Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 X>"V’ Fréttir Formaöur LH gagnrýnir stofnun Umboösmanns íslenska hestsins: Víll sjá verkefnið í öðrum farvegi „Mín skoðun er sú, að það hefði átt að stokka félags- kerfi hesta- manna og grein- ina upp á nýtt, og jafnframt að fram færi stöðu- mat. Ég hefði viljað sjá þetta nýja verkefni í öðrum farvegi,“ sagði Jón Albert Sigurbjörnsson, formaður Lands- sambands hestamannafélaga, um hið nýstofnaða verkefni utanríkis- ráðuneytis, landbúnaðarráðuneyt- is, samgönguráðuneytis, Búnaðar- banka og Flugleiða, „Umboðsmað- ur íslenska hestsins.“ Markmið verkefnisins eru umfangsmikið og munu ráðuneytin leggja 9 milljón- ir á ári til þess til ársins 2007. Jón Albert kvaðst lengi hafa verið þeirrar skoðunar að stofna ætti ein landssamtök hestamanna, ekki hestamannafélaga eins og málum væri fyrirkomið nú. LH hefði veriö stofnað til ákveðinna verka fyrir 50 árum. Það hefði átt að vera þjónustuskrifstofa fyrir hestamannafélögin í landinu. Nú væri það komið langt út fyrir það verksvið. Það þjónustaði nú at- vinnumenn, áhugafólk, erlend samskipti og svo framvegis. Fé- lagskerfinu þyrfti því að breyta með því að stofna ein landssamtök hestamanna og deildarskipta þeim. Mætti nefna ræktunardeild- ir, frístundadeildir, æskulýðs- deildir o.s.frv. Þá myndu frí- stundadeildir fara til dæmis með reiðvegamál. „Það þarf að skilgreina hlutina betur,“ sagði Jón Albert. „Hvað eru markaðsmál? Það er alltaf ver- ið að ræða að það þurfi að eyða meiri fjármunum til markaös- mála. Eru reiðvegamál ekki mark- aðsmál? Eru æskulýðsmál ekki markaðsmál? Eru landsmót ekki markaðsmál? í stað þess að skilgreina mark- aðsmál er alltaf stofnað eitthvað nýtt sem vinna á að óskilgreind- um málefnum hestamennskunnar. Betra hefði verið að gera þjón- ustusamninga við þá sem eru að vinna að afmörkuðum verkefnum innan heildarsamtaka hesta- manna nú og verja þessum fjár- munum þannig markvisst. Við erum með batterí til að vinna þetta, við erum með skrifstofu og okkar draumur hefur verið að stækka hana og efla. Vlð höfum bara ekki haft fjármagn til þess. Að dreifa kröftunum út og suður Frá því að ég fór að sækja lands- þing hestamanna fyrir 15 árum hefur verið mikill áhugi fyrir því að fara í kennslu í skólum. Við höfum ekki haft tækifæri til þess vegna fjárskorts. Félag hrossa- bænda hóf kennsluverkefnið „Um- hyggja og ábyrgö“ í samvinnu við íshesta og fleiri aðila fyrir tveim- ur árum. Það var af svipuðum toga, en þeir urðu að hætat við vegna fjárskorts. Nú sé ég að verk- efnarammi Umboðsmanns is- lenska hestsins gerir ráð fyrir slíkri kennslu á vegum ráðuneyt- anna. Ég skil ekki hvers vegna þessir peningar voru ekki látnir renna til t.d. Átaks í hesta- mennsku, þar sem nú er verið að vinna að nákvæmlega sama mála- flokki. Það eru allir að gera það sama.“ Jón Albert kvaðst hafa staldrað við vegna ummæla um að utanrík- isráðuneytið kæmi að þessu nýja verkefni því sameina þyrfti kraft- ana til að vinna að framgangi ís- lenska hestsins erlendis. „Það er verið að gera þetta. Al- þjóðasamtök íslenskra hesteig- enda FEIF vinna gríðarlega mikið starf í þessum efnum. Það er fjár- vana. I þeim eru 50-60 þúsund áhugamanna um ísland og allt sem íslenskt er. Hvers vegna ekki að styrkja þau samtök með þess- um fjármunum? Að mínu viti hefði verið miklu hyggilegra að beina sameinuðum kröftum og fjármunum að afmörk- uðum verkefnum í stað þess að vera að dreifa þeim út og