Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 I>'Vr Fréttir Ríkisflugfélagiö Nigeria Airways stefnir í gjaldþrot: Reyna að kama sér undan sjö milljóna dollara skuld við Atlanta Stjómvöld í Nígeríu hafa hótaö aö ríkisflugfélagið Nigeria Airwa- ys Ltd verði lýst gjaldþrota fari svo aö Air Atlanta hafi betur í skuldadeilu viö félagið fyrir bresk- um dómstólum. Nigeria Airways skuldaði Atlanta þegar verst lét um 10 milljónir dollara, eða sem svarar um 786 milljónum íslenskra króna á núvirði, en Atlanta var með tvær þotur í rekstri fyrir ni- geríska félagið. Nettóskuldin í dag er talsvert lægri eöa rúmlega 7 milljónir dollara. Stjórnvöld í Nígeríu véfengja bakábyrgðir ríkisins á skuldunum við Atlanta. Þannig reyna Níger- íumenn að komast hjá því að standa við að greiöa Atlanta þær fjárhæðir sem félagiö á inni hjá Nigeria Airways. Samkvæmt upp- lýsingum frá Atlanta er málið fyr- ir dómstólum í London í dag og á morgun. Nígeríska flugfélagið er skuldum vafið og skuldar m.a. breskum flugvallaryfirvöldum, breska tollinum, hótelum og fjöl- mörgum öðrum verulegar upp- hæðir. Skuldir með ríkisábyrgð í yfirlýsingu frá Air Atlanta í morgun segir að skuldir Nigeria Airways séu tryggðar með ríkisá- byrgð samkvæmt samkomulagi þar um. Aðrar fullyrðingar um það mál séu rangar. Flugmálaráðherra Nígeríu, Dr. Kema Chikwe, sagði á blaða- mannafundi í Abuja í fyrradag að ríkisstjómin horfði fram á að tapa öllum eigum félagsins kæmi til gjaldþrots. Hún sagðist þá ekki trúa því að málið færi alla leið fyr- ir rétti. Ef svo færi að erlenda fé- lagið (Atlanta) ynni málið yrði gripið til tafarlausra ráðstafana með að lýsa Nigeria Airways gjaldþrota. Ráöherrann sagði jafn- framt að áætlanir væru uppi um að setja á fót nýtt flugfélag í Niger- ianglobal með samkomulagi við Airbus og Triaton AG í Sviss. Samkvæmt upplýsingum frá Atlanta var félagið með tvær flug- vélar í förum fyrir Nigeria Airwa- ys. Samið var um flugið í Nígeríu í nóvember 2001 og samið var um leigu með áhöfn til sex mánaða í senn. Þar var upphaflega um að ræða rekstur á Boeing 747 vél og flug til og frá Lagos og New York. í maí 2002 bættist við rekstur á Boeing 767 og flug á milli London og Dubai í Persaflóa. Þessu flugi var hætt þar sem Nigeria Airways stóð ekki við greiðslur. Hefur mál- ið síðan verið fyrir dómstólum í Bretlandi en ríkissjóður Nígeríu átti, samkvæmt samkomulagi við Atlanta, að vera í ábyrgð fyrir skuldum félagsins. Samkvæmt frétt Viðskiptablaðs- ins í mars mun Nigeria Airways hafa veriö rekið með tapi frá stofnun þess, en reksturinn byggð- ist að verulegu leyti á því að tryggja flug til og frá Nígeríu með samningum við erlend leiguflugfé- lög. Fyrst mun hafa stefnt í vand- ræði er upp komu pólitískar deil- ur á milli samgönguráðherra Ní- geríu og forstjóra Nigeria Airwa- ys. í kjölfarið fór að verða mis- brestur á að félagið stæði við greiðslur sínar til Atlanta. Eftir fundahöld með forsvarsmönnum Atlanta varð að samkomulagi að nígeríska ríkið ábyrgðist skuld- ina. Um svipað leyti og þeir samn- ingar komust á