Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003
Fréttir ÐV
Verslunareigendur í miðbænum ósáttir við skipulagsleysi borgaryfirvalda:
Allar götur lokaðar
Miklar framkvæmdir eiga sér
nú stað í miðbæ Reykjavíkur, eins
og allir sem þangað hafa lagt leið
sína síðustu daga hafa tekið eftir.
Þetta hefur vakið nokkra reiði
meðal verslunareigenda á svæðinu
sem segja allt skipulag og samráð
meðal framkvæmdaaðila skorta.
Tapartugþúsundum á dag
„Framkvæmdagleði Reykjavík-
urbogar er einfaldlega að gera alla
héma brjálaða," segir Þráinn Jó-
hannsson skóari sem er með
rekstur við Grettisgötu sem er nú
lokuð vegna framkvæmda.
„Flestir eru nú jákvæðir gagn-
vart þessum breytingum sem ver-
ið er að gera hérna en skipulagið
er bara ekki neitt. Allir þessir að-
ilar sem eru að framkvæma hitt
og þetta, líkt og Landssíminn,
Orkuveitan og Reykjavíkurborg,
hafa ekkert samráð með sér og þá
endar þetta eins og núna að allir
eru með framkvæmdir á sama
tíma. Fyrir vikið eru nánast allar
götur hérna lokaðar fyrir bílaum-
ferð og fólk kemst ekki einu sinni
að bílastæðahúsunum. Það segir
sig náttúrlega sjálft að þjónustu-
og verslunarrekstur getur ekki
þrifist í svona umhverfi," segir
Þráinn sem hefur verið með aðset-
ur á Grettisgötunni í 21 ár. Hann
er einnig með rekstur í Smáralind
og Kringlunni og segir það ganga
mun betur en í miðbænum.
„Ég get fullyrt að ef ég væri
ekki með útibú í verslunarmið-
stöðvunum væri ég farinn á haus-
inn. Þegar ástandið er eins og það
er núna tapar maður tugum þús-
unda á dag.“
Skipulagsleysið algert
„Ég hef margsinnis haft sam-
band við aðila hjá borginni en þar
benda menn bara hver á annan.
Menn verða einfaldlega að hætta
að pukra hver í sínu horni og
mynda í stað þess einhvers konar
samstarfshóp um framkvæmdir í
miðborginni. Það verður að vera
stýring á því hvaða svæði eru lok-
uð hverju sinni. Þegar Banka-
strætið var t.d. tekið í gegn fengu
verslunareigendur að ráðfæra sig
um hvenær það hentaði þeim best
að framkvæmdirnar færu fram en
þegar þessar framkvæmdir hérna
fyrir utan hjá mér fóru af stað var
ekkert um slíkt að ræða. Það var
hringt í mig á föstudagssíðdegi og
mér tilkynnt að þetta myndi hefj-
ast næsta mánudag," segir Þráinn
og bætir því við að í sömu viku
hafi svo verið hafist handa við að
rífa gömlu Ölgerðina sem annars
hafði staðið tóm í 5 ár.
„Þegar svona framkvæmdir
eiga sér stað verður einfaldlega að
skipuleggja hlutina betur. Mér
þykir ákaflega vænt um miðbæ-
inn og ég er sjálfur að endurgera
gamalt hús hérna þannig að ég
þekki skipulagsleysið vel af eigin
raun. Til dæmis þurfti sama und-
irverktakafyrirtækið að mæta
tvisvar í sömu vikunni til þess að
grafa fyrir heitu og köldu vatni
hjá mér. í stað þess að gera þetta
allt í einni skorpu var farin sér-
ferð til að tengja heita vatnið og
svo önnur fyrir það kalda. í bæði
skiptin þurfti að grafa skurð á ná-
kvæmlega sama staðnum með
þeim afleiðingum að gatan lokað-
ist. Því er ekki nema von að mað-
ur kvarti undan skipulagsleysi,"
segir Þráinn sem segist engu að
síður styðja framkvæmdimar í
miðbænum heils hugar.
„Að sjálfsögðu styð ég þessar
framkvæmdir en það eru bara svo
mörg smáatriði sem verður að
laga. Ég lít svo á að miðbæjar-
svæðið sé undir árás eins og þessu
er háttað í dag og það er fyrir neð-
an allar hellur. Þegar svona fram-
kvæmdir eiga sér stað veröur ein-
faldlega að keyra þær í gegn svo
að raskanir verði sem minnstar,"
segir Þráinn að lokum. -áb
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstööva:
Undirbúningup hér heima að hefjast
Undirbúningur fyrir
söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva er nú að hefjast og stefnt er
að því að æfmgar byrji af fullum
krafti um næstu mánaöamót.
Keppnin fer að þessu sinni fram í
Riga í Lettlandi 24. maí nk. og mun
Birgitta Haukdal stíga fyrst allra
keppenda á svið og flytja lagið
„Open your heart“ eftir Hallgrím
Óskarsson.
Myndarlegur hópur fólks fer til
Lettlands fyrir íslands hönd og að
sögn Jónatans Garðarssonar, dag-
skrárgerðarmanns hjá Sjónvarpinu
og liðsstjóra hópsins, er valinn
maður í hverju rúmi. Birgitta er
þar fremst í flokki en með henni á
sviðinu í Riga verða tveir félagar
hennar úr hljómsveitinni írafári,
þeir Jóhann Bachmann, trommari
og unnusti Birgittu, og Vignir
Snær Vigfússon gítarleikari. Þá
verður Herbert Viðarsson á bassan-
um og bakraddir syngja þær Mar-
grét Eir Hjartardóttir og Regína
Ósk Óskarsdóttir.
