín af skáldinu og samræður þeirra um æsku Halldórs, skáldskap og margt fleira. Höfundur kallar bókina sjálfur „fléttubók" og lýsir það henni vel. Henni er ekki ætlað að vera ævi- saga Halldórs eða samtalsbók en er sambland hvors tveggja. Einkum fjall- ar hún um æsku skáldsins og Ólafur boðar framhald í formála. Ólafur kynntist Halldóri Laxness þegar skáldið var 82 ára. Síðan hittust þeir reglulega næstu ár og samræður þeirra frá þessum seinustu árum áður en heilsu Halldórs tók að hraka mynda grunn bókarinnar. Ólafur spyr Halldór um æsku hans, fyrstu skáldverk, vinnubrögð og fleira for- vitnilegt, og þó að skáldið sé sjálfu sér likt, gjarnan með ólíkindalæti og tali iðulega um sjálfan sig ungan í þriðju persónu þá er hann líka stundum bláttáfram og hversdagslegri en við höfum átt að venjast. Inn í þetta íléttar Ólafur köflum úr birtum verkum Halldórs Laxness og ýmsum gögnum sem hafa komið í dagsljósið hin seinni ár, til dæmis bréfum hans til vina og kunningja. Sérdeilis vel heppnast þetta þegar hann birtir hlið við hlið tvær frásagnir Halldórs af ferð sinni til Danmerkur, annars vegar úr einkabréfi til móðurinnar og hins vegar heldur skáldlegri frásögn úr minningabókinni Úngur ég var sem kom út næstum 60 árum seinna. Ólafur fjallar mikið um bemsku skáldsins og hvemig höfundarferiU hans hefst. Gerir hann afar skýra grein fyrir fyrstu skrifum Halldórs sem komu á prent, skýrari en ég hef séð annarstaðar. Þar að auki birtir hann í bók- arlok yfirlit um fyrstu prentuðu skrif Halldórs. Flest vom þau undir nafni en á þessum árum skrifaði Halldór líka undir dulnefninu Snær svinni. Miðað við bækur Peters Hallbergs er meiri áhersla á hið hversdagslega og efnislega. Marg- ir jarðbundnir lesendur sem hafa lesið um tið- ar ferðir Haildórs til útlanda hafa furðað sig á því hvemig maðurinn hefði efni á þessu - fyr- ir daga skáldalauna. í þessari frásögn fæst nokkur innsýn í það. Um leið kemur fram að Halldór vann seinast hefðbundna launavinnu sem móttökusfjóri hjá útvarpinu og er lýsing hans á því starfi kostuleg. Sérstaka athygli vekja allar upplýs- ingar um vinnubrögð Halldórs. í ein- um áhugaverðasta kafla bókarinnar er lýst „nótissuheftum" hans og hvernig hugmyndirnar þróast stöðugt og krauma jafnvel áratugum saman, áður en þær rata sumar í bækur. En einnig kemur fram að þrátt fyrir staðfasta ætlun Halldórs að verða stórskáld vafðist söguefhið iðulega fyrir honum og honum lá jafnvel við uppgjöf. Um leið er rakin rækilega hin misheppnaða tilraun hans til að verða kvikmyndaskáld í Hollywood. Þær ráðagerðir litu ótrú- lega vel út um hríð en samt varð aldrei neitt úr neinu og réðu því lög- mál efnahagslífsins. Ólafur ætlar sér ekki að vera gagn- rýninn ævisagnaritari og er það ekki. Hann er aðdáandi skáldsins en eigi að síður er mynd hans af Halldóri mannleg og jarðbundin. Halldór er vissulega snillingur en sú snilli er ekkert yfirskilvitleg heldur afrakstur ögunar, einbeitni, vinnusemi og stundum hjálpsemi náungans. Að hluta til er sú mynd sótt til Halldórs sjálfs sem var ævinlega mjög írónísk- ur og hafði mikla íróníska fjarlægð á eigin æsku þegar þeir Ólafur kynnt- ust. Mjög hefur verið vandað til útlits bókarinnar, kápan er glæsileg og í henni fjórar myndaarkir með vel völdum myndum. Um helmingur þeirra er frá efri árum skáldsins en hinar frá ævinni ailri. Áberandi er hversu Halldór sýn- ist roskinn og gjaman alvarlegur á unglingsár- unum og fram undir þrítugt. Þegar hann er orðinn gamall geislar hins vegar lífsgleðin af hverri mynd, eins og kemur líka glöggt fram í frásögn Ólafs af samræðum þeirra. Ármann Jakobsson Ólafur Ragnarsson: Halldór Laxness - Líf í skáld- skap. Vaka-Helgafell 2002. Yfir til þín, Reykjavík Listahátíðin Circuit í Barcelona hefst 7. febrúar og er að þessu sinni helguð Reykjavík Listahátíðin Circuit í Barcelona verður haldin í sjöunda sinn 7.