suður. Forgangssröðum gæti átt sér stað á landsþingum endurskipulagðra heildarsamtaka hestamanna í stað þess að vera að hleypa af stokkun- um hverju verkefninu á fætur öðru til að vinna að ýmsum þeim verk- efnum sem þegar hafa verið og eru á borði hestamanna sjálfra." Ekki náðist í Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra vegna máls- ins í morgun. -JSS Stuttar fréttir Fnumrit stjórnan- skrárinnar til íslands Anders Fogh Rasmussen, for- sætisráherra Danmerkur, af- henti í gær Davíð Oddssyni frumrit stjórnarskrárinnar um hin sérstaklegu málefni íslands frá 1874 við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu. Stjórnar- skráin kom fyrst til íslands árið 1904 við stofnun Stjórnarráðs ís- lands en var síðan flutt aftur til Danmerkur 1928 og hefur verið geymd í skjalasafni þar ásamt konungsúrskurðum um íslensk málefni. Davíð Oddsson þakkaði Rasmussen hjartanlega fyrir að afhenda íslensku þjóðinni hið kærkomna skjal heim á ný og sagði að nú væri lokið nærfellt hundrað ára flökkusögu fyrstu stjórnarskrár íslendinga. Stjórn- arskráin verður til sýnis í Þjóð- menningarhúsinu fram yfir páska ásamt stjórnarskránni frá 1920 og 1944. Rasmussen kom hingað í gær í sína fyrstu opinberu heimsókn til íslands ásamt eiginkonu sinni og fylgdarliöi og fer aftur til Danmerkur á fóstudaginn. Mun hann meðal annars ræða við Davíð Oddsson og skoða handritasýninguna i Þjóömenn- ingarhúsinu. Þá heimsækir hann Bláa lónið og orkuverið í Svartsengi og fer í skoðunarferð til Vestmannaeyja og um Suður- land. Forsætisráherrann þáði hátíðarkvöldverð í Perlunni í gærkvöld og snæðir hádegisverð hjá forseta Islands á Bessastöð- um í dag. -EKÁ DV-MYND SIGURÐUR JÖKULL Anders Fogh Rasmussen, forsætisráöherra Danmerkur, og Davíö Oddsson, forsætisráöherra íslands Ráðherrarnir skoöa frumrit stjórnarskrárinnar um hin sérstaklegu málefni íslands frá 1874. Iceland Express flutti tæplega 12 þúsund farþega fyrstu tvo mánuðina: Tæpur helmingup bókana erlendis DANiR ALLTAF f|L! Lággjaldafélagið Iceland Express flutti 11.969 farþega til loka mars en félagið hóf göngu sína í byrjun febr- úar sl. Um 40% farþeganna voru bókuð erlendis. Að sögn forráðamanna Iceland Express er áhrifa félagsins þegar fariö að gæta hérlendis. Farþegar fé- lagsins nema um 15% af heildar- fjölda allra farþega tO og frá íslandi í marsmánuði. í Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar varð 18% aukning farþega tO og frá landinu í marsmánuöi miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þá hefur veruleg aukning veriö í bókunum farþega í viðskiptaerind- um með Iceland Express. Það má meðal annars rekja tO þess að fjár- málaráðuneytið tilkynnti rikisstofn- unum fyrir nokkru að þær væru ekki lengur bundnar af samningi um að kaupa farmiða hjá Ferðaskrif- stofu íslands, sem er í eigu Flug- leiða. Opinberir starfsmenn geta því notið viðskiptafargjalda hjá Iceland Express sem kosta 45 tO 90 þúsund krónum minna en hjá Icelandair. Iceland Express flýgur daglega tO London og Kaupmannahafnar. -aþ ítalskur skóli fyrir austan ítalska verktakafyrirtækið Impregilo íhugar rekstur grunn- skóla fyrir austan. Um 600 erlend- ir starfsmenn koma hingað á veg- um fyrirtækisins. íslensk börn yfir meðallagi íslensk börn fá meðaleinkunn- ina 512 í alþjóðlegri lestrarrann- sókn og eru jdir meðallagi. ísland lendir þó í 21. sæti 35 þjóða. Kæra stjórn lífeyrissjóðs Fjórb sjóðsfélagar Lífeyrissjóðs Austurlands hafa kært stjórn