Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Blaðsíða 26
50
* Islendingaþættir
Urnsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
MÁNUDAGUR 3. MARS 2003
DV
Fólk í fréttum
Atl Heimir Sveinsson
tónskáld og tónlistarkennari í Reykjavík
90 #ra______________________________
Gróa Svava Helgadóttlr,
Dalbraut 27, Reykjavík.
- Herbert S. Slgurjónsson,
Fannafold 148, Reykjavík.
95 érg_____________________________
Björg Þorkelsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Guölaug Pálsdóttir,
Hlíöarhúsum 7, Reykjavík.
Valborg Guörún Eiríksdóttir,
Þórufelli 14, Reykjavík.
I 80 ára_______________________________
Margrét Guöjónsdóttlr,
Dalsmynni 1, Borgarnesi.
Marinó Slgurbjörnsson,
Heiöarvegi 12, Reyðarfiröi.
Pétur Krlstjánsson,
Suöurgötu 12, Keflavík.
75 ára_____________________________
Fanney Magnúsdóttlr,
Noröurbrún 1, Reykjavík.
Gíslína Þórarinsdóttir,
Litlageröi 14, Reykjavík.
Guörún Jónsdóttlr,
Skólavegi 36a, Fáskrúösfiröi.
Hreinn Kristjánsson,
Hríshóli, Akureyri.
Margrét Randversdóttir,
Glerárgötu 16, Akureyri.
Ragna Karlsdóttir,
Ólafsvegi 47, Ólafsfirði.
, 70 ára______________________________
9 Auöur Vordís Jónsdóttir,
Gullsmára 11, Kópavogi.
60 ára_____________________________
Anna Soffía E. Björnsdóttir,
Karlsrauöatorgi 10, Dalvík.
Bjarni H. Baldursson,
Foldahrauni 38h, Vestmannaeyjum.
Sigríður Bragadóttir,
Ólafsgeisla 4, Reykjavík.
Sigurður Arnþórsson,
Vöröu 17, Djúpavogi.
Sjöfn Stefánsdóttir,
, Aðalgötu 24, Siglufirði.
Þóröur Vilhjálmsson,
Hrísholti 4, Garðabæ.
Atli Heimir Sveinsson, tónskáld
og tónlistarkennari, er höfundur
tónverksins Doloroso sem flutt var
af Sinfóníuhljómsveit íslands í Há-
skólabíói sl. funmtudagskvöld.
Verkið var samið í minningu Guð-
rúnar Katrínar Þorbergsdóttur for-
setafrúar.
Starfsferill
Atli fæddist í Reykjavik 21.9. 1938
og ólst þar upp. Hann stundaði nám
í píanóleik við Tónlistarskólann hjá
Rögnvaldi Sigurjónssyni, lauk stúd-
entsprófi frá MR 1958, prófl í for-
spjaúsvísindum við HÍ 1959, lauk
lokaprófi í tónsmíðum og tónfræði
frá Staatliche Hochschule fúr Musik
í Köln 1963, nam raftónlist við Raf-
tónverið í Bilthoven í Holiandi 1964
og sótti Kölner Kurse fúr Neue
Musik 1965.
Atli var tónlistarkennari við MR
1968-77 og hefur verið tónlistar-
kennari í tónsmíðum og tónfræðum
við Tónlistarskólann í Reykjavík
frá 1977.
Atli hefur annast tónlistarþætti
fyrir Ríkisútvarpið öðru hverju um
árabil frá 1971. Hann var gestapró-
fessor við Brown-Univerity,
Providence í Rhode Islande i Banda-
ríkjunum 2002.
Atli var formaður Tónskáldafé-
lags íslands 1972-83, formaður Nor-
ræna tónskáldaráðsins 1974-76, sat
í stjórn Bandalags íslenskra lista-
manna um skeið, sat í stjórn lista-
hátíðar, sat í dómnefnd
Intemational Society for
Contemporary Music 1973, Nor-
rænna músíkdaga 1974 og Inter-
national Gaudeamus Competition
1978. Atli hlaut tónlistarverðlaun
Norðurlanda 1976 og LAordre du
merite culturel frá Póllandi 1978.
