Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003 DV Tilvera * Spurning dagsins Hver er íslenska uppáhaldshljómsveitin þín? María Sif Guömundsdóttir, 13 ára: írafár. Sigríöur Arnfjörö Olafsdóttir, 12 ára: / svörtum fötum. Aslaug Marin Jóhannsdóttir, 12 ára: Sálin. Elín Lovísa Elíasdóttir, 12 ára: Sálin. Kristrún Úlfarsdóttir, 12 ára: Quarashi. Hlynur Júlíusson, 12 ára: Quarashi. Stjömuspá Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.): . í dag gætu ólíklegustu ^ aðilar loksins náð samkomulagi um mikilvæg málefni og þannig auðveldað framkvæmdir á ákveðnu sviði. Fiskarnir (19. febr.-20. mars): Þú átt skemmtilegar Isamræður við fólk og dagurinn einkennist | af samstöðu milli samstarfsaðila. Happatölur þínar eru 3, 24 og 36. Hrúturinn I2t. mars-19. aprill: . Þú ert að velta ein- 'hverju alvarlega fyrir þér og það gæti dregið athygli þína frá því sem þú ert að vinna að. Ef þig skortir einbeitingu ættir þú að hvíla þig. Nautið 170. anril-20. maít: / Fyrri hluti dagsins kemur þér á óvart. Þú þarft að glima við óvenjulegt vandamál. Þú verður þreyttur í kvöld og ættir að taka það rólega. Tvíburarnir (21. maí-21, iúní): V Vertu þolinmóður þó að þér finnist —/ I vinna annarra ganga of hægt. Það væri góð hugmynd að hitta vini í kvöld. Krabbinn /22. iúní-22. iúií): Reyndu að halda þig | við áætlanir þínar og vera skipulagður. Þér bjóðast góð tækifæri í vinnunni og er mn að gera að grfpa gæsina á meðan hún gefst. mm fyrir þridjudaginn 4. mars tjónia 123,. iú.lí- 22, ágýgt): , Fréttir sem þú færð eru ákaflega ánægjulegar fyrir þig og þína nánustu. Hætta er á smávægilegum deilum seinni hluta dagsins. Mevian (23. áeúst-22. seot.l: Viðbrögð þín við þvi sem Þér er sagt eru 'PLmikilvæg. Ekki vera ’ ’ of gagnrýninn það gæti valdið misskilningi. Happatölur þínar eru 9, 16 og 43. Vogin (23. sept.-23. okt.): J Dagurinn verður viðburðaríkur og þú V Æ.. hefur meira en nóg ' f að gera. Gættu þess að vera ekki of tortrygginn. Happatölur þínar eru 1, 5 og 37. Sporðdrekinn (?4. okt.-?i. nnv.t: Þú þarft að einbeita þér að einkamálunum >og rækta samband þitt við manneskju sem þú ert að fjarlægjast. Kvöldið verður ánægjulegt. BogmaÖUrinn 122. nnv-21. des.l: ■Eitthvað sem þú vinnur rað um þessar mundir gæti valdið þér hugarangri. Taktu þér góðan tíma í að íhuga hvað gera skal. Þú færð bráðlega góðar fréttir. Steingeitin (22. des.-19. ian.): ^ Ekki taka mark á fólki sem er neikvætt “Jfj og svartsýnt. Dagurinn verður skemmtilegri en þú bjóst við, sérstaklega seinni hluti hans. Lárétt: 1 kássa, 4 hvatning, 7 glufa, 8 spil, 10 varga, 12 fálm, 13 stefna, 14 fuglinn, 15 ellegar, 16 hangs, 18 fljót, 21 krap, 22 jafningi, 23 heiður. Lóðrétt: 1 jarðsprunga, 2 elska, 3 geð, 4 gimbils, 5 kostur, 6 spil, 9 veiðarfæri, 11 froða, 16 er, 17 beiðni, 19 hápípa, 20 bleyta. Lausn neöst á síöunni. k m 1 fk 1 A A S Hvítur á lcik! Suður á Spáni elda helstu skák- kappar ver- aldar grátt silfur saman. Hver er mest- ur, hver er bestur? AUt eru þetta spumingar sem fljúga um víðan vöfl og vist er að þeir sem þama sitja að tafli hafa aflir sína útgáfuna hver á hreinu þó ekki láti þeir aflir hugsanir sínar uppi! En þeir Kaspi og Pono eiga að tefla einvígi saman um það hvor þeirra eigi að mæta sigurvegurunum úr einvíginu Kramnik - Leko sem þama era að tafli líka. Hvemig það fer allt saman komumst við að síðar en þaö er nokkuð víst aö FIDE-heimsmeistarinn mmwm Umsjón: Sævar Bjamason hefur lítið aö gera í „Numero uno“ um þessar mundir! Hvítt: Gary Kasparov (2847) Svart: Ruslan Ponomariov (2734) Katalónsk byrjun. Linares Spáni (5), 27.02. 