lenti samgöngu- ráðherrann í hneykslismáli og ósætti varð á milli hans og forseta Nígeríu. í kjölfarið var samgöngu- ráðherranum bannað aö hafa af- skipti af Nigeria Airways. Eigi að síður fékk Atlanta hluta skuldar- innar greiddan, en deilt er um það sem upp á vantar eða um 7 millj- ónir dollara. -HKr. Hæstiréttur: Bglnkonan fær ekki fasteign og félag Hæstiréttur hefur hafnað kröfu konu um að fasteign og einka- hlutafélag yrðu til skipta við sam- búðarslit hennar og fyrrverandi sambýlismanns hennar. Maðurinn hafði stofnað félagið um verktakastarfsemi sina og greitt allt hlutafé þess. Samkvæmt stofnfundargerð félagsins átti maðurinn einn sæti í stjórn félags- ins og var hann jafnframt fram- kvæmdastjóri þess og prókúru- hafi. Þá stöfuöu öll laun hans sam- kvæmt skattframtali 2001 frá fé- laginu. Konan hafði ekki sýnt fram á aö hún hefði lagt nokkuð fram tO félagsins. Var félagið sam- kvæmt þessu talið eign mannsins og kom því ekki undir skiptin. Fasteignin sem um var deilt hafði ekki verið borin fram fyrir héraðsdómi og varð þvi ekki á henni byggt við úrlausn málsins. Eignin var keypt eftir skilnað hjónanna. Báðir málsaðilar voru tilgreind- ir sem kaupendur fasteignarinnar í kaupsamningi, en maðurinn hélt því fram að félagið hefði greitt kaupverðið og verið raunveruleg- ur kaupandi eignarinnar. Þessar fullyröingar mannsins hlutu stoð í undirritaðri yfirlýs- ingu beggja málsaðila þar sem fram kom að kaupin væru gerð fyrir hönd félagsins, sem væri réttur eigandi húseignarinnar. -EKÁ DV-MYND SIGURÐUR JÖKUU. Ertu í hringnum? DV heldur áfram aö gleöja tesendur meö vinningum. Stúlkan sem hér lendir innan hringsins var aö leika knattspyrnu viö vinkonur sínar í gær. Hún hreppir vænan vinning, 14 tommu sjónvarp frá Sjónvarpsmiöstööinni og þriggja mánaöa áskrift aö DV. Hægt er aö vitja vinninganna í í DV-húsinu, Skaftahlíö 24,105 Reykjavík. Útreikningar DV á áhrifum skattbreytinga gagnrýndir á röngum forsendum: Mörkin við ríflega 100.000 kr. laun Mörkinviöl 04.000 krónur i*stf mrm VHMt ktfemr t ntáiMÖMttwa vða tmrtra hagrutsi rapim * þvi stá tíunhiutuai vtrfti ! SUS4., «rii» SíAlí- boftar. tn ofi wrtl turWtAður wm Ú» krftnttr 4 nwmtftl, rln* Hmtyikíagia Mkw. l«gi!4<irs GulMUMli- ta*ði á v»xn>i««> Samfyixintíar tiiiKU- «6 mur.urtao « Ulkvuiu tVvkkaiuw KWttí I þvt «ð tUkfeur S*mf>U.iw&in«a*r k»mu tiw íyrr mtis- vt* mmi kr.ttta mua fytlt þð lekju Aftwttkjur I MróUmtáirfti vjft Rrf *»ft orft Frata Kl«s»sill»eur ÉrnÞ'vam Wrftn- ur <1 msnuftí grpiftir l ttag 7A» kr. J skati « rWci trkW llllít tU frftdrðtut' UftnrMfttdWdnX Samknrmt liiRwuta SjsUltíaðlt floWudm myaiil kansi (nrtftw kt,; mmkmrn utíúswm frsm *öknsr«okk*im 4*55 kt. «« sam kwemi tilk'wua »r 3.