Atli er í hópi virtustu tónskálda
hér á landi. Hann hefur samið fjölda
tónverka, s.s. einleikskonserta,
hljómsveitarverk, kammerverk og
einleiksverk. Þá hefur hann samið
tónlist fyrir leikhús. Meðal helstu
tónverka hans má nefna: Hlými, fyr-
ir kammersveit, 1969: Tengsl, fyrir
stóra hljómsveit, 1970: Könnun, fyr-
ir lágfiðlu og hljómsveit, 1972:
Flower shower, fyrir stóra hljóm-
sveit, 1974: Trobar clus, fyrir fagott
og hljómsveit, 1980, óperuna Silki-
trommuna, 1980; og Sjónvarpsóper-
una, óperu við Vikivaka eftir Gunn-
ar Gunnarsson.
Fjölskylda
Fyrri kona Atla var Sigríður
Hanna Sigurbjörnsdóttir, f. 24.10.
1943, tækniteiknari. Þau skildu.
Synir Atla og Sigríðar Hönnu eru
Teitur, f. 23.3. 1969, starfsmaður á
auglýsingadeild DV og er dóttir
hans Auður, f. 2.6. 1998; Auðunn, f.
4.2. 1971, sendiráðsfulltrúi í Was-
hington DC en kona hans er Sigríð-
ur Ragna Jónsdóttir og er sonur
þeirra Illugi, f. 17.3. 1992.
Seinni kona Atla var Ingibjörg
Bjömsdóttir, f. 26.9. 1943, stjóm-
málafræðingur og kennari. Þau
skildu.
Systir Atla er Ingibjörg Sveins-
dóttir, f. 23.1.1944, snyrtisérfræðing-
ur, ekkja eftir Friedel Kötterhein-
rich tæknifræðing og eignuðust þau
tvö börn.
Foreldrar Atla: Sveinn Þórðar-
son, f. 22.8. 1898, d. 21.11. 1982, aðal-
féhirðir Búnaðarbankans, og k.h.,
Kristín Guðmundsdóttir, f. 14.9.
1909, nú látin, húsmóðir.
Ætt
Sveinn var sonur Þórðar Breið-
Qörðs, verkamanns og sjómanns í
Reykjavík, og Ingibjargar Sveins-
dóttur. Bróðir Þórðar var Pétur, afi
Péturs Lútherssonar arkitekts. Ann-
ar bróðir Þórðar var Gísli, b. og
oddviti á Ölkeldu í Staðarsveit.
Systir Þórðar var Kristín, föður-
amma Kristins Ólafssonar toll-
gæslustjóra. Þórður var sonur Þórð-
ar Gíslasonar, b. í Ytri-Tungu i
Staðarsveit. Foreldrar Kristínar
voru Guðmundur Bergsteinsson,
kaupmaður og útgerðarmaður í
Flatey á Breiðafirði, og Guðrún Jón-
ína Eyjólfsdóttir. Guðmundur var
sonur Bergsteins, söðlasmiðs á Eyr-
arbakka Jónssonar, b. og alþm. á
Eyvindarmúla í Fljótshlíð, og Krist-
ínar Guðmundsdóttur, pr. á Borg á
Mýrum Bjarnasonar. Kristín var
sammæðra hálfsystir Jóns Sveins-
sonar, Nonna. Bróðir Guðrúnar var
Ólafur, skólastjóri VÍ. Guðrún var
dóttir Eyjólfs, b. og kaupmanns í
Flatey Jóhannssonar, b. I Svefneyj-
um, Eyjólfssonar eyjajarls, alþm. og
dbrm. I Svefneyjum Einarssonar.
Móðir Guðrúnar var Sigurborg
Ólafsdóttir frá Bár í Grundarfirði.
Móðir Jóhanns var Guðrún Jó-
hannsdóttir, pr. í Garpsdal Berg-
sveinssonar.
