Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Page 11
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
DV
Fréttir
n
móti of nánu sambandi við Vest-
urlönd og vilja leggja meiri
áherslu á samskiptin við þróunar-
ríki, ekki síst þau nálaegu. Herinn
og þingið eru ekki endilega sam-
dóma forsetanum um nauðsyn
vinskaparins við ráðamenn í
Washington. Nýverið var fjöl-
menn sendinefnd rússneskra þing-
manna í vináttuheimsókn í íran
og var tekið þar með kostum og
kynjum.
Þá er mörgum valdamiklum
Rússum það þyrnir í augum hve
mildum augum Pútín og stjóm
hans líta á herstöðvamar sem
Bandaríkjamenn hafa komið sér
upp í Mið-Asíulýðveldunum sem
áður tilheyrðu Sovétríkjunum -
og ekki síður hitt að Nató hefur
teygt sig austur á bóginn og nær
að áður heilögum landamærum
risaveldisins sáluga.
Bush kemur líka á móts við vin
sinn í Kreml og er miklu skiln-
ingsríkari gagnvart honum en
Þjóðverjum og Frökkum. í Wash-
ington er ekki lengur talað um
„apa sem úða í sig kavíar" né er
Kremlverjum skipað í hóp með
Sýrlendingum og Líbíumönnum.
Neitunarvald Rússa í Öryggisráö-
inu er nokkurra olíutunna virði
og Pútín á þar bæði völina og
kvölina þegar kemur að því að
samþykkja eða hafna endanlegri
ályktun um hvort bombardera
skuli írak eða ekki.
Viðskiptin í uppnámi
Rússnesk olíufélög eru öflugust
meðal um 300 fyrirtækja sem eiga
viðskipti við írak. Undantekning
er gerð á viðskiptabanni SÞ og
mega írakar selja oliu fyrir mat-
væli, lyf og aðar nauðsynjar. 40%
af olíuútflutningi íraka eru í
höndum Rússa. 10 ára viðskipta-
samningur er í gildi sem gefur
rússneskum fyrirtækjum 40 millj-
arða dollara í aðra hönd.
En samningar um olíuvinnslu
eru Rússum enn mikilvægari.
Þeir tryggja að rússnesk olíufélög
fái að vinna 70 milljarða tunna úr
lindum sem eru auðugri en helm-
ingur þeirrar olíu sem vitað er um
í rússneskri jörð. Hér skulum við
muna að Síbería er hluti af Rúss-
landi.
Hér er mikið í húfi. Auk þess
sem írakar skulda Rússum 7 millj-
jarða dollara eru samningar um
olíuvinnslu og gagnkvæm við-
skipti í uppnámi verði stjómin í
Bagdað hrakin frá völdum. En
haldi Rússar rétt á spilunum geta
þeir haldið sínum góðu viðskipta-
samböndum í herteknu írak. Gall-
inn er aðeins sá að enginn veit
hverjir verða raunverulegir
stjórnarherrar þar eftir að
Saddam verður hrakinn frá völd-
um eða jafnvel hvort landið verð-
ur ein ríkisheild eða fleiri. Ekki er
einu sinni vitað hvernig Tyrkland
verður í laginu eftir að hafa tekið
þátt í innrás í lönd Kúrda í írak.
Þegar farið verður að dæla af
krafti úr írösku olíubrunnunum
mun heimsverðið lækka verulega,
Vesturlandabúum til hagsbóta.
Öðru máli gegnir um Rússa. 40%
af útflutningstekjum þeirra eru af
olíuviðskiptum. Ef olían lækkar
verulega í verði skerðir það út-
flutningsverðmætið og þjóðartekj-
urnar hrapa og hefur það alvarleg-
ar afleiðingar í fór með sér fyrir
efnahag Rússa sem er smám sam-
an að skána eftir ránið á ríkis-
eignum og fyrirtækjum sem kall-
að er einkavæðing.
Það er því mikið í húfi fyrir
Pútín hvemig til tekst að skipta
um stjórnarfar í írak og hvemig
sem það fer er Rússum mikil
nauðsyn að vera þátttakendur í að
móta nýtt samfélag þar og vemda
sina miklu viðskiptahagsmuni.
Þegar allt kemur til alls skiptir
lýðræðisástin ekki svo miklu máli
þegar olían er annars vegar, enda
er miklu meira af dýrmætri olíu á
umdeildu svæði en lýðræði og al-
mennum mannréttindum, sem yf-
irleitt eru af skomum skammti í
stórum hluta heimsins.
(Heiinild: Weekendavisen)
Trukkar bíða
Hér sjást vörubílar frá Tyrklandi með olíu frá írak í langri röð til að komast til
Tyrklands. Bílstjórar segja að þaö taki allt upp í 10 daga að feröast 130
kílómetra sökum umferöarhnúta og vandamála í tollstöðvum.
\u 10
Gullkúnst á 10
ára afmæli
9 c;0/n afsláttur
“■ ^ frá 26. feb. - 4. marz
Gullsmiðja Helgu
Laugavegi 45 • sími 561 6660
yogur
Fmroþú
Fvrtlsivínm
MasterCard?
8-15%
verðlækkun
Hlíöasmára 15 • Sími 535 2100
Uniboðsmenn Borgarnes ísafjördur Akureyri Egilsstadir Selfoss Vestmannaeyjar Keflavik
umalltland: Sími 437 1040 Sími 456 5111 Sími 460 0600 Sími 471 2000 Sími 482 1666 Simi 481 1450 Sími 420 6000
www.plusferdir. is
FERÐIR
Ekki bíða -
allt að seljast upp!
Verðdœmi SpariPlus
53.980
Ef tveir ferðast saman. 67.970 kr. á mann
Portugal
47.267
Ef tveir ferðast saman, 69.355 kr. a mann
Mallorca
43.140
Ef tveir ferðast saman, 54.530 kr. a mann
44.340
Ef tveir ferðast saman, 63.730 kr. a mann
* á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn,
2ja -11 ára, ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í tvær vikur,
íslensk fararstjórn, ferðir til og frá
flugvelli erlendis og allir flugvallar-
skattar.