«8 kt E'.iioLskiíntíui meft ISItmt krfttW) iritíisAariaaa srviötr i <lay UxpVft* kr. fnymll SK'íAv **mk\jcro} uUágaat flukk- *nna t» tómu rt>«> SUWÖ kf- «L8?5kj Vtís jKMinaa Möts hntrtU tfkKS ttíii! tií tutúiOa amw tua afrrar b*vvtía»at i .',X4ttak:-rrtra« né um nmkktiB ð lianijil*><ii«*. t«á « vkjcl tekift tH Ht tll w> Mimir «rt«tí»Wtogar imttii nfU »*f petvtomtít&n mtout. -ÖT<I fséTT ttS. 120G13 Endurskoðunar- og ráðgjafar- fyrirtækið Deloitte & Touche og efnahagsskrifstofa fjármálaráðu- neytisins hafa staðfest útreikn- inga DV á áhrifum skattbreytinga- tillagna stjórnmálaflokkanna. Út- reikningarnir voru birtir í DV á þriðjudag en dregnir í efa af tals- manni Samfylkingarinnar í Kast- ljósinu á miðvikudagskvöld. Útreikningar DV sýndu að þeir sem hafa 104.000 kr. eða meira í mánaðarlaun hagnast meira á því að skatthlufall verði lækkað í 34,55% eins og Sjálfstæðisflokkur- inn boðar en á því aö skattleysis- mörk verði hækkuð um 10.000 kr. á mánuði (persónuafsláttur lækk- aður um 50.000 kr. á ári) eins og Samfylkingin boðar. Miðað við til- lögu Framsóknarflokksins um að lækka prósentuna í 35,2% liggja mörkin við ríflega 120 þúsund krónur. Ekki 210 þúsund í Kastljósinu bar Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir þessar tvær leiðir saman og sagði: „[Leið Samfylk- ingarinnar] er miklu sanngjarnari leið, það er krónutöluleiðin en ekki prósentuleiðin sem að ótví- rætt færir þeim mest, ekki meðal- tekjufólkinu, heldur þeim mest sem aö mestar hafa tekjurnar." Þegar frétt DV um aö mörkin lægju við riflega 100.000 kr. var borin undir hana svaraði hún: „Þessir reikningar DV ég dreg þá stórlega í efa. [...] Útreikningarnir sem við höfum frá ríkisskattstjóra á þessu þeir sýna það, að einstak- lingar sem eru með tekjur 210-220 þúsund og þar fyrir neðan og hjón með yflr 400 þúsund krónur í tekj- ur eru að fá meira út úr þessum tillögum sem við erum að leggja hér til heldur en tillögum Fram- sóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins." Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra er í þessum til- vitnuðu útreikningum embættis- ins gengið út frá því að samhliða flatri prósentulækkun yröi per- sónuafsláttur lækkaður þannig að skattleysismörk héldust óbreytt. Hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Framsóknarflokkurinn hafa hins vegar boðað slíka lækkun og hefur fengist staðfest frá báðum flokk- um að ekkert slíkt standi til. Ekki 183 þúsund „Tíu þúsund króna hækkun skattleysismarka skilar lágtekju- og meðaltekjufólki miklu meira en flatur 4% lækkun á tekjuskatti," segir Jóhanna Sigurðardóttir í pistli sínum sl. laugardag og bætir við að mörkin séu við 2,2 milljóna árslaun sem jafngilda 183.000 kr. mánaðarlaunum. Jóhanna segist í þessum út- reikningum hafa gert ráð fyrir að Sjálfstæöisflokkurinn myndi lækka persónuafslátt, enda hafi tölur flokksins um kostnað bent til að það stæði til - nú hafl hins vegar kostnaðaráætlun flokksins skyndilega hækkað úr 22 í 27 milljarða. Illugi Gunnarsson, aðstoðar- maður forsætisráðherra, segir að kostnaður við lækkun tekjuskatts- hlutfalls og virðisaukaskatts hafi verið áætlaður 22 milljarðar en heildarkostnaðurinn í kringum 27 milljarðar. Illugi áréttar að hvergi hafi verið ýjað að því, lagt til eða talað um að lækka persónuafslátt. Allt slíkt sé fullkomlega úr lausi lofti gripið. Ólíkar tillögur Flokkamir boða vitanlega fleiri breytingar