50 ára__________________________
Magnús Jónsson,
Reyrhaga 7, Selfossi.
Margrét Guömundsdóttir,
Baðsvöllum 11, Grindavík.
Rósa Bachmann,
Sólbrekku 17, Húsavík.
Sigurbjörn Júlíus Hallsson,
Heiöarbakka 7, Keflavik.
Sumarliöl Guöbjartur Bogason,
Lágholti 15, Stykkishólmi.
Waidemar Kazimierz Darecki,
Þórufelli 6, Reykjavík.
40 ára__________________________
't Andrés Skúlason,
Borgarlandi 15, Djúpavogi.
Anný Helena Bjarnadóttlr,
Krummahólum 2, Reykjavík.
Árnl Geir Pálsson,
Mávahlíö 31, Reykjavík.
Erna Högnadóttir,
Vindhæli, Skagaströnd.
Guöný Hallgrimsdóttir,
Stallaseli 8, Reykjavík.
Guörún Ólafsdóttir,
Árholti, Mosfellsbæ.
Hafsteinn Kristinsson,
Fjaröarbraut 57, Stöðvarfirði.
Helga Steinunn Þorbjarnardóttir,
Hlíöarvegi 26, Kópavogi.
Jón Garöar Þórarinsson,
Gautavík 3, Reykjavík.
Jónína S. Þorbjarnardóttir,
t Hvammi, Hrísey.
Kristinn Frlöriksson,
Vesturbergi 52, Reykjavík.
Maria Hlinadóttlr,
Safamýri 29, Reykjavík.
Nikulás Krlstinn Jónsson,
Mánalind 1, Kópavogi.
Slgvaldi Björgvinsson,
Vesturási 8, Reykjavík.
Valgeröur Guðmundsdóttlr,
Gnoðarvogi 14, Reykjavík.
Vilhelm Örn Ottesen,
Hátúni 4, Bessastaðahreppi.
Smáauglýsingar
DV
550 5000
Sigurður Sigurðsson
símsmíðameistari á Húsavík
Sigurður Sigurðsson símsmíða-
meistari, Laugarholti 3b, Húsavík,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Þórhöfn á
Langanesi en ólst upp á Húsavík.
Hann byrjaði ungur á sjó og stund-
aði sjómennsku til 1983. Þá hóf
hann störf hjá Pósti og síma á Húsa-
vík. Hann fór í símsmíðanám 1987
og varö símsmíðameistari 1989. Sig-
urður starfar nú hjá Landsímanum
á Húsavík
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 17.10. 1964
Hjördísi Bjamadóttur, f. 25.7. 1945,
starfsmanni á dvalarheimili aldr-
aðra á Húsavík. Hún er dóttir
Bjama Helgasonar, f. 27.10. 1919, d.
26.10. 1999, vélstjóra í Garði, og El-
ísabetar Þórhallsdóttur, f. 15.1. 1917,
d. 26.2. 2003, húsmóður.
Böm Sigurðar og Hjördísar eru
Lára Sigþrúður Sigurðardóttir, f.
28.4.1963, starfsmaður Norðlenska á
Húsavik, búsett á Húsavík en mað-
ur hennar er Sturla Þorgrímsson, f.
10.1. 1955, sjómaður og eru börn
þeirra Sigurður Þór Sturluson, f.
2.9. 1983, Hjördís Sturludóttir, f.