2003 1. Rf3 RfB 2. d4 e6 3. g3 b6 4. Bg2 Bb7 5. c4 Be7 6. Rc3 Re4 7. Bd2 Bf6 8. 0-0 0-0 9. Hcl d5 10. cxd5 exd5 11. Bf4 Rxc3 12. bxc3 Ra6 13. e4 dxe4 14. Rd2 g5 15. Be3 He8 16. f4 exf3 17. Bxf3 Bd5 18. Bxd5 Dxd5 19. Hxf6 Hxe3 20. Dg4 He6 21. Hf5 Dc6 22. Dxg5+ Hg6 23. Dh5 HfB 24. Rf3 f6 25. Rh4 Hg7 26. Dh6 Rb8 27. Hh5 f5 28. Df4 De4 29. Hfl Dxf4 30. Hxf4 Hg4 (Stöðumyndin) 31. Hfxf5 Rd7 32. HxfB+ RxfB 33. Kf2 Rd7 34. Rf5 Kh8 35. Kf3 Hg8 36. Hh6 Hf8 37. g4 Rf6 38. c4 Kg8 39. Kf4 Hf7 40. g5 Re8 41. Ke5 Hd7 42. Ke6 Hf7 43. Hf6 Rxf6 1-0 Kannast ekki við Söng- og leikkonan Jennifer Lopez segir það bölvað kjaftæði að hún hafi tryggt sérstaklega á sér bossann og fætuma eins og fram hefur komið í fréttum slúð- urblaðanna. „Þetta er algjört kjaftæði," sagði Lopez i sjónvarpsviðtali um helgina og var hin pirraðasta yfir meintu kjaftæði. Hún sagðist þó oft hafa gaman af því að lesa kjaftasögurnar sem skrifaðar eru um hana en stundum pirri þær hana eins og í þessu tilfelli. „Verst er þó þegar skáldaðar eru heilu sögurnar af fyrri sam- böndum og einhverju sem aldrei hefur gerst. Það getur sært aðra og komið af stað alls konar leið- indum. Hlutimir em slitnir úr samhengi og allt gert sem æsileg- ast. En maður venst þessu eins og öðm og reynir frekar að hafa gaman af því,“ sagði Lopez. Myndasögur Dagfari Grunsamleg viðkvæmni í brjósti mínu bærast þær tiifmningar að þykja gjarnan vænt um þá sem skamma mig opinberlega fyrir mein- ingar sem ég sett fram. Séu viðbrögð einhver verð ég yfir- leitt sannfærðari um að ég hafi haft rétt fyrir mér. Að sama skapi telji þeir sem í hlut eiga mig vera mislukk- aðan mann með sjúklegan þankagang. Um það hver hafi rétt fyrir sér ætla ég ekki að dæma. Enginn er dómari í eigin sök og endanlegur sann- leikur lífsins verður seint fundinn. Sérkennileg viðkvæmni er farin að há eðlilegri þjóðfélagsum- ræðu á íslandi. Gagnrýni á rann- sóknaraðferðir Hafró þykir goðgá - því með því móti sé vegið að vís- indaheiðri fiskifræðinga. Háskóla- kennarar telja þau sjónarmið að pólitískar skoðanir þeirra ráði í rannsóknarniðurstöðum árásir á sig. Sumir telja að vegið sé að starfsheiðri skattmanna landsins vegna umræðna um rassíur þeirra, svo sem í ranni Norðurljósa. Nú síðast hrukku lögreglumenn lands- ins upp af standinum vegna Borgar- nesræðu Ingibjargar Sólrúnar og segja að kannanir leiði í ljós að þeir njóti trausts alþjóðar og frábiðja sér að vera dregnir inn í pólitíska um- ræðu. Fleiri stéttir má nefna. Sjónarmið þeirra sem verða fyrir gagnrýni eru að þeir gegni störfum sinum af óhlutdrægni. Við skulum líka vona svo sé. En hin sjúkleg viðkvæmni er hins vegar orðin grunsamleg. Er ekki fint að mál- efni þessara stétta séu tekin til þjóðfélagslegrar umræðu? Hún mun líka væntanlega leiða í ljós að lögregluþjónar, háskólamenn, fiski- fræðingar og fleiri séu vammlausir menn sem vinni eftir bókstafnum en ekki hentistefnu - eða taki þátt í hráskinnaleik líðandi stundar. Sigurður Bogi Sævarsson blaöamaöur Ég er kominr heim frá París. iSb 05 ‘oqo 61 ‘>[so L\ ‘uias 91 ‘QtiBJj 11 ‘noj) 6 ‘BIJ 9 ‘IBA fi ‘squrepnjq ) ‘pjajdEqs g ‘jsb z ‘b(3 i :pajQQq •iuios zz ‘iqBUi zz ‘QQBIS iz ‘bqoui 81 ‘JO(S 91 ‘BQ3 SI ‘UBOI H ‘Jjoq EI ‘)Bd Z\ ‘BJin 01 ‘B))B 8 ‘BJoqs z ‘)OAq p ‘se[S 1 :))ajpq

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.