Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Page 18
! /*42
Skoðun
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
3DV
Hugvallarskanarnir
tekiur ríkissióðs
Gunnar Olafsson
skrifar:
I umræðunni þessa dagana er
mikið talað um flugvallaskatta.
Þá er vert að íhuga eftirfarandi:
Þegar Flugleiðir selja flugfar-
seðil innheimta þær svokallaða
flugvallaskatta, vopnaleitargjöld
og svokallað „terminal facility
fee“ (gjald sem farþegar þurfa aö
greiða fyrir að ganga í gegnum
flugstöðina - sumir vilja kalla
þetta húsaleigu). Öll gjöld sem
eru eymamerkt íslenska ríkinu
og ættu því með réttu alfarið að
vera tekjur ríkissjóðs sem síðan
eiga að renna til reksturs flug-
valla, flugstöðvarinnar o.s.frv. En
málið er ekki alveg svo einfalt.
„Verði Iceland Express
skilgreint sem flugfélag
á það samkvœmt þessu
rétt á endurgreiðslu vsk.
af öllum rekstrarkostn-
aði á íslandi. Verði
Flugmálastjórn Innhelmtlr eftir fluttum farþegum.
- Fjöldi farseöla aldrei notaöur.
Iceland Express skil-
greint sem ferðaskrif-
stofa þarf félagið að bera
allan innskatt af
rekstrarkostnaði. “
Flugmálastjórn innheimtir um-
rædd gjöld hjá Flugleiðum eftir
fluttum farþegum (úr tölum sem
Flugleiðir sjálfar gefa upp). Gott
og vel. Vitað er að ijöldinn állur
af farseðlum er aldrei notaður,
m.a. vegna þess að í mörgum til-
vikum er hagkvæmara að kaupa
báðar leiðir og henda hluta af far-
seðlinum heldur en að kaupa að-
eins aðra leiöina. í ársuppgjöri
LA í kröggum.
*
r
}■
Sameinum ieMiúsin
Jóhannes skrifar frá Akureyri:
Enn syrtir í álinn hjá Leikfé-
lagi Akureyrar. Nú er búið að
segja starfsfólki LA upp störf-
um og engir samningar við Ak-
ureyrarbæ. Ekki er nein trygg-
ing fyrir því að bærinn semji
um áframhaldandi ijárframlög
til leikfélagsins. Satt að segja
þykir mér nóg komið af þess-
um vandræðagangi með LA. Og
víst er þetta byrði á okkur
skattborgumum hér. Því segi
ég bestu lausnina þá að starf-
semi þessari verði hætt í eitt
skipti fyrir öll og Þjóðleikhúsið
(leikhús okkar landsmanna
allra - líkt og höfuðborginn er
höfuðborg okkar allra) sendi
sínar sýningar hingað til upp-
færslu eftir að þeim lýkur
syðra. Þetta yrði í alla staði
ódýrara - og hefur verið gert
margsinnis, svo fordæmin eru
fyrir hendi. Með þessu móti
fengjum við hér líka meiri fjöl-
breytni í afþreyinguna.
Flugleiða voru a.m.k. 10 milljónir
tekjufærðar vegna flugvallaskatta
á íslandi sem innheimtir voru og
safnast haföi í sjóð vegna skatts á
ónotaða farseðla.
Sama gildir líklega um flug-
vallaskatta í öðrum löndum.
Hugsanlegt er að þar sé sköttum
skilað m.v. sölu farseðla en ekki
notkun. Athyglisvert væri að
velta þessu upp og vekja athygli á
þessum stuðningi ríkisins til ráð-
andi fyrirtækis á markaðinum.
Annað mál sem vert er að
skoða er mismunun milli tveggja
aðila í samkeppni með sömu
vöru/þjónustu. Annað félagið er
rekið sem flugfélag og hitt sem
ferðaskrifstofa. Er hér verið að
skírskota til nýtilkominnar sam-
keppni Iceland Express við Flug-
leiöir.
