Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2003, Qupperneq 29
53 MÁNUDAGUR 3. MARS 2003 DV Tilvera Víöistaöaskóli 7. bekkur AG í heimsókn á DV Andrea Gunnarsdóttir, Ásgeir Marteinsson, Ásthildur Friögeirsdóttir, Daníei Kavanagh Stefánsson, Elfar Elí Jakobsson, Friðberg Traustason, Guömundur Vignir Magnússon, Heimir Óli Heimisson, Nanna Birta Pétursdóttir, Oddný Sigmundsdóttir, Stefán Huldar Stefánsson, Tamar Matsjavariani, Valdís Val- garösdóttir, Þórdís Aöalbjörnsdóttir, Þórhildur Stefánsdóttír. Kennarinn heitir ______________Anna Guðmundsdóttir. Keppnin Hár, stíll og föröun á Króknum: Tískan fpá þriðja áratugnum Líflegt var á Kaffi Krók á dögun- um þegar fram fór keppni í fata- hönnim, förðun og hárgreiðslu. Félagsmiðstöðin Friður gekkst fyrir keppninni og er þetta nýlunda í starfinu. Keppnin bar yfirskriftina: „Hár, stíll og fórð- un“ og sjö lið tóku þátt, víðs vegar að úr héraðinu. Þemað var svart/hvítt frá þriðja áratug síð- ustu aldar. Að sögn Maríu Bjarkar Ingvadóttur, forstöðumanns Frið- ar, krafðist keppnin gífurlegs und- irbúnings og vinnu og var hvergi slegið slöku við enda mikill áhugi á hönnun og sköpun ýmiss konar á meðal unglinga í héraðinu. Það voru stelpur frá Hofsósi sem báru sigur úr býtum en módel þeirra var Katrín Erlingsdóttir. í öðru sæti voru þau Soffía Snæbjörns- dóttir og Pálmi Þór Valgeirsson frá Árskóla sem brúðhjón. í þriðja sæti var einnig þátttakandi frá Ár- skóla, Sandra Þorsteinsdóttir. Fleira er fréttnæmt úr starfi fé- lagsmiðstöðvarinnar. Nýlega var haldin söngkeppni á vegum henn- DV-MYNDiR ÞÁ Brúðhjónin Sýning þeirra Soffíu Snæbjönsdóttur og Pálma Þórs Valgeirssonar geröi mikla lukku. ar og kepptu níu lið, þrjú frá hverjum stað: Sauðárkróki, Hofs- ósi og Varmahlíð. Sigurvegaramir voru Taktik frá Hofsósi sem tók þátt í Söngkeppni Samfés sem haldin var í Laugardalshöll í lok janúar og stóð sig með miklum ágætum. Fram undan er keppni I freestyle, bæði hjá yngri og eldri stúlkum, í lok febrúar og einnig standa Músíktilraunir fyrir dyr- um. -ÞÁ. Goð stemning Unglingarnir sátu þétt og fylgdust meö tískusýningunni afathygli. Yardbirds meö hljómleika á Broadway Gítarhetjuhljómsveít sem hafði ómæld áhrif Þaö á eftir að lifna heldur betur yfir mörgum gömlum rokkaðdáendum þegar líða fer á marsmánuð, en þá er væntanleg til landsins ein frægasta hljómsveit Breta á sjöunda áratugn- um. Þetta er hljómsveitin Yardbirds sem hafði ómæld áhrif á aðrar hljóm- sveitir sem komu í kjölfarið. Yardbirds átti sitt blómaskeið um svipað leyti og The Beatles og Rolling Stones voru að komast í guðatölu. Yardbirds var þó alltaf í bakvarða- sveitinni og náði aldrei þeirri frægð sem hún átti skilda. Kannski var það vegna þess að oftar en ekki var uppi tónlistarágreiningur í hljómsveitinni, sem skilað sér í mannabreytingum. Eitt er þó víst að engin hljómsveit hef- ur haft jafn frægar gítarhefjur á sín- um snærum, en meðal gítarleikara í Yardbirds voru Eric Clapton, Jeff Beck og Jimmy Page og nöfn þeirra segja allt um stöðu þeirra innan rokksins. Tveir meðlimir hljómsveitarinnar nú, Chris Dreja og Jim McCarthy, hafa verið með sveitinni frá upphafi og eins og gefúr að skiija hafa þeir gengið í gegnum sætt og súrt. Oft hafa verið gloppur í starfsemi hljómsveit- arinnar, en þessa dagana eru þeir Dreja og McCarthy á fúilu með sveit- ina og von er á nýrri plötu frá þeim innan skamms. Yardbirds var stoftiuð 1963 og var hljómsveitin fyrst og fremst rythm Þegar Eric Clapton var í Yardbirds Taliö frá vinstri: Keith Relf, Chris Dreja, Jim McCarthy, Paul Samwell- Smith og Eric Clapton. hann fékk rafmagn í sig frá gítar sem hann var með í höndunum), „Top“ Topham, gítar, Chris Dreja, gítar, Paul Samwell-Smith, bassi, og Jim McCarthy, trommur. Strax á fyrsta ári sveitarinnar yfirgaf Topham hana og Eric Clapton kom í hans stað. Fyrsti smellurinn þeirra var For Your Love og með það lag í farangrinum komust þeir í hóp vinsælustu hljóm- sveita á þessum tima. Þegar Eric Clapton yfirgaf Yardbirds til að taka sæti aðalgítarleikarans Johns Mayals í Bluesbreakers fyllti Jeff Beck sæti hans og gítarhljómurinn var jafn sterkur en öðruvísi og ekki varð gítar- hljómur sveitarinnar verri þegar ung- ur nýliði, Jimmy Page, kom einnig til liðs við þá sem fyrir voru. Yardbirds starfaði af miklum krafti til 1968, þá hætti hún störfum og með- limimir dreifðust út um allt. Hljóm- sveitin kom síöan öðru hvoru saman á níunda áratugnum. Það var þó ailtaf eftirspurn eftir tónlist þeirra og þegar Yardbirds var tekin í „Rock and Roll Hall of Fame“ í Bandaríkjunum 1992 fannst Chris og Jim vera kominn timi til að endumýja hana og fara á „túr“. Síðsn hefúr Yardbirds verið starfandi. Það er mikill fengur í þessum hetj- um rokksins til íslands og er forsala þegar hafin á tónleikana sem verða á Broadway 27. mars. -HK Leiðbeinendastörf með hressu, ungu fólki Viljum ráða leiðbeinendur í sumarstörf. Fjölbreytt og gefandi störf. Kjörin fyrir þá sem kraftur er í og kjósa útiveru og skemmtilegan félagsskap. Væntanlegir leiðbeinendur sækja námskeið í upphafi ráðningartímans, t.d. í stjórnun, vinnu með unglingum, ýmsum öryggismálum og verklegum störfum. Athugið að margvísleg reynsla og þekking fæst með þessum störfum, sem nýtist fólki vel, þegar horft er til framtíðar. Umsóknir og upplýsingar eru á heimasíðu skólans: www.vinnuskoli.is Nánari upplýsingar um sumarstörf í síma 563 2750 VINNUSKÓLI REYKIAVÍKUR Umhverfis- og heilbrigðisstofa Skúlagötu 19 «101 Reykjavík Sími 563 2700 • Fax 563 2710 Netfang: vinnuskoli@vinnuskoli.is Veffang: www.vinnuskoli.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.