en þessar en eins og ummælin bera með sér hefur tals- mönnum þeirra sjálfum ekki fund- ist óeðlilegt að bera saman áhrifin af þessum tilteknu breytingum einum og sér. Vert er að hafa í huga að tillög- urnar kosta mismikið. Efnahags- skrifstofa fjármálaráðuneytisins áætlar - með fyrirvara um að kostnaðurinn sé nokkurri óvissu háður - að leið Sjálfstæðisflokks- ins kosti riflega 16 milljarða, leið Framsóknarflokksins tæplega 14 milljarða og leið Samfylkingarinn- ar tæplega 9 milljarða. -ÓTG SH fjárfestir vestra: Eykur veltuna um fimmtung Stjórn Sölumið- stöðvar hrað- frystihúsanna hefur sam- þykkt viljayf- irlýsingu sem undirrituð hafði verið af dótturfélagi hennar, Icelandic USA Inc., um kaup á eignum og skuldum fyrir- tækisins Ocean to Ocean Seafood Sales, L.L.C sem er bandarískt fyrirtæki með höfuðstöðvar á Virginia Beach í Virginíuríki og söluskrifstofur víðar um Banda- ríkin og Kanada. Velta OTO, sem fyrst og fremst byggist á frystri heitsjávarrækju og öðrum skel- fiskafurðum, nam ríflega 110 milljónum Bandaríkjadollara á sl. ári, nær 9 milljörðum króna. Fyr- irtækið, sem stofnað var 1982 af Sandler-fjölskyldunni og Dave Brockwell, er í hópi stærri inn- flytjenda og dreifenda á sínu sviði. Neyslan ört vaxandi Neysla á rækju hefur farið ört vaxandi í Bandaríkjunum. Þannig tvöfaldaðist hún á síðustu fimmtán árum og er rækja nú í fyrsta sæti hvað varðar neyslu á sjávarafurðum. Um 85% allrar rækju eru innflutt. Icelandic USA Inc. á að baki langan feril í Bandaríkjunum og hefur byggt upp eitt sterkasta vörumerki á sínu sviði á veitingamarkaðnum þar.Fyrirtækið er bæði þekkt fyr- ir flök sem og unnar vörur úr hvítfiski, laxi og fleiru. SH mun í beinu framhaldi af aðalfundi sín- um í dag kynna fjárfestingu þessa sem og fjárfestingu Coldwater Seafood UK í framleiðslu á kæld- um, tilbúnum sjávarréttum, en gengið var frá henni í júlí 2002. „OTO lætur framleiða fyrir sig um allan heim, mest heitsjávar- risarækju. Við erum meö þessu að komast inn á vaxandi markað fyrir rækju í Bandarikjunum og notum til þess grunn Coldwater, eða Icelandic USA sem veltir um 14 milljörðum króna, svo aukn- ingin er mikil. Velta SH er lið- lega 50 milljarðar króna svo veltuaukningin verður um 20%. Vonandi lokum við málinu í maí,“ segir Róbert Guðflnnsson, stjórnarformaður SH. -GG Frumkvöðlasetur stofnað á Höfn Skrifað verður undir samkomu- lag um stofnun frumkvöölaseturs á Hornafirði í dag. Þar fer nú fram ráöstefna um frumkvöðla- menntun og þar mun samkomu- lagið verða undirritað en þeir sem að því standa eru Sveitarfé- lagið Hornafjöröur, Nýsköpunar- sjóður, iðnaðarráðuneytið, Byggðastofnun, Atvinnuþróunar- sjóður Austurlands ásamt Há- skólasetrinu á Hornafirði og nokkrum fyrirtækjum á svæðinu. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, mun flytja ávarp af þessu tilefni ásamt nokkrum vel völdum mönnum. Þegar hefur verið ráðið í stöðu framkvæmdastjóra frumkvöðla- setursins en það er Ari Þorsteins- son verkfræöingur sem mun gegna starfmu. -áb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.