Má þar nefna að ef félagið er
flugfélag þá fær það allan inn-
skatt af rekstrarkostnaði hér á
landi endurgreiddan en ef félagið
er rekið sem ferðaskrifstofa þá
lendir félagið í því að bera virðis-
aukann þannig að kostnaður sem
fellur til á íslandi er 24,5% hærri
en af rekstri sömu eininga hjá
flugfélagi.
Til frekari útskýringar á þessu
má nefna dæmi: Flugleiðir hf. fá
t.d. allan innskatt vegna reksturs
söluskrifstofa og markaðsstarfs á
íslandi endurgreiddan. Ferða-
skrifstofur sem selja ferðir (oft á
tíðum sömu ferðirnar) fá þennan
mnrædda virðisauka ekki endur-
greiddan og þurfa að bera skatt-
inn.
Verði Iceland Express skil-
greint sem flugfélag á það sam-
kvæmt þessu rétt á endurgreiðslu
vsk. af öllum rekstrarkostnaði á
íslandi. Verði Iceland Express
skilgreint sem ferðaskrifstofa
þarf félagið að bera allan innskatt
af rekstrarkostnaði.
Bara þetta eina atriði skiptir
gífurlegu máli varðandi sam-
keppnislegar forsendur hins nýja
félags. Þetta mál er þess eðlis að
nauðsynlegt er að fá það í um-
ræðuna.
Sanngirni Ómars sannfærandi
Baráttunnl um Kárahnjúka er enn ekkl lokiö. Og fram undan er mörg orrustan...
Sjónvarpsmynd
Ómars Ragnarsson-
ar um þjóðgarða og
virkjanir var
áhrifarík. Ég hef
þegar hitt fólk sem
segist hreinlega
hafa snúist í af-
stöðu til fyrirhug-
aðra virkjana við
Kárahnjúka vegna
myndarinnar.
Hvers vegna? Svörin hafa ekki lát-
ið á sér standa.
í myndinni var á yfirvegaðan
hátt sýnt fram á hver munur er á
afturkræfri röskun á náttúrunni
og óafturkræfum náttúruspjöllum.
Hið síðara á við um Kárahnjúka-
virkjun. Lónið sem myndast við
virkjunina mun fyllast upp, gróð-
ureyðing hlýst af og breytingarnar
sem verða á landinu verða ekki aft-
ur teknar. Þá er ljóst að þegar jök-
ulá sem ber með sér 10 milljónir
tonna af aur á ári er veitt í annan
farveg þá mun það hafa verulegar
afleiðingar í för með sér bæði á því
svæði sem fljótið áður rann um og
einnig í hinum nýja farvegi. Þetta
segir sig sjálft.
En fyrst þarf að upplýsa okkur
um þessar staðreyndir og einmitt
það gerði Ómar. Þetta gerði hann á
mjög faglega vísu og af sanngirni.
Hann heimsótti virkjanir og þjóö-
garða vestan hafs og austan. Hann
íjallaði einnig um þá hugarfars-
breytingu sem orðið hefur í heim-
inum á síðustu þremur áratugum.
Fram kom að virkjanastefna ís-
lendinga myndi hvorki ganga upp í
„Eitt það merkilegasta
sem verður Ijóst af mynd-
inni er einmitt að við-
horf andstœðinga Kára-
hnjúkavirkjunar mótast
hvorki af illvilja í garð
Austfirðinga né af því að
þetta séu kverúlantar á
„móti öllu“.“
Bandaríkjunum, í Noregi né hér á
landi væru sömu viðhorfin til nátt-
úrunnar ráðandi hér.
Eitt það merkilegasta sem verð-
ur ljóst af myndinni er einmitt að
viðhorf andstæðinga Kárahnjúka-
virkjunar mótast hvorki af illvilja í
garð Austfirðinga né af því að
þetta séu kverúlantar á „móti
öllu“. Þvert á móti eru þessi við-
horf í takt við viðteknar venjur og
skoðanir í þróuðum rikjum. Það,
ásamt því að sjá með eigin augum
hversu víðfeðm, einstök og ægifog-
ur landsvæði eiga að fara undir
vatn svo þjóna megi stóriðjukosn-
ingaloforðum Framsóknar og Sjálf-
stæðisflokks, eru helstu uppgötv-
anirnar sem hinn almenni áhorf-
andi myndar Ómars gerir með
sjálfum sér.
