Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2003, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003
DV
Fréttir
30 beygjur taldar yfir hættumörkum á þjóövegi 1:
Sex storhætMenar
beygjur og flestar við brýp
Á þjóðvegi 1, eða svonefndum
hringvegi, hafa verið skilgreindar
6 beygjur sem teljast stórhættuleg-
ar samkvæmt mælingum með
aksturssíritandi mælibúnaðinum
SAGA sem ND á íslandi ehf. hefur
framleitt. Alls mældust 30 beygjur
á þjóðvegi 1 sem skilgreindar eru
yfir hættu-
mörkum.
Vakin er at-
hygli á að
víða er merk-
ingum við
beygjurnar
verulega
ábótávant og
á sumum
stöðum vant-
ar þær hrein-
lega alveg.
Virðist þarna
vera um að
ræða augljósar slysagUdrur.
Rögnvaldur Jónsson, yfirmaður
tæknisviðs Vegagerðarinnar, seg-
ir umdæmisstjórana úti á landi
hafa fengið þessa skýrslu. „Þeir
eru nú að skoða þessi atriði sem
bent er á. Það eiga allar beygjur
að vera merktar eftir því sem við
best vitum. Ef eitthvað er að þeim
merkingum, þá munum við at-
huga með að merkja þær betur.“
- Er á áætlun að lagfæra eða
breyta þessum beygjiun?
„Nei, það er ekki á áætlun eins
og er, en það er verið að skoða
það. Þá erum við líka að skoða
tæknina sem notuð er við þessar
mælingar. Við hugsum okkur að
nýta hana frekar. Þetta virðist
vera frekar einföld tækni og þægi-
leg í notkun,“ sagði Rögnvaldur
Jónsson og telur þessar mælingar
vera mjög
gott framlag.
Sam-
kvæmt um-
ræddum
mælingum,
sem styrktar
voru af
Rannsóknar-
ráði umferð-
aröryggis-
mála
(RANNUM) í
apríl á síð-
asta ári, eru
6 beygjur taldar varasamar, 18 eru
taldar hættulegar og 6 hreinlega
stórhættulegar. Mælingarnar fóru
fram í júní á síðasta ári. Mæld var
svokölluð hringhröðun og athugað
hvort miðflóttaafl í beygjum færi
yfir skilgreind hættumörk. Var
ekið bæði réttsælis og rangsælis í
beygjumar. Er beygjunum skipt
niður í flokka A til C eftir hættu-
mati úr mælingunum með SAGA-
tækjabúnaðinum og eru þær
merktar með tölustöfum á með-
fylgjandi korti. HKr.
A-flokkur - stórhættulegar beygjur eru:
1. Hrútafjörður (númer 3 á korti) - vestari beygjan við nýju brúna við Brú í Hrútafirði.
2. Norðurárdalur nyrðri (nr. 4) - beygja við norðurenda Norðurárbrúar við Öxnadalsheiði.
3. Norðurárdalur nyrðri (nr. 4) - beygja við suðurenda Norðurárbrúar við Öxnadalsheiði.
4. Hamarsfjörður (nr. 11) - beygja vestan við Víglæk undir Hálsfjalli.
5. Lónsfjörður (nr. 15) - beygja austan Karlsár við Hlíð.
6. Mýrdalur (nr. 20) - beygja eftir að komið er yfir brúna yfir Hvammsá við rætur Reynisfjalls.
B-flokkur - hættulegar beygjur:
1. Norðurárdalur syðri (nr. 1) - beygjan efst í dýfunni milli afleggjara Munaðarness og Litlaskarðs.
2. Hrútafjörður (nr. 3) - eystri beygja við nýju brúna við Brú í Hrútafirði.
3. Víkurskarð (nr. 5) - beygjan í Hrossadal við sýslumörkin.
4. Mývatn (nr. 6) - neðsta beygjan Dalborgarmegin við Námaskarð.
5. Skriðdalur (nr. 7) - beygjan sem er við norðurenda einbreiðu brúarinnar yflr Gilsá.
6. Breiðdalsvík (nr. 8) - beygjan sem er Staðarborgarmegin við Fell.
7. Berufjörður (nr. 9) - beygjan í sunnanverðu mynni Fossárvíkur milli Eyjólfsstaða og Urðarteigs.
8. Berufjörður (nr. 10) - beygjan við Teigarhom.
9. Hamarsfjörður (nr. 12) - beygja við Þangseyrarnes, þ.e. vestari beygjan.
10. Hamarsfjörður (nr. 12) - beygja við Þangseyrames, þ.e. eystri beygjan.
11. Álftafjörður (nr. 13) - beygjan við Hólsnes austur af Geithellnum.
12. Lónsfjörður (nr. 15) - beygjan vestan við Karlsá.
13. Lónsfjörður (nr. 17) - beygjan við eystri enda brúarinnar yfir Jökulsá í Lóni.
14. Mýrdalur (nr. 20) - beygjan upp að Reynisfjalli, þ.e. vestari beygjan.
15. Mýrdalur (nr. 20) - beygjan yfir Hvammsá, þ.e. vestari beygjan.
16. Kambamir (nr. 21) - beygjan fyrir neöan útsýnisskífuna.
17. Kambarnir (nr. 21) - beygjan neðst í Kömbunum.
C-flokkur - varasamar beygjur:
1. Holtavörðuheiði (nr. 2) - beygjan fram af heiðinni.
2. Mývatn (nr. 6) - efsta beygjan Mývatnsmegm við Námaskarð.
3. Hvalnes (nr. 14) - beygjan út fyrir Eystra horn.
4. Lónsfjörður (nr. 16) - beygjan undir Hestshaus, stutt frá Hraunkotsafleggjaranum.
5. öræfi (nr. 18) - blindbeygja undir Fátækramannahóli.
6. Kambarnir (nr. 21) - beygja 2, skammt fyrir neöan útsýnisskífu.
7. Kambarnir (nr. 21) - beygja 3, skammt fýrir neðan útsýnisskifu.