-9. febrúar og að þessu sinni undir heitinu „It’s up to Reykja- vik“. Þar er ætlunin að fjalla um fatahönn- un, tónlist, kvikmyndagerð, myndlist og annað sem gerir Reykjavík að menningar- borg. 24 listamenn frá íslandi fara til Barcelona, Gabríela Friðriksdóttir, Ásmund- ur Ásmundsson, Magnús Jónsson, Steinunn Sigurðardóttir, Hrafnhildur Hólmgeirsdótt- ir, Ásgrímur Már Friðriksson, Þuríður Sig- urþórsdóttir, Hugrún Ámadóttir, hijóm- sveitimar Gusgus og Trabant og DJ Þór (Þórhallur Skúlason). Einnig verða verk eft- ir Finnboga Pétursson og Halldóru Emils- dóttur á sýningunni. Circuit hefur verið haldin tvisvar á ári síðan árið 2000 og er hver hátíð tileinkuð einu landi. Sú síðasta var tileinkuð Portúgal og voru þortúgalskir og spænskir listamenn og hönnuðir saman með sýningar í þá þrjá daga sem hátíðin stóð. Upphafsmaður Circuit er Paulinha Rio ... mannsgaman Gabríela Friðriksdóttir og Ásmundur Ásmundsson Þau taka bæöi þátt í listahátíðinni Circuit í Barcelona. sem er þekktur fatahönnuður á Spáni. Yfir- skrift hátíðarinnar er „tíska, list, tónlist“ og brýtur Circuit upp gamlar hefðir í listtján- ingu og fatahönnun en stór hluti hátíðarinn- ar er tískutengdur. Á síðustu hátíð vora tíu tískusýningar ásamt innsetningum, listsýn- ingum, tónleikum, danssýningum og öðrum uppákomum. Circuit hefur notið mikillar athygli á Spáni og fylgjast um 300 innlendir og erlend- ir fjölmiðlamenn með hátíðinni sem þykir einkar glæsileg og fagmannlega unnin. Circuit er haldin á sama tíma á vorin og Gaudí-tískusýningin sem er ein sú stærsta í heimi. Undanfarin ár hafa Circuit og Gaudí átt góða samvinnu og eru sölusýningar frá báðum aðilum undir sama þaki. Þetta hefur opnað dyr fyrir fjölmarga tískuhönnuði sem hafa gert góða samninga að listahátíðinni lokinni. Þeir sem hafa lagt Circuit og íslensku listamönnunum lið eru Höfuðborgarstofa, menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar, iðnaðarráöuneytið, menntamálaráðuneytið og Flugleiðir. Þeir sem skipuleggja hátíðina frá Reykja- vík era Hólmfríöur Ólafsdóttir og Ánna María McCrann. Nánari upplýsingar fást i síma 868-1851 og 699-0005, www.circuitonline.net Sofið hjá svartri konu Það er nokkur kúnst að sitja í flugvél. Fyrir það fyrsta eru sætin vélanna gerð fyr- ir einhverja venjulega stærð af fólki og fari það að lengd og sverleika yfir þau mörk verð- ur auðskiljanlegt af hverju sardínur liggja dauðar í dós. Þrengslin. Mikil ósköp. Ofboðsleg þrengslin. Sat þetta sinn í sæti 21f. Einn á ferðalagi og þó alls ekki einn; við hlið mér svört kona og frönsk og álíka breið og ég er langur. Strítt hár hennar lék við axlir mínar og handleggur all- ur og barmur eins og til að þrýsta mér út í glugga og vegg. Þama sat ég og reyndi að borða ommilettu og baunir með hendur mínar i læstri stöðu langferöar. Hnén keyrð inn í næsta stólbak, fætur sveittir og sinadráttur í kálfum. Sumsé líf manns í