10.11. 1987, og Bjami Þór Sturluson,
f. 31.12. 1996; Elísabet Sigurðardótt-
ir, f. 5.7. 1964, verkakona á Húsavík
en maður hennar er Jósef Matthías-
son, f. 23.7. 1962, og em böm þeirra
Valgerður Jósefsdóttir, f. 8.6. 1984,
og er maður hennar Hafliði Hjalta-
lín Ingólfsson, f. 12.2. 1980, fiskiðn-
aðarmaður á Húsavík og þau eiga
eina dóttur, Hafdísi Hjaltalin Haf-
liðadóttir, f. 18.1. 2003, Sigdór Jósefs-
son, f. 10.4. 1987, Valdís Jósefsdóttir,
f. 3.1. 1985; Guðríður Sigurðardóttir
f. 10.11. 1965, nemi við HA, búsett á
Akureyri og eru böm hennar Eva
Dís Hákonardóttir, f. 23.11. 1992, og
Aron Elvar Finnsson, f. 28.8. 1997;
Sóley Sigurðardóttir, f. 21.8. 1972,
íþróttakennari í Borgarhólsskóla á
Húsavík, búsett á Húsavík en mað-
ur hennar er Ingvar Berg Dagbjarts-
son, f. 8.6. 1973, kjötiðnaðarmaður
hjá Norðlenska á Húsavik og eru
börn þeirra Dagbjört Ingvarsdóttir,
f. 3.5. 1996, og Amhildur Ingvars-
dóttir, f. 22.3. 2000.
Systkini Sigurðar voru sjö en tvö
systkini hans era látin.
Foreldrar Sigurður voru Sigurð-
ur Sigurðsson, f. 17.10. 1914, d. 24.8.
1983, skósmiður og bókbindari, og
Lára Sigþrúður Sigurðardóttir, f.
12.9. 1918, d. 20.1. 2002, verkakona á
Húsavík.
Sigurður verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Fertugur
Helgi Haraldsson
tæknifræöingur og umdæmisstjóri á Akureyri
Helgi Haraldsson tæknifræðing-
ur, umdæmisstjóri Vinnueftirlits-
ins, Ránargötu 6, Akureyri, er fer-
tugur í dag.
Starfsferill
Helgi lauk sveinsprófi í Ketil- og
plötusmíði í Slippstöðinni á Akur-
eyri 1982, lauk stúdentsprófi frá
raungreinadeild TÍ 1984 og prófi í
rekstrartæknifræði frá Odense
Teknikum í Danmörku 1987.
Helgi hefur starfað hjá Vinnueft-
irlitinu sl. fimmtán ár, fyrst sem
umdæmistæknifræðingur en frá
1991 sem umdæmisstjóri i Norður-
landsumdæmi eystra.
Helgi hefur jafnframt stundað
kennslu, m.a. sem stundakennari
við VMA og HAi.
Helgi situr í stjóra Norðurlands-
deildar Tæknifræðingafélagsins og i
stjóm Neytendasamtakanna. Hann
er einnig í íslensku friðargæslunni.
Fjölskylda
Eiginkona Helga er G. Greta
Benjamínsdóttir, f. 24.11. 1963, leik-
skólakennari. Foreldrar hennar
eru Ebba Guðrún Eggertsdóttir, f.
21.4. 1935, húsmóðir á Akureyri, og
Benjamín Ármannsson, f. 6.11. 1925,
d. 26.7.1980, rafvirkjameistari.
Böm Helga og Gretu eru Herdís,
f. 1990; Haraldur, f. 1992.
Systur Helga eru Kristín, f. 14.2.
1959, snyrtifræðingur í Garðabæ en
maður hennar er Magnús Ragnar
Bjamarson prentari og eiga þau
þrjú böm; Hrafnhildur, f. 29.5. 1965,
matráðskona á Akureyri en maður
hennar er Áskell Öm Ólafsson bú-
fræðingur og eiga þau fjögur börn;
Dröfn, f. 20.10.1967, stjórnmálafræð-
ingur í Reykjavík; Helga Björk, f.
16.10. 1972, sálfræðingur í Hafnar-
firði en maður hennar er Gylfi Haf-
steinsson tónlistarmaður og eiga
þau eitt bam.
Foreldrar Helga eru Haraldur
Hrafnkell Einarsson, f. 20.1. 1934,
rennismíðameistari í Hafnarfirði,
og k.h., Margrét Jóna Magnúsdóttir,
f. 2.1. 1940, verslunarmaður.
Helgi heldur upp á afmælið og
bolludaginn á heimili sínu í dag
með vinum og vandamönnum.