Selma Björnsdóttir, fyrrverandi
evróvisjónjónfari er einnig með í
hópnum en hún sér um sviðsetn-
ingu og framkomu Birgittu. Svavar
Öm Svavarsson hárgreiðslumaður
mun sjá um förðun og hár keppend-
anna og að hans sögn ætlar hann
að leyfa Birgittu að ráða þeim mál-
um nokkum veginn. Ekki er enn
búið að ákveða hvemig fatnaður
Birgittu verður en nokkrar hug-
myndir eru komnar fram og verður
farið vandlega yfir þær á næstu
vikum.
Þorvaldur Bjami Þorvaldsson,
útsetjari og upptökustjóri, fer með
hópnum til Lettlands og aðstoöar
I austurveg
Birgitta veröur fyrst í rööirmi á sviöiö
í Riga 24. maí nk.
við sviðsæfmgar. Kynnir verður
Gísli Marteinn Baldursson sjón-
varpsmaður og mun hann lýsa því
sem fyrir augum ber í beinni út-
sendingu. Logi Bergmann Eiðsson
fer einnig út fyrir hönd fréttastof-
unnar og sendir fréttir heim af
keppninni, bæði í útvarpi og sjón-
varpi, en til stendur að vera með
sérstakan Kastljóssþátt, tileinkað-
an keppninni, kvöldið fyrir hana.
Með Loga tO halds og trausts verð-
ur Haukur Hauksson upptöku-
stjóri. Þá verða að sjálfsögðu með í
för höfundur lagsins og kona hans,
þau Hallgrímur og Ragnheiður Ei-
ríksdóttir.
Að sögn Jónatans er stefnt að því
að lögin tuttugu og sex fari að heyr-
ast í útvarpinu strax eftir helgina
og verða myndböndin síðan sýnd
viku fyrir sjálfa keppnina. -EKÁ
Landvernd:
VIII tafaplausar
aögenðin til
verndar erninum
Landvemd hefur sent frá sér til-
kynningu þar sem lýst er yfir
áhyggjum af vemdun amarins.
Telur stjóm Landvemdar það
mikið áhyggjuefni að Hæstiréttur
skuli hafa komist að þeirri niður-
stöðu að fuglavemdarlögin og frið-
lýsing baimi ekki rask á varpstöð-
un hafama. Vemdun amarins
hafi lengi verið eitt af mikilvæg-
ustu verkefhum í íslenskri nátt-
úruvemd og hafi nokkur árangur
náðst í þeim efnum. Mikil ógæfa
væri ef sá ávinningur glataðist.
Telur stjóm Landverndar nauð-
synlegt að stjómvöld gangi þannig
frá málum að allt rask af manna-
völdum á varpstöðum amarins
verði bannað. Á þessum árstíma
séu ernir í tilhugalífi og í þann
mund að hefja varp og því sé
brýnt að tafarlaust verði gripið til
aðgerða eminum til verndar.
-EKÁ
Dótturfélag Lands-
bankans yfirtekur
rekstur 0Z
Nýstofnað dótturfyrirtæki
Landsbanka íslands hf. í Kanada
hefur samið við OZ Comm-
unacation Inc. í Bandaríkjunum
og dótturfélög þess um kaup á
öllum hugverkarétti og eignum
OZ-samstæðunnar. Nýja félagið
mun í framhaldinu vinna að frek-
ari þróun og sölu á þeim vörum
sem OZ-samsteypan framleiddi.
Öllu starfsfólki OZ verður boðið
starf hjá hinu nýja félagi og mun
það yfirtaka samninga OZ-sam-
steypunnar við viðskiptavini fé-
lagsins.
Að sögn Skúla
Mogensen, for-
stjóra OZ, hefur
rekstur þess
verið erfiður
undanfarin ár
eftir að samn-
ingum félagsins
við Ericsson og
Microcell var
Mogensen. sagt upp. Sagði
hann að mikil
vonbrigði hefðu verið að ekki
náðist að tryggja viðunandi
rekstrargrundvöll fyrir OZ en að
sama skapi væri ánægjulegt að
Landshankinn skyldi sjá sér hag í
því að vinna að áframhaldandi
þróun og sölu á vörum félagsins
og tryggja hag starfsmanna, við-
skiptavina og lánardrottna. -EKÁ
Sæplast komið
með rekstup í
sex löndum
Sæplast hf. og fulltrúar eigenda
hollenska fyrirtækisins Plasti-Ned
B.V. hafa undirritað viljayfirlýs-
ingu um kaup Sæplasts á öllu
hlutafénu í fýrirtækinu. Stefnt er
að því að áreiðanleikakönnun og
gerð kaupsamnings liggi fyrir í
lok þessa mánaðar og að yfirtaka
á rekstri Plasti-Ned B.V. verði frá
og með 1. janúar síðastliðnum.
Plasti-Ned B.V. var stofhað fyrir
rúmum 11 árum og er með aðset-
ur í Rijen í Hollandi. Fyrirtækið
framleiðir fjölbreytt úrval af
hverfisteyptum vörum úr plasti.
Plasti-Ned B.V. notar sömu fram-
leiðslutækni og notuð er í verk-
smiðjum Sæplasts. Á síðasta ári
var velta Plasti-Ned B.V. 300 millj-
ónir króna og var fyrirtækið rekið
með hagnaði.
Sæplast rekur nú fimm verk-
smiðjur í fimm löndum: á Ind-
landi, Spáni, í Kanada, Noregi og
á íslandi og sjötta verksmiðjan
verður í Hollandi. -hiá