þrengsta skilningi. Svo sofnaði konan. Og svaf hjá mér blíðlega. Höfuö hennar þétt upp að mínu og svo nærri að ég varð smám saman hluti af svefhi henn- ar. Hefði í reynd þurft að pissa en því varð ekki við komið. Ekki í bráð. Við vöknuðum bæði í skýjunum yfir París. Hjólin að teygja úr sér undir skrokki vélarinn- ar og einhvern veginn fannst mér sem ég þyrfti að teygja úr mér líka. En það var ekki hægt. Ekki um stund. Þegar hún stóð upp úr sæti 21e fannst mér líf mitt stækka, ekki ósvipað því þegar loftpúði springur út undan þrýstingi. Ég var ekki leng- ur marineraður farþegi. Ég var aftur oröinn að manni. MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 DV Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is Aukasýning á Dýrlingagenginu Vegna mikillar eftirspumar verður auka- sýning á Dýrlingagenginu (bash!) eftir Neil LaBute í kvöld kl. 20 í Listasafni Reykjavík- ur - Hafnarhúsi. Sýning EGG-leikhússins hefur vakið athygli og umtal og gefst leik- húsáhugafólki nú enn eitt tækifærið til að sjá þetta miskunnarlausa verk í óvenjulegri uppfærslu. Þorir umsjónarmaður menning- arsíðu að garantera að það gleymist ekki í bráð. í sýningunni era sagðar þrjár sögur - þrír harmleikir úr nútímanum. Leikendur eru Bjöm Hlynur Haraldsson, Þórunn E. Clausen, Agnar Jón Egilsson og Ragnheiður Skúladóttir og leikstjóri er Viðar Eggerts- son. Hvað ertu tónlist? Við minnum á kynningarkvöld nám- skeiðs Jónasar Ingi- mundarsonar í kvöld kl. 20 í Salnum í Kópa- vogi. Aðgangur er ókeypis og allir vel- komnir meðan hús- rúm leyfír. Haustið 2001 hófst í Salnum námskeiðið „Hvað ertu tónlist?" í umsjón Jónasar og í samstarfl Endurmenntunar Háskóla ís- lands, Salarins og Kópavogsbæjar. Nám- skeiðið var afar fjölsótt og mikil ánægja meðal þátttakenda. Þar leiddi Jónas áheyr- endur inn í undraheim tónlistarinnar með lifandi tóndæmum úr ýmsum meistaraverk- um tónlistarsögunnar, innlendum sem er- lendum, og lokkaði viðstadda til meðvitaðr- ar hlustunar. Nú verður þráðurinn tekinn upp að nýju vegna fjölda áskorana. Námskeiðið hefst formlega mánudagskvöldið 10. febrúar kl. 20 og verður alls fjögur kvöld auk kynning- arkvöldsins. Það fer fram í Salnum og er í senn byrjun og framhald og hentar öllum. Skráning fer fram á heimasíðunni www.endurmenntun.is eða í síma 525 4444. Einnig má skrá sig í kvöld í Salnum. Mozarttónleikar í dag á Wolfgang Amadeus Mozart af- mæli og af því tilefni verða haldnir afmæl- istónleikar á Kjar- valsstöðum í kvöld kl. 20. Þar leika Laufey Sigurðardóttir, Þór- unn Ósk Marínósdótt- ir, Sigurður Bjarki Gunnarsson og Éinar Jóhannesson Dúó fyrir fiðlu og víólu, tvo bemskukvartetta og Klarínettukvintett- inn eftir meistarann, auk þess sem Þor- steinn Gylfason heimspekiprófessor spjaUar um ýmislegt viðkomandi tón- skáldinu. Söngnámskeið Nú era að hefjast söngnámskeið í söngstúdíói Ingveld- ar Ýrar söngkonu sem bæði era ætluð byxjendum og lengra komnum. Kennd er öndun, líkamsstaða, raddbeiting og sönglög af ýmsu tagi. Einnig eru kennd grunnatriði í tónheym og nótnalestri. Námskeiðin era ætluð fólki á öllum aldri og eru tilvalin fyrir þá sem vilja góða undirstöðu i söng og raddbeitingu og einnig fyrir þá sem vilja halda sér við. Kennt er í litlum hópum og einkatímum. Upplýsingar og skráning í sima 898 0108 og á heimasíðunni songstudio.ehf.is. -SER

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.