Þessar uppgötvanir eiga vonandi
eftir að verða til þess að fleiri eigi
eftir að snúast á sveif með náttúr-
unni og þeim sem leggja sig fram
um að verja hana.
Baráttunni um Kárahnjúka er
enn ekki lokið og fram undan er
mörg orrustan á meðan stjórn-
málamenn á atkvæðaveiðum og
verkfræðingar sem hafa starf af að
byggja sem stærstar virkjanir og
göng fá að ráða. En þegar þjóðin
hefur gert sínar eigin uppgötvanir
þá eru þeirra dagar liðnir. Von-
andi hafa ekki orðið fleiri óaftur-
kræf stórslys í náttúrunni áður en
að því kemur.
Ogrnundur
Jónasson
alþingismaöur
skrifar:
Þýska fjármálakerflð í kreppu.
Þýskaland í kreppu
Magnús Sigurðsson skrifar:
Það ætlar ekki að ganga
þrautalaust fyrir Þjóðverja að
komast yflr lækinn eftir að
Helmut Kohl var bolað burt úr
stjómmálunum og krataflokkur-
inn tók við stjórninni. Allt hefur
bókstaflega gengið á afturfótun-
um undir stjórn Shcröders kansl-
ara og græningjanna. Og nú er
þýska bankakerfið að komast í
þrot. Ríkið er þess varla umkom-
ið að bjarga meira en jafnvirði
4.000 milljarða ísl. króna sem
þýska bankakerfið skuldar nú.
Og til viðbótar er Þýskaland með
kanslarann í fararboddi á góðri
leið með að kljúfa Evrópu í sam-
stöðunni um vestræna samvinnu
við Bandaríkin. Það er ömurlegt
hlutskipti sem Evrópu bíður
þessa stundina. En gjáin hefur
þegar opnast, og lokast vart úr
þessu.
Frá Akranesl.
Akranesíerju á ný
íbúi á Akranesi sknfar
Menn eru að tala um ný sér-
göng samhliða Hvalfjarðargöng-
unum eða að tvöfalda hluta gang-
anna til að koma til móts við um-
ferðarþunga í þeim. Allt yrði
þetta mikið klúður og reyndar
mun ekkert verða af þessu í ná-
inni framtíð. Við íbúar hér á
Akranesi finnum hins vegar mik-
ið fyrir því og höfum óþægindi af
að ekki skuli vera skip í sigling-
um milli Akraness og Reykjavík-
ur. Ný Akranesferja er það sem
myndi létta umferðarþungann í
Hvalfj arðargöngum, auk þess sem
við fengjum til okkar umferð
ferðafólks allt árið, og þó sérstak-
lega á sumrin. Hér hefur ekki
sést ferðamaður síðan Akraborg-
in var tekin af okkur. - Flutning-
ar með fólk og bíla á ferju er það
sem okkur vantar.
Stríðsþekking landans
Baldur Sigurðsson skrifar:
Ég furða mig á því hve íslend-
ingar virðast sólgnir í að tjá sig
um stríðsrekstur og allt sem við-
kemur vopnum, vörnum og al-
þjóðamálum. Þjóð sem ekki vill
vita af þessum málum í hinu orð-
inu og hefur aldrei haft áhuga á
að verja sjálfa sig heldur legið
upp á Bandarikjamönnum í því
efni. Viðmælendur í útvarpsþátt-
um á öllum útvarpsstöðvum eru
uppfullir af visku um þessi efni
og verða aðhlátursefni fyrir vik-
ið. - Stríðsþekking er viröingar-
verð, en samræmist ekki friðar-
hjali sjakalanna.
IEW Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Skaftahlíð 24, 105 Reykfavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.