sjóðsins, framkvæmdastjóra og endurskoðanda til rikissaksókn- ara fyrir meinta ólöglega meðferö fjármuna - og endurskoðun sem uppfyOa ekki lagakröfur. mbl.is greindi frá. Áfram í gæsluvarðhaldi Hæstiréttur staðfesti í gær aö bandariskur ríkisborgari skuli sæta gæsluvarðhaldi áfram eða til 1. maí. Maðurinn er grunaður um aö hafa staðið fyrir ferð fjögurra Kínverja hingað tO lands og er talið að hann hafí ætlaö að koma þeim vestur um haf - gegn hárri peningagreiðslu. -aþ Tónlistarhúsi seinkar Byggingu tón- listarhúss í Reykjavík hefur seinkað um tvö ár frá þeirri verkáætlun sem lögð var fram þegar samkomu- lag ríkis og borg- ar var undirritað í april í fyrra. Einkahlutafélag um byggingu hússins verður stofnað í dag og segir Þórólfur Ámason borgarstjóri að stjóm félagsins ákvarði framkvæmdahraðann. Hann segir aðstæður hafa breyst, m.a. vegna ákvörðunar um stjór- iðjuframkvæmdir og væntanlega þenslu. ÐV-MYND SIGURÐUR JÖKUU Bílabruni Eldur kviknaði í fólksbifreið á Miklu- braut í gærdag og átti ökumaðurinn fótum fjör að launa. Slökkvilið kæfði eldinn en bíllinn skemmdist mikið. Eldsupptök eru óljós en veröa líklega rakin til rafkerfis. TF-LÍF sótti slasaðan sjómann norður í íshaf í nótt Fótbrotinn norskur sjómaður af selveiðiskipinu Polarfangst var fluttur með TF-LÍF á sjúkrahús í Reykjavík í nótt. Hann hafði faO- ið mOli ísjaka þegar unnið var við björgun selveiðiskipsins Pol- arsyssel í heimskautaísnum norð- ur af landinu í gærdag. TF-LÍF fór eftir manninum rétt eftir klukkan 9 í gærkvöld og lenti skömmu síðar á Rifl tO að fyOa eldsneytistankana, enda var hér um óvenju langt flug að ræða, 260 sjómílna leið var að varðskipinu Ægi en þangað var sjómaðurinn kominn. Um miðnætti var búið að hífa sjómanninn um borð í þyrluna og lent við Borgarspítal- ann í Reykjavík kl. 2.26 í nótt. Slysið átti sér stað þegar sjó- menn af Polarfangst unnu að því að koma löskuðu selveiðiskipi, Polarsyssel, út úr þéttum is í ís- hafinu 260 sjómílur norðvestur af íslandi. Sú aðgerð tókst. Varð- skipið Ægir kom á staðinn kl. 14.30. Línu var komið um borð í skipið og dælum, en olíu skipsins var dælt úr Polarsyssel yflr í Pol- arfangst. Ægir tók laskaða bátinn síðan í tog og var haldið suður á bóginn kl. 16.30 í gærdag og verð- ur farið með skipið tO viðgerðar í Hafnarfirði. -JBP Skíðamót íslands heíst í dag Skíðamót íslands hefst í Hlíðar- fjaOi á Akureyri í dag klukkan fjögur með sprettgöngu. Mótið verður síðan formlega sett í KetO- húsinu klukkan 8 í kvöld. Mótið stendur fram á sunnudag og er búist við um 110 þátttakendum sem er svipaður fjöldi og undan- farin ár. Aðstandendur og kepp- endur hafa undanfarið verið ugg- andi um snjóleysi í flallinu en að sögn HaOdórs Árinbjarnarsonar, kynningarfuOtrúa mótsins, er fínt skíðafæri í Strýtunni. „Að vísu eru göngubrautimar nokkuð af- skekktar, við þurftum að flytja þær ofar í fjallið en það er búið að útbúa fínan hring þar,“ segir Halldór og býst við góðu móti enda veðurspáin ágæt fyrir skíða- menn norðanlands. -ÆD f ókus Á MORGUN Ef viö vinnum Evpóvisjón... í Fókus á morgun verður fjaOað um hádegisvenjur íslendinga en svo virðist sem fólk fari í síaukn- um mæli út að borða í hádeginu. Leikstjórinn Ró- bert Douglas segir frá kvikmynd sem er í smíðum um samkynhneigt fót- boltalið. Fókus spáir í það hvaö gerist ef ísland vinnur Evróvisjón og þjóðþekktir aðilar segja hvað þeir ætla að gera um páskana.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.